Morgunblaðið - 22.02.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 22.02.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 FASTEIGNIR Fasteignablað Morgunblaðsins Efnistökin er t.d þessi: • Hvernig er fasteigna- markaðurinn að þróast? • Viðtöl við fólk sem elskar að flytja. • Hvernig gerir þú heimili tilbúið fyrir fasteignamyndatöku? • Viðtöl við fasteignasala. • Innlit á heillandi heimili. • Góðar hugmyndir fyrir lítil rými. Pöntun auglýsinga: Sigrún Sigurðardóttir 569 1378 sigruns@mbl.is Bylgja Sigþórsdóttir 569 1148 bylgja@mbl.is KEMUR ÚT 26. feb 70 ára Aðalsteinn er Hafnfirðingur en býr í Reykjavík. Hann er dýralæknir að mennt frá Den Kongelige Veterinær- og Landbo- højskole í Kaupmanna- höfn. Aðalsteinn var síðast dýralæknir hjá Matvælastofnun. Maki: Stefanía Skarphéðinsdóttir, f. 1954, bókari á fjármálaskrifstofu Reykja- víkurborgar. Börn: Brimar, f. 1978, og Rebekka Helga, f. 1982. Barnabarn er Bjarki Steinn Brim- arsson, f. 2020. Foreldrar: Sveinn Ólafur Sveinsson, f. 1924, d. 2000, húsasmiður, og Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir, f. 1926, hús- móðir. Hún er búsett í Hafnarfirði. Aðalsteinn Sveinsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Tengsl þín við peninga byggjast á innsæi. Hvert sem þú ferð verður tekið vel á móti þér og auðvitað verður þér boðið aftur í heimsókn. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er engin minnkun í því að leita ráða hjá öðrum. Einbeittu þér að styrk- leikum þínum, þú býrð yfir mörgum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er svo góður félagsskapur að þér að fólk er óvenju gjafmilt til að halda í þig. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Treystu innsæi þínu í samskiptum við aðra í dag. Vendu þig á að taka strax á málum og leysa þau. Vertu tillitssamur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Haltu ró þinni á hverju sem gengur og líttu bara á björtu hliðarnar. Vertu opinn fyrir nýjum hugmyndum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú gætir hafa orðið fyrir von- brigðum með nýja vinnu eða nýtt tækifæri sem þú varst að öðlast. Hugsaðu um hvað þú þarft að gera í þeim efnum og fram- kvæmdu það svo. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð tækifæri til þess að láta reyna á hyggjuvitið. Hafðu hugfast að allt á sér sinn stað og sína stund. Leyfðu óleystum vandamálum að tilheyra fortíðinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur lengi talað um þörf- ina á því að endurskoða vinnulag þitt. Gerðu það án þess að hugsa of mikið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Fjölskyldan er hornsteinninn hvort heldur er í gleði eða sorg. Þú ert eitt- hvað viðkvæmur og þarft umfram allt að halda sjálfsstjórn innan um aðra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki nóg að hafa svörin á reiðum höndum ef maður getur ekki unnið rétt úr þeim. Fólk leggur eyrun við þegar þú talar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sjálfsagi þinn og skipulagning vekja aðdáun annarra. Hvað sem stóð í vegi fyrir fullkomnum friði á heimilinu verður nú gert opinbert og rætt til hins ýtrasta, fljótt og vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir ekki að láta smá orðaskak við vini þína fara í taugarnar á þér. Hlýddu vel á sjónarmið annarra áður en þú tekur ákvörðun. stofnun um að byggja sjálf hjúkr- unarheimili fyrir sjúka aldraðra í Kópavogi. Þann 20. maí 1982 tók ég sem framkvæmdastjóri við lykli að heimilinu úr hendi stjórnar- formanns, Ásgeirs Jóhannessonar. Fékk ég eins árs launalaust leyfi frá bæjarfógetaembættinu til að taka fyrstu sporin með nýja heimilinu.“ Í 30 ár sat Hildur í stjórn Sunnuhlíðar sem ritari, en vel skrifaðar fundar- gerðir hennar lögðu grunninn að bók um Sunnuhlíð sem út kom í nóv- ember 2019. Auk þess að helga hjúkrunar- og langömmubörn og fá að njóta samverustunda með þeim er mikil Guðs gjöf og æðra öllu öðru. Þess hef ég svo sannarlega notið,“ en fallegar peysur sem hún hefur prjónað á af- komendur sína eru óteljandi. „Ég er alltaf með eitthvað á prjón- unum, en að öðru leyti ber hæst í minningunni undirbúning stofnunar Hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópa- vogi og fyrstu ár þess. 17. mars 1979 tóku níu klúbbar og félagasamtök í Kópavogi, þ.