Morgunblaðið - 10.02.2021, Side 13

Morgunblaðið - 10.02.2021, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021 Sólarsvell Ung stúlka í Flóanum prófaði nýlega skauta í fyrsta skipti á Bæjarvatni í Flóahreppi, með stuðningi móður sinnar og ömmu. Síðdegissólin varpar skemmtilegum skuggum á svellið. Valdimar Guðjónsson Án málfrelsis eru samfélög hvorki opin né frjáls. Réttur borg- aranna til að láta skoð- anir sínar í ljós, án ótta við refsivönd stjórn- valda, er helgur réttur og órjúfanlegur hluti af lýðræði og opnu sam- félagi. Með málfrelsi að vopni hefur verið tekist á við öfgafullar trúar- setningar og hugmyndafræði alræð- is og ógnarstjórnar. Harðstjórar hafa verið felldir af stalli. Í frjálsum samfélögum er sam- keppni hugmynda og skoðana afl- vaki framfara. Í samfélögum einræð- is eða alræðis ógnar málfrelsi þjóðskipulaginu og þar með valdhöf- unum. Málfrelsið er því brothætt og að því er víða sótt. Ritskoðun og bannfæring skoðana er vopn kúgara til að tryggja völdin. Komið er í veg fyrir starfsemi frjálsra fjölmiðla, upplýsingaflæði er heft og reynt að tryggja að almenningur hafi aðeins aðgang að „réttum“ upplýsingum og „löggiltum“ skoðunum. Ritskoðun teygir sig yfir landa- mæri, líkt og sýnt er fram á í skýrslu PEN America um áhrif kínverskra stjórnvalda á alþjóðlegan kvik- myndaiðnað. Ég vakti athygli á þess- ari skýrslu í grein í september síð- astliðnum og benti á að með auknum alþjóðlegum áhrifum Peking hafi rit- skoðunararmur kín- verska kommúnista- flokksins náð taki á útgefendum, fræði- mönnum, rithöfundum, blaðamönnum og ekki síst kvikmyndaiðn- aðinum, óháð ríkis- borgararétti þeirra eða landamærum. Afleið- ingin er sú að í drauma- borginni, Hollywood, hefur frjáls tjáning verið sett út í horn. Þverrandi umburðarlyndi En það eru ekki aðeins ógnar- stjórnir sem telja nauðsynlegt að ganga á rétt borgaranna til að láta skoðanir sínar í ljós. Tilhneiging til að koma böndum á „óæskilegar“ skoðanir virðist vera að aukast í lýð- ræðisríkjum. Þannig hefur umburð- arlyndi gagnvart ólíkum sjónar- miðum farið þverrandi innan veggja bandarískra háskóla. Þekkingarleit vísindanna á undir högg að sækja og pólitískur rétttrúnaður sækir á. Undir spila margir af áhrifamestu fjölmiðlum landsins, alþjóðlegir samfélagsmiðar sem og stjórn- málamenn. Afleiðingin er sundur- lyndi þjóðar þar sem til verður frjó gróðrarstía samsæriskenninga, öfgaskoðana og ógeðfelldra hug- mynda. Í síðustu viku beitti meirihluti demókrata í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings valdi sínu gagnvart póli- tískum andstæðingi. Marjorie Taylor Greene, þingkonu repúblik- ana frá Georgíu, var vikið úr tveimur nefndum þingsins. Með þessu skapa demókratar hættulegt fordæmi; tal- ið verður eðlilegt að meirihluti þings geti komið í veg fyrir þátttöku póli- tísks andstæðings í nefndarstörfum vegna skoðana. Líklega er vægt til orða tekið að halda því fram að skoðanir þingkon- unnar séu öfgafullar og byggðar á fjarstæðukenndum samsæriskenn- ingum. Greene hefur sakað Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar, um landráð og bent á að við því liggi dauðarefsing. Greene er fulltrúi flests þess sem er ógeðfellt við stjórnmál. Hatursfull og fáfróð. Hún