Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 15

Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 Skokk Vel hefur viðrað til útihlaupa undanfarið og sólin truflar stundum. Eggert Í lok síðasta árs ákvað ríkisstjórnin að yfirgefa krónuna og færa sig yfir í evrur til þess að fjármagna halla ríkissjóðs. Þessi kúvending hefur hins vegar ekkert verið rædd á Alþingi. Þegar kórónuveiru- kreppan skall á lýsti ríkisstjórnin því yfir að hún ætlaði að byggja á stuðningi Seðlabankans og fjármagna halla ríkissjóðs á lágum vöxtum og án gengisáhættu í íslenskum krónum. Viðreisn studdi þá ábyrgu ákvörðun. Afleiðingar nýrrar lántökustefnu Þeir sem vilja halda í krónuna sem gjaldmiðil hafa helst bent á að við sérstakar aðstæður geti verið gott að grípa til peningaprentunar. Og vera þannig án gengisáhættu innan eigin gjaldmiðils. Það ætlaði ríkisstjórnin að gera, en áður en til þess kom ákvað hún að snúa við blaðinu og taka lán í evrum með hóf- legri ávöxtunarkröfu en augljósri gengisáhættu. Þrátt fyrir að sporin ættu að hræða. Engu að síður tekur ríkisstjórnin lán í erlendum gjald- miðlum meðan tekjur eru í íslensk- um krónum. Og vonar hið besta. Þetta er risa- ákvörðun sem ríkis- stjórnin hefur ekki gert Alþingi grein fyr- ir. Á dögunum freistaði ég þess að eiga orða- stað við forsætisráð- herra um ástæður þess að ríkisstjórnin ákvað að yfirgefa krónuna við fjármögnun á hallanum og fá fram mat á því hvaða afleiðingar það gæti haft. Fyrir heim- ili, fyrirtæki og velferðina. Þjóðleg og ópólitísk afstaða Forsætisráðherra hafði tvennt fram að færa: Annars vegar sagði hún að fyr- irspurn mín sýndi að ég væri í póli- tík. Þar hitti hún vissulega naglann á höfuðið. Þótt ég telji það alla jafna ekki undrunarefni að þingmenn séu í pólitík. En það má gagnálykta út frá þessari athugasemd. Þannig virðist forsætisráðherra, sem forðast umræðu um stefnu- breytingu í jafn stóru máli, ekki vera að gegna pólitísku hlutverki sínu. Þegar svo miklir hagsmunir eru í húfi fyrir almannahag lýsir ópólitísk afstaða ekki mikilli pólitískri ábyrgð. Hins vegar sagði forsætisráð- herra að ég væri að tala krónuna niður og gaf um leið í skyn að slíkt athæfi væri óþjóðlegt. Að tala krónuna niður Skoðum þessa staðhæfingu að- eins: 1. Þegar ríkisstjórn hverfur frá því að taka lán í krónum og ákveður að taka lán í evrum er hún sjálf að lýsa því yfir að það sé ekki hægt að nota gjaldmiðilinn okkar. Það van- traust er ekki ópólitískt en kann að vera raunsætt. Verðgildi krónunnar verður hins vegar ekki haldið uppi á sjálfbæran hátt með erlendum lán- um ríkissjóðs. 2. Stundum er sagt að áhrifamesti seðlabankastjóri í heimi geti talað dollarann upp eða niður. Flestir efast þó um að orð hans eða hennar dugi ein og sér. En geti formaður í stjórnarandstöðuflokki talað krón- una niður ber það vott um annað tveggja; einstaklega mikil pólitísk áhrif eða afar veikan gjaldmiðil. 3. Fyrir tveimur árum ákvað ríkisstjórnin að gjöld vegna fiskeldis í sjó skyldu vera ákveðinn hundraðs- hluti af kílóverði í evrum. Ríkis- stjórn, sem notar erlendan gjald- miðil í íslenskri löggjöf, er ekki að tala krónuna niður með lagaboði. Hún er einfaldlega raunsæ á veik- leika krónunnar og fjarri því að vera óþjóðleg. 