Morgunblaðið - 20.01.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.8:30-12:30 - Samsöngur kl.13:45 -
Kaffi kl.14:30-15:00 - Bókaspjall með Hrafni kl.15:00 - Vegna fjöldatak-
markana verður að skrá fyrirfram á viðburði til þess að tryggja fjar-
lægðarmörk og fjölda í hverju rými. Við minnum fólk á mikilvægi
sóttvarna og að það er grímuskylda í Samfélagshúsinu. Nánari
upplýsingar og skráning í síma 411-2701 & 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:15-15.30. Heitt
á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í
viðburði eða hópa: 411-2600.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Tálgað með Valdóri frá
kl. 09:15. Morgunkaffi í sal kl.10. Opið kaffihús kl. 14:30. Vegna
sóttvarnaregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði
hjá okkur í síma: 535-2760
Bústaðakirkja Það verður göngutúr frá Bústaðakirkju kl 13:00 á
miðvikudaginn. Njótum þess að vera úti og spjalla saman. Hlakka til
að sjá ykkur, Hólmfríður djákni.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl.
10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í Jónshúsi kl.
11:00. Málun Smiðja Kirkjuhv kl. 13:00. Zumba í sal í kjallara
Vídalínskirkju kl. 16:30 og 17:15. Áfram skal gæta að handþvotti og
smitvörnum og virða 2 metra athugið grímuskylda í Jónshúsi og
Smiðju Kirkjuhvoli.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8:30 og
9:30. Bingó á miðvikudögum kl. 13:00. Handverk á miðvikudögum kl.
13:00. Píla á fimmtudögum kl. 13:00. Línudans á föstudögum kl. 10:00
og 11:00. Grýmuskilda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt
að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
g p
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmisskonar húsaviðhald.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
✝ Jóhann ÓskarSigurðsson
fæddist á Stóra-
Kálfalæk 9. nóv-
ember 1925. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Brákar-
hlíð í Borgarnesi
18. desember 2020.
Foreldrar hans
voru Guðrún Jó-
hannsdóttir, f. 23.9.
1888, d. 9.9. 1978
og Sigurður Marís Þorsteinsson,
f. 22.11. 1883, d. 27.5. 1962.
Maki Jóhanns var Unnur
Andrésdóttir, f. 1.5. 1929, d.
24.3. 2018. Þau gengu í hjóna-
band 31.7. 1954 og eignuðust 7
börn.
1) Lilja, f. 1951, maki Guð-
mundur Þorgilsson, þau eiga
þrjú börn.
2) Sigurður, f. 1952, maki Ólöf
Anna Guðbrandsdóttir, þau eiga
tvær dætur.
3) Andrés Björgvin, f. 1953,
maki Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir, þau eiga
fjögur börn.
4) Guðrún, f.
1954, maki Sigur-
steinn Sigursteins-
son, látinn, þau eiga
tvö börn.
5) Steinunn, f.
1959, í sambúð með
Sigurði Ingvarssyni,
hún á þrjá syni.
6) Jóhann Óskar,
f. 1961, í sambúð
með Guðrúnu Þorsteinsdóttur,
hann á eina dóttur.
7) Helga, f. 1964, maki Ás-
björn Kjartan Pálsson, þau eiga
þrjú börn.
Afkomendurnir fara að nálg-
ast eitt hundrað.
Útför hans fer fram frá Borg-
arneskirkju í dag, 20. janúar
2021, kl. 14. Streymt verður frá
útför:
https://kvikborg.is
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku afi nú ertu farinn okkur frá,
en við munum að sá sem góðan afa á,
hann dvelst ætíð okkur hjá, já!
(Skerðingarnir)
Já margs er að minnast og
margs er að sakna.
Það er svo skrítið að þegar
maður sest niður við tölvuna og
ætlar að rifja upp og skrifa niður
á blað allar góðu minningarnar
um þig elsku afi þá bara vilja
þær ekki á blaðið en af nægu er
þó að taka.
