Morgunblaðið - 20.01.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.01.2021, Qupperneq 14
14 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021 ✝ Erlingur Ragn-ar Lúðvíksson húsasmíðameistari og slökkviliðsmað- ur fæddist í Reykja- vík 6. júní 1939. Hann lést á lungna- deild Landsspít- alans 7. janúar 2021. Foreldrar Er- lings voru hjónin Björg Einarsdóttir, f. 21. september 1905, d. 19. mars 1993, starfsmaður á til- raunastöðinni Keldum og Lúð- vík G. Gestsson, f. 22. febrúar 1897, d. 27. maí 1985, bókbind- ari. Bróðir Erlings var Einar Guðgeir Þorbjörn, f. 9. janúar 1934, lést af slysförum 27. mars 1955, kona hans var Inga Her- bertsdóttir, f. 6. nóvember 1935, og áttu þau soninn Einar Ingþór, f. 14. desember 1954. Erlingur kvæntist 21. apríl 1962 Jakobínu Ragnheiði Inga- dóttur f. 1. febrúar 1942, ritara, dóttur hjónanna Guðrúnar Gísladóttur, f. 26. desember 1918, d. 17. febrúar 1988, og Inga Gests Sveinssonar, f. 4. nóvember 1919, d. 12. maí 2000. Börn þeirra eru: 1) Ingi Einar, 3) Björg Ragna, f. 9. nóv- ember 1967, löggiltur endur- skoðandi. Eiginmaður hennar var Matthías Bjarki Guðmunds- son tæknifræðingur, f. 25. apríl 1967, hann lést 26. janúar 2011. Synir þeirra: a) Lúðvík Már, f. 2. september 1996, nemi í sjúkra- þjálfun. b) Máni, f. 19. maí 1999, atvinnumaður í blaki í Þýska- landi. c) Markús Ingi, f. 25. febr- úar 2001, nemi í HÍ. Erlingur hóf húsasmíðanám 15 ára hjá Bjarna Ólafssyni, smíðakennaranum sínum í Laugarnesskóla, og urðu Bjarni og KFUM hans klettar á erfiðum tímum er Erlingur missti bróður sinn. Alla tíð var KFUM honum mjög kært og Vatnaskógur þar sem hann var heilt sumar. Ungur æfði hann fótbolta og handbolta með Fram og síðar ÍR. Erlingur vann mikið í fé- lagsmálum íþróttafélaganna. Hann vann um tíma sem vall- arstjóri í Kópavogi. Erlingur tók sveinspróf í húsasmíði 1958 og síðar fékk hann meistararéttindi. Erlingur gekk til liðs við Slökkvilið Reykjavíkur 1968 og vann þar í 35 ár til 2003. Útför Erlings verður gerð frá Digraneskirkju 20. janúar 2021 og hefst kl. 11. Streymt verður frá heimasíðu Digraneskirkju: https://www.digraneskirkja.is Virkan hlekk á streymi má finna: https://www.mbl.is/andlat f. 8. maí 1963, rekur rútufyrirtæki og húsasmiður. Kona hans var Ragnheið- ur Sigurðardóttir, f. 7. júlí 1959, þau skildu. Fyrir átti Ragnheiður dótt- urina Steinunni Vigdísi, f. 14. maí 1983. Synir þeirra: a) Erlingur, f. 7. apríl 1991, sambýl- iskona Heiðrún Hafþórsdóttir, f. 19. janúar 1986, sálfræðingur, sonur Lúkas Atli, f. 23. júní 2015. b) Jakob Ingason, f. 17. desember 1992, báðir starfandi við rútufyrirtæki Inga. 2) Elvar Örn, f. 28. júni 1965, íþrótta- og ökukennari. Eig- inkona hans er Sólveig Valgeirs- dóttir, f. 10. janúar 1964, íþróttafræðingur og starfs- maður ITR. Dætur þeirra a) Kara, f. 26. september 1991, sjúkraþjálfari, hún er gift Kára Árnasyni, f. 9. júní 1988, sjúkra- þjálfara. Dóttir Kría, f. 27. júlí 2017. b) Marín, f. 31. desember 1996, lögreglumaður í sambúð með Finnboga Sigurðssyni, f. 