Morgunblaðið - 10.02.2021, Page 14

Morgunblaðið - 10.02.2021, Page 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021 Vindmyllur vind- orkuvers hafa drepið á annað hundrað haferni og þrjá kóngserni frá því þær voru reistar á Mæri í Noregi 2006. Og í fyrra og hitteðfyrra drápu vinmylluspaðar fimm erni í Þrændalög- um. Auk þess hafa vindmyllur þessar drepið hundruð rjúpna, fjölda fálka, svana og gæsa. Um þetta er m.a. fjallað í hinu ágæta frétta- og menningarblaði Bænda- blaðinu. Haförnum var á sínum tíma nær útrýmt í Evrópu. Eftir að þeir voru friðaðir hafa stofnar þeirra sum- staðar braggast nokkuð, en hafernir eru alls staðar sjaldgæfir. Þeim var nær útrýmt á Íslandi, en eftir að hætt var að bera út refaeitur hefur örnum fjölgað þó hægt miði. Talið er að 2017 hafi 76 arnarpör verið á öllu landinu. 50 hafarnarpör verpa á Breiðafjarðarsvæðinu, tveir þriðju hlutar hafarnarstofnsins á Íslandi. Fjöldi hafarna sem vindmyllur í Nor- egi hafa náð að drepa þann stutta tíma sem þær hafa starfað lætur nærri að slaga upp í allan haf- arnastofninn á Íslandi. Þetta eru alvarleg tíðindi því í bígerð eru þrjú vindmylluver á að- alvarpsvæði hafarna á Íslandi, þar af tvö í Reykhólasveit. Eitt þessara svæða sem er á Laxárdalsheiði hefur þegar verið skilgreint sem mikilvægt fugla- svæði. Verði hugmyndir að þessum þremur vind- orkuverum að veruleika yrðu þar reistar um 86 vindmyllur allt að 150 metra háar. Áhrif vind- myllufylkinganna gætu orðið mikil á fuglalíf og ásjónu lands. Í Reykhólahreppi verpa ernir m.a. í Gilsfirði. Fyrirhugað er að setja upp allt að 35 vindmyllur í Garpsdal við Gilsfjörð og í bígerð er að reisa og reka í fyrsta áfanga allt að 24 vind- myllur í landi Hróðnýjarstaða í Dala- sýslu. Þriðja vindmylluverið er fyr- irhugað að reisa á 3.200 hekturum á Laxárdalsheiði í landi Sólheima í Dalabyggð. Umhverfisáhrif af vindorkugörð- um geta verið mikil. Þau eru sjón- ræn, vindmyllurnar hafa áhrif á ásýnd umhverfis, þær hafa áhrif á hljóðvist og hafa áhrif á fuglalíf. Á Laxárdalsheiði er sérlega vara- samt að setja upp vindmyllur. Þar sem fuglafræðingar hafa bent á að um heiðina séu mikilvægar farleiðir íslensku farfuglanna norður og norð- an. Laxárdalsheiði er skilgreind sem mikilvægt svæði fyrir fuglalíf og líf- fræðilega fjölbreytni (Important Bird and Biodiversity Area) og svæðið af- markað sem mikilvægt varpsvæði á alþjóðavísu fyrir himbrima (5% af ís- lenska himbrimastofninum) og álftir (1,8% af íslenska álftarstofninum). Vindmyllurnar í Dalasýslu eru ein- ungis hluti af stórfelldum fyrirætl- unum um að koma upp vindmyllum til raforkuframleiðslu sem víðast um landið. Við Búrfell og við Blöndu, þar er talað um að reisa yfir 100 vind- myllur. Við sunnanverðan Hengilinn, á Reykjanesi og í landi Grindavíkur. Fyrirætlanir eru um að setja upp allt að 10 vindmyllur á Eyrarfjall ofan við Flateyri. Þá hafa menn í hyggju að reisa vindmyllur við Lagarfljót. Og á flatlendi Suðurlands norðan við Þykkvabæ svo eitthvað sé nefnt. Norska fyrirtækið Zephyr ætlar að reisa vindmyllur víða á Íslandi. Þetta fyrirtæki er m.a. í eigu þriggja norskra sveitarfélaga. Þá vaknar spurningin: hvers vegna í ósköpunum reisa þessi sveitarfélög ekki vind- myllurnar í eigin landi heima hjá sér í Noregi? Vindmyllurnar eru allt að 150 metra háar, um tvöfalt hærri en Hall- grímskirkja í Reykjavík, sem er 74,5 metrar á hæð. Mikil sjónmengun er af þessum gríðarmiklu mannvirkjum sem sjást langt að. Þessir risar með spaða sem snúast