Morgunblaðið - 20.01.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 20.01.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021 Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Copenhagen Shoes She Patent Nú 11.994 kr. 19.990 kr. Útsala 40-60% afsláttur af útsöluvörum SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Joe Biden sver í dag eið sem 46. forseti Bandaríkjanna við athöfn á tröppum þinghússins í Washington DC. Kamala Harris sver eið sem varaforseti en hún er fyrst banda- rískra kvenna til að gegna því starfi. Athöfnin hefur verið með nánast óbreyttu sniði í áratugi en tekur miklum breytingum nú vegna kórónuveirufaraldursins og hryðjuverkaógnar í bandaríska höfuðstaðnum. Innsetningarathöfnin verður mun smærri í sniðum nú en oftast áður. Hið eina sem kveðið er á um í lögum að gerast skuli á athöfn- inni er eiðfesta Bidens og Harris en eiður forsetans hljóðar svo: „Ég sárt við sver að ég mun af trúfestu sinna starfi Bandaríkjaforseta og mun af minni bestu getu varðveita, vernda og verja stjórnarskrá Bandaríkjanna.“ Þegar hann hefur sagt eiðinn er Biden orðinn forseti Bandaríkj- anna, hinn 46. í röðinni. Kamala Harris les sinn eið og venjan er sú að varaforseti gangist undir sinn eið rétt á undan sjálfum forset- anum. Tilgreint er í lögum að innsetn- ing nýs forseta skuli eiga sér stað 20. dags janúarmánaðar. Hefst hún venjulega klukkan 11:30 að stað- artíma, 16:30 að íslenskum tíma. Verða Joe Biden og Kamala Harr- is svarin í embætti um hádegið. Bi- den flytur svo inn í Hvíta húsið síðdegis og þar verður heimili hans næstu fjögur árin. Höfuðborgin girt af Venjan er að dregin er upp áætl- un um öryggisvörslu á innsetning- unni. Verður gæslan í dag miklu umfangsmeiri vegna áhlaups skríls sem styður Donald Trump fráfar- andi forseta á þinghúsið 6. janúar sl. Hefur stór hluti borgarinnar verið girtur af til að draga úr lík- um á hryðjuverkum. Bandaríska leyniþjónustan stýrði skipulagi og undirbúningi gæslunnar sem 25.000 þjóðvarðliðar með alvæpni munu sinna auk mörg þúsund lög- reglumanna. Neyðarástandsreglum hefur ver- ið lýst yfir í höfuðborginni, Wash- ington DC, í aðdraganda innsetn- ingarinnar og verður ekki aflétt fyrir en eftir að hún hefur farið fram. Matt Miller, sem stýrir ör- yggismálunum fyrir hönd leyni- þjónustunnar, sagði fyrir skömmu að undirbúningur öryggisráðstaf- ana hefði staðið yfir í rúmt ár. Öryggi ógnað Öryggisógnin hefur breytt at- höfninni og þrátt fyrir að Biden hafi knúið á um að sverja sinn eið utanhúss samkvæmt venju verða gestir athafnarinnar verulega færri en áður. Samkvæmt hefð hefur fráfarandi forseti verið við- staddur innsetningu arftaka síns. Annað verður uppi á teningnum í dag því Trump verður hvergi sjá- anlegur þar. „Við alla þá sem spurt hafa þá fer ég ekki til embættis- tökunnar 20. janúar,“ tísti Trump á samfélagsmiðlinum Twitter 8. janúar eða rétt áður en lokað var á hann. Samkvæmt fréttum fara Trump og nánasta fylgdarlið til sveitaset- ur síns, Mar-a-Lago, í Flórída. Stuðningsmenn hans hafa sagt að þeir væru með áform um innsetn- ingu Trumps í sýndarveruleika á netinu sem forseta annað kjörtíma- bil. Rúmlega 68.000 manns hafa boðað áhorf á sýndarathöfnina til stuðnings Trump. Undir venjulegum kringumstæð- um væri mannmergð á götum úti í Washington DC innsetningardag- inn. Krökkt væri á breiðgötunni National Mall og hvergi hótelgist- ingu að fá nema hún væri bókuð með löngum fyrirvara. Áætlað var t.a.m. að tvær milljónir gesta hafi komið til borgarinnar til að upplifa innsetningu Baraks Obama árið 2009. Fólk hvatt til að vera heima Umfang viðburða að þessu sinni er afar þröngt skorið. Hafa for- svarsmenn framboðs Bidens hvatt landsmenn til að sleppa því að ferðast til höfuðborgarinnar. Undir það hafa borgaryfirvöld tekið, ekki síst eftir atburðina á þinghúshæð- inni 6. janúar. Hafa áhorfendapall- ar meðfram hátíðarleiðinni verið teknir niður. Ein hefð sem haldið verður í er að Biden og Harris munu sverja embættiseiða framan við þinghús- ið, þaðan sem sést yfir