Morgunblaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021
✝ Eyþór Jónssonfæddist í
Reykjavík 15. maí
1927. Hann lést á
bráðadeild LSH í
Fossvogi 9. janúar
2021. Foreldrar
Eyþórs voru hjónin
Kristín Vigfúsdótt-
ir húsmóðir, f. 27.2.
1891 í Vatnsdals-
hólum, Austur-
Húnavatnssýslu, d.
24.7. 1946, og Jón Pétur Ey-
þórsson veðurfræðingur, f. 27.1.
1895 á Þingeyrum, Húnaþingi,
d. 6.3. 1968. Eyþór var þriðji í
röð sex systkina sem voru:
Björg, 17.8. 1922-10.1. 2018;
Sverrir, 16.8. 1924-18.1. 1966;
Ingibjörg, 22.6. 1928-22.10.
1938; Eiríkur, 12.9. 1931-1.11.
1999 og Kristín 2.6. 1933-11.3.
1999.
Eyþór kvæntist 12. desember
1953 Ernu Baldvinsdóttur, f.
7.4. 1930. Foreldrar hennar
voru Guðrún Oktavía Jórams-
Dyngjuvegi 14. Mörg sumur var
Eyþór í sveit vestur í Trostans-
firði. Að loknu skyldunámi og
viðbættum einum vetri í Ingi-
marsskóla fór hann til sjós og
sextán ára fór hann að sigla
með vopnaða bandaríska
kaupskipaflotanum. Það gerði
hann til loka heimsstyrjaldar-
innar síðari og hélt síðan áfram
á erlendum kaupskipum þar til
hann kom heim til Íslands í byrj-
un árs 1950 eftir nær sjö ára
útivist. Þá lærði hann flugum-
ferðarstjórn og starfaði við
hana um hríð en aftur lá leiðin á
sjóinn við strandsiglingar hér
heima í nokkur ár. Eftir að Ey-
þór kom í land 1958 vann hann
við verslunarstörf og rekstur,
fyrst hjá Nesti og síðar versl-
uninni Ístorgi. Við tók starf hjá
byggingavörudeild Sambands-
ins og langri starfsævi lauk hjá
Olíufélaginu. Eyþór tók á yngri
árum virkan þátt í starfi stéttar-
félaga og gegndi þar trúnaðar-
störfum.
Útför Eyþórs fer fram í Foss-
vogskirkju 20. janúar 2021 að
viðstöddum nánum ættingjum
og vinum.
dóttir, 13.10. 1899-
20.6. 1982, og Bald-
vin Sigmundsson,
20.8. 1894-4.11.
1956. Dóttir Eyþórs
og Ernu er Krist-
jana G. Eyþórs-
dóttir, f. 20.10.
1957, maki Jón
Baldursson, f.
28.10. 1956. Börn
þeirra eru: 1) Ey-
þór Örn, f. 24.2.
1982, maki Ólöf Jóna Elíasdótt-
ir, f. 20.8. 1982. Synir þeirra eru
Jón Ingvar, Elías Kári og Ari; 2)
Baldur Snær, f. 7.8. 1986, sam-
býlismaður Búi Hrafn Jónuson,
f. 8.12. 1984; 3) Auður Sif, f.
17.5. 1989, unnusti Allan Irik
Kogan, f. 22.5. 1993; 4) Jakob, f.
12.5. 1997, unnusta Petra Ósk
Guðbjargardóttir, f. 19.5. 1998.
Eyþór óst upp í Reykjavík.
Fyrstu árin bjó fjölskyldan við
Sóleyjargötu og Marargötu en
síðan lengstum að Veðramótum
í Laugarási sem síðar varð að
„Ég verð oft hugsi þegar ég
heyri fólk segjast muna eftir sér
frá tveggja ára aldri því ég man
fyrst eftir mér 15. maí 1933 á sex
ára afmælisdegi mínum. Síðdegis
þann dag leiddu foreldrar mínir,
Jón Pétur Eyþórsson (27.1. 1895-
6.3. 1968) og Kristín Vigfúsdóttir
(27.2. 1891-24.7. 1946) mig á milli
sín frá Marargötu 3 niður að höfn
og um borð í Esju I. Þau sögðu að
ég ætti að fara með skipinu til
Bíldudals og þaðan til Trostans-
fjarðar og vera þar yfir sumarið
hjá konu sem héti Filippía.“
Þannig hefjast endurminningar
föður míns sem hann skrifaði fyr-
ir nánustu fjölskyldu og frænd-
fólk.