með þungum nið og skuggavarpi rísa ekki einn og einn yfir mela og móa heldur tugum og hundruðum saman í stórum flokkum og fylkingum, sem ber við himin og munu setja mark sitt á umhverfið. Ein mesta auðlind Íslendinga er feg- urð og fjölbreytileiki náttúru lands- ins. Fólk kemur hvaðanæva úr heim- inum til að upplifa fegurð íslenskrar náttúru og ósnortin víðerni. Þessari þjóðargersemi og auðlind yrði spillt, gengi áform eftir um vindmylluver vítt og breitt um landið. Íslendingar þurfa engar vindmyll- ur, við eigum nóga orku og við notum einungis fimm prósent af allri þeirri orku sem hér er framleidd, annað er selt við vægu verði í mengandi málm- bræðslur erlendra stórfyrirtækja. Á dagskrá sem Samorka hélt ný- lega, „Ný græn orkutækifæri“, kom fram að íslensk orka væri eftirsókn- arverð þar sem hún væri vistvæn. Æskilegt væri að auka raforkufram- leiðslu, m.a. með nýtingu vistvænnar vindorku. Íslendingar gætu boðið vistvæna orku fyrirtækjum sem vildu koma hér upp gagnaverum, fram- leiða rafhlöður og vetni. Hægt væri í framtíðinni að flytja út orkuna í formi vetnis. Meginstef allra erinda sem flutt voru var að eftirspurn eftir vist- vænni orku ætti eftir að aukast. Hversu vistvæn er endurnýjanleg vatnsorka sem framleidd hefur verið með því að eyðileggja ár og fossa og náttúruleg vatna- og votlendissvæði? Hversu vistvæn er vindmylluraforka ef með henni verður eyðilögð ásýnd landsins, náttúrufegurð þess um strendur, dali, fjöll og firnindi? Hversu vistvæn er sú vindmylluorka sem ógnar tilvist lífríkisins, þar á meðal hafarna og margra annarra fugla? Eftir Þorvald Friðriksson » Fjallað er um hættu sem steðjað gæti að íslenska hafarnastofn- inum vegna áforma um vindmyllur á Breiða- fjarðarsvæðinu. Þorvaldur Friðriksson Höfundur var um árabil fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins. thorvaldurf@outlook.com Dauðir hafernir Ein mesta upp- spretta virðisauka og vaxtar í atvinnulífinu er á Akureyri. Æ fleiri, bæði innan sjáv- arútvegsins og utan, hafa áttað sig á því að Háskólinn á Akureyri hefur komið á fót fyrsta flokks námi í sjávarútvegsfræðum. Raunvísindadeild skól- ans hefur útskrifað einstaklinga sem gegna leiðandi störfum í vinnslu og framleiðslu sjávarafurða. Þeir eiga ríkan þátt í þeirri nýsköpun og virð- isaukningu sem einkennir nú hinn framsækna geira íslensks sjávar- útvegs. Á þessari klakstöð nýsköpunar og þróunar er vakin sérstök athygli í skýrslu Grænlandsnefndar sem er nýkomin út. Þar heldur Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi iðn- aðar- og utanríkisráðherra, á penna og sýnir á sannfærandi hátt fram á gagnkvæma hagsmuni Íslendinga og Grænlendinga af stórauknu sam- starfi og samvinnu við nýjar að- stæður á norðurslóðum. Þar gætu norðausturhornið, og Akureyri al- veg sérstaklega, komið mikið við sögu með því að rækta samskiptin og nýta tækifærin. HA í fremstu röð á tveimur sviðum Háskólinn á Akureyri er í fremstu röð á tveimur sviðum, í sjávar- útvegs- og auðlindafræðum og í þró- un fjarnáms. Norðurslóðaþætti há- skólans vex sömuleiðis stöðugt fiskur um hrygg. Íslendingar átta sig ekki alltaf á því hversu fram- arlega við stöndum í fjarnámi miðað við önnur lönd. Sú staða byggist að verulegu leyti á brautryðjandastarfi Norðlendinga, á Akureyri, Kópa- skeri og á Tröllaskaga. Afrakstur rannsókna er einnig fjölþættur, til dæmis má nefna af handahófi nýt- ingu hliðarafurða sem auka verð- mætin úr hverjum fiski og ræktun hvers kyns þörunga sem gefa marg- vísleg