Morgunblaðið - 27.01.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.01.2021, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Hin einkennilega forsetatíð Donalds Trumps einkenndist af sjálfsdýrkun, duttl- ungum, skilningsleysi á stjórnkerfinu og aug- ljósu kunnáttuleysi í stjórnsýslu, hags- munagæslu fyrir sjálf- an sig og sína, ósann- indum og almennum dónaskap við bæði út- lendinga og eigin þjóð, skattalækk- unum fyrir efnaða og ríka og viðvar- andi átaki við að grafa undan heilbrigðiskerfinu og annarri fé- lagslegri þjónustu. Þá tókst honum að klúðra með ótrúlegri vanhæfni öll- um viðbrögðum við kórónuveirunni. Að auki bjó hann við fordæmingu flestra fjölmiðla í Bandaríkjunum öll fjögur árin. Er nokkur furða þó menn spyrji hvernig þetta gat gerst. Hvers vegna munaði hársbreidd að Trump næði endurkjöri, eftir þessa frammistöðu? Versnandi lífskjör þjóðarinnar Árin eftir heimsstyrjöldina síðari voru einhver mestu velsældarár sög- unnar, en almenningur í Bandaríkj- unum naut þeirra ekki nema fyrstu áratugina. Árin 1948 til 1979 jókst framleiðsla vinnuafls um 108,1 pró- sent og laun hækkuðu um 93,2 pró- sent, sem þýðir að nokkur fylgni var með framleiðni og launum. En um 1975 urðu þáttaskil og mikil breyting á næsta tímabili frá 1979 til 2018. Þá jókst framleiðni vinnuafls um 69,6 prósent, en laun hækkuðu aðeins um 11,6 prósent. Og þessi hækkun fór ekki til 25 prósenta lægst launuðu eða millistéttarinnar sem er 50 prósent. Hún fór til eig- enda fyrirtækja og fjármagns, stjórnenda og annarra forgangshópa. Til viðbótar þessu jókst verðgildi verðbréfa og hlutabréfa á markaði um 603 prósent á fyrra tímabilinu, en um 2.200 prósent frá 1979 til 2018. Loks hækkuðu laun forstjóra um 940 prósent en öll laun um aðeins 11,6 prósent 1979 til 2018. Gífurlegt mis- gengi varð milli almennra launþega og forgangsstéttanna (elites). Ameríski draumurinn varð að martröð Ameríski draumurinn hefur byggst á því að Bandaríkin séu land tækifæranna, þar sem launamaður geti séð fjölskyldu sinni farborða með nokkru öryggi. Til viðbótar hef- ur það verið meginatriði í lífi Banda- ríkjamanna að koma börnum sínum til mennta. Meðan laun 75 prósenta lands- manna hafa staðið í stað eða lækkað hefur kostnaður við háskólanám fjór- faldast, með þeim af- leiðingum að námslán eru orðin þyngsta skuldabyrði heimila millistéttarinnar, hærri en bílalán og kredit- kortaskuldir (sem í Bandaríkjunum eru ekki greiddar upp mán- aðarlega og eru snar þáttur í fjármögnun al- mennings). Nú er svo komið að millistéttarmaður, sem hefur haldið vinnunni alla tíð, deyr skuldugur. Enn verra er ástandið hjá öllum þeim fjölda fólks, sem hefur orðið út undan í hamslausri gróðaleit stór- fyrirtækja, sem hafa rústað heilum borgum með því að kaupa stærsta vinnuveitandann og flytja burt, eða flytja starfsemina til Austurlanda og leggja hana niður heima. Nýfrjálshyggjan nær tökum Á síðastliðnum fjórum áratugum hefur það gerst, að allar vestrænar ríkisstjórnir hafa aðhyllst stefnu sem nefnd hefur verið nýfrjáls- hyggja. Svipaðar kenningar hafa þekkst áður, en upp úr 1975 náði hún fótfestu að nýju. Grundvallarkenn- ingin er að ríkisstjórnir séu van- hæfar og háðar þrýstihópum en hinn óhefti markaður tryggi hagkvæmni og réttlæti í efnahagsmálum. Vel- sæld verði tryggð með því að þeir ríku verði ríkari, því að þá muni þeir fjárfesta í atvinnuskapandi verk- efnum, öllum til hagsbóta. Joseph Stiglitz, Nóbelshafi í hag- fræði, skrifaði 12. janúar síðastlið- inn: „Ný tækni hefur boðið upp á hraða dreifingu rangra upplýsinga. Stjórnmálakerfi, sem er á valdi fjár- magnsins, hefur undanskilið tækni- risana frá allri ábyrgð og hefur með- tekið stefnu nýfrjálshyggjunnar, sem hefur skapað stórvægilega auð- söfnun forgangshópa. Þetta er svo alvarlegt að Bandaríkin, sem eru í forystu í vísindum og tækni, búa við lækkandi lífslíkur og versnandi að- gang að heilsugæslu.