Morgunblaðið - 27.01.2021, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021
SÉRBLAÐ
SMARTLANDS
BLAÐIÐ
Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Fjallað verður
um tískuna 2021
í förðun, snyrtingu,
útliti og fatnaði auk
umhirðu húðarinnar,
heilsu, dekur o.fl.
60 ára Hallur er borinn
og barnfæddur Akur-
eyringur. Hann ólst upp
í Skipagötu 4 og býr í
Teigahverfinu. Hallur er
offsetprentari að mennt
og er framleiðslustjóri
hjá Ásprenti.
Maki: Laufey Petrea Magnúsdóttir, f.
1962, uppeldis- og menntunarfræðingur.
Börn: Ása Sigríður, f. 1982, og Arnór Egill,
f. 1989. Barnabörnin eru Tristan Gauti og
Fanney Petrea Arnórsbörn.
Foreldrar: Brynja Heiðdal, f. 1942, d.
2016, og Stefán A. Jónasson, f. 1938, d.
2016. Þau ráku gistiheimilið Ás í Skipa-
götu 4.
Hallur Jónas
Stefánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur byrinn með þér til að klára
þau verkefni sem setið hafa á hakanum.
Slakaðu á og hleyptu ástinni inn í líf þitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Hagaðu orðum þínum svo að ekkert
fari á milli mála hvað þú átt við. Þú hefur
sett allt þitt traust á ranga manneskju.
Mundu að það styttir alltaf upp að lokum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu á tánum gagnvart þeim
tækifærum sem þér kunna að bjóðast.
Haltu þig við skoðanir þínar, þú ert númer
eitt í þínu lífi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert á tánum í dag en veist ekki
af hverju, það kemur í ljós í kvöld. Við þurf-
um öll að taka okkur tíma í einveru svona af
og til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú nennir að hafa fyrir hlutunum
muntu undrast afraksturinn. Mundu bara
að ofmetnast ekki, því dramb er falli næst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú getur glaðst yfir góðu verki.
Vertu opin/n fyrir að kynnast fólki. Spáðu í
það hvert þig langar að stefna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Horfur í peningamálum eru betri en oft
áður. Hringdu nú í vini þína og fáðu góð ráð.
Nágrannaerjur eru í uppsiglingu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eirðarleysi og/eða stefnuleysi
gerir vart við sig í dag. Þú ferð fljótlega á
blint stefnumót sem á eftir að breyta miklu
í þínu lífi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu opin/n gagnvart tillögum
samstarfsmanna þinna og leyfðu þeim að
velta upp sem flestum flötum á málunum.
Gefðu þér tíma til að vera með vinum þín-
um.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að halda í bjartsýni þína
í vinnunni. Þú ættir ekki að slá hugmynd
makans um breytingar á húsnæðinu út af
borðinu, skoðaðu málið aðeins betur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú stendur fast á þínu í sam-
skiptum þínum við aðra í dag og ættir að
klappa þér á bakið að því loknu. Einhver
sendir þér skilaboð sem valda þér von-
brigðum í stutta stund.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum verður bara að kýla á hlut-
ina en ekki bíða þess að þeirra tími sé kom-
inn. Góður vinur gefur þér gjöf sem mun
gleðja þig mikið.
rödd með mér sem sannfærði mig um
að nú og síðar á lífsleiðinni yrði ég
alltaf að vera „sterk“.
Mesta gæfuspor í lífi mínu var þeg-
ar ég kynntist Guðmundi á balli í
Oddfellow árið 1947. Hann fæddist
með fulla heyrn en hafði lært fingra-
fjölskyldu og félagsstörfum vann
Hervör á Borgarspítalanum í ára-
raðir.
Afdrifaríku augnablikin –
tveir tungumálaheimar
„Ég er þakklát fyrir að hafa lifað
glaðvær og sterk í 90 ár,“ segir Her-
vör. „Einn erfiðasti en um leið af-
drifaríkasti tími í lífi mínu var þegar
ég hóf nám við Málleysingjaskólann í
Reykjavík sjö ára gömul. Þegar móð-
ir mín kvaddi mig mállausa og heyrn-
arlausa í nýju umhverfi brast eitthvað
í mínu hjarta. Ég skildi ekki af hverju
mamma fór. Við tók margra daga
táraflóð og mikill söknuður eftir fjöl-
skyldunni og heimahögunum. Táknið
mitt; Hervör, er táknað með vísifingri
sem myndar bauga undir auga en
táraflóðið varð tilefni nafngiftar
minnar á táknmáli. En í skólanum
lærði ég að tjá mig og ný vídd opn-
aðist. En það var alltaf einhver innri
S
igurbjörg Hervör Guðjóns-
dóttir fæddist 27. janúar
1931 á Hesti í Önundar-
firði. Sjö ára, árið 1938,
fór Hervör til Reykjavík-
ur í fylgd móður sinnar til að dvelja í
heimavist og hefja nám í Málleys-
ingjaskólanum, síðar nefndur Heyrn-
leysingjaskólinn.