virðist ófær um sam- kennd eða samúð. Greene hefur haldið því fram að skotárás í Mar- jory Stoneman Douglas-mennta- skólanum í Parkland í Flórída árið 2018, þar sem 17 ungmenni og kenn- arar voru myrt og 17 særðir, hafi verið sviðsett. Hún fullyrti að flugvél hefði ekki verið flogið á Pentagon 11. september 2001. Greene hefur dreg- ið þessar fráleitu samsæriskenn- ingar til baka en á blaðamannafundi í liðinni viku gaf hún í skyn að sam- félagsmiðlar hefðu afvegaleitt hana. Refsiverðar skoðanir Vonandi hafa flestir skömm á framgöngu og skoðunum Greene. En fáfræði hennar, heimska og öfgar minnka ekkert við að meirihluti demókrata reyni að setja hana til hliðar. Ofbeldi meirihluta gagnvart pólitískum andstæðingi (jafnvel ógeðfelldum) skapar ekki aðeins for- dæmi til framtíðar heldur verður vatn á myllu fjarstæðukenndra sam- særiskenninga. Hitt er svo annað að sundurtættur Repúblikanaflokk- urinn er þess ófær að slíta sam- vistum við Greene. Málfrelsi krefst þess að samfélag þoli forpokaðar skoðanir, einnig þær sem eru byggðar á staðleysum, ranghugmyndum eða samsæris- kenningum. „Ég fyrirlít skoðanir yð- ar, en ég er reiðubúinn til að láta lífið fyrir rétt yðar til að halda þeim fram,“ sagði Voltaire með réttu. Rétturinn til að hafa rangt fyrir sér er hluti málfrelsis sem getur aldrei takmarkast af því sem er vinsælt, nýtur almennrar viðurkenningar eða er meirihluta þóknanlegt. En auðvit- að er frelsið til að segja hug sinn ekki án ábyrgðar – allir þurfa að standa við orð sín og bera á þeim ábyrgð. Ég efast ekki um góðan hug þeirra þingmanna sem lagt hafa fram frumvarp um að það verði gert refsivert að afneita helförinni opin- berlega. Að neita að horfast í augu við sögulegar staðreyndir um verstu glæpi mannkynssögunnar – skipu- lögð fjöldamorð nasista á gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni – er merki um sjúklegt ástand mannshugar. Bann við ákveðnum skoðunum el- ur því miður af sér villutrú og ryður farveg fyrir öfgahyggju og afneitun sögulegra staðreynda. Ég óttast að nái frumvarpið fram að ganga, um allt að tveggja ára fangelsi fyrir að afneita helförinni opinberlega, snú- ist það upp í andhverfu sína þvert á tilgang flutningsmanna; að berjast gegn vaxandi gyðingaandúð. Alan Dershowitz, fyrrverandi lagapró- fessor við Harvard-háskóla, yfirlýst- ur demókrati og harður stuðnings- maður Ísraels, hefur varað eindregið við lagasmíð af þessu tagi. Andúðin gagnvart öðrum trúar- brögðum, minnihlutahópum eða andstæðum skoðunum verður ekk- ert minni þótt það sé gert refsivert að opinbera fávisku. Fordómar verða ekki kveðnir niður með því að hóta fangelsi eða fésektum, heldur með því að mæta þeim opinberlega með rökum. Fávísi og heimska verða ekki læknuð með refsivendi ríkisins. Og ef við sættum okkur við að meiri- hluti þjóðþings geti rekið pólitískan andstæðing úr þingnefnd, er lagt til atlögu við hornstein lýðræðisins – málfrelsið. Eftir Óla Björn Kárason »Málfrelsi krefst þess að samfélag þoli forpokaðar skoðanir, einnig þær sem eru byggðar á staðleysum, ranghugmyndum eða samsæriskenningum. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Ólöglegar og refsiverðar skoðanir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.