Morgunblaðið - 20.01.2021, Page 23

Morgunblaðið - 20.01.2021, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021  Arnar Þór Viðarsson þjálfari ís- lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fundaði með Lars Lagerbäck um helgina varðandi aðkomu Svíans í þjálfarateymi íslenska karlalandsliðs- ins um helgina. Þetta staðfesti Arnar í samtali við 433.is í gær en Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari liðsins sat einnig fundinn. Þá munu landsliðsþjálfararnir funda á nýjan leik með Lagerbäck í vikunni en Lagerbäck þekkir vel til hjá íslenska liðinu eftir að hafa stýrt því frá 2011 til ársins 2016 með afar góðum árangri.  Hilmar Snær Örvarsson, íþrótta- maður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra, hafnaði í 14. sæti á Evrópu- bikarmóti í stórsvigi í Sviss í gær. Hilmar var í 20. sæti eftir fyrri ferðina og skíðaði þá á 1:05,02 mínútum en bætti sig um liðlega fimm sekúndur í síðari ferðinni en fór þá niður brekk- una á 1:00,67 mínútum. Hilmar keppir aftur í stórsvigi í dag í heimsbikarnum og á föstudag og laugardag í svigi, sinni sterkustu grein.  Þróttur Reykjavík hefur gert samn- ing við knattspyrnukonuna Guðrúnu Gyðu Haralz en hún kemur til félags- ins frá Breiðabliki. Guðrún er 21 árs og á að baki 17 leiki í efstu deild. Guðrún spilaði tvo leiki með Breiðabliki á síð- ustu leiktíð en hún hefur einnig leikið með KR, HK/Víkingi og Augnabliki. Þróttur endaði í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð. Guðrún á 24 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands þar sem hún hefur skorað 14 mörk. Þá hefur hún skorað sjö mörk í 21 leik í 1. deild.  Knattspyrnumaðurinn David Alaba mun ganga til liðs við spænska stórlið- ið Real Madrid þegar samningur hans við Þýskalandsmeistara Bayern Münc- hen rennur út næsta sumar. Spænska íþróttablaðið Marca fullyrðir að sú verði niðurstaðan og segir Alaba hafa skrifað undir fjögurra ára samning við Spánarmeistarana. Alaba, sem er 28 ára gamall, hefur verið orðaður við öll stærstu lið Evr- ópu undanfarnar vikur, en hann til- kynnti það í desember að hann yrði ekki áfram í herbúðum Bayern München á næstu leiktíð. Alaba er uppalinn hjá þýska félaginu en hann lék sinn fyrsta meistaraflokks- leik fyrir félagið árið 2010. Alls á hann að baki 408 leiki fyrir félagið í öllum keppnum þar sem hann hefur skor- að 32 mörk og lagt upp önnur 49. Eitt ogannað HM 2021 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Ísland mun eiga fjóra fulltrúa á hliðarlínunni í milliriðlum á HM karla í handbolta í Egyptalandi eftir að lærisveinar Dags Sigurðssonar í Japan fögnuðu 30:29-sigri á Angóla og lærisveinar Halldórs Jóhanns Sigfússonar í Barein unnu 34:27- sigur á Kongó í lokaumferð riðla- keppninnar í gær. Jin Watanabe var markahæstur hjá Japan með sjö mörk og Husain Alsayyad var drjúgur fyrir Barein með níu mörk. Verða báðar þjóðir í fyrsta skipti í milliriðli á HM. Bæði lið fara í milliriðil 2 og mætast mánudaginn 25. janúar í lokaumferð milliriðl- anna. Barein mætir auk þess Króat- íu og Katar í riðlinum á meðan Jap- an mætir Argentínu og Danmörku. Japan og Barein taka ekki með sér stig í milliriðilinn. Besti árangur Japana á HM til þessa kom árið 1970 er liðið varð í 10. sæti. Barein hefur aðeins þrisvar áður tekið þátt á lokamóti HM og kom besti árang- urinn fyrir tveimur árum er liðið endaði í 20. sæti undir stjórn Arons Kristjánssonar. Fyrsta tap Alfreðs Áður hafði Þýskaland undir stjórn Alfreðs Gíslasonar tryggt sér sæti í milliriðlum og þá þjálfar Guðmundur Guðmundsson ís- lenska landsliðið. Alfreð tapaði sínum fyrsta leik sem þjálfari þýska liðsins er það mætti Ung- verjalandi í spennandi leik en loka- tölur urðu 29:28, Ungverjum í vil. Mate Lekai tryggði Ungverjum sigurinn og toppsæti A-riðils með sigurmarkinu á lokasekúndunum. Marcel Schiller var markahæstur í þýska liðinu með sjö mörk en þeir Bence Banhidi og Dominik Mathe gerðu átta mörk hvor fyrir Ung- verja. Ungverjaland fer með fjögur stig í milliriðil 1 og Þýskaland tvö. Þar mæta þjóðirnar Spánverjum, Pólverjum og Brasilíumönnum. Spánverjar sterkir Spánn tryggði sér toppsæti B- riðils með 36:30-sigri á Túnis, þar sem Ángel Pérez skoraði tíu mörk fyrir Spán. Spánverjar fara með þrjú stig í milliriðil og Pólland fer með tvö eftir sigur á Brasilíu, 33:23, en Brasilía fer með eitt stig í milliriðil. Arkadiusz Moryto og Szymon Sicko skoruðu sex mörk hvor fyrir Pólland. Króatía fer sömuleiðis með þrjú stig í milliriðil eftir 26:24-sigur á Katar í