Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 32
FERM
IN
GAR
TILBO
Ð
ÍFULLUM
GANGI
R10.000 kr.AFSLÁTTUR AFHEILSURÚMUM
25%
AFSLÁTTUR AF
MJÚKVÖRU
VIÐ DÝNUKAUP
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Björgvin
Halldórsson, verður sjötugur 16. apríl og heldur af því
tilefni afmælistónleika á þeim degi kl. 20. Tónleikarnir
fara fram í Borgarleikhúsinu og verður streymt þaðan.
Á þeim mun Björgvin rifja upp ferilinn í tali, tónlist og
myndum, dyggilega studdur af hljómsveit, bakröddum
og gestum. Þar sem um streymistónleika er að ræða
getur fólk notið þeirra hvar sem er og þá einnig erlend-
is. Tilkynnt verður síðar hvaða tónlistarfólk kemur fram
með Björgvini og hvenær miðasala hefst.
Björgvin Halldórsson heldur upp
á sjötugsafmælið með tónleikum
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
KA og Selfoss unnu heimasigra þegar áhorfendum var
leyft að sækja leiki í Olísdeild karla í handknattleik á ný í
gær. KA vann topplið Hauka 30:28 og fór upp í 3. sæti
með 14 stig eftir ellefu leiki en Haukar eru með 17 stig á
toppnum. Árni Bragi Eyjólfsson sem sneri heim í KA fyrir
tímabilið kom KA-mönnum yfir erfiðasta hjallann í leikn-
um og skoraði alls 10 mörk. Selfoss lagði ÍBV að velli
27:25 eftir jafnan og skemmtilegan leik. Eyjamaðurinn
Nökkvi Dan Elliðason tryggði nánast sigurinn þegar hann
skoraði næstsíðasta mark Selfyssinga. »26
Heimasigrar hjá KA og Selfossi
þegar áhorfendur voru leyfðir á ný
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Konunum sem hingað koma verður
mætt af kærleika og á þeirra for-
sendum. Neyðin er oft mikil, en með
góðri aðstoð og stuðningi gerast oft
góðir hlutir. Mikilvægt er að hér
skapist öruggt umhverfi með upp-
byggilegri dægradvöl. Ekki má held-
ur vanmeta mikilvægi góðra mann-
legra tengsla, þegar kemur að því að
skapa nýja framtíð,“ segir Rósa
Björg Brynjarsdóttir. Hún er um-
sjónarkona Skjólsins, opins húss fyrir
konur sem eru heimilislausar eða í
öðrum vanda staddar.
Hádegisverður
og tómstundastarf
Skjólið er á neðri hæð safnaðar-
heimilis Grensáskirkju við Háaleitis-
braut í Reykjavík og verður opið fyrir
konurnar milli klukkan 11 og 15 virka
daga vikunnar. Starfsemin þar var
opnuð formlega í gær af forseta Ís-
lands, Guðna Th. Jóhannessyni, og
biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sig-
urðardóttur, en frumkvæðið að þess-
ari starfsemi er frá henni komið.
Í Skjólinu verður konunum boðið
upp á staðgóðan hádegisverð, auk
þess sem aðstaða er til hreinlætis,
hvíldar og tómstundastarfs ýmiss
konar. „Saumaskapur hvers konar
heillar, myndlist og skartgripagerð.
Við eigum líka eftir að fá hingað
saumavélar, en útsaumur höfðar til
dæmis til kvennanna. Þá eru hér í
húsi tölvur sem konurnar hafa að-
gang að, sem er mjög mikilvægt þar
sem nettenging er í raun samband við
umheiminn,“ segir Rósa Björg.
Ekki eru gerðar aðrar kröfur til
kvennanna sem koma í Skjólið en
þær að sýna almenna tillitssemi og
góðar siðvenjur. Undanfarið hafa
mætt um tíu konur, en reiknað er
með að þeim fjölgi þegar líður á og
orðið um starfsemina hefur borist út.
Eiga áfallasögu
„Konurnar sem hingað sækja
glíma flestar við heimilisleysi, gista í
neyðarnæturathvarfi, eru í ótryggum
aðstæðum eða eru nýkomnar í bú-
setuúrræði. Margar þessara kvenna
eiga áfallasögur og hafa komist í
vanda sem ekki er öllum sýnilegur.
Flest reynum við nefnilega að bera
höfuðið hátt og halda reisn hverjar
sem aðstæður eru. En þörfin fyrir
hjálp er til staðar og því mun hér
bjóðast aðstoð velferðarsviðs Reykja-
víkurborgar, félagsráðgjafa, Frú
Ragnheiðar – skaðaminnkunar
Rauða krossins og margra fleiri,“
segir Rósa Björg sem er ein fjögurra
kvenna sem starfa í Skjólinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skjólskonur Rósa Björg Brynjarsdóttir hér með Emmu Rós, til vinstri, og Dagnýju Ósk sem nýta sér aðstöðuna.
Kærleikurinn í Skjóli
Griðastaður í Grensáskirkju Heimilislausar konur sem
eru í neyð Mannlegu tengslin Aðstoð og velferð
Opnun Forseti Íslands og biskup.