Morgunblaðið - 10.02.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Forsetaskipti í Washington virðast
engu hafa breytt um stefnu Banda-
ríkjastjórnar um aukin samskipti við
Ísland og áhrif á norðurslóðum, en
æðstu ráðamenn þar hafa látið
áhuga sinn á þeim í ljós með ýmsum
hætti.
„Við höfum fullan skilning á því að
það taki ný stjórnvöld einhvern tíma
til að manna stöður og taka til þar
sem frá var horfið, enda margt á
borði Bandaríkjastjórnar,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið.
„En við finnum ekkert annað en
mjög skýr skilaboð um áframhald-
andi styrkingu á samskiptum Ís-
lands og Bandaríkjanna. Sem er í
góðu samræmi við okkar áherslur og
við mjög ánægð að finna það.“
Staðgengill sendiherra
tekur upp þráðinn
Tekið var eftir því að ríkisstjórn
Bidens beið ekki boðanna með að
senda til Íslands staðgengil sendi-
herra. Harry Kamian, þaulvanur
sendifulltrúi við Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu (ÖSE), var
sendur hingað til lands aðeins fjór-
um dögum eftir að Biden var settur í
forsetaembætti í liðnum mánuði.
Kamian greindi í liðinni viku frá
fundi sínum með Guðlaugi Þór og
sagði viðræður þeirra „einkar árang-
ursríkar“ um leiðir til þess að „dýpka
tengsl og samvinnu“ ríkjanna og
kvaðst hlakka til samstarfs við ís-
lensk stjórnvöld á ótal sviðum.
Vonast er til þess að Antony Blin-
ken, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, komi hingað til lands í maí á
ráðherrafund Norðurskautsráðsins,
þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra gegnir for-
mennsku. Blinken vill líkt og Mike
Pompeo, fyrirrennari hans, auka
áhrif Bandaríkjanna á þeim slóðum.
Líklegt má telja að honum verði ekki
síður ágengt í því, enda áhersla
stjórnar Bidens á loftslagsmál meira
í takt við þá stefnu sem önnur ríki
ráðsins hafa kynnt.
Stefna Bandaríkjastjórnar í ör-
yggis- og varnarmálum á norður-
slóðum virðist einnig sú sama og fyr-
ir forsetaskiptin, en Björn Bjarna-
son, fv. ráðherra og höfundur
skýrslu um norræna utanríkis- og
öryggismálastefnu, nefnir í nýlegri
færslu á heimasíðu sinni að Lloyd
Austin, nýr varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hafi á óformlegan
hátt, að minnsta kosti, boðið til við-
ræðna við bandalagsþjóðir (Íslend-
inga, Norðmenn og Dani) og sam-
starfsþjóðir (Finna og Svía) um
þróunina á norðurslóðum.
Stefna enn á norðurslóðir
Bandaríkjastjórn leggur áfram áherslu á norðurslóðir Von á Blinken í maí
Sendimaður boðar dýpri tengsl Nýr varnarmálaráðherra óskar viðræðna
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Harry
Kamian
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það er fínn gangur í þessu, gott
verð og ágætur afli þegar gefur á sjó
þannig að það er ekki nokkur
ástæða til að kvarta,“ sagði Árni
Björn Einarsson, skipstjóri, vél-
stjóri og útgerðarmaður á Hjördísi
HU 16, þegar rætt var við hann í
gær. Haustið 2019 lenti Árni Björn í
slysi um borð í bátnum er hann féll
niður í lest og sleit m.a. vöðvafestur
í öxl. Hann segist vera að jafna sig
en bíður þó aðgerðar vegna brjósk-
loss í baki.
Báturinn er frá Blönduósi, en rær
á vetrarvertíð frá Ólafsvík. „Við er-
um oft á haustin í Húnaflóanum, en
færum okkur í Breiðafjörðinn þegar
kemur fram í desember.“ Tveir eru
á Hjördísi, sem er 11 metra, 10
tonna bátur, auk beitningamanns í
landi. Þeir eru á línu og leggja yf-
irleitt 24 bala og hafa gjarnan fengið
um 200 kíló á bala. „Í flestum túr-
unum undanfarið höfum við fengið
um fimm tonn, langmest af þorski,
og mest sex tonn einn daginn. Það
er ekki slæmt á ekki stærri bát.“
Góður vertíðarbragur
Árni Björn og fleiri sem rætt var
við í gær sögðu að góður vertíðar-
bragur hefði verið kominn á veiði-
skapinn snemma í janúar og víða
hefði fengist góður afli. „Það eina
sem truflar er ýsan,“ segir Árni
Björn. „Hún virðist vera alls staðar
og þó svo að allir reyni að forðast
hana þar sem þeir eiga ekki kvóta,
þá er alls staðar sama sagan, það fá
allir ýsu.“
Á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda var í síðustu viku
fjallað um mikla ýsuveiði og sagði
þar m.a.: „Helstu áhyggjur manna
nú liggja í ýsunni. Ekki svo að hún
fáist ekki heldur að veiðiheimildir
eru ekki í neinu samræmi við afla-
brögð. Á það jafnt við um veiðar
með línu og botnvörpu. Á tímabilinu
september til janúar hafa veiðst rúm
25 þúsund tonn af ýsu á móti 18.396
á sama tíma í fyrra,“ sagði m.a. á
síðunni.