C-riðli. Manuel Strlek skoraði sex mörk fyrir Króatíu og Frankis Marzo sjö fyrir Katar. Katar fer með tvö stig í riðilinn. Danir líklegir Ríkjandi heimsmeistarar Dana hafa leikið vel á mótinu til þessa og eru líklegir til að ná í verðlaun en danska liðið vann öruggan 31:20- sigur á Argentínu og fer í milliriðil með fullt hús stiga. Danir unnu alla þrjá leiki sína í D-riðlinum með samtals 45 mörkum. Mikkel Hansen var eins og oft áður drjúg- ur hjá danska liðinu en hann skor- aði sjö mörk. Danir mæta Króatíu, Katar og Japan í milliriðli. Fjórir íslenskir þjálfarar á hliðarlínunni í milliriðlunum  Barein og Japan í milliriðla í fyrsta skipti  Fyrsta tap Alfreðs með Þýskaland AFP Barein Halldór Jóhann Sigfússon er kominn í milliriðla með Barein. AFP Þýskaland Alfreð Gíslason stýrir þýska liðinu í fyrsta sinn á stórmóti. Ljósmynd/IHF Japan Dagur Sigurðsson hefur stýrt Japan með góðum árangri. Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, hefur samið við þýska 1. deildar liðið Eintracht Frankfurt en hún hefur leikið með Breiðabliki undanfarin þrjú keppn- istímabil og unnið Íslandsmótið og bikarkeppnina með liðinu. Hún verður þriðji leikmaðurinn sem lék með Íslandsmeisturum Breiðabliks á síðustu leiktíð sem semur við lið í Þýskalandi í vetur en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er gengin til liðs við Bayern München og Sveindís Jane Jónsdóttir samdi við Wolfsburg milli jóla og nýárs. Alexandra til Frankfurt Morgunblaðið/Eggert Þýskaland Vinsælt land hjá knattspyrnukonum þessa dagana. Lionel Messi var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Athle- tic Bilbao í úrslitum spænska Meist- arabikarsins í knattspyrnu á sunnu- dag. Messi fékk beint rautt spjald fyrir að slá til Asier Villalibre í upp- bótartíma framlengingarinnar en Athletic Bilbao vann 3:2 í drama- tískum leik. Rauða spjaldið var það fyrsta sem Messi fær hjá Barcelona í 753 leikjum. Messi missir af leikjum gegn Cornella í spænska bikarnum og svo Elche í spænsku A-deildinni. Tveggja leikja bann hjá Messi AFP Bann Lionel Messi beygir sig yfir Asier Villalibre eftir atvikið. Leicester fór upp í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með sanngjörnum 2:0-heimasigri á Chelsea í gærkvöldi. Wilfred Ndidi og James Maddison skoruðu mörk Leicester en sigurinn hefði getað orðið enn stærri gegn bitlausu liði Chelsea. Leicester er nú með 38 stig, stigi meira en Manchester United sem á leik til góða en liðið hefur aðeins tapað einum leik af síð- ustu ellefu í öllum keppnum. Chelsea hefur hins vegar aðeins unnið þrjá af síðustu tíu og er stjóra- sætið hjá Frank Lampard orðið ansi heitt eftir að félagið eyddi meira en 200 milljónum punda í leikmenn fyr- ir tímabilið. AFP Mark Wilfred Ndidi fagnar marki sínu gegn Chelsea í gærkvöldi. Leicester á toppinn en Lampard í miklu basli HANDBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valur náði tveggja stiga forskoti á toppi Olísdeildar kvenna í handbolta með auðveldum 37:15-útisigri á ný- liðum FH í Kaplakrika í gærkvöldi. Valur hefur unnið fjóra leiki og tap- að einum af fyrstu fimm en Fram á leik til góða og getur jafnað Valsliðið á stigum. Hin 18 ára gamla Elín Rósa Magnúsdóttir stal senunni hjá Val og skoraði sjö mörk og fiskaði auk þess þrjú víti. FH, sem er stiga- laust á botninum, lék án síns besta leikmanns Britney Cotts og var ljóst að verkefnið gegn Val yrði ærið. Skoraði 13 mörk úr 13 skotum Ásdís Guðmundsdóttir átti magn- aðan leik fyrir KA/Þór og skoraði 13 mörk í 13 skotum í öruggum 31:19- sigri á HK á Akureyri. Meta Lonac varði 17 skot í marki norðankvenna. Sigríður Hauksdóttir var marka- hæst hjá HK með sex mörk. KA/Þór er í öðru sæti með sjö stig með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap. HK er með fjögur stig í fimmta sæti með tvo sigra og tvö töp. Valur og KA/Þór fögnuðu stórsigrum  Valur með tvö stig í forskot á toppnum Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Þrettán Ásdís Guðmundsdóttir skoraði 13 mörk fyrir KA/Þór. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Smárinn: Breiðablik – Skallagrímur ...18:15 Dalhús: Fjölnir – KR ............................19:15 Origo-höllin: Valur – Snæfell ...............19:15 Ásvellir: Haukar – Keflavík .................20:15 Í KVÖLD! Meistaradeild Evrópu Zaragoza – Lublin ............................... 94:82  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig, tók 8 fráköst og varði 2 skot hjá Zaragoza á 21 mínútu.  

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.