fyrirheit. Þessi verkefni eru til þess fallin að efla samfélagið og skapa störf. Í Grænlandsskýrslunni er greint frá því að í ráði sé að stofna í haust, í tengslum við Hring- borð norðurslóða, sam- eiginlegan vettvang þjóða og svæða sem hafa leitað eftir auknu samstarfi við Græn- land, Ísland og Fær- eyjar. Þar er meðal annars um að ræða Québec og Nunavut í Kanada, Maine í Bandaríkjunum og Alaska. Skotland og Norður-Noregur eru einnig í sigtinu. Þessi svæði og ríki hafa skilgreint sig sem „gátt“ að norðurslóðum og lyk- ilpunktar innan þess tengjast brátt enn betur með norðurslóðaneti Eim- skipa og Royal Arctic Line í Græn- landi. Í forystu háskóla sjávarplássa HA er einn örfárra háskóla í heiminum sem byggja kennslulíkön sín á fjarnámi. Hann hefur alla burði til þess að taka frumkvæði og vera í forystu fyrir sjávarútvegsneti lítilla en framsækinna alþjóðlegra háskóla sem sameiginlega gætu útskrifað sjávarútvegsfræðinga með úrvals- menntun þar sem byggt yrði á sér- hæfingu hvers skóla. Slíka skóla er að finna á ströndum Norður- Ameríku, í Nuuk og í Evrópu og suma á því svæði sem lýst er að ofan. HA hefur þegar tekið merkilegt frumkvæði um samstarfstengsl við nokkra þeirra. HA með sína kraft- miklu sjávarútvegsdeild og forystu í fjarnámi gæti orðið leiðandi í slíku neti. Slíkt myndi lyfta orðstír skól- ans, Akureyrar og Íslands um leið og ný alþjóðleg vídd yrði sköpuð um nám í sjávarútvegsræðum í sam- starfi alþjóðlegra háskóla. Ávinn- ingur þeirra af þátttöku í slíku al- þjóðlegu neti er sérhæfingin sem HA hefur á sviðum fjarmenntunar, sjávarútvegsfræða og norðurslóða. Nýlega skrifuðu Bandaríkjamenn upp á samstarfssamning við Græn- lendinga um rannsóknir á norð- urslóðum upp á milljónir dollara. Það er til marks um nýja stöðu í okk- ar heimshluta. Ekki er ólíklegt að áhugi sé á því innan Bandaríkjanna að efla öndvegissetur í sjávarútvegi á Akureyri. Í því sambandi þarf að leitast við að efla samstarf á vegum Rannsókn- arþings norðursins. Suðupottur hugmynda í rannsóknum Samstarfssamningur milli Há- skólans á Akureyri og Háskóla Grænlands í Nuuk, Ilisimatusarfik, hefur verið undirritaður. HA gæti aðstoðað við að koma upp sjáv- arútvegsbraut í Nuuk en um leið lært af Grænlendingum hvernig hægt er að byggja upp öflugt dokt- orsnám við lítinn háskóla. Það er nefnilega gagnkvæmur ávinningur af samstarfi sem þessu eins og sýnt er fram á í Grænlands- skýrslunni. Ég komst sjálfur að raun um það í námi mínu við rannsókn- arstofnun í erfðafræði við Árósahá- skóla að öflugt alþjóðlegt samstarf í rannsóknum getur orðið að ólgandi suðupotti. Tengsl við kollega víðs- vegar um heiminn víkka sjóndeild- arhringinn og vekja nýjar hug- myndir. Til framtíðar litið mun öndveg- issetur í sjávarútvegi og alþjóðlegt sjávarútvegsnet á Akureyri skapa öflugt teymi nemenda frá sjáv- arplássum víðsvegar á hinum norð- lægu slóðum sem ýmist eru í fjar- námi eða staðnámi. Þau munu skapa tengsl og búa til atvinnutækifæri framtíðarinnar. Sé það rétt að fyrrverandi nem- endur HA eigi ríkan þátt í þeirri virðisaukningu sem átt hefur sér stað í íslenskum sjávarútvegi get- um við alveg ímyndað okkur hver virðisauki gæti orðið af öndveg- issetri í sjávarútvegi á Akureyri sem spannaði norðurslóðir. Fram- tíðarhagsmunir okkar Íslendinga eru samtvinnaðir hagsmunum ann- arra þjóða við Norður-Atlantshaf sem nýta og bera ábyrgð á auðlind- um svæðisins. Öndvegissetur og sjávar- útvegsnet á Akureyri Eftir Kára Gautason »HA hefur alla