Morgunblaðið - 27.01.2021, Side 8

Morgunblaðið - 27.01.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021 Frumkvæði forsætisráðherraDanmerkur kallaði á þennan pistil Páls Vilhjálmssonar:    Svokallaðir hælis-leitendur eru oft ekki í leit að nýju heimili vegna óbæri- legra aðstæðna heima fyrir heldur að þjónustu og/eða starfsmöguleikum sem hælisríkið veitir.    Meintir hælisleit-endur eru trú- ir heimkynnum sín- um og menningar- arfleifð og aðlagast illa vestrænum siðum og háttum.    Margvíslegur vandi fylgir stór-flutningi fólks milli landa undir formerkjum hælisþjónustu.    Aðkomumenn telja sig í fullumrétti að iðka sína trú og siði í viðtökulandinu undir formerkjum fjölmenningarsamfélagsins.    Af því leiðir að þeir verða ekkihluti af samfélaginu sem veitir hæli enda stendur það ekki til – hæli er ekki heimili.    Heimamenn á hinn bóginn horfaupp á samfélag sitt verða sér framandi. Þar sem áður var kunn- ugleg menning er orðin illskiljan- leg fjölmenning.    Danir átta sig á þessu vonumseinna. Er ekki kominn tími til að Íslendingar kveiki á perunni?“    Vandinn á Fróni er fyrst og síð-ast sá að leyfa ekki umræðuna. Fyrr sést ekki glæta. Ekki glæta STAKSTEINAR Páll Vilhjálmsson Mette Fredriksen Verkalýðshreyfingin ætlar ekki að sitja þegjandi hjá í aðdraganda þingkosninganna í haust heldur berjast fyrir áherslumálum sínum og gera sig gildandi í kosninga- umræðunni. „Við erum að undir- búa okkur undir kosningarnar og hvaða áherslur verkalýðshreyfing- in mun vera með í aðdraganda þeirra,“ segir Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR. „Við þurfum að bregðast við í aðdraganda kosning- anna og verka- lýðshreyfingin þarf að leggja áherslu á sín baráttumál sem hún vill að næsta ríkisstjórn setji á oddinn. Við vonumst til þess að flokkarnir muni taka þau mál á sína stefnuskrá. Þetta er eins og alltaf hefur verið gert að verkalýðshreyf- ingin reynir að gera sig gildandi með sín áherslumál í aðdraganda kosninga,“ segir hann. Kosningarnar fara fram 25. september. Endurskoðun kjara- samninga ber upp á sama tíma og á að vera lokið fyrir septemberlok. Vinnur verkalýðshreyfingin að því að ná í gegn málum gagnvart stjórnvöldum. omfr@mbl.is Gera sig gildandi fyrir kosningar  Verkalýðshreyfingin undirbýr áherslur fyrir kosningarnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kröfuganga Verkalýðshreyfingin ætlar að halda baráttumálum á lofti. Ragnar Þór Ingólfsson Vegagerðin lokaði í gær þjóðvegi eitt á milli Mývatns og Egilsstaða vegna krapastíflu sem flæddi yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Krapaflóðið sleit í sundur stofnsamband Mílu á milli Reykja- hlíðar og Hjarðarhaga. Vinna við strenginn hefst nú í morgunsárið. Flóðið skildi eftir sig gríðarlegt magn af krapa og ís en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Norð- urlandi eystra flæddi yfir veginn vestan við brúna og flóðið skildi eftir sig gríðarlegt magn af krapa og ís. Krapahaugurinn var sagður líkjast snjóflóði en hann var um þriggja metra djúpur og náði yfir um 200 metra af veginum. Í gærkvöldi vann Vegagerðin að því að moka af veginum. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær- kvöldi var enn óljóst hvenær veg- urinn yrði opnaður aftur. Talið er að krapaflóðið hafi hrann- ast upp um miðjan dag í gær, upp úr klukkan þrjú. Samkvæmt gögnum Veðurstofunnar virðist gríðarlegur toppur hafa komið í vatnshæð árinn- ar um miðjan dag í gær og svo snar- fallið aftur. Þjóðveginum lokað vegna krapaflóðs  Haugurinn um þriggja metra djúpur Ljósmynd/Lögreglan Krapaflóð Talið er að krapaflóðið hafi hrannast upp um miðjan dag í gær. STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.