Morgunblaðið - 10.02.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
ÞRÁÐLAUS SKÚRINGARVÉL
Næsta kynslóð skúringarvéla • Rafhlöðutími u.þ.b. 45 mínútur
FC 7 PREMIUM
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Oddafélagið stefnir að því að byggja
nýja Oddakirkju og menningar- og
fræðasetrið Sæmundarstofu í Odda
á Rangárvöllum. Þessi mannvirki og
starfsemi í þeim verði menningar-
miðja á þessu
merkasta höfuð-
bóli Suðurlands
þar sem rúmlega
þúsund ára sögu
staðarins og íbúa
hans verði gerð
skil. Stjórn Odda-
félagsins telur
ekki eftir neinu
að bíða að taka
fyrstu skóflu-
stunguna í ljósi
þess að eftir aðeins tólf ár verður
900 ára ártíðar Sæmundar fróða
minnst.
„Þetta er óskaplega spennandi
viðfangsefni. Það sameinar margt
sem ég hef brennandi áhuga á og ég
vil leggja mig fram um að koma á
framfæri,“ segir Friðrik Erlingsson,
rithöfundur á Hvolsvelli, sem ráðinn
hefur verið verkefnastjóri Odda-
félagsins. Hann hefur setið í stjórn
félagsins um árabil og tekið þar þátt
í þeim undirbúningi sem fram hefur
farið vegna fyrirhugaðrar uppbygg-
ingar í Odda.
Sögusýning sett upp
Síðustu ár hefur verið unnið að
fornleifarannsóknum í Odda, meðal
annars á Sæmundarhellum, til
undirbúnings uppbyggingar. Sett
hefur verið upp þverfaglegt
rannsóknarteymi um Oddarann-
sóknina sem nýtur stuðnings úr
verkefninu „Ritmenning íslenskra
miðalda“. Fornleifauppgröftur held-
ur áfram á næsta ári.
Meðal fyrstu verkefna Friðriks er
að undirbúa stóra útisýningu í Odda
um Sæmund fróða og sögu Odda og
að skipuleggja Oddahátíð í sumar.
Á sögusýningunni verða skilti með
ljósmyndum af fólki í búningum og
umhverfi miðalda, meðal annars Sæ-
mundi fróða. Friðrik segir að flestir
þekki Sæmund sem þjóðsagna-
persónu og galdramann. Reynt verði
að sýna manninn í réttu ljósi og gera
grein fyrir störfum hans í Odda sem
lögðu grunn að gullaldartíma í bók-
menntum Íslendinga.
Vegna þess að Oddafélagið fagnar
30 ára afmæli sínu verður Oddahátíð
veglegri en áður. Þar mun Sinfóníu-
hljómsveit Suðurlands koma fram í
fyrsta sinn á almennum tónleikum
ásamt Karlakór Rangæinga. Meðal
annars verður flutt nýtt lag við
kvæði séra Matthíasar Jochums-
sonar, „Á Gammabrekku“, en Matt-
hías þjónaði í Odda um tíma.
Stóra verkefnið kynnt
Tónleikarnir verða til styrktar
meginverkefni félagsins, uppbygg-
ingu nýrrar Oddakirkju og Sæ-
mundarstofu. Á hátíðinni verður
verkefnið kynnt.
Í Sæmundarstofu á að verða fjöl-
nota salur fyrir sýningar, viðburði,
móttökur, fyrirlestra, ráðstefnur og
einkasamkomur. Einnig móttaka,
verslun og veitingar fyrir ferðafólk
og aðra gesti, íbúð fyrir fræðimenn
ásamt bókhlöðu og tölvuveri. Þar
munu því fara saman rannsóknir og
fræðimennska og hvers kyns við-
burðir og menningarstarf.
„Sæmundarstofa og ný Odda-
kirkja yrðu þannig öflug menningar-
miðja á þessu merkasta höfuðbóli
Suðurlands, þar sem rúmlega þús-
und ára sögu staðarins verði gerð
skil, ásamt sögu þeirra karla og
kvenna sem staðinn sátu og lögðu
sitt af mörkum til sköpunar hinu
stórmerka menningarsamfélagi sem
þróaðist hér á landi á 12. og 13 öld,
sem var gullöld íslenskra bók-
mennta,“ segir í tilkynningu frá
Oddafélaginu.
Friðrik segir að góð samstaða sé
um Odda sem menningarmiðju Suð-
urlands. Hann sé hafinn yfir hreppa-
ríg. Það sé mikilvægt.
Undirbúa byggingu
Sæmundarstofu
Oddafélag vill hefja framkvæmdir í nafni Sæmundar fróða
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Oddakirkja Kirkja hefur verið í Odda frá því í öndverðri kristni. Markmið
Oddafélagsins er að reisa nýja veglega kirkju ásamt menningarmiðstöð.