burði til þess að vera í for- ystu fyrir háskóla í sjáv- arplássum við Atlants- haf sem leggja sérstaka áherslu á sjávarútveg og norðurslóðir. Kári Gautason Höfundur sækist eftir 2. sæti á lista VG í forvali í Norðausturkjördæmi. k.gautason@gmail.com Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið for- ystuafl í íslensku þjóðlífi og um leið tryggt póli- tískan stöðugleika sem hryggjarstykkið í inn- lendum stjórnmálum. Lykillinn er farsæl stefna sem byggist á blöndu af djörfung og íhaldssemi, þar sem leið- arljósið er að öflugt at- vinnulíf sé undirstaða velferðar og samhjálpar. Þannig hafa áherslur í einstökum málaflokkum þróast í tím- ans rás þótt grunnstef sjálfstæð- isstefnunnar sé ávallt það sama. Sífellt aukinn áhugi er nú á umhverfismálum innan flokksins, sem er mjög í anda þess sem stofnendur og fyrstu for- ystumenn hans lögðu upp með fyrir nærri öld. Hringrásarlandbúnaður Flokkurinn hefur lengi leitað leiða til að bæta íslenska landbúnaðarkerfið með það fyrir augum að auka verð- mætasköpun og nýta auðlindir, fjár- festingu, hugvit og mannauð. Þessum markmiðum má öllum ná með því að tvinna saman tvo málaflokka, þ.e.a.s. landbúnaðar- og umhverfismál, með miklu beinni hætti en nú er. Úr verði hringrásarlandbúnaður. Þannig megi greiða fyrir aukinni verðmætasköpun á grundvelli sjálfbærni, sérstöðu og velferðar. Umhverfið, bændur og neytendur muni njóta. Opinber stuðningur bundinn við umhverfismælikvarða Í grein sem birtist nýlega í Bænda- blaðinu gerði undirritaður nokkuð ít- arlega grein fyrir þessum hug- myndum. Hringrásarstefnan í landbúnaði var líka nýlega kynnt fyrir þingflokki Sjálfstæðisflokksins og þeim málefnanefndum sem sinna stefnumótun flokksins í atvinnu- og umhverfismálum, en undirritaður á sæti í báðum. Kjarni hennar er í stuttu máli sá að opinber stuðningur við bændur verður bundinn við sjálf- bærni- og umhverfismælikvarða. Með öðrum orðum, þeir bændur og aðrir matvælaframleiðendur sem uppfylla tiltekin umhverfisskil- yrði fá opinberan fjár- hagslegan stuðning, aðrir ekki. Verðmætasköpun og hreinleiki Slík stefna er mjög í anda klassískrar sjálf- stæðisstefnu, en svarar um leið kalli tímans. Verið er að taka skref til aukinnar verðmæta- sköpunar og hreinleika, en í burtu frá verk- smiðjubúskap og eiturefnanotkun. Stefnan hvílir á þeirri trú að almenn- ingur sé tilbúinn að styðja við bakið á bændum og íslenskri matvælafram- leiðslu, ef á móti séu gerðar skýrar kröfur á bændur um að þeir fylgi ströngustu reglum um dýravelferð, hreinleika og umhverfismál. Boltinn er hjá landsfund- arfulltrúum Brátt líður að Landsfundi Sjálf- stæðisflokksins og alþingiskosn- ingar eru í nánd. Mikilvægt er að flokkurinn mæti þar til leiks með vandaða, vel ígrundaða og fram- sækna stefnu í umhverfis- og land- búnaðarmálum. Þannig getur flokk- urinn náð enn betur til yngri aldurshópa, áhugafólks um um- hverfið og þeirra sem telja að skyn- samleg uppbygging innlendra at- vinnuvega sé farsælt veganesti til framtíðar. Hér hefur verið tæpt á því í örfáum orðum á hverju er skynsamlegt að slík stefna sé grundvölluð. Ný umhverfis- og landbúnaðarstefna Sjálfstæðisflokksins Eftir Svavar Halldórsson Svavar Halldórsson »Kjarni hringrás- arstefnunnar er í stuttu máli sá að opinber stuðningur við bændur verður bundinn við sjálf- bærni- og umhverf- ismælikvarða. Höfundur er sérfræðingur í mat- armenningu, stefnumótun og mark- aðsmálum. svavar@europeanfm.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.