Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 4

Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 4
FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Þrjú kunna að sækjast eftir 1. sæti á lista sjálfstæðismanna í Suður- kjördæmi í komandi kosningum. Þar er fyrir Páll Magnússon odd- viti, sem áfram sækist eftir því hlutverki, en jafnframt hefur Vil- hjálmur Árnason tilkynnt að hann sækist eftir 1. sæti listans og Guð- rún Hafsteinsdóttir iðnrekandi í Hveragerði er að hugsa sig um. Viðmælendur Morgunblaðsins telja að þess sé ekki langt að bíða að hún geri uppiskátt um það hvort hún muni gefa kost á sér eða ekki. Sjálfstæðismenn eru með þrjá þingmenn í kjördæminu, sem allir leita endurkjörs, en það eru þeir Páll, Ásmundur Friðriksson sem vill áfram verða í 2. sæti og Vil- hjálmur. Atkvæðamenn í flokknum telja að góðir möguleikar standi til þess að Sjálfstæðisflokkurinn nái inn fjórum mönnum í komandi kosningum, en alls eru tíu þing- menn í kjördæminu. Vilhjálmur Árnason skorar á Pál Magnússon í 1. sætið Vilhjálmur Árnason greindi frá því á laugardag að hann myndi sækjast eftir efsta sæti listans und- ir kjörorðinu „nýja kynslóð til for- ystu“. Hann vék þar í engu að Páli Magnússyni, en lagði á það nokkra áherslu, að hann hefði ræktað tengslin við kjördæmið vel. Varla er að efa að það hafi aðrir þingmenn líka gert, ekki síst Ásmundur Frið- riksson sem er orðlagður fyrir ræktarsemi við kjósendur, og Páll er vel þokkaður fyrir að hafa verið áberandi í umræðunni, bæði varð- andi málefni kjördæmisins og landsins alls. Hins vegar hefur hann sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki stutt flokkinn í bæjarstjórnarkosn- ingum í Eyjum um árið og nefna margir að Páll verði því tæplega ráðherra, eins og þeir telja að 1. þingmanni Suðurkjördæmis beri. Af þeirri ástæðu einni telja margir lag. Gefur Guðrún Hafsteinsdóttir kost á sér í 1. sæti? Talið er að Guðrún Hafsteins- dóttir muni veita hverjum sem er harða samkeppni um fyrsta sætið og vel líkleg til þess að hreppa það. Hún hefur getið sér gott orð í at- vinnulífi í kjördæminu, hefur verið í forystu Samtaka iðnaðarins og for- maður Landssambands lífeyris- sjóða, svo hún er ágætlega kynnt. Sennilega veldur þó ekki minna um almennt ákall á endurnýjun, sem heyra hefur mátt í flestum flokkum og kjördæmum eins og vant er. Prófkjörið tekur mið af sóttvörnum Sjálfstæðismenn í Suður- kjördæmi, þessu víðfeðmasta kjör- dæmi landsins, sem nær frá Reykjanesi austur til Hvalness austan við Hornafjörð, efna til próf- kjörs laugardaginn 29. maí, en framboðsfrestur rennur út fimmtu- daginn 8. apríl. Að sögn Ingvars Péturs Guð- björnssonar, formanns kjördæma- ráðs flokksins í Suðurkjördæmi, vilja menn nota tímann vel, m.a. með tilliti til sóttvarna. „Við hvetj- um t.d. fólk til þess að nýta rétt sinn samkvæmt skipulagsreglum flokksins til þess að kjósa utan kjörfundar mánuðinn á undan, því allur er varinn góður. Það er ástæðulaust að allir séu að þyrpast á kjörstaði einn og sama daginn,“ segir Ingvar Pétur. Hann sagði einnig til athugunar hvernig mætti koma til móts við þá sem mögulega verða í sóttkví þegar þar að kemur. Stefnir í fjör- lega baráttu í Suðurkjördæmi  Ein áskorun komin á oddvita sjálf- stæðismanna og önnur talin á leiðinni Suðurkjördæmi » Prófkjör sjálfstæðismanna verður haldið 29. maí » Hvatt verður til atkvæða- greiðslu utan kjörfundar af sóttvarnaástæðum » Allir þrír þingmenn flokksins í kjördæminu vilja halda áfram » Vilhjálmur Árnason vill 1. sætið af Páli Magnússyni » Mjög er rætt að Guðrún Haf- steinsdóttir sæki í 1. sætið Páll Magnússon Vilhjálmur Árnason 