Eitt haustið varst þú í veik-
indafríi, þá fékk ég að vera
heima hjá þér þegar ég var í fríi í
skólanum, það voru dásamlegir
dagar, við að hlusta á jólaplöt-
urnar ykkar ömmu, þessar í
rauðu umslögunum. Heldur
fannst nú ömmu þetta snemmt
enda rétt kominn nóvember.
Alltaf var nú gaman að kíkja á
þig í vinnunni niðri í gamla slát-
urhúsi, þá fórstu með mann í
skoðunarferð um svæðið og
sagðir manni hvernig allt virkaði.
Þegar maður hugsar til baka
kemur upp í hugann þegar þið
amma komuð í sumarfríinu ykk-
ar og hjálpuðuð til við heyskap-
inn, þá varst þú alltaf á gamla
massa ýmist að snúa eða keyra
heim baggana.
Eins líka þegar þú komst með
í hestaferðirnar, þar þeystir þú
um á klárunum þínum, þeim
Faxa og Glófaxa. Það var ákveð-
in upphefð þegar maður fékk
loksins að prufa þá því það var
nú ekki sama hvernig farið var
að þeim gæðingum.
Mikið var nú gott að koma í
afa- og ömmuhús á Borgarbraut-
inni, þá varst þú ýmist að lesa
bók eða frammi í þvottahúsi að
dunda við að gera við reiðtygi
eða smíða ný.
En þú gafst þér þó alltaf tíma
til að setjast niður í hornið þitt
og spyrja frétta að vestan og
fara yfir það hvernig sauðburður
gekk, hvernig heyfengur væri,
hvort meðalvigtin væri svipuð og
fyrri ár og hvort kusurnar mjólk-
uðu eitthvað.
Eins þurftir þú alltaf að vita
hvernig gengi hjá krökkunum.
Já, þú varst alltaf með puttann á
púlsinum varðandi hvað við af-
komendur þínir værum að bar-
dúsa.
Alltaf var það nú gaman eftir
að við fluttum vestur og þið fé-
lagarnir Árni frá Beigalda voruð
að grúska eitthvað sem þið fé-
lagar gerðuð æði oft og þurftuð
að vita um eitthvað sem gerðist
hér í Dölum eða tengdist Döl-
unum.
Þá hringduð þið, skipti ekki
máli hvort það var eitthvað sem
gerðist í dag eða löngu fyrir okk-
ar daga, sem oftast var raunin en
við fórum alltaf í það að finna út
úr þessum hugleiðingum ykkar.
Verst er nú samt að hafa ekki
verið búin að finna út úr síðustu
spurningunni þinni sem þú varst
að velta fyrir þér, síðast þegar ég
heyrði í þér, en vonandi verðum
við bara komin með svar við
henni næst þegar við hittumst.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku afi, takk fyrir allt sam-
an
Hvíl í friði.
Bjargey, Jón Egill,
Alexandra Rut,
Ragnheiður Hulda,
Sigurdís Katla og
Ólafur Oddur.
Jóhann Óskar
Sigurðsson
✝ Sigríður Bene-diktsdóttir
fæddist á Brúará í
Kaldrananeshreppi
á Ströndum 1. des-
ember 1922. Hún
lést á hjúkrunar-
heimili Hrafnistu
Hraunvangi í Hafn-
arfirði 12. janúar
2021.
Sigríður giftist
árið 1943 Einari Jó-
hannssyni, f. 4. febrúar 1915, d.
16. ágúst 2002.
Þau eignuðust sex börn. Þau
eru: 1) Valgerður, f. 25. nóv-
ember 1940, d. 3. febrúar 2000,
maki Jón Sigurbjörnsson, f. 6.
maí 1937, d. 23. desember 1990.
ember 1960, maki Ásrún Guð-
mundsdóttir, f. 19. apríl 1963.
Þau eiga tvo syni. Afkomendur
þeirra hjóna eru nú 58 talsins.
