Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE HOLLYWOOD REPORTER
CHICAGO SUN-TIMES
Bókin Strendingar inniheld-ur einlæga frásögn af fjöl-skyldulífi og samtaka-mætti. Þar mætast sjónar-
horn foreldranna Evu og Péturs,
barnanna Silju, Steinars og Ólafíu,
heilabilaða afans Bergs og síðast en
ekki síst kattarins
Mjálmars, sem
kallar sjálfan sig
reyndar Sahure.
Hvert og eitt
þeirra, að kett-
inum undan-
skildum, glímir
við sín mannlegu
vandamál. Eva
lendir í átökum
við bæjarbúa í smábænum sem fjöl-
skyldan býr í þegar hún setur sig
upp á móti áformum sóknarnefnd-
arinnar, Pétur er nýbúinn að missa
móður sína og þarf að takast á við
sjúkdóm föður síns, Silja er að upp-
götva sig bæði sem einstakling og
kynveru og Steinar skilur heiminn í
kringum sig illa. Ólafía sem er ekki
enn farin að tala glímir við þann pirr-
ing sem verður til þegar fólk skilur
hana ekki og heimur Bergs er orðinn
óraunverulegur og hugur hans flakk-
ar um í tíma og rúmi.
Yrsu Þöll Gylfadóttur, höfundi
bókarinnar, tekst virkilega vel að
leyfa þessum sjö röddum að heyrast
án þess að sagan verði flókin eða
ruglingsleg. Hver persóna á sína sér-
stöku rödd og því er auðvelt fyrir les-
andann að greina á milli þeirra.
Margröddun sögunnar gerir hana
marglaga og fær lesandinn að snerta
örlítið á því dýpi sem hver og ein per-
sóna hefur upp á að bjóða.
Sagan fjallar að stórum hluta um
tilfinningar. Þar er rætt á opinskáan
hátt um geðheilbrigði og hinn mann-
lega tilfinningaskala sem stundum er
erfitt að takast á við. Í sögunni finn-
ast tilfinningar sem er erfitt að ræða
og jafnvel erfitt að festa fingur á og
tekst Yrsu með mikilli lagni að
greina frá þessum tilfinningum og
þannig snerta eitthvað órætt í sál les-
andans.
Söguþráðurinn er hversdagslegur
en einhverri spennu er þó haldið uppi
og er það líklega helst hlý frásagnar-
aðferðin sem snertir við lesandanum
og fær hann til að vilja halda áfram
ferðinni um hugarheima fjölskyld-
unnar.
Bókin býður upp á indæla lesn-
ingu, sprenghlægilega á köflum.
Yrsa hefur þó ekki fundið upp hjólið
með Strendingum og þótt bókin sé
einstök er ekki um neitt nýtt eða
brakandi ferskt efni að ræða. Ein-
faldlega sögu um líf einnar fjölskyldu
á jörðinni, fjölskyldu sem mörg okk-
ar geta eflaust samsamað sig við.
Hversdagurinn tekur sviðið
Morgunblaðið/RAX
Höfundurinn „Bókin býður upp á indæla lesningu, sprenghlægilega á köfl-
um,“ segir gagnrýnandi um Strendinga Yrsu Þallar Gylfadóttur.
Skáldsaga
Strendingar
bbbnn
Eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur.
Bjartur, 2020. Innbundin, 264 bls.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Hinn kunni
breski hljóm-
sveitarstjóri sir
Simon Rattle hef-
ur tilkynnt að
eftir tvö ár muni
hann láta af
störfum sem
aðalstjórnandi
London Symph-
ony Orchestra og
taka við stjórnartaumum
Útvarpshljómsveitarinnar í
München. Rattle, sem er 65 ára,
segir ákvörðunina um flutninginn
vera persónulegan en eiginkona
hans og þrjú börn á skólaaldri búa í
Þýskalandi. Í The New York Times
er bent á að Rattle hafi, eins og
margir aðrir breskir listamenn,
verið afar ósáttur við brexit og sagt
í viðtölum að hann telji aðskilnað
Breta frá Evrópusambandinu koma
niður á menningarlífinu og þar á
meðal á möguleikum London
Symphony til að fara í mikilvægar
tónleikaferðir.
Haft er eftir Nicholas Kenyon,
stjórnanda Barbican-listamiðstöðv-
arinnar og ritara ævisögu Rattles,
að flutningur stjórnandans verði
mikill missir fyrir tónlistarlífið í
Bretlandi.
Rattle tekur við
stjórn í München
Helga Björg
Kjerúlf hefur
verið ráðin fram-
kvæmdastjóri
myndlistarhátíð-
arinnar Sequenc-
es. Helga hefur
komið að ýmsum
listviðburðum í
gegnum tíðina,
svo sem Lista-
hátíð í Reykjavík og myndlistar-
hátíðinni Cycle. Hún starfar einnig
hjá Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar sem verkefnastjóri ís-
lenska skálans í Feneyjum.
Helga útskrifaðist með BA-gráðu
í arkitektúr árið 2012 frá Listahá-
skóla Íslands. Þá er hún einnig að
ljúka meistaranámi í markaðsfræði
og alþjóðaviðskiptum og nýsköpun
og viðskiptaþróun frá viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands.
Helga Björg mun
stýra Sequences
Helga Björg Kjerúlf
Verðlaun samtaka bandarískra kvik-
myndagagnrýnenda voru veitt á
laugardaginn og var kvikmynd leik-
stjórans Chloé Zhao, Nomadland,
verðlaunuð sem sú besta á nýliðnu
ári. Hlaut hún fern verðlaun: besta
kvikmynd, besta kvikmyndataka,
besta leikstjórn og besta leikkona í
aðalhlutverki (Frances McDorm-
and).
Delroy Lindo hlaut verðlaun sem
besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik
sinn í Da 5 Bloods, kvikmynd Spike
Lee, og Maria Bakalova var valin
besta leikkona í aukahlutverki fyrir
leik sinn í gamanmyndinni Borat
Subsequent Moviefilm. Paul Raci
hlaut sömu verðlaun í flokki karla
fyrir leik sinn í Sound of Metal.
Verðlaun fyrir besta handrit hlaut
Eliza Hittman fyrir Never Rarely
Sometimes Always og besta erlenda
kvikmyndin þótti Collective.
Kosning fór þannig fram að gagn-
rýnendur völdu þrjár kvikmyndir
eða manneskjur í hverjum flokki og
röðuðu í fyrsta, annað og þriðja sæti.
Voru stig þannig gefin eftir vægi og
þá flest fyrir fyrsta sætið, að því er
fram kemur á vef kvikmyndatíma-
ritsins Variety. Að samanlögðum
stigum fengust fyrrnefnd úrslit. Best Frances McDormand í Nomadland sem hlotið hefur fjölda verðlauna.
Nomadland best að
mati gagnrýnenda
Simon Rattle