4. Forsætisráðherra sat í ríkis- stjórn, sem samþykkti í júlí 2012 að Ísland stefndi að upptöku evru. Samþykktin um það samningsmark- mið var send öllum ríkisstjórnum aðildarríkja Evrópusambandsins. Ekki er vitað til þess að hún hafi formlega verið afturkölluð. En vissulega er þjóðlegt að þeir sletti skyri sem eiga það. Atvinnulífið kallar á ábyrgð Stefnubreyting ríkisstjórnarinnar er alvarlegra og stærra mál en svo að það sé ekki rætt málefnalega á Alþingi. Gengisáhættan er gríð- arleg. Bara á síðasta ári jukust skuldir ríkissjóðs um 45 milljarða vegna gengisbreytinga. Að svara með innantómum útúrsnúningum er ekki boðlegt. Það er alla jafna ólíkt forsætisráð- herra að ræða mál á Alþingi með þeim hætti. Þessi undantekning gæti bent til þess að stefnubreyt- ingin hafi ekki verið rædd í þaula eða hugsuð til enda. Samtök atvinnulífsins vara við óá- byrgri afstöðu til lánamála ríkisins. Lántökurnar hafa þó fyrst og fremst farið til að hjálpa skjólstæðingum þeirra. Þær voru óhjákvæmilegar. En það er rétt hjá Samtökum at- vinnulífsins að öllu máli skiptir hvernig á er haldið. Rússnesk rúlletta Skuldirnar geta ekki orðið sjálf- bærar nema vextirnir og gengis- áhættan verði lægri en nafnvöxtur þjóðarframleiðslunnar. Annars þarf niðurskurð eða skattahækkanir. Það þarf að segja hreint út. Hvarvetna er litið svo á að ríkis- stjórnir verði að fjármagna halla vegna kreppunnar í eigin gjaldmiðli. Gengisáhættan af svo stórtækum erlendum lánum er almennt talin of mikil til að vera ábyrg. Hún getur virkað eins og rússnesk rúlletta. Vel má vera að ríkisstjórnin telji sig yfir það hafna að svara stjórn- arandstöðunni á Alþingi. En ætlar hún að láta vera að skýra út fyrir Samtökum atvinnulífsins, sem nú kalla á ábyrgð í ríkisfjármálum, hvers vegna áhættusamari lántaka var valin en upphaflega var ráðgert? Hvað með verkalýðshreyfinguna? Mun hún kalla eftir útskýringu á hvers vegna stjórnvöld fara í þessa áhættutöku með velferðarkerfið að veði fyrir erlendum lánum? Eða verða það á endanum heimilin í land- inu sem borga brúsann, ef illa fer? Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur » Stefnubreyting rík- isstjórnarinnar er alvarlegra og stærra mál en svo að það sé ekki rætt málefnalega á Alþingi. Gengisáhættan er gríðarleg. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er formaður Viðreisnar. Þegar ríkisstjórnin yfirgaf krónuna Borgarlínudraum- urinn er of stór fyrir höfuðborgarsvæðið, að minnsta kosti enn. Draumurinn um þekkingarmiðju í Vatnsmýrinni er hins vegar of smár. Höf- uðborgarsvæðið er allt að þróast í átt að þekkingarmiðju þar sem sívaxandi áhersla er á menntun og nýsköpun. Þann- ig virðist framtíðin vera að krist- allast fyrir mönnum; að meðan ferðamannaiðnaður verður lyfti- stöng landsbyggðar verður ný- sköpun og hátækniiðnaður vaxt- arbroddurinn á höfuðborgar- svæðinu. Öll viljum við hlúa að nýsköpun. Talið er að um 80% allrar verð- mætasköpunar í heiminum muni eiga sér stað í borgum í framtíð- inni. Svo er ekki enn í þróunar- löndunum og ef til vill ekki hér heldur, með meginhluta grunn- atvinnuvega, sjávarútvegs, land- búnaðar og raforkuvinnslu úti á landsbyggðinni, en þetta stendur til breytinga. Okkur berast æ oft- ar fréttir af velgengni innlendra fyrirtækja á sviði hátækni- og þekkingariðnaðar og af áformum þeirra um fjárfestingar. Við þurf- um að hlúa að þeim þáttum sem þessi fyrirtæki byggja á, sam- skiptum og samgöngum sem halda tengslum milli fólks og fram- leiðslueininga. Samgöngu- og samskiptatækni hefur gjörbreyst á undanförnum áratugum og hraðinn aukist. Sér- staklega hafa samskipti aukist um netið, en eigi að síður hafa bein mannleg samskipti, þar sem fólk tekst í hendur og les líkamstján- ingu hvert annars, haldið gildi sínu. Á þeim vettvangi byggist upp það traust sem