Morgunblaðið - 27.01.2021, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2021
Skoska knattspyrnufélagið Celtic
mun minnast Jóhannesar Eðvaldssonar
með einnar mínútu þögn fyrir leik liðs-
ins gegn Hamilton í skosku úrvalsdeild-
inni í kvöld. Jóhannes er látinn, sjötugur
að aldri, en hann lék með Celtic á ár-
unum 1975 til 1980 þar sem hann varð
tvisvar skoskur meistari og var gríðar-
lega vinsæll meðal stuðningsmanna fé-
lagsins. Jóhannes, sem var landsliðsfyr-
irliði Íslands um árabil, var kallaður „Big
Shuggie“ en hann var búsettur í Glas-
gow alla tíð eftir að ferli hans sem at-
vinnuknattspyrnumanns lauk.
Handknattleikslandslið Katar sem er
komið í átta liða úrslitin á heimsmeist-
aramótinu í Egyptalandi hefur orðið fyr-
ir gríðarlegu áfalli. Markvörðurinn snjalli
Danijel Saric getur ekki leikið meira
með liðinu á mótinu vegna meiðsla í öxl.
Saric, sem er orðinn 43 ára, hefur verið í
algjöru lykilhlutverki og átt nokkra stór-
leiki á mótinu. Saric staðfesti þetta
sjálfur við TV2 í Danmörku. Katar mætir
Svíþjóð í átta liða úrslitunum í kvöld eft-
ir að hafa skilið Króatíu og Argentínu
eftir í harðri baráttu í milliriðlakeppn-
inni.
Enska knattspyrnusambandið hefur
viðurkennt að fyrra mark Manchester
City í sigri liðsins á Aston Villa, 2:0, í úr-
valsdeildinni í síðustu viku hefði ekki átt
að standa og hefur í kjölfarið breytt
áherslum í rangstöðureglunum. Rodri,
leikmaður Manchester City, kom þá úr
rangstöðu, náði boltanum af aftasta
varnarmanni Aston Villa og lagði upp
markið fyrir Bernardo Silva. Þetta gerð-
ist á 79. mínútu þegar staðan var enn
0:0. Dean Smith, knattspyrnustjóri
Villa, fékk rauða spjaldið fyrir að mót-
mæla markinu kröftuglega.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur sam-
ið við bandaríska miðjumanninn Caity
Heap um að leika með kvennaliði félags-
ins á komandi keppnistímabili. Heap,
sem er 26 ára gömul, er reynslumikill
leikmaður. Hún var í sterku liði Texas
Tech-háskólans en eftir útskrift samdi
hún við Houston Dash í bandarísku at-
vinnumannadeildinni og lék þar 2016 og
2017. Eftir það hélt hún til Evrópu og lék
eitt tímabil með Mallbacken í sænsku B-
deildinni áður en hún gekk til liðs við
tékknesku meistarana í Sparta Prag.
Þróttur í Reykjavík hefur samið við
fimm af lykilleikmönnum kvennaliðs fé-
lagsins í knattspyrnu. Þetta eru þær
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Andrea
Rut Bjarnadóttir, Jelena Tinna Kuj-
undzic, Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir
og Linda Líf Boama, en þær eru allar
fæddar á árunum 2000 til 2003.
Valþór Guðrúnarson, leikmaður Þórs
á Akureyri, slasaðist á öxl í fyrrakvöld
þegar lið hans tapaði naumlega fyrir Val
á Hlíðarenda, 30:27, í úrvalsdeild karla í
handknattleik, Olísdeildinni. Þetta kem-
ur fram á Akureyri.net en sagt er að
hann hafi lent illa á gólfinu eftir að hafa
komið Þór í 20:19 þegar 20 mín-
útur voru eftir af leiknum og
farið úr
axlarlið.
Fagfólk
hafi
komið honum aft-
ur í lið áður en Valþór
fór af velli en hann hafi
áður orðið fyrir sams-
konar meiðslum og
myndataka muni
leiða í ljós hvort
hann þurfi að fara
í aðgerð.
