Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
Ármúla 24 • rafkaup.is
20% ∙ 50% ∙ 70%
ÚTSALA
Opið virka daga kl. 9-18,
laugardaga kl. 11-16
Guðmundur G. Þórarinsson fv.alþ.m. og skákforingi skrifar
grein í Morgunblaðið í gær:
Nú eru miklar umræður umóróaseggi
sem ógna lýðræð-
inu. En um er að
ræða afleiðingar
ástandsins í þjóð-
félaginu. Stjórn-
völd samþykkja
hnattvæðingu án
þess að takast á
við afleiðingarnar,
samþykkja baráttu
gegn hlýnun jarðar án þess að tak-
ast á við áhrifin á þjóðfélagshópa.
Hin óábyrga hönd markaðarinshorfir til hagvaxtar en ekki
misræmis sem skapast, hin óvið-
ráðanlega áfergja dauðlegra
manna til að eignast allan heim-
inn. Við horfum undrandi á hundr-
uð metra af biðröðum fólks sem
bíður daglangt eftir að fá að kjósa.
Þessi tæknivæddasta þjóð sem
ferðast um heiminn og krefst lýð-
ræðis og mannréttinda getur illa
talið atkvæði í forsetakosningum
sínum, varð ekki hæstiréttur að
skera úr í kosningum Gores og
Bush, hvernig er lýðræði og mann-
réttindum háttað í helstu vina-
löndum Bandaríkjanna, t.d. Sádi-
Arabíu? Segðu mér hverjir eru
vinir þínir og ég skal segja þér
hver þú ert.
Svo virðist sem milljónumBandaríkjamanna finnist að
Trump með alla sína galla sé að
berjast fyrir rétti þeirra. Hin ráð-
andi stétt sé of langt frá hinu líð-
andi og stríðandi lífi fjöldans. Í
fornum bókum Íslendinga segir: Á
skal að ósi stemma. Takast þarf á
við orsakir óróans.“
Væru Staksteinar frjálslyndurvinstrimaður myndi hann
bæði banna og ritskoða GGÞ.
Guðmundur G.
Þórarinsson
Loka á hann
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umboðsmanni skuldara bárust í
fyrra samtals 905 umsóknir um að-
stoð vegna fjárhagsvanda. Umboðs-
maður hefur birt yfirlit yfir umsókn-
irnar í fyrra og kemur þar fram að
umsóknum fækkaði á seinustu mán-
uðum ársins og voru fæstar í einum
mánuði í desember sl. þegar 43 um-
sóknir bárust. Til samanburðar voru
umsóknir 53 í desember 2019.
Fjöldi umsókna um fjárhags-
aðstoð er mjög mismunandi eftir
mánuðum. Í janúar í fyrra bárust
118 umsóknir og í júní bárust emb-
ættinu 100 umsóknir og 92 í sept-
ember.
Mikill meirihluti umsækjenda bjó
í leiguhúsnæði, 577 manns. 50 voru
húsnæðislausir og 92 bjuggu í for-
eldrahúsum.
Stór hluti umsókna um fjárhags-
aðstoð, eða 258, kom frá atvinnulaus-
um einstaklingum, en stærsti hóp-
urinn eða 352 voru örorku- og
lífeyrisþegar.
Heldur fleiri umsóknir eða 492
komu frá körlum en konum sem voru
413 af öllum umsækjendum á síðasta
ári. Ef litið er á skiptingu umsækj-
enda eftir aldurshópum kemur í ljós
að stærsti hópurinn, eða 310, er fólk
á aldrinum 30-39 ára, 230 umsækj-
endur eru á aldrinum 40-49 ára og
214 eru aldrinum 18-29 ára.
905 umsóknir vegna fjárhagsvanda
Meirihluti umsækjenda um aðstoð
umboðsmanns skuldara á leigumarkaði
Morgunblaðið/Eggert
Aðstoð Margir leituðu til umboðs-
manns vegna fjárhagsvanda í fyrra.
Verið var að útbúa báta Laxa ehf.
með fóðurbyssum í gær og byrjar
fóðrun laxa í kvíum á Gripalda-
svæðinu í sunnanverðum Reyðarfirði
í dag. Lax var síðast fóðraður þar á
föstudag, en fóðurpramminn Muninn
sökk í illviðri aðfaranótt sunnudags.
Fuglanet á kvíum eru löskuð eftir
veðrið og verður skipt um þau á
næstu dögum þar sem þess er þörf.
Kvíarnar sjálfar og nótapokar urðu
ekki fyrir tjóni og er búnaðurinn
hannaður til að standast álag sem
þetta.
Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Laxa, segir að í gær
hafi veður verið stillt í Reyðarfirði og
aðstæður góðar fyrir kafara frá Köf-
unarþjónutsunni. Jens Garðar segir
að ákvörðun um björgunaraðgerðir
verði teknar þegar mat Köfunarþjón-
ustunnar, tryggingafélags og fleiri
liggi fyrir og þá með hvaða hætti og
hvenær prammanum verður lyft.
Allar aðgerðir eru í samráði við
Fjarðabyggðarhafnir, en svæði innan
fjarðar telst vera á hafnarsvæði sam-
kvæmt samþykktum sveitarfélagsins.
Jens Garðar segir að ekki hafi orðið
vart við olíu í sjónum þar sem
pramminn sökk.
Laxar ehf. eru nú með 32 eldis-
kvíar í Reyðarfirði og eru 16 þeirra
við Gripalda, en laxinn þar verður
ekki kominn í sláturstærð fyrr en
með haustinu.
Slátrun hófst hins vegar í gær á
Djúpavogi á laxi úr kvíum út af
Bjargi í norðanverðum firðinum eins
og áætlanir gerðu ráð fyrir. Flutti
brunnbátur um 120 tonn af fiski úr
Reyðarfirði til Djúpavogs. aij@mbl.is
Aðeins fuglanet
gáfu sig á kvíunum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Muninn Fóðurpramminn við eldiskvíar Laxa ehf. í Reyðarfirði.