Morgunblaðið - 10.02.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.02.2021, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021 ✝ SigurþórArnarsson fæddist í Reykja- vík 17. ágúst 1971. Hann lést á heimili sínu, Núpabakka 25, Rvk., 26. janúar 2021. Móðir Sig- urþórs er Þóra Sigurþórsdóttir, f. 25.5. 1954, og eiginmaður henn- ar er Helgi Snorrason, f. 8.11. 1951, d. 4.2. 2020. Faðir Sigur- þórs er Arnar Jósefsson, f. 30.4. 1951, d. 14.11. 2018, eig- inkona hans Margrét Tóm- þeirra eru Hrafn Viðar og Eið- ur Ernir. Sambýliskona Sigurþórs er Berglind Ýr Aradóttir, f. 11.3. 1984, saman eiga þau Lovísu Ölbu, f. 23.12. 2015. Sigurþór á Amalíu Örnu, f. 7.9. 1994, sam- býlismaður hennar er Jói Björnsson, f. 9.10. 1979, og á einnig Róbert Daða, f. 1.6. 2001, úr fyrra sambandi. Börn Berglindar eru Birta Kristín, f. 8.6. 2006, og Logi Þór, f. 18.2. 2011. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju 10. febrúar 2021 klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu og fjöldatakmark- ana verða aðeins nánustu ætt- ingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á https://www.sonik.is/sigurthor Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat asdóttir, f. 6.12. 1950, d. 12.7. 2015. Systkini Sigur- þórs eru; Jónína Helgadóttir, f. 27.7. 1980, í sambúð með Óskari Þór Hjalta- syni, f. 4.6. 1971, börn þeirra eru Petrína Pála og Patrekur Tumi. Sonur Óskars er Jó- hann Freyr. Þórdís Ósk Helgadóttir, f. 5.12. 1982, barn hennar er Garðar Flóki. Snorri Helgason, f. 30.4. 1990, í sambúð með Höllu Karen Har- aldsdóttur, f. 17.12. 1992, börn Árið 1971 var merkilegt og ugglaust ógleymanlegt ár í lífi sæmdarhjónanna Katrínar Sig- urðardóttur og Þorgils Guð- mundssonar í Bolungavík. Í mars þetta ár fæddist yngsta barnabarnið þeirra en í ágúst og september fæddust þeim fyrstu tvö barnabarnabörnin. Öll hlutu þessi sveinbörn nöfn afa sinna í móðurætt. Elsta barnið í árinu, yngsti dótturson- urinn, er sá sem skrifar þessi fátæklegu minningarorð. Allt voru þetta myndarlegir drengir, sem allir fylgdust að í lífinu í hartnær hálfa öld – þar til skyndilega var klippt á lífsþráð eins þeirra aðfaranótt 26. jan- úar síðastliðins. Það var sá þriðji í hópnum sem hringdi í mig daginn eftir og tilkynnti mér andlát þessa kæra frænda okkar og jafnaldra, sem hér er kvaddur með nokkrum fátæk- legum orðum. Sigurþór Arnarsson var son- ur Þóru Sigurþórsdóttur, en faðir hennar, afi Sigurþórs og nafngjafi, Sigurþór Þorgilsson, var móðurbróðir minn. Við Silli, eins og hann var gjarnan kall- aður, hittumst af og til þegar við vorum strákar, en eins og oft vill verða hittumst við sjaldnar eftir því sem árin liðu. En við vissum alltaf hvor af öðr- um og ætíð urðu fagnaðarfundir þegar við hittumst, hvort sem það var á ættarmótum eða á förnum vegi. Við hittumst síðast fyrir tæpu ári, við útför stjúp- föður hans, sem honum þótti af- ar vænt um og Silli skrifaði fal- lega og hlýlega minningargrein um hann. Þá fylgdu fögur fyr- irheit um að hittast oftar. Ég hringdi svo í hann 23. maí síð- astliðinn, en þann dag fagnaði amma hans stórafmæli. Þá tjáði Silli mér glaður að hann væri að flytja að Núpabakka í Breið- holti. Ég sagði honum að ég biði spenntur eftir hringingu og heimboði frá honum. Af slíku verður ekki úr þessu, því miður. Bróðir minn hafði hitt Silla á förnum vegi nokkrum dögum