Eitt
ogannað
Það er fátt sem stoppar Englands-
meistaraefnin í Manchester City
þessa dagana en liðið vann sinn sjö-
unda deildarleik í röð þegar liðið
heimsótti WBA í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu á The Hawthorns
í London í gær.
City-menn byrjuðu leikinn í
fimmta gír, skoruðu þrjú mörk á
fyrsta hálftímanum og leiddu með
fjórum mörkum gegn engu í hálfleik.
Þeir gátu leyft sér að slaka á í síð-
ari hálfleik enda leikmenn WBA
löngu búnir að kasta inn hvíta hand-
klæðinu eftir hörmulega frammi-
stöðu í fyrri hálfleik.
City er komið á toppinn í ensku
úrvalsdeildinni en liðið er með 41
stig í efsta sæti deildarinnar og hef-
ur eins stigs forskot á nágranna sína
í Manchester United.
Þá er Manchester City níunda lið-
ið á tímabilinu sem er á toppi deild-
arinnar í lok leikdags en miklar
sviptingar hafa verið í efstu sætum
deildarinnar undanfarnar vikur.
Deildin hefur sjaldan verið jafn
spennandi en alls eru átta lið með 30
stig eða meira og forskot City því
ekki mikið, þrátt fyrir frábæra spila-
mennsku í undanförnum leikjum.
Þá er Arsenal komið í áttunda
sæti deildarinnar eftir 3:1-sigur
gegn Southampton á St. Mary‘s-
vellinum í Southampton í gær.
Það voru þeir Nicolas Pépé, Buka-
yo Saka og Alexandre Lacazette
sem skoruðu mörk Arsenal í leikn-
um eftir að Stuart Armstrong hafði
komið Southampton yfir á 3. mínútu.
Eftir skelfilega byrjun á tíma-
bilinu hefur Arsenal unnið fjóra af
síðustu fimm deildarleikjum sínum
og er liðið einungis 4 stigum frá Evr-
ópusæti.
Mikel Arteta, þjálfari liðsins, virð-
ist vera búinn að finna sitt besta
byrjunarlið en liðið var nokkrum
stigum frá fallsæti rétt fyrir jól.
Lacazette skoraði sitt tíunda
mark á tímabilinu gegn Southamp-
ton en hann hefur verið iðinn við kol-
ann í undanförnum leikjum og átt
stóran þátt í viðsnúningi Arsenal.
Manchester City níunda
liðið á toppi deildarinnar
AFP
7 Manchester City er á miklu skriði þessa dagana með sjö deildarsigra í röð.
Marcus Rashford, sóknarmaður
Manchester United, er klár í slaginn
gegn Sheffield United í ensku úr-
valsdeildinni í kvöld en óttast var að
hann yrði frá vegna meiðsla eftir að
hann fór af velli gegn Liverpool í 4.
umferð bikarkeppninnar á sunnu-
daginn. „Marcus er tilbúinn. Hann
æfði í morgun [gær], hann fékk ein-
hvern slink á hnéð en það virðist
vera í lagi,“ sagði Ole Gunnar Sol-
skjær, knattspyrnustjóri United, á
vef félagsins í gær og sagði að
myndataka hefði leitt í ljós að ekkert
alvarlegt hefði átt sér stað.
Rashford ekki
alvarlega meiddur
AFP
Frískur Rashford, t.h., fagnar marki
sínu gegn Liverpool.
Sigrún Árnadóttir fór á kostum fyr-
ir Fjölni þegar liðið mætti SR í
Hertz-deild kvenna í íshokkí í Eg-
ilshöll í gær. Leiknum lauk með 9:1-
sigri Fjölnis en Sigrún skoraði fjög-
ur mörk fyrir Grafarvogsliðið.
Laura Murphy skoraði tvö mörk
fyrir Fjölni og þær Kristín Inga-
dóttir, Maríana Birgisdóttir og
Steinunn Sigurgeirsdóttir sitt
markið hver. Fjölnir er í efsta sæti
deildarinnar með 3 stig, líkt og SA,
en SA á leik til góða á Fjölni. SR er
á botni deildarinnar án stiga eftir
fyrstu tvo leiki sína.