Þegar faðir minn hætti að
vinna í september 1997, fjóra
mánuði yfir sjötugt, gaf ég hon-
um bók og penna og bað hann rita
æviminningar sínar. Í rúman ára-
tug gerðist ekkert í minninga-
skrifunum en þegar hann skipti
bókinni og pennanum út fyrir
spjaldtölvu komst skriður á mál-
ið. Á níræðisafmæli pabba 15.
maí 2017 fékk hann afhenta
frumútgáfu af endurminningum
sínum. Á þeim tíma lá hann á
sjúkrahúsi að jafna sig eftir erfið
veikindi. Hann komst heim um
sumarið.
Frumútgáfan var betrumbætt
og búin til prentunar á haust-
mánuðum 2017. Faðir minn hélt
skýrum kolli fram til síðustu
stundar svo minningabrotin eru á
köflum skemmtilega nákvæm og
góð samtímaheimild. Hann lýsir
þar meðal annars vistinni og
samferðafólkinu í Trostansfirði,
uppvaxtarárunum í Laugarásn-
um og siglingum sínum á frakt-
skipum um heimsins höf á stríðs-
árunum.
Ég er óendanlega þakklát föð-
ur mínum fyrir endurminning-
arnar, svo og fyrir samfylgd
gegnum lífið með óeigingjörnum
stuðningi við mig og fjölskyldu
mína.
Pabbi las mikið og var grúsk-
ari í eðli sínu. Hann kenndi okkur
meðal annars að efast um hluti og
kanna sannleiksgildi þeirra eftir
föngum. Oft áttum við samræður
um það sem var efst á baugi eða
um gamla daga. Með þakklæti í
huga gef ég honum orðið að lok-
um:
„Frá unga aldri hafa hlutir
æxlast á ýmsan hátt en ég er sátt-
ur með farinn veg, hef upplifað
margt og er þakklátur fyrir allt
það góða sem ég hef öðlast.
Kristjana G. Eyþórsdóttir.
Hann Eyþór föðurbróðir okk-
ar er látinn á nítugasta og fjórða
aldursári sínu. Þá eru þau öll far-
in systkinin sex á Veðramóti. Við
systur og mamma minnumst
hans með innilegu þakklæti og
væntumþykju. Eyþór skipaði
stórt hlutverk í lífi okkar eftir
fráfall bróður síns og föður okk-
ar.
Hann og Erna ásamt föður- og
móðurfólki okkar héldu fast utan
um okkur, en þar var hann í far-
arbroddi og ekki síst eftir að
móðir okkar veiktist. Þórhildur
leit á Eyþór sem staðgengil
pabba, enda var hún aðeins fjög-
urra ára þegar hann dó. Í Sól-
heimum var vel tekið á móti
henni þegar erfitt var heima.
Við minnumst allra heimsókn-
anna þar sem hann kom til að at-
huga hvernig við hefðum það og
við gleymdum okkur í spjalli, því
spjallari var hann mikill. Það var
endalaust rökrætt um allt milli
himins og jarðar en pólitíkin var
honum mjög hugleikin og æfði
hann okkur í að hugsa um hana á
gagnrýnan hátt. Það var oft erfitt
en líka mjög fjörlegt. Hann var
alla tíð mikill lestrarhestur þar
sem veraldarsagan var í uppá-
haldi og las helstu erlendu blöðin
til að fylgjast með heimspólitík-
inni og smitaði Sveineyju systur
af þeim áhuga. Síðustu árin nýtti
hann sér google og youtube til að
fræðast áfram.
Þau Erna og Kristjana dóttir
þeirra voru mikið hjá okkur og
héldu jól og áramót með okkur á
Dyngjuveginum í mörg ár. Á
stórum stundum í lífi okkar
systra var Eyþór til staðar.
Margar ljúfar minningar líða
gegnum hugann. Eyþór fylgdi
þremur okkar upp að altarinu
þegar við gengum í það heilaga.