áður en Silli lést, og sagði bróð- ir minn mér að Silli hefði þekkt sig að fyrra bragði. Hann hefði verið hress og glaður og þeir hefðu spjallað saman drjúga stund. Augasteinar Silla voru börnin hans þrjú, Amalía Arna, Róbert Daði og Lovísa Alba, auk stjúp- sonarins Loga. Nú trega þau ástríkan pabba, sem yfirgaf þennan heim svo skyndilega, og hann miðlaði svo miklum kær- leika og einlægri gleði til. Yngsta telpan er aðeins fimm ára að aldri. Mikill harmur er nú kveðinn að fjölskyldunni allri og orðin tóm mega sín svo lítils. Elsku Þóra mín og Didda, systkinin, Berglind Ýr og blessuð börnin, sem hafið misst svo mikið, aðrir aðstandendur og kærir vinir hans, megi algóður Guð veita ykkur allan þann styrk og þá huggun sem þið þarfnist. Minn- ing Sigurþórs Arnarssonar mun ætíð lifa í hjörtum okkar sem kynntumst honum. Megi hann hvíla í Guðs friði. Þorgils Hlynur Þorbergsson Fallegi, glaðlyndi og vöðva- stælti bróðir minn er látinn. Þú kvaddir þennan heim skyndi- lega og skildir okkur eftir með mikinn söknuð í hjarta. Við er- um öll í sárum með milljón spurningar. Þrátt fyrir erfið- leika í gegnum ævina og stórar hindranir virtist þú ætla að halda ótrauður áfram og byggja upp það líf sem þú hafðir alltaf óskað þér. Þú vildir ekkert meira en að eiga ástríkt fjölskyldulíf á efri árum með börnum þínum. Því miður varð sá draumur ekki að veruleika þar sem lífið tók snögga beygju. Silli var alltaf mjög lífsglaður og stríðinn stóri bróðir. Við vor- um ungar skjátur og þótti bróð- ir okkar mjög skemmtilegur. Ég minnist þess þegar honum var falið að passa okkur syst- urnar. Eitt rigningarkvöld þegar foreldrar okkar voru í burtu hvarf Silli. Eftir smá leit var bankað á útidyrnar. Þar stóð Silli hundblautur og horfði á okkur með hræðslusvip og lét sig detta eins og dauður væri á gólfið. Innan skamms heyrðist hlátur bresta frá þeim sem lá og fannst þetta hin mesta skemmt- un. Þótt leikirnir væru ekki fyr- ir alla, þá vissum við að stóri bróðir lék við okkur vegna systkinakærleiks. Lífið flaug áfram á ógnar- hraða hjá Silla. Hann upplifði margt bæði jákvætt og neikvætt en alltaf hélt hann áfram að fylla rými með glaðlyndum ómi og hlátrasköllum. Það var ekki leiðinlegt að vera í kringum Silla því sögurnar voru margar og umræðurnar miklar. Hann fylgdist vel með því sem átti sér stað í samfélaginu og átti auð- velt með að taka þátt í öllum umræðum. Oft þegar hiti færð- ist í samræður má segja að ekki þótti auðvelt að ná orðinu því málrómur Silla náði hæstu hæð- um þó að umræðuefnið væri ekki alvarlegt. Heilsa var Silla mikilvæg og ekki annað hægt en að fara „all in“ þegar um hollustu var að ræða. Prótínhristingar, djúsar og önnur prótínrík næring voru þá í fyrirrúmi. Hann var íþróttamaður mikill og þá helst í lyftingum. Crossfit og kraftlyft- ingar voru hans fög og þurfti ekki mikið til þess að vöðvarnir blésu út. Hann vann við smíðar og aðr- ar framkvæmdir en færði sig síðar yfir í verkstjórn. Hann var gríðarlega skapandi og gat endalaust pælt og spekúlerað í mismunandi útfærslum á húsa- framkvæmdum með mömmu og Sigurþór afa. Þau voru honum næst og hann leit mikið upp til þeirra. Hann var einnig góður penni og eru til ótal ljóð og skrif þar sem hann yrkir um lífs- reynslu sína og tilfinningar. Já, hæfileikarnir voru margir. Silli var alltaf tiltækur til þess að veita hjálparhönd þrátt