Markaveisla í
Egilshöll
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
4 Sigrún Árnadóttir var illviðráð-
anleg í Egilshöllinni í gærkvöldi.
Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir
tryggði KA/Þór dýrmætt jafntefli
gegn Val þegar liðin mættust í
toppslag 6. umferðar úrvals-
deildar kvenna í handknattleik í
Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær.
Leiknum lauk með 23:23-
jafntefli en mikið jafnræði var
með liðunum allan leikinn og
skiptust þau á að skora.
Valskonur náðu mest tveggja
marka forskoti í fyrri hálfeik en
KA/Þór kom til baka og var stað-
an jöfn í hálfleik, 11:11.
„Ef annað liðið náði forystu
jafnaði hitt jafnharðan. Allt var í
járnum allt til enda leiks,“ skrif-
aði Gunnar Egill Daníelsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is.
Kristín Aðalheiður jafnaði met-
in fyrir KA/Þór þegar fimmtán
sekúndur voru til leiksloka.
Valskonur fengu tækifæri til
þess að jafna metin en sóknarbrot
var dæmt á Lovísu Thompson og
leikurinn fjaraði út.
Lovísa Thompson var marka-
hæst Valskvenna með átta mörk
en Rut Arnfjörð Jónsdóttir skor-
aði níu mörk fyrir KA/Þór, þar af
sex af vítalínunni.
Valur er áfram í efsta sæti
deildarinnar með 9 stig eftir sex
leiki en KA/Þór er í þriðja sætinu
með 8 stig. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Einvígi Lovísa Thompson, Val, sækir að Örnu Valgerði Erlingsdóttur, KA/Þór, á Hlíðarenda.
Allt í járnum í toppslagnum
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Flest bendir til þess að Þorsteinn
Halldórsson taki við starfi landsliðs-
þjálfara kvenna í fótbolta á allra
næstu dögum. Um leið þarf Breiða-
blik að hefja leit að nýjum þjálfara
fyrir kvennalið sitt en Þorsteinn hef-
ur stýrt því í sex ár með frábærum
árangri og uppskorið m.a. þrjá Ís-
landsmeistaratitla.
KSÍ tilkynnti í gær að íslenska
landsliðið væri á leið á sterkt al-
þjóðlegt mót, Tournoi de France, í
Sedan í Frakklandi dagana 17. til 23.
febrúar þar sem leikið verður gegn
Frakklandi, Noregi og Sviss, sem
eru í þriðja, ellefta og nítjánda sæti á
heimslista FIFA.
Þar fylgdi jafnframt sögunni að
leikið yrði undir stjórn nýs þjálfara á
mótinu en Jón Þór Hauksson hætti
störfum í byrjun desember eftir að
íslenska liðið hafði tryggt sér keppn-
isréttinn í lokakeppni Evrópumóts-
ins, sem fer ekki fram fyrr en sum-
arið 2022.
Eins og fram hefur komið var KSÍ
einnig í viðræðum við Elísabetu
Gunnarsdóttur um landsliðsþjálf-
arastarfið en upp úr þeim slitnaði
þegar Elísabet kvaðst ekki vera
tilbúin til að hætta strax með lið
Kristianstad til að taka við íslenska
landsliðinu.
Undankeppni HM í haust
Leikirnir þrír í Frakklandi verða
fyrsta verkefnið í undirbúningi liðs-
ins fyrir Evrópumótið en nýr þjálf-
ari mun jafnframt fara með liðið af
stað í undankeppni heimsmeist-
aramótsins. Lokakeppni þess fer
fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi árið
2023.
Undankeppnin á að hefjast í haust
en ekki hefur verið dregið í riðla enn
sem komið er. Þar á Ísland enn
meiri möguleika en áður á að komast
á HM því nú verða ellefu eða tólf
Evrópuþjóðir í lokakeppninni í stað
átta áður, þar sem liðum hefur verið
fjölgað úr 24 í 32.
Morgunblaðið/Eggert
Líklegur Þorsteinn Halldórsson
tekur væntanlega við landsliðinu.
Undir stjórn
Þorsteins í
Frakklandi?