er svo nauð- synlegt í mannlegum samskiptum. Þótt yfirgangandi heimsfaraldur hafi sýnt hve öflugt netið er í að halda uppi samskiptum hefur mat manna á mikilvægi hinna beinu samskipta ekki minnkað. Samgöngur og ferðir fólks um vegina munu verða jafn ómissandi þáttur í framleiðsluferli verð- mæta framtíðar og þær hafa verið í for- tíðinni. Samgöngur og ferðir fólks um vegina eru hluti af fram- leiðsluferli lífsgæða og þjóðarauðs og út frá því verður að meta mikilvægi þeirra. Þess vegna er það ógnvekjandi þegar vísbendingar koma fram um að beinn og óbeinn kostnaður vegna tafa í samgöngum á höfuð- borgarsvæðinu kunni að vera orð- inn um 50 milljarðar króna á ári, svo sem ein loðnuvertíð, og verði ekkert að gert mun þessi kostn- aður vaxa hraðar en efnahagurinn og að lokum kæfa efnahagslegar framfarir á höfuðborgarsvæðinu og þar með á landsvísu. Þessi hlið mála hefur verið vanrækt. Ekki hefur þó skort ábendingar. Þórarinn Hjaltason umferðarverk- fræðingur hefur sett fram í blaða- greinum hugmyndir að helmingi ódýrari borgarlínu en nú er rætt um og mun sú gera nánast sama gagn. Hann hefur einnig sett fram hugmyndir um úrbætur á vega- kerfi höfuðborgarsvæðisins sem myndu liðka mjög fyrir umferð og borga sig upp á skömmum tíma. Þrátt fyrir þetta hefur hinn stóri borgarlínudraumur verið rekinn áfram á fullum hraða og her manns verið í vinnu við að skrifa skýrslur um málið, búa til glansmyndabæklinga og halda sýningar. Nú síðast, í febrúar 2020, er svo gefin út þykk skýrsla, um 600 blaðsíður, til að útmála glæsilegheitin. Enn er þó ekki upplýst hvort aðrir kostir í stöð- unni hafi verið metnir eða hvaða gagn borgarlínan gerir í slíkum samanburði. Það er einkennilegt, að á meðan lög kveða á um að mögulegir kostir til úrbóta á þjóð- vegum skuli bornir saman fyrir ákvörðun og kynningu, þá skuli menn ekki ástunda þau sjálfsögðu vinnubrögð við hönnun gatnakerfis höfuðborgarsvæðisins. Þegar þetta er skrifað er þjóðin og reyndar heimsbyggðin öll í dýpkandi kreppu vegna kórónu- faraldursins. Upp úr henni munum við að vanda verða að vinna okkur sjálf af eigin rammleik. Nú hefur verið kynnt ný skýrsla Samtaka iðnaðarins og félags ráðgjaf- arverkfræðinga um ástand inn- viða. Samkvæmt henni fær vega- kerfi landsins og sveitarfélaga þess falleinkunn. Uppsöfnuð við- haldsþörf vegakerfisins hefur auk þess vaxið síðustu fjögur ár. Sá áratugur sem nú er að hefjast verður að nýtast vel til úrbóta á þessu sviði. Á þessum sama áratug verðum við líka að byggja upp hátækniiðn- að og nýsköpun á höfuðborgar- svæðinu. Hinar kostnaðarsömu umferðartafir auðvelda ekki það verk, allra síst ef leggja skal mikið fjármagn í fyrirbæri eins og borg- arlínu sem skilar árangri bæði seint og illa. Vel valdar úrbætur á gatnakerfinu myndu hins vegar skila sér fljótt og vel og gera Stór- Reykjavík álitlegri í augum fjár- festa og fyrirtækja. Þeim er mik- ilvægi greiðra samgangna vel kunnt. Það er óskiljanlegt að menn skuli taka allan þann tíma sem notaður hefur verið til að byggja upp væntingar um borgarlínu en vanrækja aðrar umbætur á vega- kerfi höfuðborgarsvæðisins á með- an. Borgarlínudraumurinn hefur kostað nóg, nú þurfa aðrir draumar um farsæla uppbyggingu, menntun, nýsköpun og hátækni- iðnað sína athygli. Stórir draumar og smáir um Stór-Reykjavík Eftir Elías Elíasson Elías Elíasson »Enn er þó ekki upp- lýst hvort aðrir kost- ir í stöðunni hafi verið metnir eða hvaða gagn borgarlínan gerir í slík- um samanburði. Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.