Morgunblaðið - 20.01.2021, Side 10

Morgunblaðið - 20.01.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Þverun Þorskafjarðar í Reykhóla- hreppi er mikið verk, landfylling og brú. Útboð verksins hefur nú verið auglýst á Evrópska efnahagssvæð- inu. Nýi vegurinn frá Kinnarstöðum að Þórisstöðum er alls 2,7 kílómetrar að lengd og styttir Vestfjarðaveg um rúma níu kílómetra. Áætlað er að 350 þúsund rúmmetrar af efni fari í fergingu á botni fjarðarins og fyll- ingu og 37 þúsund rúmmetrar í grjótvörn þar utan á, auk styrktar- lags, burðarlags og klæðingar. Brúin verður steinsteypt, 260 metrar að lengd. Hún verður eftir- spennt bitabrú í sex höfum. Tvö höf- in eru 38 metrar að lengd en fjögur 46 metrar. Stöplar brúarinnar verða steyptir og grundaðir á niðurreknum steypt- um staurum sem áætlað er að verði allt að 23 metra langir. Verða 25 staurar undir hvorum landstöpli en 46 undir hverjum millistöpli. Brúin verður tíu metra breið og þar af er akbrautin níu metrar. Ljúka skal verkinu fyrir 30. júní 2024. Þverun Þorskafjarðar er liður í lagningu nýs Vestfjarðavegar frá Þorskafirði að Skálanesi. helgi@mbl.is Nýja brúin verður í sex höfum  Nýr vegur um Þorskafjörð á 2,7 km kafla  Áætlað að 350 þúsund rúmmetrar efnis fari í fergingu á botni og fyllingu og 37 þúsund rúmmetrar í grjótvörn Tölvuteikning/Vegagerðin Þorskafjörður Meginhluti vegarins liggur á landfyllingu en brúin er 260 metra löng í sex höfum. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ísafjarðarbær hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi við Vallargötu á Þingeyri vegna Sólsetursins. Um er að ræða manngengt listaverk, skúlp- túr, sem verður að hámarki 600 fer- metrar að flatarmáli á um 3.000 fer- metra lóð. Þar mun allur almenningur geta notið náttúru stað- arins og samspils landsins, fjör- unnar, hafsins og sólarinnar. Listaverkið Sólsetrið mun einnig ramma inn sólarlagið í Dýrafirði. Gert er ráð fyrir að bílastæði og sal- ernisaðstaða sem þjóna m.a. Vík- ingasvæðinu á Þingeyri þjóni einnig þessu svæði. Bæjarstjórn Ísafjarð- arbæjar samþykkti einróma á liðnu hausti samstarfssamning bæjarins og Pálmars Kristmundssonar, arki- tekts og Dýrfirðings, vegna verkefn- isins. „Hugmyndin var að þetta yrði komið upp á árunum 2022-2023 og það er enn stefnt að því. Það veltur þó allt á fjármögnun en það er ekki búið að fjármagna verkefnið,“ sagði Pálmar. Hann sagði að hópur sé á bak við hugmyndina þótt ekki sé enn búið að stofna formlegan félagsskap. Fá þurfi leyfi fyrir staðsetningu áður en lengra er haldið. Komin er hug- mynd að listaverkinu, hvað á að vera í því og hvernig það á að virka. Fulln- aðarhönnun er ekki lokið. Heimkynni sólarlagsins Bæjarins besta á Ísafirði sagði frá því í haust að verkefnið sé komið inn í áfangastaðaáætlun fyrir Vestfirði sem Vestfjarðastofa vinnur að. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 150 milljónir, að sögn Pálmars. „Þetta er útsýnisstaður og hugs- aður út frá sólsetrinu í mynni fjarð- arins. Síðan verður tenging við sól- setur á 24 stöðum í heiminum, í hverju tímabelti, í rauntíma,“ sagði Pálmar. Búið er að velja staði þar sem myndavélarnar verða settar upp. Skipt verður um útsending- arstað á klukkustundar fresti allan sólarhringinn. Þannig munu gestir Sólsetursins alltaf geta horft á sól- setrið einhvers staðar í heiminum. Pálmar vissi ekki til þess að þetta verk eigi sér nokkra hliðstæðu í heiminum. Verði deiliskipulagsbreytingin samþykkt fer hönnunarvinna á fullt samhliða fjármögnun, að sögn Pálm- ars. „Það hafa margir sýnt þessu áhuga en maður veit aldrei fyrr en á hólminn er komið með fjármögnun. Við erum bjartsýnir á að það verði hægt að gera þetta á 2-3 árum,“ sagði Pálmar. En er sólarlagið nokk- urs staðar fallegra en í Dýrafirði? „Við Dýrfirðingar höldum því fram að þar séu heimkynni sólsetursins og að sé hvergi fallegra en í Dýrafirði. Í byrjun maí og í september sest sólin alveg í miðjan fjörðinn. Það eru há- punktar ársins,“ sagði Pálmar. Skúlptúr til heiðurs sólarlaginu  Sólsetrið á Þingeyri manngengt listaverk  24 sólsetur á sólarhring Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fegurð Litadýrð sólarlagsins getur verið ólýsanleg, eins og flestir vita. Í Sólsetrinu á Þingeyri verður sýnt sólarlag um allan heim í rauntíma. Hafrannsóknastofnun stefnir að mælingu á loðnu fyrir norðan land og úti af Vestfjörðum í næstu viku þegar brælan sem er í kortunum gengur niður. Líkur eru taldar á að hafís í Grænlandssundi gefi sig á næstu dögum og hann hörfi í stífri norðaustanáttinni sem er fram und- an. Miðað er við að nokkur skip fari í þennan leiðangur, þ.e. veiðiskip ásamt rannsóknaskipum Hafrann- sóknastofnunar. Polar Amaroq og Ásgrímur Hall- dórsson voru að mælingum úti fyrir Austfjörðum um miðjan dag í gær. Bjarni Ólafsson AK hefur jafnframt tekið þátt í verkefninu með það hlut- verk að afmarka dreifingu loðnunn- ar. Verkefni skipanna lýkur vænt- anlega í dag og fljótlega ætti að liggja fyrir hve mikið er af loðnu á ferðinni þar. Nokkur skip til mælinga í næstu viku Vertíð Óvissa er með loðnuveiðar. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Þrjár verslanir í strjálbýli hafa fengið úthlutað styrkjum, samtals að upphæð tólf milljónum króna. Alls bárust fimm umsóknir og var sótt um samtals tæplega 35 millj- ónir fyrir þetta ár. Hríseyjarbúðin fær eina milljón króna í styrk. Verslun á Reykhól- um hlýtur styrk að upphæð 5,8 milljónir vegna stofnkostnaðar við opnun og reksturs. Kauptún í Vopnafirði fær 5,2 milljónir í styrk. Styrkirnir eru veittir á grund- velli stefnumótandi byggðaáætl- unar fyrir árin 2018-2024 og hef- ur samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra staðfest tillögur valnefndar um úthlutun- ina. Markmið með framlögunum er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustu- kjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin eiga að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, segir m.a. á heimasíðu Byggða- stofnunar. Tólf milljónir til verslana í strjálbýli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.