Í janúar hafi hægst á ýsuveiði
krókabáta, enda úthlutaðar veiði-
heimildir uppurnar. Það sem hafi
haldið krókabátum gangandi sé
heimild til að flytja þorsk í afla-
markskerfið og fá ýsu í jöfnum
skiptum á móti inn í krókaafla-
markskerfið.
Ýsustofninn á uppleið
Fyrir nokkrum árum veiddist
mest af ýsu við sunnan- og vestan-
vert landið og eru aflaheimildir að
stórum hluta bundnar við báta sem
gera út á suður- og vesturmið.
Stofnmælingar hafa sýnt að ýsu-
stofninn hefur verið heldur á uppleið
síðustu ár og horfur eru á góðri ný-
liðun á næstu árum. Hins vegar var
veiðihlutfall í aflareglu lækkað fyrir
nokkrum árum og þar með lækkuðu
veiðiheimildir samsvarandi. Afla-
mark á ýsu á þessu fiskveiðiári er
rúmlega 45 þúsund tonn sem er 9%
hækkun frá fiskveiðiárinu á undan.
„Gott verð og ágætur
afli þegar gefur á sjó“
Það eina sem truflar er ýsan, segir Árni á Hjördísi HU
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Löndun Árni Björn Einarsson með myndarlega ýsu á bryggjunni í Ólafsvík. Heimildir margra í ýsu eru uppurnar.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrr-
verandi ráðherra, er sterklega
orðuð við þingframboð fyrir Sam-
fylkinguna í Suðvesturkjördæmi
(Kraganum) á ný. Hún var áður
þingmaður flokksins þar frá 1999
til 2011, en er nú formaður Banda-
lags háskólamanna (BHM). „Ég get
staðfest að nafn mitt hefur verið
nefnt við uppstillingarnefnd og
það er til skoðunar þar,“ segir
Þórunn við Morgunblaðið, en verst
allra frekari frétta, þar sem nefnd-
in þurfi að geta unnið störf sín í
friði.
Samfylkingin á einn þingmann í
Suðvesturkjördæmi fyrir, en það
er Guðmundur Andri Thorsson,
sem áfram sækist eftir að vera í
efsta sæti listans.
Þá hefur Rósa Björk Brynjólfs-
dóttir, sem til skamms tíma sat á
þingi fyrir Vinstri hreyfinguna –
grænt framboð en gekk til liðs við
þingflokk Samfylkingarinnar
skömmu fyrir jól, sóst eftir því að
leiða listann í kjördæminu. Það
gerðist eftir að hún fékk ekki eitt
af efstu sætum flokksins í Reykja-
víkurkjördæmunum, þar sem
flokkurinn á nú einn þingmann í
hvoru.
Störf uppstillingarnefndar Sam-
fylkingarinnar í höfuðborginni
spurðust út um miðjan janúar og
sköpuðu nokkra ólgu í flokknum,
en í kjölfarið tilkynnti Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson að hann sæktist ekki
lengur eftir sæti á lista í haust.
Í því ljósi hefur uppstilling-
arnefnd Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi gætt þess að
halda spilunum þétt að sér. Miðað
er við að niðurstaðan verði ljós um
komandi mánaðamót.
Þórunn orðuð
við framboð á ný
Uppstilling í Kraganum langt komin
Morgunblaðið/Kristinn
Þreifingar Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir er orðuð við þingframboð.
Leit að John
Snorra Sigurjóns-
syni, Muhammad
Ali Sadpara og
Juan Pablo Mohr,
var ekki haldið
áfram á K2 í gær
vegna slæmra
veðurskilyrða.
Þau gerðu það að
verkum að þyrla
pakistanska hers-
ins gat ekki flogið og leitað þre-
menninganna. Síðast sáust þeir á
föstudagsmorgun og taldar eru litl-
ar líkur á að þeir finnist á lífi úr
þessu. Að sögn fulltrúa pakistanska
hersins verður þyrluflugi haldið
áfram um leið og veður leyfir en spá-
in næstu vikuna lofar ekki góðu.
Sajid Sadpara, sonur Muhammad
Ali, sem var sá síðasti sem sá þre-
menningana, sagði í gær að hann
hefði enn trú á að þeir fyndust á lífi.
Sjálfur sneri hann við og fór frá
hópnum vegna þess að súrefnisbún-
aður hans bilaði.
Leit með þyrlu
hersins hætt í bili
John Snorri
Sigurjónsson