Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16
VÖNDUÐ LJÓS
Í ÚRVALI
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir við breikkun Vestur-
landsvegar á Kjalarnesi, frá Varm-
hólum í Kollafirði að Vallá, eru í full-
um gangi. Verktaki er Ístak hf. í
Mosfellsbæ. Vegna framkvæmdanna
er umferðarhraði á svæðinu tak-
markaður við 70 km/klst og vegfar-
endur beðnir að sýna aðgát.
Framkvæmdir hófust seinnihluta
september í fyrra og aukinn kraftur
hefur verið settur í þær eftir áramót-
in, að sögn Þrastar Sívertsen staðar-
stjóra hjá Ístaki. Nú er unnið að því
að fergja, þ.e. aka grjóti í vegarstæði
nýja hringvegarins og hliðarvegi nær
Esjunni. Það er kallað ferging þegar
efni/farg er sett ofan á land, sem veld-
ur sigi í jarðveginum. Þegar sigi er
lokið verður fargið undirlag fyrir
sjálfan veginn.
Einmuna blíða hefur verið í vetur
en hún er ekki heppileg fyrir vinnu
eins og nú er unnin á Kjalarnesi, eins
og halda mætti. Erfitt getur verið að
aka stórum og þungum farartækjum
í bleytu og drullu. „Frostið er okkar
besti vinur við svona aðstæður,“ segir
Þröstur. Engu að síður hafa fram-
kvæmdir gengið vel og eru á áætlun.
Alls vinna 25 starfsmenn Ístaks við
verkið auk 10 undirverktaka á vöru-
bílum. 15 vörubílar sækja grjótið í
efnishauga í Hvalfirði og eru í stöð-
ugum ferðum. Verkfræðistofan Efla
hefur eftirlit með verkinu.
Uppbygging vegar hefst 2022
Stefnt er að því að fergingu á veg-
stæðinu ljúki í haust en þá tekur við
biðtími þar til sigi í jarðveginum er
lokið. Á næsta ári, 2022, verður svo
byrjað að byggja upp hina eiginlegu
vegi.
Um er að ræða breikkun á 4,13 km
löngum kafla hringvegar á Kjalar-
nesi. Breikka á núverandi tveggja ak-
reina veg í 2+1-veg með aðskildum
akbrautum. Í verkinu eru hringtorg,
tvenn undirgöng úr stálplötum, án-
ingarstaður, hliðarvegir og stígar.
Fergja á vegstæði og framtíðarstæði
stíga meðfram hliðarvegum. Verkinu
tilheyra ræsi, regnvatnslagnir, veg-
lýsing, lagnir fyrir upplýsingakerfi
Vegagerðarinnar og breytingar á
lögnum veitufyrirtækja. Verkinu skal
að fullu lokið fyrir júní 2023.
Ístak hf. átti lægsta tilboðið, rúma
2,3 milljarða króna, og var gengið frá
samningum við Vegagerðina í sept-
ember sl.
„Frostið okkar besti vinur“
Framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi í fullum gangi
Unnið að fergingu og einmuna blíða í vetur er ekki heppileg fyrir slík verk
Morgunblaðið/Eggert
Vesturlandsvegur Starfsmenn Ístaks að fergja vegarstæðið. Fimmtán vörubílar eru í stöðugum ferðum með grjót sem sótt er í efnishauga í Hvalfirði.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir,
fyrrverandi ráð-
herra, er stigin
aftur fram á
völlinn og mun
taka sæti á lista
Samfylking-
arinnar í
Suðvestur-
kjördæmi. Fram
kemur í viðtali
við vefritið Lifðu núna að hún
hyggist á ný leggja sitt af mörk-
um í stjórnmálunum og segja skil-
ið við Bandalag háskólamanna
(BHM), þar sem hún hefur gegnt
formennsku undanfarin sex ár.
Fram kemur að Þórunn telur
trúnaðarstörf innan verkalýðs-
hreyfingarinnar nýtast vel á þingi:
„Þetta síðasta ár hefur reynt mik-
ið á okkur öll. Svo sjáum við líka
að þótt faraldurinn hafi hitt alla
fyrir hafa efnahagslegu áhrifin
sem af honum hlutust hitt fólk
mjög misilla fyrir. Atvinnuleysið
er gífurlegt og mikið áhyggjuefni.
Það er stóra verkefnið í nánustu
framtíð og eins gott að vel takist
til við nýsköpun og atvinnu-
uppbyggingu.“
Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir boðar end-
urkomu í stjórnmál
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Heiða Guðný Ás-
geirsdóttir,
bóndi og sveit-
arstjórnarkona,
gefur kost á sér í
fyrsta sæti á lista
Vinstri-grænna í
Suðurkjördæmi
fyrir komandi al-
þingiskosningar.
Þetta tilkynnti
hún í gær.
Heiða hefur setið í sveitarstjórn
Skaftárhrepps í 10 ár og verið
varaþingmaður VG á yfirstandandi
kjörtímabili. Í fréttatilkynningu
segir hún sín helstu áherslumál í
stjórnmálum vera umhverfismál,
jafnrétti og landbúnað.
Auk Heiðu hafa Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé, Róbert Marshall og
Hólmfríður Árnadóttir gefið kost á
sér til þess að leiða listann.
Heiða gefur kost á
sér í fyrsta sætið
Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir
Jón Sigurðsson Nordal
jonn@mbl.is
Vonir standa til að ný stólalyfta á
skíðasvæði Hlíðarfjalls verði tekin í
notkun í næstu eða þar næstu viku,
að sögn Höllu Bjarkar Reynisdóttur,
formanns stjórnar Hlíðarfjalls.
„Ég geri ráð fyrir að lyftan verði
tilbúin í vikunni, en það er ekki kom-
in nein ákveðin dagsetning á afhend-
inguna,“ segir Halla Björk við Morg-
unblaðið. „En þar sem það er
vetrarfrí núna myndum við gjarnan
vilja opna lyftuna áður en því lýkur.“
Lyftan, sem er keypt notuð frá
Austurríki, kom til landsins fyrri
hluta árs 2018, og áætlað var að hún
yrði tilbúin til notkunar í desember
það ár. Það gekk ekki eftir af ýmsum
ástæðum, og hennar hefur því verið
beðið með eftirvæntingu síðan.
Taka við lyftunni fyrir verklok
Rekstraraðilar skíðasvæðisins í
Hlíðarfjalli munu taka við nýju lyft-
unni áður en verkinu verður form-
lega lokið.
„Við bókuðum það áður að skíða-
svæðið tæki við lyftunni strax eftir
verklok, en svo var samþykkt í síð-
ustu viku að gengið yrði til samninga
um afhendingu fyrr. Verkinu öllu
mun líklega ekki ljúka fyrr en í sum-
ar,“ segir Halla Björk, og vísar til
tafa sem eiga rætur að rekja til
veirufaraldursins.
Aðspurð segist hún vonast til að
hægt verði að fagna formlegri af-
hendingu lyftunnar með glæsibrag,
þrátt fyrir samkomutakmarkanir.
„Við viljum auðvitað blása í lúðra og
gera eitthvað skemmtilegt. Vonandi
verðum við heppin með veður svo
fólk geti safnast þarna saman og not-
ið þess þegar hún fer af stað í fyrsta
sinn.“
Vilja opna fyrir
lok vetrarfrísins
Ný stólalyfta kemst loksins í gagnið
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Stólalyfta Hér má sjá þá gömlu en
brátt verður ný lyfta tekin í gagnið.