Morgunblaðið - 10.02.2021, Qupperneq 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
fyrrnefndri tilkynningu og að Meta-
morPhonics starfræki hljómsveitir í
London, Leicester, Los Angeles og
nú á Íslandi.
Millibilsástand
„Á ensku er þetta kallað „comm-
unity interest company“ og er þá
„not for profit“. Þetta er hálfgert
millibilsástand milli þess að vera
góðgerðarstofnun og venjulegt,
„limited“ fyrirtæki. Þetta er stofnað
til þess að halda utan um verkefni
sem ég vinn að og í útlöndum vinn ég
aðallega með heimilislausa sam-
félaginu, í Bretlandi og aðeins í
Bandaríkjunum og svo byrjaði ég að
vinna hérna á Íslandi með starfs-
endurhæfingarstöðvum og Hugar-
afli,“ segir Sigrún um MetamorPho-
nics, fyrirtæki sitt. Afrakstur
þeirrar vinnu er hin nýstofnaða 35
manna hljómsveit.
Sigrún er spurð að því hvort allir í
hljómsveitinni spili á hljóðfæri og
segir hún svo ekki vera. Vissulega
geri liðsmenn Sinfóníuhljómsveitar
Íslands það og nemendur við
Listaháskóla Íslands þar sem einnig
má finna söngvara. Í röðum starfs-
endurhæfingarstöðvanna og Hugar-
afls megi finna fólk sem geti sungið
og leikið á hljóðfæri, sumir séu
reyndir en aðrir hafi aldrei tekið
þátt í nokkurs konar hljómsveita-
starfi.
Fyrsta hljómsveitin sem Sigrún
kom að því að stofna með þessum
hætti, The Messengers, er bresk og
varð til út frá verkefni Sigrúnar með
nemendum sínum við Guildhall-
tónlistarskólann. „Eftir nokkurra
ára starf með þeirri hljómsveit hugs-
aði ég með mér að þetta módel, þessi
strúktúr á verkefninu, væri eitthvað
sem ég gæti endurskapað á fleiri
vettvöngum og þá fór boltinn að
rúlla. Úti í heimi vinn ég í samstarfi
við góðgerðarstofnanir fyrir heim-
ilislausa og alltaf með háskóla, ann-
aðhvort tónlistarskóla eða annars
konar háskóla,“ segir Sigrún. Í flest-
um tilfellum borgi háskólarnir fyrir
verkefnin þar sem þau séu hluti af
náminu.
Flókið skipulag á Covid-tímum
„The Messengers var stofnuð
2012 og Trailblazers, næsta hljóm-
sveit sem er í Los Angeles, árið 2018
og svo stofnaði ég fyrirtækið 2019,“
segir Sigrún og er í framhaldi spurð
að því hvort þessi vinna krefjist ekki
mikils skipulags og tíma. Jú, hún
segir svo vera og að verkefnið hér á
Íslandi hafi verið hvað flóknast að
skipuleggja þar sem mjög margir
komi að því. „Og það á Covid-
tímum,“ bætir Sigrún við og segir
„alveg klikkað“ að koma þessu öllu
saman. Frumkvöðlasjóður Íslands-
banka hafi styrkt verkefnið og
undirbúningur gengið vel þar sem
allir hafi haft trú á því og séu
spenntir fyrir að sjá afraksturinn.
Stutt heimildarmynd var gerð um
The Messengers í London sem finna
má á slóðinni vimeo.com/504446332
og hinn heimskunni tónlistarmaður
Brian Eno hefur fylgst vel með
þeirri sveit og verkefni og lofsamað
hugmyndina. „Þetta er frábær hug-
mynd! Tilraunir sem þessi – sam-
félagstónlistarlegar tilraunir – eru
bæði framtíð tónlistarinnar og sam-
félagsins,“ skrifaði Eno um verk-
efnið í febrúar 2019 og erfitt að finna
betri meðmæli.
Tónlistin fantagóð
Sigrún er spurð að því hvort
breskir fjölmiðlar hafi veitt verk-
efnum hennar sæmilega athygli og
segir hún vissulega erfitt að ná þar í
gegn og þá sérstaklega í samanburði
við Ísland. Þó hafi verið fjallað um
The Messengers í útvarpi og dag-
blöðum í Bretlandi og hljómsveitin
átt í samstarfi við hina virtu menn-
ingarmiðstöð Barbican Centre í
London, svo dæmi séu tekin.
„Þetta þykir mjög áhugvert af því
tónlistin er fantagóð, útkoman er
spennandi. Það eru til alls konar
verkefni með hinum og þessum þjóð-
félagshópum þar sem útkoman er
svona la la, en við leggjum svo mik-
inn metnað í að tónlistin sé eitthvað
sem allir viðkomandi geti verið stolt-
ir af. Fólk verður líka svo hissa á því
að tónlistin sé samin af 30 manns eða
fleirum samtímis, allir eru saman að
vinna að þessu. Það er óhefðbundið
og þá líka fyrir alla viðkomandi,“
segir Sigrún.