fyrir endalaust álag sem hann upplifði á öllum vígstöðvum. Hann vildi öllum vel og gaf sér tíma í alla nema sjálfan sig. Við trúum ekki að þú sért farinn frá okkur, elsku bróðir. Við vorum alltaf að bíða eftir að það róaðist hjá þér þannig að við gætum notið þess að vera meira saman en því miður voru þær stundir allt of fáar. Nú ertu kominn til Sigurþórs afa og Helga stjúppabba og er enginn vafi á að þið afi séuð í ein- hverjum skapandi framkvæmd- um saman hlustandi á góða tón- list sem pabbi setti á fóninn. Við sjáumst síðar elsku bróð- ir minn, við eigum eftir að sakna þín mikið! Þín systir, Þórdís Ósk. Elsku besti Silli minn, Það er óhugsandi að ég sé að skrifa minningarorð um þig, ég trúi þessu ekki. Alveg frá því ég man eftir mér var ég svo stoltur af því að eiga þig sem stóra bróður, ég leit svo upp til þín og ég var svo glaður þegar þú hringdir eða komst í heimsókn. Þú varst alltaf svo góður og hress, við vorum alltaf að grín- ast eins og bestu vinir eru. Þú vildir allt fyrir mig gera og stóðst við bakið á mér eins og sannur stóri bróðir. Þú varst svo sterkur alveg sama hvað gekk á – þú stóðst alltaf upp sterkari en áður, þú lést ekkert slá þig út af laginu. Þrátt fyrir þann mótvind sem sumir lenda í þá varstu alltaf reiðubúinn að hlaupa til og að- stoða. Að þú sért farinn frá okkur setur óendanlega stórt skarð í mitt líf – að fá engar hring- ingar, að fá ekkert knús, að fá aldrei að hitta þig aftur eru hugsanir sem ég mun aldrei venjast. Minningunum sem ég á með þér mun ég aldrei gleyma! Ég elska þig, elsku bróðir minn. Sjáumst seinna. Sorgin hún kemur með látum sem ég ræð ekkert við. Ég og mínir saman grátum en hjartað biður um frið. Englarnir kalla og taka á móti þeir róa þig og vonandi mig. Hvenær tæmist þessi sorgarkvóti því mikið rosalega elska ég þig. Á betri stað í ró og friði þar sem stríðinu er lokið. Þú passar okkur af stærsta sviði, ég vildi óska að þú gætir strokið. Ég hlakka til að sjá þig næst og segja þér frá öllu. Vertu heima og ekki vera með læst þegar ég hringi himnaríkisbjöllu. Snorri bróðir. Elsku Sigurþór, mikið rosa- lega er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur, langt fyrir aldur fram. Sú hugs- un að geta ekki hitt þig aftur elsku frændi, er óraunveruleg og sár. Þú varst einstaklega ljúfur og glaðlyndur maður, fal- legt bros þitt geislaði frá þér. Það var ávallt gott að vera í kringum þig, þú hafðir svo góða nærveru. Þú varst mikill dugn- aðarforkur, rausnarlegur og alltaf tilbúinn að gera allt fyrir fjölskyldu og vini. Það leyndi sér ekki hve stoltur þú varst af börnum þínum, þau eru fjár- sjóðurinn sem þú skilur eftir. Við verðum ævinlega þakklát fyrir allar þær minningar sem við eigum með þér, sem við get- um yljað okkur við. Þó að sam- verustundir okkar hafi ekki ver- ið eins margar og við hefðum óskað þá voru þær góðar. Allt frá ljúfum stundum sem börn heima hjá ömmu og afa á Skrið- ustekknum, þar sem við gjarnan laumuðumst í gróðurhúsið þeirra í leit að gúrkum og grænum tómötum. Að öllum þeim góðu samveru- stundum sem við höfum átt á fullorðinsaldri með börnum okk- ar, í þeim fjölmörgu útilegum sem við höfum farið í með stór- fjölskyldunni. Við systkinin sendum að- standendum öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og kveðjum frænda okkar með eft- irfarandi orðum, minning þín lifir áfram í hjörtum okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku Sigurþór, Sigrún, Sigurþór og Anna Þóra. Pabbi minn, kletturinn minn og fyrirmyndin mín í lífinu. Hann var alltaf svo stór og sterkur maður. Maðurinn sem hafði lifað í gegnum nánast allt sem hægt var að upplifa. Það væri hægt að skrifa heila bók og meira um það sem pabbi minn upplifði á lífsleiðinni. En þrátt fyrir allt steig hann alltaf sterkari upp en áður og lét ekkert stoppa sig. Ég leit mikið upp til hans. Hann stundaði miklar kraft- lyftingar og keppti þar á ýms- um mótum þar sem hann vann til verðlauna. Hann æfði skíði þegar hann var yngri og var mjög góður og var einnig í landsliðinu. Hann var góður í öllum íþróttum. Hann byrjaði að æfa crossfit fertugur að aldri, búinn að vera smiður og mikill handverksmaður í mörg ár og líkaminn þurft að þola alla þá vinnu og hann hafði aldrei æft crossfit áður, en eftir örfáar æf- ingar var hann færður yfir í af- rekshóp og byrjaði að æfa með þeim. Hann var með svo góða íþróttagetu og líkamlega burði, hann var mikill afreksíþrótta- maður og allt sem hann tók fyr- ir sér hendur, hvort það var að lyfta þungu, smíða, elda eða yrkja ljóð þá gat hann það allt. Aldrei var eitthvað ekki hægt og var ekkert vesen, þegar mað- ur var í vandræðum með eitt- hvað og vissi ekki hvað ætti að gera þá hringdi maður í pabba. Það var alltaf gaman með pabba, hann var svo fyndinn og hrekkjóttur. Hann var alltaf að djóka í manni. Hann sýndi alltaf áhuga á öllu því sem ég sýndi honum, það er eitt af mörgu sem ég elskaði við hann. Sama hversu ómerkilegt það var lang- aði hann alltaf að sjá eða hlusta á það sem ég ætlaði að sýna honum. Hann mætti oft að horfa á fótboltaleiki hjá mér og alltaf þegar ég sá hann fékk ég auka orku og löngun til að skora og vinna leikinn því mig langaði að sýna mig fyrir pabba. Ég var alltaf mjög montinn með pabba þegar ég var í kring- um hann og naut þess mikið þegar við fórum saman í rækt- ina þar sem hann kenndi mér allar æfingarnar sem hann tók í gamla daga. Pabbi minn sem reyndi alltaf að vera til staðar fyrir alla í kringum sig, þrátt fyrir mjög erfiðar stöður og baráttu. Hann var mjög góður faðir sem elsk- aði alla í kringum sig og það eina sem hann vildi var að vera góður. Ég, Amalía og Lovísa Alba fengum dýrmæt en allt of fá ár með þér elsku pabbi en þrátt fyrir það munum við aldr- ei gleyma þeim og ég mun leggja allt í það að hún Lovísa fái að heyra allar góðu minning- arnar um þig og heiðra minn- ingu þína að eilífu. Þinn sonur, Róbert Daði Sigurþórsson. Elsku pabbi minn. Hvernig á ég að byrja? Elsku pabbi minn. Ég hef svo margs að spyrja, eins og þú hann pabba þinn. Ert þú uppi í englanna ríki, friðsæll með bros á vör? Hví fórst þú frá mér í flýti? Ég spyr og fæ engin svör. Margt líkt með mér og þér, við fórum sko okkar leiðir. Farveginn sem enginn sér og það sjálfið okkar meiðir. Kletturinn minn þú varst, ekkert mótlæti stoppaði þig. Ei neitt sem þú ekki gast og þú ávallt peppaðir mig. Samverustundirnar ótalmargar, ég svo þakklát er fyrir þær. Það hugarástandi mínu bjargar, því ég man þær eins og í gær. Þú hefðir orðið svo frábær afi, með stóra hjartað þitt. Í því er sko enginn vafi en þau færð þú aldrei hitt. Ég mun ávallt gera þig stoltan og passa börnin þín. Við Róbert tökum boltann svo samstaðan hún skín. Ég sakna þín svo mikið, er ég kveð þig nú um