14. október 1992, lögreglumanni. Pabbi ólst upp með foreldrum sínum og bróður sem lést af slysförum aðeins 21 árs gamall en þá var pabbi 16 ára. Þetta mótaði pabba þannig að hann þurfti ungur að axla mikla ábyrgð vegna fjölskylduað- stæðna. Hann var duglegur, ósérhlífinn og lagði sig fram um að tryggja góðan hag síns fólks, allt sitt líf. Pabbi talaði ekki illa um nokkurn mann né niður til, hann kenndi okkur réttsýni, vinnusemi, hjálpsemi, dugnað og ekki síst seiglu. Pabbi var sterkur karakter sem gott var að treysta á og hafa í sínu liði. Pabbi byrjaði að læra smíði 15 ára gamall hjá Bjarna Ólafs- syni og fékk þar gott veganesti út í lífið. Hann smíðaði mörg hús, stór sem smá og allt þar á milli. Pabbi gekk ávallt til verka með jákvæðu hugafari og sýndi mikla fagmennsku og metnað, að kasta til hendinni var ekki hans stíll. Pabbi var meistara- smiður og náðum við bræður ekki að verða föðurbetrungar á því sviði. Við systkinin fengum góða hjálp og leiðsögn í okkar húsbyggingum sem við erum af- ar þakklát fyrir. Pabbi hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1968 og vann þar í 35 ár. Það voru ófáar ferðirnar sem farnar voru á hjólum úr Kópavogi í Öskjuhlíðina til að sprikla í íþróttasalnum á stöðinni og ekki var verra að fá kók og prins í sjoppunni á eftir. Pabbi var far- sæll slökkviliðsmaður, öflugur reykkafari og sinnti jafnframt þjálfun á því sviði hjá slökkvilið- inu, síðar varð hann varðstjóri. Hann skipulagði verk, undirbjó, hélt mannskap að verki og vann alltaf á fullu sjálfur bæði í slökkviliðinu og smíðinni. Við minnumst þess vel hve einbeitt- ur hann var og tilbúinn að takast á við hver þau verkefni sem biðu á komandi vakt. Þrátt fyrir mikla vinnu í gegnum tíðina þá gafst tími til samverustunda með fjölskyld- unni eins og tjaldferðalög, heim- sóknir til vinafólks í Múlakot, margar heimsóknir á Sauðár- krók þar sem móðurleggurinn býr, hringferðir með hjólhýsi, tjaldvagn og tjald, skíði í Blá- fjöll og snjósleðaferðir. Síðar byggði fjölskyldan saman sum- arbústað þar sem við áttum saman ófáar stundirnar við al- menn sumarbústaðarstörf í sveitasælunni. Pabbi fylgdi okkur systkinun- um vel eftir í okkar íþróttum og áhugamálum sem m.a. tengdust KFUM og K enda hafði hann sterka tengingu þangað, mikill Skógarmaður og vel liðtækur íþróttamaður. Hann spilaði fót- bolta með Fram og handbolta með ÍR, var þar meistaraflokks- maður og fór m.a. á Heims- meistaramót með landsliði Ís- lands í handbolta. Fyrir 20 árum veiktist pabbi og tókst á við það verkefni af miklu æðruleysi og dugnaði. Eftir hetjulega baráttu og mjög erfið síðustu tvö árin þá er hann eflaust hvíldinni feginn og líður betur þar sem hann hef- ur sjálfsagt hitt foreldra og bróður eftir langan aðskilnað. Pabbi og mamma voru samstiga í sínu lífshlaupi og þökkum við allt það sem þau gerðu fyrir okkur og okkar fjölskyldur. Hvíl í friði, elsku pabbi. Ingi, Elvar og Björg. Nýtt ár gengið í garð, fréttir af fjölgun í fjölskyldunni og til- hlökkun fyrir árinu 2021 en þá knýr