Morgunblaðið - 20.01.2021, Side 6

Morgunblaðið - 20.01.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Svo gæti farið að almenningssal- ernið neðst í Bankastræti, sem í daglegu tali er kallað Bankastræti núll, fái sérstaka lóð og þá mögu- lega nýtt númer, Bankastræti 1. Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) fyrir hönd forsætisráðu- neytis og Ríkissjóðs Íslands hefur óskað eftir því að lóðin Lækjargata 1 verði deiliskipulögð. Ekkert slíkt skipulag er í gildi fyrir lóðina en þar sem til stendur að byggja við- byggingu við hús Stjórnarráðsins á lóðinni er þörf á deiliskipulagi. Í tengslum við þessa vinnu hefur Framkvæmdasýslan sent inn um- sókn til skipulagsfulltrúans í Reykjavík vegna breytinga á lóð- armörkum Lækjargötu 1. „Ný lóð mun afmarkast af núver- andi lóðarmörkum við Bankastræti og útbrúnum steyptra veggja um- hverfis tröppu að Núllinu innan lóð- ar ráðuneytisins, þar sem steyptir veggir telja með tröppunni. Með þessu verði til tvær aðgreindar lóð- ir, sem verða báðar í eignarhaldi Ríkissjóðs Íslands,“ segir í umsókn- inni. Næsta lóð fyrir ofan er Banka- stræti 3, þar sem verslunin Stella er til húsa, svo mögulega fær Núllið því númerið 1 í framtíðinni. Ekki verður um stóra lóð að ræða því rýmið sjálft í Núllinu er ekki nema 37,5 fermetrar. Í fylgigögnum Framkvæmdasýsl- unnar til borgarinnar með umsókn um heimild til gerðar deiliskipulags á lóð Lækjargötu 1 er að finna um- sögn Borgarsögusafns Reykjavík- ur. Þar segir m.a: „Innan núverandi marka Stjórnarráðshússlóðarinnar er einnig hluti af mannvirkinu sem kallað hefur verið Núllið, almenn- ingssalerni sem byggt var neðst í Bankastræti árið 1930 og þjónaði sem slíkt allt til 2006, en hefur síð- an hýst gallerí, sýningar og Pönk- safn Íslands. Þetta mannvirki var ekki tekið fyrir í húsakönnuninni frá 2001, svo skráning þess og mat á varðveislugildi liggur ekki fyrir. Önnur hús eða mannvirki eru ekki á lóð Stjórnarráðsins í dag.“ Í alfræðiritinu Wikipediu segir að Núllið sé almenningssalerni í mið- borg Reykjavíkur. Kallað núllið fyrst og fremst vegna staðsetningar sinnar neðst í Bankastrætinu, neð- an við fyrstu númeruðu lóðirnar. Um árabil voru þessi salerni mikið sótt af almenningi en „salern- isstarfsemi“ var hætt fyrir all- mörgum árum, eða árið 2006. Árið 2014 ákvað Reykjavíkurborg að gera tilraun til að hleypa lífi í rýmin og auglýstu þau laus undir sýn- ingahald. Þegar komið er niður Banka- stræti er karlaklósettið á hægri hönd og kvennaklósettið á vinstri hönd. Þar er nú rekið Pönksafn Ís- lands en listsýningar hafa einnig verið haldnar á salerninu karla megin. Næsta lóð fyrir ofan kvennaklósettið er Bankastræti 2. Það hús tilheyrir Bernhöfts- torfunni. Veitingahúsið Lækj- arbrekka var þar lengi til húsa. Fær Núllið götunúmerið eitt?  Ósk um að skipta upp lóð Stjórnarráðsins  Almenningssalernið Núllið yrði þá á sérstakri lóð Morgunblaðið/Eggert Núllið Almenningssalernið við hlið Stjórnarráðsins. Til stendur að afmarka sérstaka lóð undir þetta mannvirki. grennið. Gaumgæfa skal vel stærð og útlit ný- bygginga með tilliti til stærðar og aldurs húsa í næsta nágrenni,“ segir skipulagsfulltrúi. Kaup á lóðinni Bræðraborgarstíg 1 og að- liggjandi húsi eru gengin í gegn að sögn Run- ólfs. Kaupverð er 270 milljónir króna. Kröfu fyrrverandi íbúa við Bræðraborgarstíg 1 um kyrrsetningu á eignunum var hafnað í síðustu viku og því ætti ekki að vera neitt því til fyr- irstöðu að hefja niðurrif og hreinsun á svæðinu. „Nema það að við þurfum að sækja um starfs- leyfi til að fá að rífa húsið. Heilbrigðiseftirlitið þarf að auglýsa þá umsókn og það tekur fjórar vikur. Fyrr getum við ekki byrjað, segir Run- ólfur en háværar kröfur hafa verið um niðurrif brunarústanna til að afstýra slysahættu. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Skipulagsfulltrúi kom með ágætisábendingar og við munum vinna með borginni í að koma þessu fyrir og gæta þess að byggingin sé í stíl við götumyndina,“ segir Runólfur Ágústsson, einn aðstandenda Þorpsins vistfélags sem hyggst byggja á brunareitnum við Bræðra- borgarstíg og á lóðinni við hliðina. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er stefnt að því að reisa 26 íbúða hús við Bræðra- borgarstíg í anda svokallaðra Baba yaga- systrahúsa. Íbúðirnar eru ætlaðar konum yfir sextugu sem aðhyllast femínisma og deila sam- bærilegum lífsviðhorfum. Búið verður þétt og mikil sameign. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur- borgar segir í umsögn um byggingaráformin á Bræðraborgarstíg að núverandi áform Runólfs og félaga séu „full umfangsmikil að teknu tilliti til nágrennisins“. Vel er tekið í hugmyndir hönnuða um að endurbyggja timburhús á lóð Bræðraborgarstígs 3 í upprunalegri mynd en lagst er gegn nýrri hornbyggingu sem fyrir- huguð er á lóðamörkum Bræðraborgarstígs og Vesturgötu. Segir skipulagsfulltrúi að vel megi mynda lokaðan bakgarð með nýrri aðstöðu fyr- ir íbúa og gesti með öðrum hætti en áformað sé. „Skoða verður möguleika á minna bygging- armagni og eins gaumgæfa vel breytingu á skuggavarpi sem uppbyggingin varpar á ná- Áform á brunareit „full umfangsmikil“  Skipulagsfulltrúi gerir athugasemd við byggingaráform á Bræðraborgarstíg  Niðurrif mun tefjast Morgunblaðið/Eggert Rústir Minnst fjórar vikur eru þar til hægt verður að hefja niðurrif á Bræðraborgarstíg. Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað nýbyrjaðan áratug, 2021 til 2030, endurheimt vistkerfa. Áratugurinn er „ákall um verndun og endurheimt vistkerfa um heim allan í þágu fólks og náttúru og rík áhersla er lögð á samvinnu og samstarf um að setja móður jörð alltaf í fyrsta sætið,“ seg- ir á heimasíðu Landgræðslunnar (land.is). Opnuð hefur verið heima- síða, endurheimtvistkerfa.is. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir í ávarpi á síðunni að í þessu fel- ist „að stöðva eyðingu vistkerfa, að öll nýting þeirra sé sjálfbær og að laga það sem hefur farið úrskeiðis í gegnum tíðina“. Hann sagði að til þess að við getum uppfyllt þarfir okkar og komandi kynslóða þurfi vistkerfin að vera heilbrigð og með eðlilega starfsemi. Þá eru vistkerfin miðpunkturinn í loftslagsumræðunni. Því þarf að tryggja aukið vistlæsi og er það ein ástæðan fyrir þessari áherslu Sam- einuðu þjóðanna. Eyðing vistkerfa veldur oft losun gróðurhúsaloftteg- unda út í andrúmsloftið, ekki síst jarðvegseyðing. Dýrmætt lífrænt efni verður jarðvegseyðingu að bráð og myndar koltvísýring. Þurrkun votlendis er gott dæmi um slíkt. Vistkerfin eru líka hluti af lausn- inni. Þau geta bundið kolefni, sér- staklega í jarðvegi, og á það m.a. við um endurheimt eða ræktun skóga og uppgræðslu lands. Þannig má vega upp á móti losun af mannavöldum. „Ísland er mjög gott dæmi um hvernig vistkerfi hafa eyðst eða hnignað á stórum hluta landsins. Í yfir eina öld höfum við unnið að því að stöðva þessa eyðingu og jafnframt að endurheimta það sem horfið er. Jarðvegur hefur eyðst á stórum hluta landsins. Það getur tekið aldir að byggja hann upp á nýjan leik. Stærsti hluti skóga landsins hefur eyðst og það mun líka taka langan tíma að byggja þá upp á nýjan leik,“ sagði Guðmundur Ingi. Hann sagði að um samfélagslegt verkefni sé að ræða og því mikilvægt að tengja það við mikilvægt átak eins og áratug endurheimtar vistkerfa. gudni@mbl.is Endurheimt vistkerfa  Sameinuðu þjóðirnar hafa helgað nýbyrjaðan áratug end- urheimt vistkerfa  Ísland gott dæmi um eyðingu vistkerfa Morgunblaðið/RAX Uppblástur Landið hefur víða fokið burt. Snúa þarf við eyðingu vistkerfa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.