“ Nema fyrir efnafólk. Trump var sjúkdómseinkenni Eftir miðjan áttunda áratuginn hafði nýfrjálshyggjan náð þeim tök- um að ekki var nema blæbrigðamun- ur á efnahagsstefnu forseta Banda- ríkjanna, hvort sem þeir hétu Reagan, Bush eldri og yngri, Bill og Hillary Clinton eða Obama. Allir að- hylltust þeir líka óhefta hnattvæð- ingu, sem er skilgetið afkvæmi ný- frjálshyggjunnar. Þetta ástand skapaði grundvöll fyrir Trump, sem náði kosningu af því að þjóðin var orðin uppgefin á þessari sameiginlegu stefnu beggja flokka í Bandaríkjunum og vildi prófa hvað sem væri sem gæti verið skárra. Trump hefur með meist- aralegum loddaraskap tekist að byggja upp öflugan hóp stuðnings- manna. Við megum undirbúa okkur undir endurkomu Trumps eða að repúblikanar velji sér betri stjórn- málamann með svipuð stefnumál og Trump. Mótsögnin í fari Trumps er að hann hefur gefið sig út fyrir að vera verndari smælingjanna, en á sama tíma lækkað skatta á auðmenn og unnið gegn bættri heilbrigðisþjón- ustu og öðrum hagsmunamálum þeirra sem minna mega sín. Biden er persónugervingur fortíðarinnar Það er mál manna að Biden sé hinn vænsti maður, velviljaður, rétt- sýnn og góður samningamaður á þingi. Hans stærsta vandamál verð- ur trúlega að hann er innanbúð- armaður í klúbbi forgangshópa, sem hafa stjórnað Bandaríkjunum á und- anförnum áratugum „á valdi fjár- magnsins“ eins og Stiglitz orðar það. Það er heldur ekki langt um lið- ið síðan Bloomberg-fréttastofan sagði frá því að Biden hefði lofað því á fundi með ríkum stuðnings- mönnum, að ekki yrði haggað við þeirra hagsmunum ef hann næði kosningu. Þá má ekki gleyma því hversu kosningasigur hans var naumur. Til að færa ástandið í Bandaríkj- unum til betri vegar þarf átök í lík- ingu við New Deal Franklins D. Roosevelts eftir kreppuna miklu. Ríkisstjórnir hans áttu ríkan þátt í að móta það blandaða hagkerfi, sem gafst svo vel fram á áttunda áratug síðustu aldar. Hvort Biden hefur sýn og orku til slíkra átaka á eftir að koma í ljós. Vandinn er víðar Því miður er þessi vandi ekki ein- angraður við Bandaríkin. Nýfrjáls- hyggjan hefur ráðið ríkjum í lýð- ræðisríkjum Vesturlanda á sama tíma. Efnahagsstefna Þýskalands hefur verið sú sama í grundvall- aratriðum hvort sem kanslarinn hef- ur heitið Scheel, Schmidt, Kohl, Schröder eða Merkel. Í Bretlandi var ekki grundvallarmunur á stefn- unni hjá Thatcher, Major, Blair, Brown, Cameron eða Johnson. Eða í Frakklandi hvort sem forsetinn hét d’Estaing, Mitterrand, Chirac, Sar- kozy, Hollande eða Macron. Misrétti hefur afleiðingar Afleiðingar nýfrjálshyggjunnar eru komnar í ljós. Nánast allar kenningar þeirrar stefnu hafa brugðist, segir Robert Kuttner í American Prospect 25. júní 2019. „Kaupsýslu hefur verið ríkulega launað, skattar verið lækkaðir, eft- irlit með viðskiptalífinu minnkað eða jafnvel verið einkavætt, með þeim árangri að misskipting auðs hefur vaxið stórlega og dregið úr hagvexti. Heilbrigð samkeppni hefur látið undan síga fyrir hringamyndun og fjármagni beitt til að hafa áhrif á stjórnmálin til að auka samþjöppun í viðskiptalífinu.“ Hann bendir einnig á að nýfrjáls- hyggjan hafi haft í för með sér reglubundin efnahagshrun. Stærst varð bankahrunið 2008. Það kostaði Bandaríkin 15 trilljónir dollara og miklu meira á heimsvísu. Ríkisvaldið bjargaði bönkunum og hver borgaði reikninginn fyrir stjórnlausa banka- starfsemi? Það var fólkið í landinu, því að ríkissjóðir geta hvergi annars staðar fengið fjármagn. Flestir vitibornir menn eru búnir að átta sig á því að nýfrjálshyggjan gæti gengið af lýðræðinu dauðu, þó að sumum geti reynst erfitt að við- urkenna það fyrir sjálfum sér. Mis- rétti í þjóðfélögum hefur gjarnan endað með ósköpum. Ekkert þjóð- félag á tilverurétt ef það býr ekki öll- um þegnum sínum lífvænlega til- veru. Við forsetaskipti í Bandaríkjun- um – hvers vegna og hvað svo? Eftir Ólaf Sigurðsson »Misrétti í þjóð- félögum hefur gjarn- an endað með ósköpum. Ekkert þjóðfélag á til- verurétt ef það býr