sorgin dyra og náinn ást- vinur fellur frá. Ég fór að venja komur mínar í Hrauntunguna sumarið 1988 og í fyrstu heim- sókninni, með smá hnút í maga, kemur Erlingur (Elli) til dyra brosandi og hlýr og býður mig velkomna. Það voru góðar mót- tökur og alltaf var gott að koma í Hrauntunguna til þeirra Ella og Bínu. Maður varð fljótt var við vinnusemi hans og elju, sama hvaða verkefni hann tók sé fyrir hendur eða fékk upp í hendurnar. Hann var af þeirri kynslóð þar sem lokað var á erf- iða reynslu og haldið áfram. Þau áföll sem hann varð fyrir mót- uðu hann eflaust að einhverju leyti og hann vann alla tíð að því að tryggja hag sinna nánustu, fyrst foreldra sinna og síðar Bínu og barnanna. Hann var út- sjónarsamur og gott að leita ráða við hinar ýmsu fram- kvæmdir og fylgdist hann af áhuga með gangi mála og leið- beindi. Það voru ófáar stundirn- ar sem við áttum með Ella og Bínu í sumarbústaðnum og oftar en ekki var Elli búinn að rífa bút af pappakassa og skrifa það sem þurfti að koma með vegna fram- kvæmda í næstu ferð. Ekki man ég eftir því að eitthvað hafi gleymst. Hann hafði alltaf eitt- hvað fyrir stafni í bústaðnum, þar leið honum og Bínu vel og stelpurnar okkar eiga góðar minningar með ömmu og afa í sveitinni. Hann hafði mikinn áhuga á öllu því sem var að ger- ast í þjóðfélaginu, hlustaði og horfði á alla fréttatíma, veður- fréttir, íþróttir og las fréttir og greinar í blöðunum. Þegar við fjölskyldan fórum í ferðalög um landið var frekar hringt í tengdapabba og spurt um veður, færð og framkvæmdir á vegum úti en að kynna sér það á heima- síðum. Hann var vel lesinn og þú komst aldrei að tómum kofunum þegar eitthvað bar á góma. Hann fylgdi sínum börnum vel eftir í þeirra tómstundum sem ekki var algengt í þá daga og síðar með barnabörnunum og það voru ófáir boltaleikirnir sem hann mætti á. Elli og Bína voru mjög samstiga í sínum verkefn- um og var fjölskyldan þeirra stærsta verkefni sem gekk fyrir öllu öðru. Fyrir 20 árum veiktist Elli og vann hann það verkefni eins og öll önnur með samvisku- semi og elju og naut aðstoðar Bínu sem tók á fullu þátt í því með honum. Síðustu mánuðir voru barátta og þá kom vel í ljós seiglan sem hann bjó yfir. Ég kveð tengdapabba með þakklæti í huga. Hvíl í friði, elsku Elli. Sólveig. Dugnaður Ella frænda kom snemma í ljós. Tíu ára gamall var hann sendur einn með strandferðaskipinu Esju hring- inn í kringum landið til að heim- sækja afa sinn og ömmu á Stöðvarfirði. Ella fannst afi Ein- ar vera mjög gamall og einsetti sér að vera duglegur að hjálpa honum við heyskapinn. Fyrsta morguninn í sveitinni vaknaði hann við að útidyrunum var lok- að varlega. Hann flýtti sér í föt- in og sá út um eldhúsgluggann afa sinn haltra upp túnið með orfið í annarri hendi. Elli dreif sig í stígvélin og flýtti sér upp brekkuna þar sem afi hans stóð gleiður og sveiflaði orfinu. Hann hlustaði á hvininn og horfði dá- leiddur á grasið falla um koll. Afi hans hætti að slá og bað hann að setjast hjá sér. „Afi, ég er kominn til að hjálpa þér!