Sigríður ólst upp á Brúará
ásamt foreldrum sínum, Bene-
dikt Sigurðssyni og Guðríði Ás-
kelsdóttur, alls urðu alsystkinin
átta. Móðir hennar lést af völdum
berkla 1935 en faðir hennar
kvæntist aftur og eignaðist með
seinni konu sinni 13 börn.
Sigríður og Einar hófu búskap
á Bakka í Bjarnarfirði árið 1940
og bjuggu þar til 1971 að þau
brugðu búi og fluttu til Keflavík-
ur. Árið 1987 fluttu þau í Garð-
inn og bjó Sigríður þar þar til í
mars 2020 að hún flutti á Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju 20. janúar 2021
kl. 13. Streymt verður frá útför-
inni, stytt slóð:
https://tinyurl.com/y5ygkbrk
Virkan hlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Þau eignuðust fjög-
ur börn. 2) Guð-
mundur, f. 18. jan-
úar 1943, d. 30.
ágúst 1988, maki,
Fanney Jóhanns-
dóttir, f. 15. júní
1948. Þau eignuðust
þrjú börn. 3) Ólafur,
f. 15. ágúst 1944,
maki Anna Magn-
úsdóttir, f. 12. júní
1946. Þau eiga fjög-
ur börn. 4) Laufey, f. 24. ágúst
1947, d. 6.12. 2009, maki Hannes
Ólafsson, f. 26. febrúar 1944. Þau
eiga þrjú börn. 5) Guðveig, f. 1.
ágúst 1954, maki Árni Pétursson,
f. 13. júní 1953. Þau eiga tvö
börn. 6) Jóhann Karl, f. 29. sept-
Þá hefur amma Sigga loksins
fengið hvíldina.
Komin í sumarlandið, samein-
uð afa, börnum og tengdasyni á
ný.
Amma Sigga var alltaf, að
manni fannst, „pínuponsulítil“.
Alveg frá því við munum eftir
okkur.
En þótt hún hafi verið í litlum
umbúðum þá hafði hún risafaðm
og enn stærra hjarta. Það var
alltaf gott að koma til ömmu og
afa, og síðar meir ömmu eftir að
afi dó.
Ávallt eitthvað gómsætt á
borðum og yfirleitt var sú gamla
búin að baka pönnukökur. Hún
t.d. reyndi alltaf að baka pönnu-
kökur ef hún vissi að pabbi ætlaði
að kíkja til hennar:
„Því Hannesi finnast pönnu-
kökur svo góðar.“
Þá bakaði hún pönnukökur
fyrir skírn langömmubarns 92ja
ára gömul og fannst það svo sem
ekkert tiltökumál. Amma var
óendanlega nægjusöm, bað aldrei
um neitt og fannst t.d. allt of mik-
ið vesen að verið væri að renna
suður með sjó að sækja hana fyrir
afmæli eða kaffiboð.
En hún var alltaf óskaplega
þakklát. Hún var líka ótrúlega
heilsuhraust, enda kannski sést
það best á því að hún komst ekki
inn á elliheimili fyrr en 97 ára
gömul, þá orðin lögblind og frek-
ar mikið heyrnarskert.
Það eru margar minningar
sem koma upp í hugann hjá okk-
ur systkinunum. Hjalti og Ómar
muna eftir sumardögum á Bakka.
Leika sér á traktornum úti í
bragga, labba út að heitu lauginni
og leika „yfir“ með eldri frænd-
systkinunum.
Þeir muna síðan vel eftir því
þegar Hvammur var byggður og
öll munum við eftir læknum við
Hvamm þar sem ófáum dögum og
kvöldum var eytt í þar að búa til
stíflur og veiða síli, rennandi
blaut upp að hnjám. Gasljósið í
stofunni í Hvammi, olíulamparnir
í herbergjunum, spilað, tína ber,
njóta. Sumarkvöldin í Hvammi
voru ómetanleg.
Amma og afi fluttu suður með
sjó, fyrst á Sólvallagötuna í
Keflavík og síðar í Eyjaholtið í
Garðinum.
