Morgunblaðið - 22.02.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fundu aftur myglu í Fossvogsskóla
Upplýsingum haldið frá foreldrum Fjórða skipti sem mygla finnst í skólanum á tveimur árum
Beðið í mánuð með að kynna niðurstöður Engin úrræði fyrir foreldra þrátt fyrir heilsuhættu
Enn finnst mygla í Fossvogsskóla,
þrátt fyrir að ráðist hafi verið í gríð-
armiklar endurbætur á húsnæðinu.
Þetta kemur fram í niðurstöðu
greiningar Náttúrufræðistofnunar
Íslands á sýnum sem tekin voru í
skólanum 16. desember 2020. Sýnin
voru rannsökuð 18.-19. janúar í ár og
birtust niðurstöðurnar 22. janúar.
Úr þeim vann verkfræðistofan Verk-
ís skýrslu, en hún hefur ekki verið
birt foreldrum barnanna, né opin-
berlega.
Sigríður Ólafsdóttir, foreldri
barns sem veiktist mikið vegna
myglunnar, segir ekkert samráð
vera milli borgarinnar og skóla-
stjórnenda og foreldra barna sem
stunda nám við skólann. „Engar
upplýsingar berast til foreldra
barnanna,“ segir Sigríður við Morg-
unblaðið. „Það eru engin úrræði sem
standa okkur til boða. Ekkert sam-
ráð haft við okkur, ekki neitt.“
Sjálfboðaliðar gegn borginni
Hún segir foreldrafélag og skóla-
ráð Fossvogsskóla hafa beitt sér eft-
ir fremsta megni í baráttunni, en það
sé afar erfitt fyrir þau að eiga við
borgina. „Við erum bara fólk í sjálf-
boðavinnu að eiga við risabatterí hjá
Reykjavíkurborg.“
Foreldrar hafi ítrekað kallað eftir
sýnatökum í skólanum, þar sem
mörg börn veiktust þrátt fyrir fram-
kvæmdir og þrif gegn myglunni.
„Við vildum að þeir sýndu fram á það
að allt væri raunverulega í lagi því
börnin voru enn þá veik. Þá var því
lofað að skólinn yrði þrifinn í gegn,“
segir Sigríður.
Eftir það hafi sýnataka verið
framkvæmd og fundur um niður-
stöður hennar haldinn 17. febrúar.
„En við vorum ekki látin vita af því,
við fréttum það eiginlega í fjölmiðl-
um.“
Framkvæmdunum klúðrað
Hún gefur lítið fyrir þær endur-
bætur sem ráðist var í eftir að upp
komst um mygluna fyrst. „Eins og
það blasir við okkur er búið að klúðra
þessum framkvæmdum mjög illa.
Myglan sem finnst núna er að finn-
ast á sama stað í fjórða sinn, í glæ-
nýju þaki. Og þetta kemur stjórn-
endum alltaf jafnmikið á óvart,“
segir hún. „Núna er þetta líka farið
að líta illa út fyrir það fólk sem staðið
hefur í þessu svona lengi, þau eru bú-
in að eyða fullt af peningum í við-
gerðir sem hafa mistekist og núna
snýst þetta líka um að bjarga ásýnd
sinni.“
Eftir því sem Sigríður veit best
voru sýni einungis tekin úr vestur-
hluta skólans og einni stofu í miðj-
unni. Hún segir barnið sitt ekki hafa
komið neitt inn á þau svæði, en samt
sé það veikt. „Við erum að senda
barnið okkar í þennan skóla alla
daga, gegn betri samvisku.“ Þá hafi
læknar ráðlagt henni að fjarlægja
barn sitt úr skólanum samdægurs
vegna ótta við heilsuvandamál.
„Það er svo margt sem er búið að
ganga á og það er búið að koma svo
illa fram við okkur og sérstaklega
börnin.“ jonn@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Mygla Fossvogsskóli hefur strítt
við mygluvandamál í lengri tíma.