“ „Þakka þér fyrir það, Elli minn, en þetta er nú bara eins manns verk. Viltu ekki fara aftur heim og leggja þig gæskurinn, þang- að til amma þín vaknar og gefur þér hafragraut? Ég skal síðan finna eitthvað handa þér að gera.“ Elli kunni ekki við að nefna það að hann borðaði ekki graut. Í eldhúsinu var amma hans Erlingur Ragnar Lúðvíksson Það voru margir sem sáu sjálfa sig í Ára- mótaskaupinu, þar sem sam- skipti með hjálp fjarfundaforrits fóru fyrir ofan garð og neðan. Þegar forritið hökti gjörbreytt- ist útkoman í setningunum og í þessu tilfelli varð hún bráð- fyndin enda ætlunin með skaupinu að vekja hlátur. Þó er engum sem lifir með heyrn- arskerðingu hlátur í huga þeg- ar þessar aðstæður verða dag- legt brauð. Heyrnarskerðing veldur því að samskipti verða erfið sem orsakar það að fólk fer að forðast að lenda í að- stæðum þar sem er krefjandi hljóðumhverfi. Félagsleg ein- angrun er ein afleiðing heyrn- arskerðingar. Heyrnarskerð- ing veldur því að það vantar inn í talhljóðin og erfitt verður að túlka talið. Nú þegar grím- unotkun er orðin almenn vandast málið enn frekar því að ekki er lengur hægt að styðjast við varalestur né túlka svipbrigði fólks. Heyrn- arskertir eru háðir því að sjá hvað er verið að segja. (Stacey et al. Hearing research) Í rannsókn sem skrifuð var af Wienstein et al. og birtist í Hearing review segir að grímur virki eins og hljóðdeyfir fyrir tal og að demp- unin sé 3-4 dB með einföldum bréfgrímum en grímur sem gerðar eru fyrir sjúkrahús séu með dempun allt að 12 dB. 2 En hvað er þá til ráða? Þeir sem nota heyrn- artæki geta látið forrita tækin sín með nýrri stillingu fyrir þessar aðstæður eða nýtt sér þráðlausa hljóðnema sem ein- falt er að nota í samtölum og streyma hljóði úr a.m.k. 20 metra fjarlægð milli manna. Þá verður auðvelt að halda tveggja metra fjarlægð og óþarfi er að hækka róminn sem mælt hefur verið á móti því að þá eykst dropamyndun. Það er mikilvægt að passa vel upp á að böndin á grímunum flækist ekki í heyrnartækin því að þá geta þau týnst. Nú sem aldrei fyrr er kom- inn tími til að allir tileinki sér betri samskipti sem auðvelda heyrnarskertum og okkur öll- um lífið.  Talaðu skýrt og eðlilega, með eðlilegum raddstyrk. Að öskra veldur því að mörg orð heyrast verr.  Snúðu að þeim sem þú talar við og haltu augn- sambandi.  Notaðu líkamstjáningu til að leggja áherslu á tilfinn- ingar.  Endurtaktu og umorðaðu ef þú ert misskilinn.  Eyddu eða minnkaðu há- vaða þar sem þú ert. Heyrn og grímunotkun Eftir Ellisif K. Björnsdóttur »Heyrnarskerð- ing veldur því að samskipti verða erfið sem orsakar það að fólk fer að forðast að lenda í aðstæðum þar sem er krefjandi hljóð- umhverfi. Höfundur er löggiltur heyrnarfræðingur hjá Heyrn í Kópavogi. heyrn@heyrn.is Ellisif Katrín Björnsdóttir Mannvirkja- gerð getur haft mikil áhrif á um- hverfið. Mest eru þau þegar stórfram- kvæmdir eiga sér stað. Árin 1920-1921 voru Elliðaárnar virkjaðar til raf- orkuframleiðslu fyrir Reykvíkinga. Stíflan var síðar stækkuð og árin 1924-1928 