Morgunblaðið - 10.02.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
Sólarsvell Ung stúlka í Flóanum prófaði nýlega skauta í fyrsta skipti á Bæjarvatni í Flóahreppi, með stuðningi móður sinnar og ömmu. Síðdegissólin varpar skemmtilegum skuggum á svellið.
Valdimar Guðjónsson
Án málfrelsis eru
samfélög hvorki opin
né frjáls. Réttur borg-
aranna til að láta skoð-
anir sínar í ljós, án ótta
við refsivönd stjórn-
valda, er helgur réttur
og órjúfanlegur hluti af
lýðræði og opnu sam-
félagi. Með málfrelsi að
vopni hefur verið tekist
á við öfgafullar trúar-
setningar og hugmyndafræði alræð-
is og ógnarstjórnar. Harðstjórar
hafa verið felldir af stalli.
Í frjálsum samfélögum er sam-
keppni hugmynda og skoðana afl-
vaki framfara. Í samfélögum einræð-
is eða alræðis ógnar málfrelsi
þjóðskipulaginu og þar með valdhöf-
unum. Málfrelsið er því brothætt og
að því er víða sótt. Ritskoðun og
bannfæring skoðana er vopn kúgara
til að tryggja völdin. Komið er í veg
fyrir starfsemi frjálsra fjölmiðla,
upplýsingaflæði er heft og reynt að
tryggja að almenningur hafi aðeins
aðgang að „réttum“ upplýsingum og
„löggiltum“ skoðunum.
Ritskoðun teygir sig yfir landa-
mæri, líkt og sýnt er fram á í skýrslu
PEN America um áhrif kínverskra
stjórnvalda á alþjóðlegan kvik-
myndaiðnað. Ég vakti athygli á þess-
ari skýrslu í grein í september síð-
astliðnum og benti á að með auknum
alþjóðlegum áhrifum Peking hafi rit-
skoðunararmur kín-
verska kommúnista-
flokksins náð taki á
útgefendum, fræði-
mönnum, rithöfundum,
blaðamönnum og ekki
síst kvikmyndaiðn-
aðinum, óháð ríkis-
borgararétti þeirra eða
landamærum. Afleið-
ingin er sú að í drauma-
borginni, Hollywood,
hefur frjáls tjáning
verið sett út í horn.
Þverrandi umburðarlyndi
En það eru ekki aðeins ógnar-
stjórnir sem telja nauðsynlegt að
ganga á rétt borgaranna til að láta
skoðanir sínar í ljós. Tilhneiging til
að koma böndum á „óæskilegar“
skoðanir virðist vera að aukast í lýð-
ræðisríkjum. Þannig hefur umburð-
arlyndi gagnvart ólíkum sjónar-
miðum farið þverrandi innan veggja
bandarískra háskóla. Þekkingarleit
vísindanna á undir högg að sækja og
pólitískur rétttrúnaður sækir á.
Undir spila margir af áhrifamestu
fjölmiðlum landsins, alþjóðlegir
samfélagsmiðar sem og stjórn-
málamenn. Afleiðingin er sundur-
lyndi þjóðar þar sem til verður frjó
gróðrarstía samsæriskenninga,
öfgaskoðana og ógeðfelldra hug-
mynda.
Í síðustu viku beitti meirihluti
demókrata í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings valdi sínu gagnvart póli-
tískum andstæðingi. Marjorie
Taylor Greene, þingkonu repúblik-
ana frá Georgíu, var vikið úr tveimur
nefndum þingsins. Með þessu skapa
demókratar hættulegt fordæmi; tal-
ið verður eðlilegt að meirihluti þings
geti komið í veg fyrir þátttöku póli-
tísks andstæðings í nefndarstörfum
vegna skoðana.
Líklega er vægt til orða tekið að
halda því fram að skoðanir þingkon-
unnar séu öfgafullar og byggðar á
fjarstæðukenndum samsæriskenn-
ingum. Greene hefur sakað Nancy
Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar,
um landráð og bent á að við því liggi
dauðarefsing.