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Andrés Magnússon andres@mbl.is Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra segir að miðað við spár nýút- gefins bólusetningardagatals verði öllum þeim 16 ára og eldri sem vilja þiggja bólusetningu boðið að gera það fyrir mitt ár. Til að svo megi verða er ljóst að nota verður bóluefni frá fleiri framleiðendum en hingað til hafa sent bóluefni til landsins; Pfizer, Moderna og AstraZeneca. Þannig þarf því að treysta á að spár um afhend- ingu Janssen, Curevac og Sanofi standist. Hins vegar segir Svan- dís að fyrirvarar séu á því, til að mynda vegna þess að ekki sé komin afhendingaráætlun frá þeim fram- leiðendum eða vegna þess að bóluefni þeirra hafi ekki fengið markaðsleyfi í Evrópu. Eftirtektarvert er að Þórólf- ur Guðnason sóttvarnalæknir er mun varari í orðum um þetta. Minna má á að í munnlegri skýrslu heilbrigðismálaráðherra um bóluefn- in til Alþings undir lok janúar sagði Svandís að þorri þjóðarinnar yrði bólusettur fyrir mitt ár. 190.000 manns eru hins vegar rétt liðlega helmingur þjóðarinnar, en sé aðeins miðað við fólk 17 ára og eldra næðist að bólusetja um 2⁄3 þess hóps. Hvort það telst „þorri“ þjóðarinnar verður hver að meta fyrir sig. Þá á svo eftir að reyna hversu áreiðanlegar bólu- efnasendingar til landsins verða. Bóluefni reynast betur en vonast var til Samkvæmt rannsókn á nytsemi bóluefnis Pfizer í Ísrael hefur það ekki aðeins reynst koma í veg fyrir að langflestir hinna bólusettu smituðust heldur bendir flest til þess að það hægi ennfremur á smiti. Samkvæmt upphaflegum prófun- um reyndist bóluefnið koma í veg fyr- ir smit um 89,4% bólusettra, en eftir að reynsla hefur fengist af bóluefninu er sú prósentutala talsvert hærri, þar sem bóluefnið þarf tíma til þess að byggja upp mótstöðu líkamans. Það hefur raunar einnig komið á daginn í rannsókn, sem greint var frá í New England Journal of Medicine fyrir helgi, en hún leiddi í ljós að tveimur vikum eftir fyrri bólusetn- ingu var vörnin komin í rúm 92,6% sem er sáralitlu minna en eftir tvo skammta, þegar hún er talin verða 94,8%. Af þeim sökum telja menn nú að rétt sé að bólusetja sem flesta með tiltæku bóluefni, sem bæta megi á síðar. Af ísraelsku rannsókninni, sem upphaflega var lekið í drögum á Twitter og þýska blaðið Der Spiegel hefur einnig greint frá, virðist ljóst að bóluefnið komi einnig í veg fyrir að smitaðir án einkenna smiti fólk, sem lækna hafði grunað en engin vissa var fyrir áður. Í sama mund og þetta varð ljóst greindu ísraelsk stjórnvöld frá þeim niðurstöðum að bóluefnið kæmi í veg fyrir dauðsföll í 99% til- vika. Þá hafa prófanir á bóluefnunum á unglingum frá 12 ára aldri einnig gef- ið góða raun, svo gert er ráð fyrir að lagst verði í bólusetningu á þeim ald- urshópi í fyllingu tímans, þá fremur með það í huga að koma í veg fyrir smit og mynda hjarðónæmi. AFP Bóluefni Sjúkraliði handleikur bóluefni Pfizer/BioNTech, sem reynst hefur veita góða vörn við kórónuveirunni. Bólusetning þorra fólks fyrir júlí óviss  Veltur mjög á bóluefnum sem ekki hafa fengið markaðsleyfi „Ég spurði Þórólf [Guðnason sóttvarnalækni] á upplýsinga- fundi á fimmtudag og það er greinilegt að hann er ekki enn þá sannfærður. Hann segist bara geta unnið út frá þeim töl- um sem hann hafi, því bóluefni sem hann er viss um að komi, sem er auðvitað alveg rétt,“ sagði Björn Ingi Hrafnsson rit- stjóri Viljans í Silfrinu í Ríkis- útvarpinu í gær. „Ég meina að hann er sérfræðingur, hann er ekki að hugsa um alþingiskosn- ingarnar,“ bætti Björn Ingi við. Kosningaþefur? BÓLUEFNISDAGATAL Svandís Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.