Og hann tók því vel, þegar Olga
bað um að fá að nefna son sinn í
höfuðið á honum.
Eyþóri var mjög annt um okk-
ur systur. Við minnumst þess
þegar illa gekk að koma Olgu á
fætur á morgnana svo við lá að
hún missti vinnuna, þá mætti Ey-
þór með vítamín til að hrista
svefndrungann af stúlkunni.
Hann tók að sér að vera fjár-
haldsmaður mömmu þegar afi
féll frá, og var boðinn og búinn að
hjálpa til ef eitthvað þarfnaðist
lagfæringar. Eyþór var traustur,
tryggur og hjálpfús.
Síðustu árin höfum við notið
gestrisni þeirra Ernu og Eyþórs
og horft á fallegt samband þeirra
hjóna og lífsviðhorf sem fyrir-
mynd.
Þau elskuðu að ferðast meðan
heilsan leyfði, fljúga á heitar slóð-
ir og njóta sólar. Þau nutu þess
líka að vera með okkur systrum
og fjölskyldum síðustu árin á
gamlárskvöld og við ýmis
merkistækifæri.
Við kveðjum kæran frænda og
vin. Elsku Erna, Kristjana og
fjölskylda, mikill er missir ykkar.
Við erum vissar um að Eyþóri
hefur verið vel tekið af systkinum
og ættingjum sem gengnir eru
yfir móðuna miklu. Jafnframt
hlökkum við til að hitta hann þar í
góðra vina hópi þegar tími okkar
kemur. Hvíl í friði, elsku Eyþór
frændi.
Olga, Kristín, Þórhildur
og Sólveig.
Ég á eftir að sakna afa Eyþórs.
Bæði afi og amma Erna hafa frá
því ég man eftir mér haft mikinn
og einlægan áhuga á því að fylgj-
ast með því hvernig ég og systk-
ini mín höfum haft það og hvað
við höfum haft fyrir stafni. Þau
hafa viljað styðja okkur og fjöl-
skylduna og aðstoða.
Ég á ýmsar minningar um afa
og sumar þeirra fyrstu tengjast
verklegum framkvæmdum sem
mér fannst sem litlum strák vera
mjög spennandi. Afi leyfði mér
gjarnan að vera með og þó að ég
fengi vatn í fötuna mína til að
mála með þá gerði það ekkert til,
ég var mjög ánægður að fá að
vera með og gera gagn. Afi gaf
mér líka alvöruhamar sem mér
þótti merkur gripur. Fyrstu
mánuðina eftir að við fjölskyldan
fluttum frá Bandaríkjunum árið
1991 bjuggum við hjá ömmu og
afa og það var verðmætur tími.
Á unglingsárum sótti afi mig
oft á sundæfingar og keyrði mig í
skólann í Réttarholtsskóla þegar
við bjuggum um tíma í Álfheim-
unum meðan verið var að gera
upp húsið okkar í smáíbúðahverf-
inu. Í bílnum ræddum við margt
sem var gagnlegt fyrir mig.
Hvort sem það var þá eða áður þá
sagði hann mér frá því þegar
hann sem ungur drengur bar út
Morgunblaðið á Réttarholtinu.
Ég er nokkuð viss um að þetta
var sterkur innblástur fyrir að ég
fetaði í fótspor hans og bar út
Morgunblaðið líka um það bil 60
árum síðar.
Blaðaútburðurinn minn hafði
trúlega líka með það að gera að
afi innrætti mér að maður ætti að
vera duglegur og fara skynsam-
lega með peninga – sem ég bý að
enn í dag.
Stundum snerust umræðurnar
um alþjóðleg stjórnmál sem afi
hafði mikinn áhuga á. Áhuga sem
átti trúlega rætur að rekja til
ferða hans um heiminn sem
áhafnarmaður á skipum um
miðja síðustu öld. Það er nokkuð
víst að sá áhugi sem ég hef sjálfur
á fréttum og því sem er að gerast
í heiminum sé að miklu leyti frá
afa kominn. Á síðari árum var
gott að eiga afa að til að ræða
stórar ákvarðanir við, svo sem
fyrstu bíla- og íbúðarkaupin. Ég
er þakklátur fyrir að við afi áttum
samtal fyrir nokkru síðan þar
sem ég þakkaði honum fyrir
margt af því sem ég hef nefnt
hér.