Greene er fulltrúi flests þess sem
er ógeðfellt við stjórnmál. Hatursfull
og fáfróð. Hún virðist ófær um sam-
kennd eða samúð. Greene hefur
haldið því fram að skotárás í Mar-
jory Stoneman Douglas-mennta-
skólanum í Parkland í Flórída árið
2018, þar sem 17 ungmenni og kenn-
arar voru myrt og 17 særðir, hafi
verið sviðsett. Hún fullyrti að flugvél
hefði ekki verið flogið á Pentagon 11.
september 2001. Greene hefur dreg-
ið þessar fráleitu samsæriskenn-
ingar til baka en á blaðamannafundi
í liðinni viku gaf hún í skyn að sam-
félagsmiðlar hefðu afvegaleitt hana.
Refsiverðar skoðanir
Vonandi hafa flestir skömm á
framgöngu og skoðunum Greene.
En fáfræði hennar, heimska og öfgar
minnka ekkert við að meirihluti
demókrata reyni að setja hana til
hliðar. Ofbeldi meirihluta gagnvart
pólitískum andstæðingi (jafnvel
ógeðfelldum) skapar ekki aðeins for-
dæmi til framtíðar heldur verður
vatn á myllu fjarstæðukenndra sam-
særiskenninga. Hitt er svo annað að
sundurtættur Repúblikanaflokk-
urinn er þess ófær að slíta sam-
vistum við Greene.
Málfrelsi krefst þess að samfélag
þoli forpokaðar skoðanir, einnig þær
sem eru byggðar á staðleysum,
ranghugmyndum eða samsæris-
kenningum. „Ég fyrirlít skoðanir yð-
ar, en ég er reiðubúinn til að láta lífið
fyrir rétt yðar til að halda þeim
fram,“ sagði Voltaire með réttu.
Rétturinn til að hafa rangt fyrir sér
er hluti málfrelsis sem getur aldrei
takmarkast af því sem er vinsælt,
nýtur almennrar viðurkenningar eða
er meirihluta þóknanlegt. En auðvit-
að er frelsið til að segja hug sinn
ekki án ábyrgðar – allir þurfa að
standa við orð sín og bera á þeim
ábyrgð.
Ég efast ekki um góðan hug
þeirra þingmanna sem lagt hafa
fram frumvarp um að það verði gert
refsivert að afneita helförinni opin-
berlega. Að neita að horfast í augu
við sögulegar staðreyndir um verstu
glæpi mannkynssögunnar – skipu-
lögð fjöldamorð nasista á gyðingum í
seinni heimsstyrjöldinni – er merki
um sjúklegt ástand mannshugar.
Bann við ákveðnum skoðunum el-
ur því miður af sér villutrú og ryður
farveg fyrir öfgahyggju og afneitun
sögulegra staðreynda. Ég óttast að
nái frumvarpið fram að ganga, um
allt að tveggja ára fangelsi fyrir að
afneita helförinni opinberlega, snú-
ist það upp í andhverfu sína þvert á
tilgang flutningsmanna; að berjast
gegn vaxandi gyðingaandúð. Alan
Dershowitz, fyrrverandi lagapró-
fessor við Harvard-háskóla, yfirlýst-
ur demókrati og harður stuðnings-
maður Ísraels, hefur varað eindregið
við lagasmíð af þessu tagi.
Andúðin gagnvart öðrum trúar-
brögðum, minnihlutahópum eða
andstæðum skoðunum verður ekk-
ert minni þótt það sé gert refsivert
að opinbera fávisku. Fordómar
verða ekki kveðnir niður með því að
hóta fangelsi eða fésektum, heldur
með því að mæta þeim opinberlega
með rökum. Fávísi og heimska verða
ekki læknuð með refsivendi ríkisins.
Og ef við sættum okkur við að meiri-
hluti þjóðþings geti rekið pólitískan
andstæðing úr þingnefnd, er lagt til
atlögu við hornstein lýðræðisins –
málfrelsið.
Eftir Óla Björn
Kárason »Málfrelsi krefst þess
að samfélag þoli
forpokaðar skoðanir,
einnig þær sem eru
byggðar á staðleysum,
ranghugmyndum eða
samsæriskenningum.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ólöglegar og refsiverðar skoðanir