breiðgöt- una, National Mall. Sú formfesta hefur verið við lýði frá því Ronald Reagan fyrrverandi forseti sór eið 1981. Viðstaddir þá athöfn hafa verið um 200.000 manns. Í ár verða þeir aðeins 200 og sitja í sætum með lágmarksfjarlægð á milli. Andlitsgrímur verða í boði fyrir alla gestina á sviðinu og þeir þurfa að hafa undirgengist skimun fyrir kórónuveirunni í gær og fyrradag. Biden hefur sagst munu taka grímu sína niður er hann sver eið. Í stað hinnar hefðbundnu heið- ursfarar niður Pennsylvania Avenue til Hvíta hússins í lok at- hafnarinnar verður efnt til „sýnd- argöngu“ þvert yfir Bandaríkin í sýndarveruleika á netinu. Athöfninni lýkur með því að Bi- den skoðar heiðursvörð hersins en að því loknu fylgja fulltrúar banda- ríska hersins og herhljómsveit for- setanum og varaforsetanum og mökum þeirra til Hvíta hússins. Kunnir bandarískir listamenn munu koma fram við athöfnina. Fremst í flokki er Lady Gaga, ákafur stuðningsmaður Bidens, sem syngur þjóðsönginn. Auk hennar mun m.a. Jennifer Lopez syngja við athöfnina. Hefð er fyrir því að halda dansleiki um kvöldið, en þeim hefur öllum verið frestað vegna faraldursins. Joe Biden sver forsetaeið  Öryggisógnin hefur breytt athöfninni  Biden knúði á um að fá að sverja eið utanhúss eins og verið hefur  Gestir athafnarinnar verða margfalt færri en áður vegna mun skarpari öryggisráðstafana 500 m Öryggisfulltrúar vara við því, að vopnaðir öfgamenn séu ógn við öryggi í Washingtonborg og einnig í höfuðborgum annarra ríkja í Bandaríkjunum Washington DC, mikill viðbúnaður vegna embættistöku Heimild: Bandaríska leyniþjónustan, National Park Service, lögreglan, fjölmiðlar Embættistaka Joe Biden og Kamala Harris við þing- húsið Biden kemur í Hvíta húsið 3 2 1 Potomac-áin Girðingar með gaddavír, steinsteypu- blokkir Akstursbann Jarðlestar- stöðvar lokaðar Gistirými takmarkað; AirBnB tekur ekki við bókunum Washington minnismerkið Lincoln minnismerkið Allt að 21 þúsund þjóðvarðliðar kallaðir út Mótmæli takmörkuð, almenningi ráðlagt að halda sig fjarri þinghúsinu og fylgjast með á netinu Pennsylvania Ave. 5 km WASHINGTON DC Blómsveigur lagður í Arlington þjóðargraf- reitnum Fjöldi gesta tak- markaður við 1.000 Engin hátíðar- móttaka National Mall Alríkissaksóknarar í Virginíu-ríki ákærðu í gær Thomas Edward Cald- well fyrir að hafa leitt samsæri um glæpi gegn Bandaríkjunum, en Cald- well er sagður leiðtogi öfgahóps, sem kallar sig „Oath Keepers“. Um átta til tíu manns sem tilheyrðu hópnum tóku þátt í árásinni á þinghús Banda- ríkjanna 6. janúar síðastliðinn, og voru þeir með hjálma og í hlífðarfatn- aði fyrir hermenn. Samsæri um að fremja afbrot eru litin ómildum augum í bandarísku réttarfari, en Caldwell er að auki ákærður fyrir að hafa truflað op- inberar athafnir og ofbeldisfullt hús- brot. Rúmlega 100 manns hafa verið ákærðir vegna árásarinnar til þessa, en ákærurnar hafa flestar lotið að minni háttar afbrotum í tengslum við hana. Bandaríska alríkislögreglan FBI hóf hins vegar um helgina hand- tökuaðgerðir gegn öfgahópum, sem sagðir eru hafa undirbúið sig fyrir árásina og skipulagt í þaula. Alríkissaksóknarar í Arizona-ríki héldu því fram fyrir helgi að sterk rök bentu til þess að hluti þeirra sem réð- ust á þinghúsið hafi ætlað sér að handsama og myrða kjörna fulltrúa. Michael Sherwin, alríkissaksóknari Washington-borg, sagði hins vegar á föstudaginn að engin bein sönn- unargögn væru á þessari stundu fyrir því að slíkar aftökusveitir hefðu verið á meðal þeirra sem réðust á þing- húsið. Útskýrði Sherwin „misræmið“ á milli sín og saksóknaranna í Arizona sem svo að rannsóknin væri viðamikil og víðfeðm, og að mögulega hefðu þeir upplýsingar sem tengdust ekki beint þeim gögnum sem saksóknarar í Washington-borg hefðu undir hönd- um. sgs@mbl.is Fyrsta ákæran fyrir samsæri  Rúmlega 100 manns hafa verið ákærðir vegna árásarinn- ar á þinghúsið  Ekki beinar sannanir fyrir aftökusveitum AFP Árásin Rúmlega 100 hafa verið ákærðir fyrir árásina á þinghúsið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.