Spurningar í stað fyrirmæla
Sigrún stýrir tónlistarsköpun
hljómsveitanna og líkir því starfi við
að púsla. „Það kemur eitthvað frá
hinum og þessum sem ég set saman
og legg auðvitað mína listrænu sýn
inn í það, stundum kem ég með lag-
línu sem hefur komið upp í huga mér
og segir prófum þetta. Ég stend fyr-
ir framan bandið því það þarf ein-
hver að koma þessu saman. En ég
segi ekki „spilið þetta“ eða „gerið
þetta“ heldur spyr ég frekar spurn-
inga, bæði með því að biðja fólk að
prófa eitthvað og svo kem ég öllu
saman í einhvern strúktúr,“ útskýrir
hún.
Hvað fyrrnefndan Brian Eno
varðar segir Sigrún að hann sé
tengdur hennar samfélagi í London.
Nell Catchpole, samstarfskona
hennar úr Guildhall, sem hafi rekið
með henni mastersdeild við skólann
til fjölda ára, hafi unnið með Eno allt
frá táningsaldri og vinni enn með
honum í öllum hans helstu verk-
efnum. „Hann hefur komið nokkrum
sinnum til okkar sem gestafyrirles-
ari í Guildhall og hefur stundum
mætt óboðinn á festivöl sem við er-
um að stýra. Hann er mjög sam-
félagslega meðvitaður og rekur t.d.
lítinn samfélagskór og var mjög for-
vitinn um þetta verkefni,“ segir
Sigrún.
Ekki sitja og bíða
Hún segist hjartanlega sammála
Eno í því að í tónlistarsamfélags-
legum tilraunum á borð við þær sem
hún hefur stundað sé að finna fram-
tíð bæði tónlistar og samfélags.
„Svona brjótum við niður múra og
byggjum upp samkennd og samtal í
samfélaginu,“ bendir Sigrún á og að
hún bendi nemendum sínum á að
samfélagið í heild muni græða á því
að komast í tæri við tónlistarstarf.
„Hvernig ætlið þið að snúa ykkur í
því? er mín spurning til þeirra. Þið
sitjið ekki bara heima og bíðið eftir
því að einhver bjóði ykkur verkefni,
þið verðið að gera eitthvað í þessu
sjálf,“ segir hún að lokum.
Brýtur múra og styrkir samkennd
35 manna hljómsveit með samfélagslegan tilgang Liðsmenn í starfsendurhæfingu, frá Hugarafli,
Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveit Íslands Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths stýrir verkefninu
Fjölmenni Hin nýja hljómsveit á sviði Eldborgar um liðna helgi en þá var hún stofnuð með pompi og prakt.
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Um síðustu helgi var stofnuð heldur
óvenjuleg hljómsveit í Eldborgarsal
Hörpu. Þrjátíu og fimm manns skipa
sveitina og koma úr ýmsum áttum
og það ekki nema að hluta tónlistar-
legum. Hljómsveit þessi er afrakstur
samstarfs starfsendurhæfingar-
stöðva, Hugarafls, Listaháskóla Ís-
lands, Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Hörpu og Tónlistarborgarinnar
Reykjavík en verkefnið heyrir undir
hið samfélagsmiðaða fyrirtæki
MetamorPhonics sem tónlistar-
konan Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths
stýrir í London. Sigrún býr þar og
kennir við Guildhall-tónlistar-
skólann valgrein sem nefnist „social
arts practice“ og gengur út á að fara
með nemendur út í hinar ýmsu þjóð-
félagslegu aðstæður. Sem dæmi
nefnir hún verkefni með alzheimers-
sjúklingum, heimilislausum og nem-
endum úr öðrum listgreinum.
Hljómsveitin nýstofnaða er skipuð
fólki frá Starfsendurhæfingu
Hafnarfjarðar, Starfsendurhæfingu
Vesturlands, Samvinnu á Suð-
urnesjum, Hugarafli, Listaháskóla
Íslands og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Og samsetning hljómsveit-
arinnar er ekki það eina sem gerir
hana óhefðbundna, eins og bent er á
í tilkynningu, heldur mun hún semja
alla sína tónlist og flytja á loka-
tónleikum verkefnisins 21. maí
næstkomandi í Norðurljósasal
Hörpu.
Hugmyndafræði MetamorPho-
nics byggist á þeirri trú að til þess að
fólki vegni vel í lífinu þurfi það að
upplifa sig sem gjaldgenga, virka
meðlimi samfélagsins og að á það sé
hlustað. „Því skapar MetamorPho-
nics einstakan, opinn og aðgengileg-
an vettvang til tónsköpunar, fyrir
tónlistarnemendur á háskólastigi og
fólk sem stendur á krossgötum í líf-
inu sem er að byggja sig upp eftir
margskonar áföll, t.d. heimilisleysi,
atvinnuleysi eða kulnun,“ segir í
Ljósmyndir/Juliette Rowland
Samfélagsverkefni Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths stýrir hljómsveitinni.