Hervör var afburðanemandi og til-
finninganæm svo af bar. Hún var
fljót að tileinka sér aðferðir sem voru
kenndar í skólanum; munn-hand-
kerfið, táknmál, fingrastafróf, vara-
lestur og talkennslu. Hervöru var
fljótt treyst fyrir mikilvægum verk-
efnum. Hún túlkaði fyrir aðra nem-
endur, opnaði faðminn og þerraði tár
nýrra nemenda. Frá 15 ára aldri
túlkaði hún m.a. yfir í eigið tal og
táknmál til Brands Jónssonar skóla-
stjóra og annarra í viðkvæmum
dómsmálum þar sem heyrnarlausir
komu við sögu. Hún var ein af stofn-
endum Félags heyrnarlausra árið
1960. Hervör var formaður félagsins
um árabil og fulltrúi þess í Norður-
landasamstarfi heyrnarlausra.
Hervör var fyrsta heyrnarlausa
konan á Íslandi sem fékk bílpróf
samkvæmt nýjum umferðarlögum
árið 1964. Hervör og eiginmaður
hennar, Guðmundur Egilsson, með
Brandi, höfðu unnið málinu braut-
argengi fyrir heyrnarlausa. Þau hjón
túlkuðu og aðstoðuðu heyrnarlausa
áður en túlkaþjónusta varð að veru-
leika á Íslandi. Heimilið var eins og
félagsmiðstöð, ætíð opið fyrir heyrn-
arlausa vini og börnin þeirra fimm ól-
ust upp við táknmál og íslensku hlið
við hlið.
Í formannstíð Hervarar eignaðist
félagið eigið húsnæði og fyrsta tákn-
málsorðabókin var gefin út. Unnið
var að ýmsum framfaramálum, m.a.
textun og táknmálsfréttum í sam-
starfi við önnur félög. Hervör og
Guðmundur túlkuðu þegar Helen
Keller kom til landsins árið 1957. Þau
hjón voru gerð að heiðursfélögum
Félags heyrnarlausra á 25 ára afmæli
félagsins. Samhliða uppeldi stórrar
stafróf af heyrnarlausum vinnufélaga.
Hann bauð mér í dans. Dansinn okk-
ar varir enn þótt sporin séu hægari.
Við giftum okkur 1956 og höfum verið
samtaka í okkar lífsbaráttu.
Skrítnar tilfinningar bærðust með
mér þegar börnin okkar fimm fædd-
ust. En óttinn við að þau myndu fæð-
ast heyrnarlaus leið strax hjá um leið
og ég leit þau augum. Skýrt og kvikt
augnaráð var svarið sem ég leitaði
eftir. Guðmundur minn var alltaf ná-
lægur og hann skildi strax augna-
tillitið sem ég gaf honum eftir fæðing-
arnar. Allt yrði í lagi. Enda er ég
þakklát fyrir allt fólkið mitt og barna-
börn sem hafa gefið mér gæfuríkar
stundir innanlands og erlendis í tíðum
ferðalögum fjölskyldunnar.
Ég er þakklát fyrir alla sem ég hef
átt samleið með á lífsleiðinni í lífi og
leik. Ég þakka áratugina sem ég vann
á Borgarspítalanum með starfsfólki
sem brosti á móti mínu brosi, leit ekki
Hervör Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Félags heyrnarlausra – 90 ára
Geislandi brautryðjandi
í málefnum heyrnarlausra
Hjónin Hervör og Guðmundur.
Fjölskyldan Hervör og Guðmundur ásamt börnum árið 1992. Afmælisbarnið Hervör árið 2020.
Ljósmyndir/Gunnar Salvarsson
50 ára Emil er Hrís-
eyingur, ólst þar upp
til tvítugs og bjó síðan
í Reykjavík, Sønder-
borg og Berlín en hef-
ur frá 2016 búið í
Glerárhverfi á Akur-
eyri. Hann er raf-
magnstæknifræðingur að mennt og
vinnur hjá Raftákni. Emil stundar flugu-
veiði og uppáhaldsárnar eru Svartá í
Bárðardal og Laxá í Aðaldal.
Sonur: Magnús Ýmir, f. 2007.
Foreldrar: Rósamunda Káradóttir, f.
1941, húsmóðir, búsett í Hrísey, og Ás-
geir Halldórsson, f. 1934, d. 2016, málari
í Hrísey.
Emil Örn
Ásgeirsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Margrét Bjarnadóttir
fæddist 7. janúar 2020 kl. 17.34. Hún
var 3.160 g að þyngd og 49 cm að
lengd. Foreldrar hennar eru Kristín
Sævarsdóttir og Bjarni Ingimar
Júlíusson.
Nýr borgari