ekki öllum þegnum sínum líf- vænlega tilveru. Ólafur Sigurðsson Höfundur er fyrrverandi fréttamaður á Sjónvarpinu. Alltaf komast í frétt- irnar fjarstæðukennd loforð um gerð nýs heilsársvegar yfir Öxi. Þarna skiptast Aust- firðingar í tvær and- stæðar fylkingar þegar hart er deilt um, hvort heilsársvegur eigi heima á illviðrasömu og snjóþungu svæði í 530 m hæð. Sem liður í mót- vægisaðgerðum stjórn- valda gegn kvótaskerðingunni, telja andstæðingar framkvæmdarinnar að þessi vegur muni tapa gildi sínu og að það sé tímaskekkja og stórt skref aft- ur á bak að beina allri vetrarumferð upp í þessa hæð yfir sjávarmáli. Enn fleiri landsbyggðarþingmenn við- urkenna að það sé liðin tíð að leggja vegi yfir fjöll og firnindi þegar þeir fullyrða að tími jarðganga sé kominn. Milli Djúpavogs og Egilsstaða stytt- ist vegalengdin mjög mikið með upp- byggðum Axarvegi, sem er mikil samgöngubót yfir sumarmánuðina. Ekki er sjálfgefið að þessi vegur tryggi örugga heilsárstengingu allan ársins hring þegar snjó- þyngsli á þessum þröskuldi ná 6-10 m hæð. Alltaf lendir Öxi í klóm blindbyls og snjó- þyngsla. Á þessu svæði, sem er alltof illviðra- samt, hverfur snjósöfn- un aldrei, og sömuleiðis veðurhæðin sem farið hefur upp í 80 metra á sekúndu. Tillagan um að Axarvegur verði lagður niður í Berufjörð á snjóþungu svæði, í miklum hliðarhalla fyrir neðan Mannabeinahjalla, án þess að öryggi ökumanna skipti máli, er óskynsamleg. Gegn þessari hugmynd tala skynsamir landsbyggð- arþingmenn. Á þessu svæði geta aur- skriður, snjóflóð og grjóthrun sem enginn sér fyrir kostað alltof mörg mannslíf ef vegurinn sópast niður hlíðina. Í 200 m hæð fyrir ofan Beiti- velli er þetta óheppilegt vegarstæði sem tryggir aldrei umferðaröryggi og verður ávísun á enn meiri slysahættu. Allt tal um að með uppbyggðum heilsársvegi yfir Öxi flytjist öll snjó- þyngslin þaðan yfir á Breiðdalsheiði er úr tengslum við raunveruleikann. Upplognar fullyrðingar um að engin umferð sé um Breiðdalsheiði eru góð söluvara fyrir stuðningsmenn Axar- vegar, til að reka hornin í samgöngu- mál Breiðdælinga, án nokkurs til- efnis. Besta lausnin er að fá tvenn stutt veggöng inn í Breiðdal sem tengja Berufjörð enn betur við Skrið- dal, þegar vegirnir í Kambaskriðum og á Fagradal lokast vegna blindbyls og snjóflóða. Nógu erfitt er að sitja uppi með slysahættuna á öllu svæð- inu milli Stöðvarfjarðar og Horna- fjarðar, án þess að snjóþungum fjall- vegum í 530 m hæð verði fjölgað næstu áratugina. Þótt samgöngubætur auki öryggi ökumanna og sameini byggðirnar er líka erfitt að sýna fram á ótvíræða arðsemi. Eftir að efnahagskreppan skall á mun eitthvað af þeim vega- framkvæmdum sem fyrrverandi rík- isstjórn lofaði að loknum alþing- iskosningum 2007 frestast tímabundið. Vegna aukinnar verð- bólgu og verðbóta, sem Vegagerðin greiðir verktökum upp að vissu marki, hrökkva fjárveitingar ekki eins langt og búist er við. Til þess að tapið á vetrarþjónustu Vegagerð- arinnar færi ekki yfir einn milljarð króna var talið óhjákvæmilegt að hætta snjómokstri á nokkrum fjall- vegum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi seint á árinu 2008, þegar í ljós kom að kostnaðurinn við sam- felldan mokstur á Axarveginum hækkaði alltof mikið. Andstæðingar Fáskrúðsfjarðar- og Norðfjarð- arganga standa nú uppi sem ein- angrað steintröll úr tengslum við raunveruleikann, þegar þeir halda að öllum fjármunum sé stolið frá Öxi. Óheppilegt er að gera lang- tímaáætlun sem tengist fortíðinni þegar því er lofað að uppbyggður vegur á illviðrasömum og snjóþung- um svæðum verði hindrunarlaus alla vetrarmánuðina í 500-600 m hæð. Það getur Vegagerðin aldrei tryggt. Þeir sem leggjast gegn öllum jarð- gangagerðum næstu áratugina eiga engan rétt á þeim fjörutíu árum seinna. Öxi í klóm byls og snjóþyngsla Eftir Guðmund Karl Jónsson » Óheppilegt er að gera langtíma- áætlun sem tengist for- tíðinni. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.