Okkur fjölskyldunni þykir leitt
að vera ekki viðstödd útförina en
við Óla og strákarnir okkar, Jón
Ingvar, Elías Kári og Ari, sem
hefur fundist mjög skemmtilegt
að heimsækja ömmu og afa, eig-
um eftir að minnast afa með hlý-
hug.
Eyþór Örn Jónsson.
Eyþór Jónsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
FJÓLA H. GUÐJÓNSDÓTTIR
handavinnukennari,
lést á líknardeild Landspítalans 12. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 22. janúar klukkan 13.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Blindrafélagið.
Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat
Agnar Guðnason
Anna Lillian Björgvinsdóttir Halldór Þorsteinsson
Sverrir Agnarsson Eyrún Antonsdóttir
Guðni Rúnar Agnarsson Sofie Wränghede
Hilmar Örn Agnarsson Björg Þórhallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓNU BRÍETAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Bíbí,
frá Vestmannaeyjum,
áður til heimilis í Fögrukinn 14,
Hafnarfirði,
sem lést í faðmi fjölskyldunnar á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi
miðvikudaginn 16. desember.
Guðjón Guðvarðarson Ásdís Sigurðardóttir
Guðbjörg Guðvarðardóttir Ólafur Einar Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær amma, langamma, langalangamma,
tengdamamma og systir,
GUÐRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 11.
janúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 25. janúar klukkan 15.
Karen Rakel Óskarsdóttir Stefán Þór Helgason
Guðríður Svava Óskarsdóttir Halldór Benjamín Guðjónsson
Alvar Óskarsson Eydís Örk Sævarsdóttir
Edith Ósk Óskarsdóttir Kristinn Dan Guðmundsson
Kristín Eva Óskarsdóttir Ágúst Birgisson
Rebekka Alvarsdóttir
Elín Sigurbjörg Magnúsdóttir
barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Elsku bróðir minn, mágur og frændi okkar,
ÁSMUNDUR VALDEMARSSON
brúarsmiður frá Halldórsstöðum I
í Bárðardal,
lést á hjúkrunarheimilinu Dalbæ 9. janúar.
Útför hans fer fram í Dalvíkurkirkju
laugardaginn 23. janúar klukkan 13:30 að
viðstöddum nánustu ættingjum og vinum.
Streymt verður frá athöfninni á facebook-síðunni Jarðarfarir í
Dalvíkurkirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dalbæjar fyrir hlýja og góða
umönnun.
Aðstandendur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns,
HREINS GUNNARSSONAR,
Þórarinsstöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Fossheima, Selfossi,
fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinunn Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
FINNBOGI G. KRISTJÁNSSON,
Vogatungu 47, Mosfellsbæ,
lést föstudaginn 18. desember. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnhild Ólafsdóttir
Elín Rósa Finnbogadóttir og fjölskylda
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN HAFSTEINSDÓTTIR
kennari,
Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
Mosfellsbæ, sunnudaginn 10. janúar.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju föstudaginn 22. janúar
klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Landgræðslusjóð. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Streymt verður frá athöfninni á https://youtu.be/VwpCIYGNS1g
og hlekk á streymi er hægt að nálgast á www.mbl.is/andlat.
Hafsteinn Pálsson Lára Torfadóttir
Bjarnveig Pálsdóttir
Björk Pálsdóttir Páll Valdimarsson
Hrönn Pálsdóttir Magnús Alexíusson
Aðalsteinn Pálsson Helga Grímsdóttir
Steinþór Pálsson Áslaug Guðjónsdóttir
Gunnar Páll Pálsson Ásta Pálsdóttir
Snæbjörn Pálsson Þórdís Gísladóttir
barnabörn, makar og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
HRÓBJARTUR HRÓBJARTSSON
arkitekt,
andaðist sunnudaginn 17. janúar
á Droplaugarstöðum.
Karin Hróbjartsson Stuart
Úlfur Helgi Hróbjartsson Sjöfn Evertsdóttir
Ólafur Evert Úlfsson
Karin Sigríður Úlfsdóttir