Morgunblaðið - 22.02.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.02.2021, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Heilbrigðiseftirlit Reykja-víkur gaf í byrjun mánað-arins út tímabundiðstarfsleyfi fyrir starfsemi Vöku hf. á Héðinsgötu 2 í Laugarnesi. Gildir starfsleyfið út þetta ár. Vaka var flutt að Héðinsgötu í byrjun síðasta árs og hefur Morgun- blaðið greint frá óánægju íbúa í ná- grenninu með starfsemi fyrir- tækisins. Hafa þeir kvartað undan hávaða og mengun auk þess sem at- hugasemdir hafa verið gerðar við að fyrirtækið hafi fengið að starfa án starfsleyfis á staðnum. Í desember kom til að mynda fram í frétt blaðsins að umhverfis- og auðlindaráðuneytið benti á það í bréfi að samkvæmt lög- um um hollustuhætti og mengunar- varnir megi ekki hefja atvinnurekst- ur eins og þann sem Vaka stundar hafi starfsleyfi ekki verið gefið út eða starfsemin verið skráð hjá Umhverf- isstofnun. Í hinu tímabundna starfsleyfi er auk almennra skilyrða sérstaklega tekið fram að Vaka megi aðeins pressa bíla á milli klukkan 10 og 16 á virkum dögum og bílar til förgunar skuli geymdir innandyra. Þá þarf fyrirtækið að fjarlægja gáma á lóð- armörkum við Sæbraut og girða lóð- ina af ekki síðar en 1. maí. Jákvæð umsögn byggingarfulltrúa liggur fyr- ir með skilyrðum um að byggingar- leyfisumsókn verði samþykkt fyrir lok þessa mánaðar og lokaúttekt verði lokið fyrir lok maí. Alls bárust Heilbrigðiseftirlitinu 13 athugasemdir frá íbúum vegna málsins. Eru athugasemdirnar birtar með starfsleyfinu á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Þess má geta að Morgunblaðið óskaði eftir því að fá umræddar athugasemdir í síðasta mánuði en þá var því hafnað og við borið að Heilbrigðiseftirlitið teldi þær „vinnugögn sem ekki ber að af- henda“. Meðal þess sem kemur fram í at- hugasemdum er óánægja með hávaða frá starfseminni, fólki finnst um- ræddur iðnaður of nálægt íbúabyggð þar sem mikið er um barna- fjölskyldur og bagalegt sé að fyrir- tækið sé nálægt vinsælum útivistar- svæðum á borð við Laugarnesfjöru. Í svörum Heilbrigðiseftirlits kemur fram að dregið hafi úr hávaða. „Um- gengni og starfslag hefur batnað og er Vaka á góðri leið með að uppfylla skilyrði HER,“ segir í svari eftirlits- ins. Er jafnframt greint frá því að Heilbrigðiseftirlitið hafi farið í tíu eft- irlitsferðir í Vöku frá því starfsemi þess hófst á núverandi stað. „Það er ólíðandi að leyfa starf- semi Vöku hérna í óþökk íbúa. Hvers vegna fær þessi starfsemi meira vægi en óskir og heilsa íbúa? Þetta er ann- arlegt í besta falli og skammarlegt í öllu falli,“ segir í einni athugasemd- inni. Þá koma fram áhyggjur af því að starfsemi Vöku fari aftur í fyrra horf þegar leyfi liggi fyrir. Bent er á það að Vaka hafi tekið á móti 4.000 bílum til úrvinnslu árið 2019 en í umsókn fyrirtækisins um starfsleyfi hafi kom- ið fram að búist væri við því að sú tala myndi tvöfaldast. „Hvergi kemur fram hvernig skuli tekist á við þessa væntanlegu tvöföldun úrvinnslu- bifreiða og hvar þeim verði komið fyrir. Óttumst við að starfsemin falli í sama far og áður við þessa fjölgun og að Vaka fari aftur á bak orða sinna og stafli bílum á ný á lóð Héðinsgötu 2. Erfitt er að trúa orðum forsvars- manna fyrirtækisins um að nú verði í hvívetna fylgt nýjum verkferlum fyrirtækisins (sem fyrirtækið hyggst líta eftir sjálft) í ljósi umfangsmikilla ósanninda í fyrri umsókn um starfs- leyfi og vítaverðrar umgengni á Héð- insgötu 2 á árinu 2020.“ Vantreysta Vöku eftir „vítaverða“ umgengni Morgunblaðið/Eggert Héðinsgata Mikil óánægja er meðal nágranna með starfsemi Vöku í Laugarnesi. Myndin er tekin í desember þegar lóðin hafði verið hreinsuð. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mennta- ogmenn-ingar- málaráðherra hefur falið þingmönnum úr ríkisstjórnar- flokkunum þremur að „rýna lög um Ríkisútvarpið ohf. og gera tillögur að breytingum sem lík- legar eru til að sætta ólík sjón- armið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins“, eins og segir í tilkynningu á vef stjórnarráðs- ins. Þar segir ennfremur að þessi mál hafi verið mikið til um- fjöllunar í samfélaginu og á Al- þingi, „meðal annars í tengslum við frumvarp ráðherra um stuðning við einkarekna fjöl- miðla og þau sjónarmið að um- svif Ríkisútvarpsins á fjölmiðla- markaði valdi samkeppnis- skekkju sem eigi sinn þátt í bágri rekstrarstöðu einkarek- inna miðla hér á landi“. Ætlunin er meðal annars að þingmennirnir þrír meti núver- andi skilgreiningu á hlutverki Rúv. og hvort þörf sé á endur- skilgreiningu, meti hvernig Rúv. geti sem best náð mark- miði laga um að „stuðla að lýð- ræðislegri umræðu, menningar- legri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi“, hvernig Rúv. geti sem best sinnt öryggishlutverki sínu, skoði dreifikerfið og meti fjármögnun stofnunarinnar og „hvort núver- andi fyrirkomulagi skuli haldið óbreyttu til framtíðar eða hvort breytinga sé þörf“. Þetta er ærið verkefni og mikilvægt og það er þýðingar- mikið að þau Kolbeinn Ó. Proppé, Silja D. Gunnarsdóttir og Páll Magnússon nái vel utan um það og skili því af sér á til- settum tíma, hinn 31. mars næstkomandi. Við blasir að þörf er á breyt- ingum á þátttöku ríkisins á fjöl- miðlamarkaði. Hefði Rúv. ekki verið sett á laggirnar á sínum tíma, þegar einkaaðilar þóttu ekki líklegir til að geta sinnt þessari þjónustu af myndar- skap, er afar ósennilegt að nokkrum manni dytti í hug að setja slíka stofnun á laggirnar nú. Ríkisútvarpið er tíma- skekkja og sinnir engu hlutverki sem aðrir geta ekki sinnt. Vera má að aðrir myndu ekki taka að sér allt það sem Rúv. sinnir nú, en sumt af því má missa sín og öðru mætti halda áfram með því að fela það öðrum, til að mynda með því að veita einkaaðilum stuðning til að veita þjónustuna. Miðað við þá miklu fjármuni sem Ríkisútvarpið tekur til sín, um sjö milljarða króna á ári, er víst að unnt væri að sinna slík- um þáttum starfseminnar á mun hagkvæmari hátt. Í markmiðskafla laganna um Ríkisútvarpið ohf. segir að stofnunin skuli „stuðla að lýð- ræðislegri umræðu, menningar- legri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjón- ustu í almanna- þágu“. Augljóst er að landsmenn þurfa ekki Ríkisútvarpið til að halda uppi lýð- ræðislegri umræðu og þar að auki er Ríkisútvarpið eins og það er nú afar illa til þess fallið að stuðla að lýðræðislegri umræðu. Þar er ekki opinn vettvangur fyrir almenning heldur fyrir val- inn hóp fólks, starfsmenn stofn- unarinnar eða aðra útvalda. Þá vantar mikið upp á hlutleysið því að þeir sem ráða ferðinni hafa sýnt að þeir leggja meira upp úr því að halda á lofti eigin sjónar- miðum en að tryggja almenna og fjölbreytta umræðu. Þetta end- urspeglast til að mynda í því að mikill munur er á því hversu vel fólk treystir umfjöllun stofnun- arinnar eða hversu hlutlausa það telur hana vera og ræðst það mjög af stjórnmálaafstöðu. Þekkt er að öryggishlutverk Rúv. er fyrir löngu úrelt hug- mynd og um langt skeið hefur enginn getað treyst á Rúv. í þessu sambandi. Vissulega stuðl- ar það að upplýsingagjöf þegar hættuástand ríkir, en það gera aðrir miðlar ekki síður og jafnvel enn frekar og eru iðulega fyrr með fréttirnar. Nærtækt er að nefna mbl.is í því sambandi en fleiri einkareknir miðlar vilja sinna þessu hlutverki, fyrir utan farsímana, sem nú um stundir hafa mikla þýðingu í þessu en voru ekki til þegar hugmyndin kom upp um öryggishlutverk Rúv. Þá er það vandinn við fjár- mögnun Rúv. sem þingmenn- irnir þrír eiga að leggja mat á. Þetta skiptir miklu því að jafn óþarft og Rúv. er orðið eru ekki líkur á að starfsemi þess verði hætt á næstunni. Tregðulög- málið mun ráða ferðinni enn um sinn. En það skiptir máli að fjár- mögnun stofnunarinnar sé með sem eðlilegustum hætti og þá liggur beinast við að hún fari á fjárlög með sama hætti og flest- ar aðrar. Það fyrirkomulag að hún sé rekin sem hlutafélag, þótt opinbert sé, og fái útvarpsgjald, auk þess að vera fyrirferðarmikil á auglýsingamarkaði, er óvið- unandi, jafnt fyrir almenning sem keppinauta. Þessi ríkis- stofnun, eins og aðrar, þarf að starfa innan eðlilegs ramma, þvælast sem minnst fyrir öðrum á sama markaði og lúta sjálf- sögðu aðhaldi fulltrúa almenn- ings. Ríkisútvarpið á ekki að starfa eins og það sé í eigu starfsmannanna heldur lands- manna allra. Til að svo megi verða