var gerð stífla í Dimmu sem féll úr Elliða- vatni og við það hækkaði yf- irborð þess og Vatns- endavatn varð ekki lengur afmarkað af Þingnesi frá El- liðavatni. Yfirborð nýja vatnsins tvöfaldaðist að flat- armáli við þessa stíflugerð og Bugða rann eftir það í vatnið, en hafði áður samein- ast Dimmu norðan vatnsins og myndað Elliðaárnar. Nú er raforkuframleiðslu hætt í Elliðaárvirkjun og því er ekki lengur þörf á þessum stíflum. Endurheimt vistkerfa fer í vöxt víða um heim. Sér- staklega hafa augu manna beinst að ám sem hefur verið raskað vegna raforkufram- leiðslu, áveitna og breytinga á farvegum. Upphaflega var verið að færa ár nærri upp- runalegri mynd til að bæta fiskgengd en núna er litið heildstætt á líf- ríki þeirra og þá aðallega botnlífvera sem þrífast þar og eru undirstaða fisksældar. Mikil áhersla er á endurheimt vistkerfa vatns- falla um allan heim og hafa í Bandaríkjunum einum verið unnin um 40 þúsund slík verkefni síðan 1990 og fleiri áform eru uppi um enn fleiri slíkar aðgerðir. Borgarráð samþykkti 5. september 1995 tillögu um úttekt á lífríki Elliðaánna til að meta „áhrif vatnstöku, orkuframleiðslu, aukinnar byggðar og röskunar um- hverfis á lífríki ánna og leita leiða til að skapa upp- runalegu lífi í ánum öryggi og viðgang“. Það er því fagnaðarefni að Orka náttúrunnar hefur ákveðið að tæma endanlega inntakslón Elliðaárvirkj- unarinnar í þessum tilgangi og „skapa upprunalegu lífi í ánum öryggi og viðgang“. Orka náttúrunnar gerir þetta í fullu samráði við vís- indamenn Hafrann- sóknastofnunar, sem hafa fylgst með laxagengd í ánum í áratugi. Einnig skapar þetta tækifæri til að fylgjast með hvernig botndýralíf tek- ur við sér þegar vatnsborðs- sveiflur hætta og vatns- bakkar árinnar verða aftur eðlilegir. Umræðan um þessa end- urheimt Elliðaánna er á villi- götum. Alveg er horft fram hjá fyrri samþykkt borg- arráðs um að „skapa upp- runalegu lífi í ánum öryggi og viðgang“ og þeirri al- mennu þróun um allan heim að endurheimta upprunaleg vistkerfi. Ekkert er veðmæt- ara en óröskuð náttúra og er þetta fyrsta skrefið í að end- urheimta vistkerfi Elliða- ánna. Elliðaárdalurinn verð- ur meiri náttúruparadís fyrir bragðið. Ég vil hvetja Orku náttúr- unnar til að halda áfram á sömu braut og fjarlægja stífluna við Elliðavatn, þann- ig að vatnið verði aftur í upp- runalegri stærð. Eflaust þarf að gera breytingar á farvegi Bugðu vegna mannvirkja í Víðidal og færa hana í farveg Dimmu ofarlega í dalnum. Enn er jarðvegur á botni El- liðavatns þar sem Elliða- vatnsengjarnar voru, en ég geri ráð fyrir að gróður á Engjunum mun færast í fyrra horf á tiltölulega skömmum tíma. Eftir Gísla Má Gíslason Gísli Már Gíslason »Umræðan um þessa endur- heimt Elliðaánna er á villigötum. Horft fram hjá samþykkt borgarráðs um að „skapa uppruna- legu lífi í ánum ör- yggi og viðgang“. Höfundur er prófessor emeritus í vatnalíffræði við Háskóla Íslands. gmg@hi.is Tímabært framtak Orku náttúrunnar sem ber að þakka ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.