Helsta minning Siggu af Sól-
vallagötunni var fataskápur á
ganginum og er hún handviss um
að það hafi verið hægt að fara inn
í annað herbergi í gegnum þenn-
an fataskáp þar sem var frysti-
kista.
Það er hverju orði sannara að
sumir þurfa að yfirstíga meira en
aðrir og það átti við hana ömmu
Siggu. Fyrir utan það að missa
mömmu sína á unglingsárum hef-
ur amma þurft að kveðja þrjú af
börnunum sínum, einn tengdason
og eiginmann.
En þrátt fyrir allt þetta þá
varð maður aldrei var við reiði út
í lífið eða einhver æðri máttar-
völd. Amma sagði alltaf: „Svona
er þetta bara.“ Svona var bara líf-
ið.
Við erum þess þó fullviss að nú
þegar amma hefur farið yfir í
sumarlandið hafi þar verið stór-
kostlegir fagnaðarfundir. Mynd-
in í huga okkar er að minnsta
kosti þannig, grátur og hlátur,
kossar og knús hjá þeim öllum.
Loksins er hún sameinuð þeim
aftur.
Núna sitja þau öll saman með
kaffi og bakkelsi, grípa í spil og
spjalla. Njóta þess að eiga tímann
saman á þessum fallega stað sem
við viljum trúa að þau séu á.
Við trúum því og treystum að
enn einn verndarengillinn okkar
hafi nú bæst í hópinn og að þau
muni öll passa upp á okkur sem
eftir erum, þar til okkar tími
kemur.
Elsku amma Sigga, kysstu
mömmu, afa og alla hina frá okk-
ur.
Hjalti, Ómar og
Sigríður Harpa (Sigga).
Sigríður
Benediktsdóttir
✝ Gréta Aðal-steinsdóttir
fæddist 12. nóv-
ember 1943 á
Akureyri. Hún lést
á Landspítalanum
12. janúar 2021.
Gréta ólst upp á
Akureyri. Fór
snemma til Reykja-
víkur þar sem hún
kynntist manni sín-
um, Hilmari Þór
Aðalsteinssyni, f. 16.6. 1943, d.
5.4. 2009. Þau
bjuggu allan sinn
búskap í Hafn-
arfirði.
Þau eignuðust
4 börn og láta
eftir sig 12 barna-
börn og 9 barna-
barnabörn.
Útför Grétu fer
fram frá Frí-
kirkjunni í
Hafnarfirði 20.
janúar 2021 klukkan 13.
Við kveðjum okkar besta vin,
hana Grétu ömmu. Hún vakti yfir
okkur öllum sem vorum hluti af
hennar hóp. Allir áttu þar jafnan
sess. Var óþreytandi að spila við
okkur unga fólkið og segja sögur
frá í gamla daga. Henni gekk illa
að vinna yngstu börnin í spilum
en gekk betur þegar þau náðu
unglingsárum. Margar sögur
gerðust á Akureyri þar sem hún
ólst upp og hugur hennar dvaldi
oft hjá fólkinu þar. Einnig átti
hún það til að sýna okkur töfra-
brögð og þegar við kvöddumst,
eftir notalega stund, gaukaði hún
gjarnan að okkur lítilli gjöf.
Við biðjum þess að guð og
Himmi afi taki vel á móti ömmu
og aldrei að vita nema þau setjist
að spilum. Sendum afkomendum
ömmu, ættingjum og vinum kær-
leikskveðju. Erum sannfærðar
um að fallegar minningar létti
sorg og veiti styrk.
Ösp og Yrsa.
Gréta
Aðalsteinsdóttir
Kærar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
J. SÆVARS GUÐMUNDSSONAR,
Ástjörn 2c,
Selfossi.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarfólki og starfsfólki
öllu á lyflækninga- og göngudeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi.
Þóra Björg Ögmundsdóttir
Valgerður Sævarsdóttir Halldór Páll Halldórsson
V. Helga Valgeirsdóttir Brynjar Hallmannsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar