Morgunblaðið - 13.01.2021, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
félags Íslands 2012, Stjórnunar-
verðlaun Stjórnvísi 2013 og
Þakkarviðurkenningu Félags
kvenna í atvinnurekstri 2014.
„Áhugamálin hafa mikið snúist
um ferðalög. Við hjónin höfum
ferðast víða og í öllum heimsálfum,
fyrir utan Suðurskautslandið. Við
höfum minnst verið í Afríku en höf-
um samt farið til Suður-Afríku,
Egyptalands, Marokkó og þess
fræga lands Namibíu. Ég hef áhuga
á klassískri tónlist, sérstaklega óp-
erum, og svo ég hef mikinn áhuga á
mat og víni og bestu ferðalögin eru
þegar þetta sameinast allt saman.“
Fjölskylda
Eiginmaður Eddu er Eyjólfur
Haraldsson, f. 29.7. 1940, læknir.
Þau eru búsett á Hvaleyrarholtinu í
Hafnarfirði. Foreldrar Eyjólfs voru
hjónin Sólveig Eyjólfsdóttir, f. 25.2.
1908, d. 31.1. 2005, húsfreyja og
matráðskona í Hafnarfirði, og Har-
aldur Þórðarson, f. 30.9. 1893, d.
1.10. 1951, skipstjóri í Hafnarfirði.
Fyrri eiginmaður Eddu er Valde-
mar Pálsson, f. 2.11. 1950, kennari.
Börn Eddu og Eyjólfs: 1) Eggert,
f. 22.8. 1981, læknir, búsettur í
Hafnarfirði. Maki: Hólmfríður H.
Morgan, f. 29.7. 1973, hjúkrunar-
fræðingur. Barnabörn eru Lilja
María, f. 1999; Danelíus, f. 2007;
Sveindís, f. 2009, Björn Ellert, f.
2011, og Guðbjörg Edda, f. 2015; 2)
Haraldur Sveinn, f. 15.3. 1985, d.
15.4. 2015, tónlistarmaður.
Systkini Eddu: Ellert Eggerts-
son, f. 1.8. 1946, flugvirki í Hafnar-
firði; Erla María Eggertsdóttir, f.
25.9. 1948, kennari í Hafnarfirði,
Eggert Ísak Eggertsson, f. 26.4.
1961, d. 10.11. 1964.
Foreldrar Eddu voru hjónin
Sesselja Erlendsdóttir, f. 15.7. 1924,
d. 24.8. 1995, húsmóðir og sauma-
kona í Hafnarfirði, og Eggert Ís-
aksson, f. 4.7. 1921, d. 30.3. 2009,
skrifstofustjóri og bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði.
Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir
Margrét Runólfsdóttir
húsfreyja í Holtsmúla í Landsveit
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi í Holtsmúla
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Rafnkelsstöðum,
síðar í Hafnarfirði
Ísak Bjarnason
bóndi á Rafnkelsstöðum í Gerðahr.
Eggert Ísaksson
skrifstofustjóri og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Guðrún Guðmundsdóttir
ráðskona í Gerðum
Bjarni Vigfússon
húsmaður Gerðum í Útskálasókn
Jórunn Erlendsdóttir
húsfreyja á Litlabæ í Álftanessókn á Mýrum
Þorvaldur Þorkelsson
bóndi á Litlabæ
Erlendur Þorvaldsson
söðlasmiður í Reykjavík
María Guðmundsdóttir
húsfreyja og vinnukona í Reykjavík
Rósa Jóhannesdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki,
síðar í N-Dakota og Seattle
Guðmundur Magnús Jónsson
bakari á Sauðárkróki, síðar í N-Dakota, BNA
Úr frændgarði Guðbjargar Eddu Eggertsdóttur
Sesselja Erlendsdóttir
húsfreyja og saumakona í Hafnarfirði
HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600
Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin.
Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi.
Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi.
Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn.
NÝ TÆKNI!
NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI
MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM
FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÓFEIGUR ER MÆTTUR Í SÍNA ÁRLEGU
LÆKNISSKOÐUN.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa sama
skopskyn.
SUMIR LEITA EFTIR
ANDLEGRI UPPLJÓMUN
ÉG ER BARA GLAÐUR ÞEGAR
ÉG FINN FJAR STÝRINGUNA
ENGAR ÁHYGGJUR, FÉLAGAR!
KONUNGURINN ER Á MÓTI PYNDINGUM!
NEI, ÞAÐ ER
HANN EKKI!
HAFIÐ ÞIÐ HEYRT
ÞENNAN ÁÐUR?
„ÞAÐ ER ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ GANGA AF
GÖFLUNUM – EN EF ÞAÐ VÆRI ÁSTÆÐA
TIL ÞESS, HVERNIG GERUM VIÐ ÞAÐ?”
Sigurður Hansen á Kringlumýri íSkagafirði sendi vinum sínum
svofellda áramótakveðju:
Áraraðir renna hjá
rennslið maður temur.
Æskan hraða, ellin grá
ekkert staðar nemur
Gunnar Rögnvaldsson á Löngu-
mýri í Skagafirði sendi Sigríði
Björnsdóttur á Kálfsstöðum í
Hjaltadal svohljóðandi afmæl-
iskveðju:
Lífsins klukka lipran gang
leiki á þína strengi.
Allt það besta falli í fang,
til framtíðar og lengi.
Íslenska landsliðið í handbolta yf-
irspilaði hið portúgalska í seinni
hálfleik, – Guðmundur Arnfinnsson
orti á Boðnarmiði: „Strákar okkar í
stuði“:
Landslið vort það fór á flug,
færði sport á hærra svið,
aftur skorti afl og dug
aumt hið portúgalska lið.
Ekki er ástandið gott, – Þórður
Júlíusson yrkir:
Ríkið er klárlega á kúpunni
því kreist er allt stöffið úr túpunni.
Túrhestar fældust
sem allir ásældust
og þjóðin – hún situr í súpunni.
Stefán Ingi Valdimarsson segist
alltaf hafa gaman af „fundnum
fyrri pörtum“ og vísar til þess, að
hann greip á lofti óbreyttan texta
úr fréttum RÚV:
Færeyingar meðal fárra sem
mega/ fara á barinn á kvöldin
Og botnaði:
Glaðlyndir drykkina görótta teyga,
gleyma hve dimm er nú öldin.
Maðurinn með hattinn kveður:
Þó Bakkus veki bölið flest
og brjáli skynsemd hlýja,
honum þjóna þyrstir best
og þeir sem lífið flýja.
Flett upp í Illgresi. Örn Arnarson
kveður:
Dýrt er landið, drottinn minn,
dugi ekki minna
en vera allan aldur sinn
fyrir einni gröf að vinna.
Hrekkvís kyndir heiftarbál.
Hræsnin veður elginn.
Aulabárði er alltaf mál
orð að leggja í belginn.
Mér varð allt að ís og snjó.
Oft var svalt í förum.
Ekki skaltu undrast þó
andi kalt úr svörum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lífsins klukka og
fundinn fyrri partur