á m. Soroptimista- klúbbur Kópavogs, höndum saman og stofnuðu formlega sjálfseignar- H ildur Árdís Hálfdanar- dóttir fæddist 22. febrúar 1931 á Þórs- götu 17 í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk prófi frá Verzlunarskóla Ís- lands 1949, stundaði nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík 1939-50, var í Leiklistarskóla Ævars Kvaran 1949- 1950 og hefur sótt fjölda námskeiða, m.a. hjá Dale Carnegie, hjá Endur- menntunarstofnun Háskóla Íslands, stundað nám við Tölvuskóla Reykja- víkur, sótt fjölda tölvunámskeiða, ýmis stjórnunarnámskeið, sótti frönskunámskeið hjá Alliance Fran- caise og Málaskólanum Mími í nokk- ur ár og var í sumarskóla 1989 í Suð- ur-Frakklandi. Hildur var bókari hjá Raforku- málaskrifstofunni 1949, 1952-54, og 1957-59, Skipadeild SÍS 1950, skrif- stofumaður hjá Central Mortgage and Housing Corporation í Winni- peg í Kanada 1950-51 og skrif- stofustjóri hjá bæjarfógetanum/ sýslumanninum í Kópavogi 1962- 2001. Hildur er einn af stofnfélögum Soroptimistaklúbbs Kópavogs 4. júní 1975, þar sem hún hefur frá upphafi gegnt hinum ýmsu störfum í stjórn, s.s. ritari, fulltrúi, formaður og fjár- öflunarnefnd. Hjá Landssambandi Soroptimista var hún í laganefnd, verkefnastjóri og i útbreiðslunefnd, sendifulltrúi landssambandsins 1988-90 og forseti 1992-94, varafor- seti Evrópusambands Soroptimista 1995-97 og upplýsingafulltrúi lands- sambandsins 2001-2005. Hildur brennur fyrir hugsjón So- roptimista sem vinna að bættri stöðu kvenna, að mannréttindum öllum til handa sem og jafnrétti, framförum og friði með alþjóðlegri vináttu og skilningi að leiðarljósi. Hún er ennþá virk í félagsstarfi Soroptimista og tekur virkan þátt í því sem þar er að gerast hverju sinni. Áhugi hennar á samtökunum hefur smitað út frá sér svo að bæði tengdadóttir og dóttir hennar eru virkar í samtökunum. Margs að minnast „Á langri ævi er margs að minn- ast. Að eignast góð börn, barnabörn heimilinu krafta sína var Hildur frá árinu 1993 ritari í stjórn Þóru Ein- arsdóttur, sem stofnaði og rak skóla í Chennai (Madras) á Indlandi fyrir fyrrverandi holdsveikar „stétt- lausar“, fatlaðar og fátækar stúlkur og fékk Hildur Soroptimasystur sín- ar á Íslandi til að styrkja skólagöngu barna í skóla Þóru. Eftir það sat Hildur í stjórn „Vina Indlands“ frá 2005 til 2015, og hefur séð um að nokkur börn í héraðinu Tamil Nadu fái stuðning til skólagöngu. Hún sat einnig sem ritari í stjórn Samtaka eldri Sjálfstæðismanna 2003-2009, þar sem reynsla hennar af öldr- unarmálum féll í góðan farveg. Fyrir störf sín að mannúðarmálum var Hildur sæmd Hinni íslensku fálka- orðu 1. janúar 2002. Þar sem fróðleiksfýsnin eða for- vitnin, eins og hún segir, rekur hana áfram, þá lætur hún tæknina ekkert vefjast fyrir sér og leitar sér upplýs- inga á netinu, eða gúgglar það, eins og hún orðar það. Facebook er heim- sótt daglega, til að fylgjast með því sem er í gangi hjá vinum og vanda- mönnum og settar inn athugasemd- ir. Einnig er hún í góðu sambandi við Soroptimistasystur um allan heim. „Skemmtilegast er þó að heyra í fólki í síma og að fá í heimsókn, en þá er alltaf til heitt á könnunni og eitt- hvað nýbakað, allavega sandkaka eða vöfflur. Heilt ár af Covid-19 hef- ur komið í veg fyrir heimsóknir og hafa heimsóknir á Facebook verið nauðsynlegar og ómissandi gleði- gjafar í þeim heimsfaraldri.“ Þau hjónin hafa ferðast mikið inn- anlands. Þau voru í 30 ár með sum- arbústað í Hjallaskógi austur á Hér- aði og síðan árið 2000 með sumar- bústað á Brettingsstöðum í Laxár- dal. „Við ferðuðumst einnig til útlanda, mest til Bandaríkjanna að heimsækja nána fjölskyldumeðlimi. Flestar utanlandsferða minna hafa þó verið tengdar félagsskap Sor- optimista, þar sem ég hef gegnt ýms- um embættum í þeirra þágu og þurft að ferðast víða. Þegar nokkrar okkar í klúbbnum komust á eftirlaun tók- um við okkur saman og ferðuðumst vítt og breitt um heiminn í rúm 10 ár. Það hefur verið skemmtileg og fróð- Hildur Hálfdanardóttir, fv. skrifstofustjóri hjá Sýslumanninum í Kópavogi – 90 ára Í Bandaríkjunum Hildur, Karl, dóttir þeirra og fjölskylda hennar í heim- sókn hjá systur Karls og eiginmanni í Albuquerque í Nýju-Mexíkó 1987. Brennur fyrir mannúðarmálum Hjónin Hildur og Karl á brúðkaupsdegi sínum 1.11. 1952 og 68 árum síðar. 50 ára Bryndís er Garðbæingur. Hún er jógakennari að mennt og starfar mest við meðgöngujóga- kennslu ásamt því að starfa við bókhald hjá Íslandshótelum. Áhugamál Bryndísar hafa snúið að ýmiss konar foreldrastarfi. Maki: Arnar Laufdal Ólafsson, f. 1969, einn af stofnendum og eigendum hug- búnaðarfyrirtækisins Kaptio. Synir: Ólafur Arnar, f. 1996, Davíð, f. 1999, og Birkir, f. 2008. Foreldrar: Rósa Þórhallsdóttir, f. 1951, og Ólafur Torfason, f. 1951. Þau eru eig- endur og reka Íslandshótel. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Bryndís Ólafsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.