Morgunblaðið - 20.01.2021, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE HOLLYWOOD REPORTER
CHICAGO SUN-TIMES
LOS ANGELES TIMES INDIEWIRE ROGEREBERT.COM
Ástralska leikkonan Nicole Kidman
leikur drottningu af íslenskum ætt-
um og bandaríski leikarinn Ethan
Hawke leikur konung í kvikmynd
Robert Eggers, The Northman, sem
Sjón skrifar handritið að ásamt leik-
stjóranum. Kidman ræddi við grín-
istann og leikarann Marc Maron í
hlaðvarpi hans, WTF, á dögunum og
leysti þá örlítið frá skjóðunni hvað
varðar þetta dularfulla verkefni.
Leynd hefur hvílt yfir kvikmynd-
inni, eins og gjarnan er með kvik-
myndir í vinnslu, en Kidman stað-
festi þó að hún léki í henni
drottningu og Ethan Hawke konung
og eiginmann hennar. „Og nú er ég
alveg vitlaus í Ethan. Mér hefur
alltaf þótt hann frábær leikari en
hann er líka frábær gaur,“ sagði
Kidman í hlaðvarpsþættinum við
Maron. „Og hann er svo fróður! Svo
mikill listamaður og leikari. Hann er
endurreisnarmaður,“ hélt hún
áfram, augljóslega heilluð af Hawke.
Víkingar og hefnd
Litlar upplýsingar hafa verið
gefnar um kvikmyndina en henni þó
lýst sem „víkingahefndarsögu“ sem
eigi sér stað undir lok tíundu aldar.
Alexandar Skarsgård hinn sænski
fer með aðalhlutverk myndarinnar
en Kidman og Hawke eru í minni
hlutverkum. Í öðrum hlutvekum eru
Anya Taylor-Joy og Claes Bang,
Willem Dafoe, Björk Guðmunds-
dóttir og dóttir þeirra Matthews
Barney, Ísadóra Bjarkardóttir Bar-
ney, að því er fram kemur á vef Int-
ernet Movie Database og leikur
Björk norn í myndinni. Ingvar Sig-
urðsson er einnig á lista yfir leikara.
„Hún er mjög skrítin, hvernig
gastu upp á því?“ sagði Kidman við
Maron um myndina sem tekin er
upp á Írlandi. Sagðist hún hafa sagt
við leikstjórann, Eggers, að hún
væri dauðhrædd við verkefnið
vegna farsóttarinnar en líka hreims-
ins sem hún þurfti að vera með í
myndinni, sem er íslenskur þar sem
Kidman á að leika íslenska drottn-
ingu. Sagði Kidman mikilvægt fyrir
leikara að takast á við miklar áskor-
anir og því hafi hún tekið hlutverkið
að sér. Hún hafi viljað starfa með
þessu fólki sem að myndinni kemur
og fyrst hægt var að gera það
hættulaust á farsóttartímum hafi
hún slegið til.
Tökum er lokið á myndinni, að
sögn Kidman sem ber mikið lof á
Eggers. The Northman er þriðja
kvikmynd leikstjórans sem vakið
hefur mikla athygli og hlotið mikið
lof fyrir þær fyrri, þ.e. The Witch og
The Lighthouse. Ekki liggur fyrir
hvenær The Northman verður
frumsýnd.
AFP
Drottning Nicole Kidman leikur íslenska drottningu í The Northman.
Kidman segist hafa ótt-
ast íslenska hreiminn
Leikkonan segir frá The Northman sem Sjón skrifar
handritið að Björk og dóttir hennar í aukahlutverkum
Konungur Ethan Hawke. Söguhetjan Alexander Skarsgård.
Sýning á útskriftarverkum nem-
enda Ljósmyndaskólans hefur verið
opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur á 6. hæð Grófarhússins.
Á sýningunni má sjá verk þrettán
nemenda í Námsbraut í skapandi
ljósmyndun við skólann. Útskriftar-
verk þeirra eru fjölbreytt enda
spanna viðfangsefni og aðferðir vítt
svið. Í verkum sínum takast þau á
við ólík málefni út frá ólíkum for-
sendum, mismunandi nálgun, list-
rænni sýn og fagurfræði. Endur-
spegla verkin á sýningunni þannig
gróskuna í samtímaljósmyndun og
fjölbreytta möguleika sem í ljós-
myndamiðlinum felast.
Sýningin stendur til 31. janúar og
er aðgangur ókeypis.
Nemendurnir eru Bergdís
Guðnadóttir, Dóra Dúna, Eva
Schram, Elín Ósk Jóhannsdóttir,
Hlín Arngrímsdóttir, Hjördís Ingv-
arsdóttir, Hrafnkell Jónsson, Kaja
Sigvaldadóttir, Kata Jóhanness,
Nicolas Grange, Stephan Adam,
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
og Þórkatla Sif Albertsdóttir.
Fjölbreytileg Hluti ljósmyndaverksins Afdrif eftir Elínu Ósk Jóhannsdóttur.
Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari kemur á næstu vikum fram
á nokkrum tónleikum með Fílharm-
óníuhljómsveitinni í Bergen í Nor-
egi. Fyrst verða tónleikar í
Concertgebouw í Amsterdam á
sunnudaginn kemur þar sem Vík-
ingur leikur hinn þekkta píanó-
konsert Edvards Griegs með hljóm-
sveitinni. Á tvennum tónleikum í
Bergen í næstu viku, undir stjórn
aðalhljómsveitastjóra hljómsveitar-
innar, Edwards Gardners, verður
meðal annars frumflutt ný umritun
Víkings Heiðars fyrir píanó og
strengi á Adagio úr Fiðlusónötu
J.S. Bachs númer 5 í f-moll BWV
1018. Á sömu tónleikum flytur Vík-
ingur Opening eftir Philip Glass
ásamt strengjasveit og síðan Píanó-
konsert númer 24 eftir Mozart.
Á tvennum tónleikum viku síðar
kemur Víkingur aftur fram í Berg-
en með Fílharmóníunni og flytur
píanókonsert Griegs.
Píanóleikarinn Víkingur Heiðar leikur
á næstunni á nokkrum tóneikum með
Fílmarmóníuhljómsveitinni í Bergen.
Frumflytur umrit-
un á verki Bachs