sinn. Þessi orð get aldrei svikið, elsku pabbi minn. Amalía Arna Sigurþórsdóttir. Sigurþór Arnarsson Faðir minn er farinn á fund for- feðranna og það skæra ljós sem lifði innra með honum slokkn- að. Hann var mér góður faðir og einstök fyrirmynd í lífinu. Ég kunni ekki ávallt að meta ráðleggingar hans eða ástúð og var oft á tíðum erfiður sem barn og unglingur. Faðir minn hélt þó ótrauður áfram að tjónka við þennan vanþakkláta ungling sem allt þóttist vita. Það kippir í kynið er víst sagt og hef ég í gegnum tíðina feng- ið að heyra að faðir minn hafi verið villtur og óstýrilátur á yngri árum en það rættist nú Guðmundur Einarsson ✝ GuðmundurEinarsson fæddist 28. sept- ember 1947. Hann lést 24. janúar 2021. Útför Guð- mundar fór fram 1. febrúar 2021. samt úr honum. Það sama á við um mig. Þegar upp er staðið þá er það ekki bara það góða, fagra og blíða sem skil- greinir okkur held- ur einnig brestirn- ir, óstýrilætið og ástríðan fyrir okk- ar eigin hugðarefn- um sem oft á tíðum drífa okkur áfram og hafa svo áhrif á samferðafólk okkar og umheiminn. Faðir minn var einstaklega falleg blanda af þessu. Hann var trúr og trygg- ur öllum þeim sem hann elsk- aði, réttvís og fylginn sér. Hann var einstaklega hreinn og beinn, harður af sér en blíður í senn, heiðarlegur og lausna- miðaður. Hann kunni að tala við fólk, stilla til friðar og fá það til að vinna saman. Og hann kunni að njóta alls þess sem lífið bauð upp á. Á mínum uppvaxtarárum í Grindavík var lífið saltfiskur daginn út og inn og unnið myrkranna á milli. Þá voru kannski ekki margar stundir afgangs til að sinna börnum, en pabbi fann lausn á því og urðu margar af okkar helstu gæða- stundum bundnar við athafnir sem tengdust vinnunni. Aldrei þótti mér ég mæta afgangi eða vera vanræktur, þvert á móti upplifði ég mig sem heppnasta dreng í heimi þegar hann tók mig með niður í fiskverkun, niður á bryggju eða niður í bátaskúr. Oftar en ekki urðu þessar ferðir að lengri gæða- stundum þar sem rúntað var um bryggjuna, spjallað um daginn og veginn, horft á báta koma og fara, eða kennslustund í smiðjuvinnu og viðgerðum. Síðar fór ég að vinna í verk- uninni hjá honum sem gaf okk- ur enn meiri tíma saman. Á efri árum átti hann samskonar gæðastundir með barnabörnun- um sem fengu dýrmæta kennslu í því að bora, negla, tálga ásamt almennri lífsspeki sem veganesti á lífsins ferða- lagi. Þung eru skrefin að kveðja hann aðeins 73 ára gamlan og svo fullan af krafti og lífi. Í mínum huga átti pabbi fram- undan árafjölda fullan af hjól- hýsaferðalögum, kjötbollu- kvöldum með barnabörnunum, rakettusprengingum, sólarferð- um til Kanarí, brasi og bjástri í bústaðnum og Ísólfsskála ásamt því að njóta hvers augnabliks. Núið er svolítið snúið því það er aldrei búið; á meðan við lif- um. Augnablikið er það eina sem til er og pabbi kunni svo sannarlega að njóta þess. En hans nú er búið og hann ekki lengur hér á meðal vor. Pabbi, þín verður sárt saknað og núið mitt, um stund, töluvert tóm- legra. Þótt hamingjan sé ekki alltaf gefin og óvissan sé rík og líka efinn munum, er við æviveginn stikum, að ævin, hún er safn af augnablikum, og missum ekkı́ á hamingjuna trúna; hún mun í hvert sinn gefast okkur – núna. Það er svo morgunljóst og ekki snúið; þau eiga samleið, hamingjan og núið. (Ómar Ragnarsson) Víðir Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.