Hildur Sæbjörg Jónsdóttir, skóla-
stýra Barnaskólans í Hafnarfirði,
segir gögn skólans benda til þess að
framfarir í lestri séu ekki ólíkar á
milli kynja hjá Hjallastefnunni þeg-
ar litið er til barna á aldrinum sex til
níu ára. Töluvert hefur verið fjallað
um vanda drengja í skólakerfinu
undanfarið.
„Við nálgumst þarfir stúlkna og
drengja á ákveðinn hátt. Vissulega
er kynjabreytan ekki það eina sem
skiptir máli en hún er samt sem áður
tæki sem við horfum til og notum,“
segir Hildur. Nefnir hún að kynja-
skipting geri það að verkum að hægt
sé að leggja áherslu á ólíkar þarfir
drengja og stúlkna: „Þessi mikla
hreyfiþörf er meira hjá drengjum,
þótt hún sé hjá stúlkum líka. Það
hentar þeim til dæmis betur að fá
stutt og knöpp skilaboð og styttri
lotur. Stúlkur þurfa oft meiri ró og
kannski útskýringar,“ segir hún.
Í janúar árið 2019 náðu sex ára
stúlkur við skólann að lesa að með-
altali 38 orð á mínútu, drengir 67 orð
en mælst er til þess að 90% sex ára
barna nái í það minnsta 20 orðum á
mínútu.
Sjö ára stúlkur í skólanum náðu
þá að lesa 105 orð á mínútu en
drengir á sama aldri 79 orð. Þá lásu
níu ára stúlkur að meðaltali 94 orð
en drengir á sama aldri 128 orð.
„Við leggjum einnig gríðarlega
mikla áherslu á vellíðan barna. Það
er fyrst og síðast í okkar verklagi að
börnunum líði vel og þá getum við
sagt að það séu meiri líkur á
árangri,“ segir hún að lokum.
veronika@mbl.is
Drengjum hjá Hjallastefn-
unni gengur vel í lestri
Ekki hallar á drengi hvað varðar lestur hjá Hjallastefnunni
Morgunblaðið/Hari
Lestur Ólíkar þarfir kynjanna.
Yfirheyrslur fóru fram um helgina
yfir níu manns sem sitja nú í
gæsluvarðhaldi vegna morðsins
sem framið var í Rauðagerði í
Reykjavík fyrir rúmri viku. Yfir-
heyrslurnar stóðu enn á níunda
tímanum í gærkvöldi, að sögn Mar-
geirs Sveinssonar, yfirlögreglu-
þjóns hjá miðlægri rannsóknardeild
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu.
Karlmaður á fimmtugsaldri var
úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna
málsins síðdegis á laugardag og var
hann sá níundi sem bættist í þann
hóp. Að líkindum var maðurinn
annar tveggja sem handteknir voru
á föstudag en það hefur ekki feng-
ist staðfest. Gæsluvarðhalds-
úrskurðirnir renna ýmist út á
morgun eða á miðvikudaginn. Mar-
geir segist vongóður um að það
nægi til þess að leysa úr málinu.
Annars verður farið fram á áfram-
haldandi gæsluvarðhald.
„Það má alveg eins búast við því,
en það er of snemmt að segja til
um það að svo stöddu,“ segir Mar-
geir.
Hann segir rannsókn málsins
ganga vel miðað við umfang. Þá á
hann bæði við fjölda fólks sem er
hluti af rannsókninni og að upplýs-
ingaöflunin sé mikil.
Yfirheyrslur
yfir fólkinu
fram á kvöld
Níu manns sitja
nú í gæsluvarðhaldi
Mikill erill var í blómabúðum landsins í gær á
fyrsta degi góu, konudeginum, og eflaust fengu
margar konur blóm eða aðrar gjafir frá maka
sínum. Einn þeirra sem komu við í blómabúðinni
18 rauðum rósum í Hamraborg í Kópavogi var
Stefán Baldursson, leikstjóri og fyrrverandi
þjóðleikhússtjóri. Sigríður Gunnarsdóttir blóma-
sali afgreiddi hundruð blómvanda í versluninni í
gær og myndaðist röð fyrir utan 18 rauðar rósir.
Margar konur fengu blómvönd í gær
Morgunblaðið/Íris