Friðrik
Erlingsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Háskóli Íslands og Félagsstofnun
stúdenta, sem á hlut í Háskólatorgi,
munu fara yfir stöðu mála og næstu
skref með Veitum, undirverktökum
og tryggingafélögum þeirra á fundi
í dag. Fundarefnið er vatnstjónið
sem varð 21. janúar þegar vatns-
leiðsla í eigu Veitna bilaði og vatn
rann inn í byggingar háskólans sem
kunnugt er. Háskóli Íslands hefur
lagt til að dómkvaddir matsmenn
verði fengnir til að meta orsakir
óhappsins og tjónið. Það verður
meðal annars rætt á fundinum.
Ljóst þykir að tjónið sem varð í
byggingum Háskóla Íslands (HÍ)
hinn 21. janúar, þegar vatnslögn
Veitna bilaði, hlaupi á hundruðum
milljóna króna, að sögn Kristins Jó-
hannessonar, sviðsstjóra fram-
kvæmda- og tæknisviðs HÍ. Hann
segir að fullnaðarmat á tjóninu liggi
ekki enn fyrir, enda flókið og vanda-
samt að meta það til fulls.
Háskóli Íslands hefur fengið
verkfræðistofuna Eflu til aðstoðar
við að meta tjónið. Gera þarf raka-
mælingar og skoða lagnir en tals-
vert af lögnum er í gólfum húsanna
sem urðu fyrir flóðinu.
Stefnt er að því að laga húsnæðið
sem skemmdist svo það verði not-
hæft í haust þegar kennsla hefst á
ný. Mikið rask hefur orðið á starf-
semi háskólans vegna tjónsins, sér-
staklega á Háskólatorgi og í Gimli.
Skólinn hefur gert ýmsar ráðstaf-
anir vegna þessa. Starfsemi hefur
verið færð í aðrar byggingar og hús-
næði verið leigt t.d. á Hótel Sögu.
Þá hefur ákveðin starfsemi og
kennsla verið flutt á netið vegna
þess húsnæðisskorts sem leiddi af
vatnstjóninu.
HÍ vill fá dóm-
kvadda matsmenn
Hundraða milljóna
króna tjón Kanna
skemmdir eftir leka
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Háskóli Íslands Mikið eignatjón
varð í vatnsflóðinu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bændasamtökin eru í samskiptum
og viðræðum við allmarga áhuga-
sama aðila um eign sína, Hótel Sögu
við Hagatorg. Þar á meðal eru inn-
lendir og erlendir fjárfestar sem
hafa áhuga á að reka hótelið áfram,
fyrirtæki á heilbrigðissviði sem
kanna möguleika á að breyta hót-
elinu í hjúkrunarheimili og Háskóli
Íslands sem sýnt hefur áhuga á að
taka hótelið í þágu háskólans og
nemenda hans.
„Við erum með mörg járn í eld-
inum en höfum enn ekkert fast í
hendi,“ segir Gunnar Þorgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands.
Hann kynnti stöðu mála á stjórnar-
fundi samtakanna í gær.
Hótelinu var lokað í lok október sl.
vegna rekstrarerfiðleika vegna kór-
ónuveirufaraldursins. Gestum fækk-
aði svo mikið að ekki var lengur
grundvöllur fyrir rekstri þess.
Bændasamtökin eiga bæði
Bændahöllina sem er eigandi fast-
eignarinnar og Hótel Sögu sem er
rekstrarfélag hótelsins. Hótel Saga
fékk heimild til fjárhagslegrar end-
urskipulagningar og rennur hún út
7. apríl. Gunnar segir að þótt hugs-
anlegt sé að fá þriggja mánaða fram-
lengingu, ef réttar forsendur skap-
ist, hafi Bændasamtökin ekki
endalausan tíma til að ganga frá
þessum málum.
Tafir vegna sóttvarna
Í upphafi var stefnan að fá nýja
hluthafa inn í rekstrarfélagið en erf-
itt reyndist að vinna að þeim málum
vegna kórónuveirufaraldursins. Nú
er rætt við áhugasama fjárfesta,
bæði innlendar og erlendar hótel-
keðjur. Gunnar segir að erlendu að-
ilarnir vilji skoða eignina áður en
þeir ganga til samninga en erfitt sé
við það að eiga vegna aðgerða á
landamærum í þágu sóttvarna. Segir
Gunnar að möguleikar á áframhald-
andi rekstri Hótels Sögu sveiflist
með væntingum um þróun farald-
ursins, bólusetningar og opnun
landamæra.
Rætt er við Heilsuvernd og Eir
um rekstur hjúkrunarheimilis í hús-
inu. Einnig Háskóla Íslands um að
taka hótelið undir kennslurými,
skrifstofur og gistingu fyrir innlenda
og erlenda nemendur háskólans.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bændahöllin Hótel Saga er eitt þekktasta hótel landsins. Í Bændahöllinni
eru einnig skrifstofur Bændasamtakanna og fleiri tengdra samtaka.
Hótelkeðjur sýna
áhuga á Hótel Sögu
Rætt við innlenda og erlenda aðila