þarf það að sæta sjálf- sögðu eftirliti og aðhaldi kjör- inna fulltrúa og það þarf að reka fyrir það fé sem Alþingi veitir því. Með því móti eru mestar lík- ur á að það sinni skilgreindu hlutverki sínu í þágu almennings og minnstar líkur á að það skaði aðra miðla. Verkefni starfshóps um Ríkisútvarpið er mikið og mikilvægt} Brýn endurskoðun Í dag verður nýjum áfanga náð. Áfanga sem enginn heldur upp á. Hálf milljón Bandaríkjamanna hefur þá dáið úr Covid-19. Seinna í vikunni verður til- kynnt að tvær og hálf milljón manna í heiminum öllum hafi þurft að lúta í lægra haldi fyrir veirunni skæðu. Reyndar hafa líklega ennþá fleiri dáið úr þessum illræmda sjúkdómi, en opinberar tölur eru svona. Bak við kaldar tölurnar eru sorgir ættingja, vina, vinnufélaga. Fólks sem veit að ástvinir koma aldrei aftur, munu aldrei aftur sitja við morgunverðarborðið, bjóða góðan daginn á kvöldgöngunni eða hringja í barnabörnin. Tölur hætta að hafa merkingu fyrir okkur þegar þær eru þuldar upp á hverjum degi. Við kippum okkur ekki upp við milljón látna til eða frá, nú þegar faraldurinn er kominn á annað ár, þótt það séu ekki nema örfáir mánuðir síðan það fór hroll- ur um okkur þegar tilkynnt voru nítján ný smit á Íslandi. Sumum finnst of mikið að gert í sóttvörnum en aðrir eru á nálum yfir eftirgjöf allt of snemma. Bóluefni var þróað á mettíma, sem er auðvitað gleðiefni, en vegna þess að það er til er stór hópur æfur yfir að ekki skuli vera búið að bólusetja alla (eða að minnsta kosti þá sjálfa). Við vonum að ósköpunum fari að linna og við getum bráðum litið um öxl og spurt: hvað getum við lært? Drepsótt er ekkert grín. Forsætisráðherra Bretlands sagði glaðhlakkalega frá því að hann gæti glatt umheim- inn með því að hann hefði tekið í höndina á öllum þegar hann kom á spítala og hitti fólk sem lagt hafði verið inn vegna sjúkdómsins. Nokkrum vikum seinna var hann við dauðans dyr. Hann hefur vænt- anlega hætt við að kalla aðgerðaáætlun sína Síðasta andvarpið, eins og hann hafði í flimt- ingum, áður en hann komst nærri sínum síð- asta andardrætti. Veiruvarnir eru ekki pólitík. Í Bandaríkj- unum hélt fyrrverandi forseti fjölmargar sam- komur þar sem lítt var skeytt um fjarlægð eða grímur. Ættmenn hans tóku af sér grímuna á sjónvarpsfundi, nokkrum dögum áður en í ljós kom að forsetinn, kona hans og sonur voru öll smituð. Þöggun er heimskuleg og hættuleg. Ríkis- stjóri New York-ríkis vakti athygli fyrir skörulega framgöngu á upplýsingafundum og margir sáu í honum forsetaefni. Nú kemur í ljós að hann sagði ósatt og stakk tölum um dauðsföll undir stól. Forseti Bandaríkjanna vissi strax í upphafi að veiran væri stórhættuleg og gæti borist milli manna án snert- ingar, en þagði yfir þeirri vitneskju sinni við almenning og gerði lítið úr hættunni. Svíar fóru sína leið og leyfðu öllum að hittast eins og ekkert hefði ískorist og tryggðu sér þannig Norður- landametið í dauðsföllum og smitum. Það er leiðinlegt að hitta ekki alla vini sína og komast ekki á allar samkomur, en hörkum af okkur nokkra mán- uði enn. Við erum vonandi komin langleiðina í markið. Benedikt Jóhannesson Pistill Dauðans alvara Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í ítarlegri athugasemd frá Ólafi Heiðari Helgasyni kemur fram að ekki sé lagagrundvöllur fyrir því að veita Vöku starfsleyfi. Kveðst Ólafur telja að starfsemi fyrirtækisins sé hvorki í sam- ræmi við aðalskipulag né deili- skipulag. „Fyrir liggur að Reykjavíkurborg hefur látið það viðgangast að rekstraraðili hafi brotið lög mánuðum saman með því að stunda mengandi iðnaðarstarfsemi án starfs- leyfis. Brot fyrirtækisins eru al- varleg og gildar ástæður eru til að ætla að [þau] hafi valdið íbú- um á svæðinu hættu. Borgin hefur ekki beitt þeim úrræðum sem hún hefur samkvæmt lög- um nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir til að stöðva þessi lögbrot þrátt fyrir að vera skylt samkvæmt lögunum að framfylgja þeim,“ skrifar Ólafur. Heilbrigðiseftirlitið hafnar því að ekki sé lagagrundvöllur fyrir útgáfu starfsleyfis í svari sínu. Hafi valdið íbúum hættu ÁTELUR REYKJAVÍKURBORG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.