Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 ✝ Hannes Hallfæddist í Reykjavík 14. sept- ember 1935. Hann lést á Landspít- alanum Fossvogi 16. febrúar 2021. Foreldrar hans voru Steinunn Sig- urðardóttir Hall, f.10.08. 1909, d. 17.04. 2000, kaup- maður og iðnrek- andi í Reykjavík, og Gunnar Hall Kristjánsson, f. 31.08. 1909, d. 12.04. 1970, kaupmaður í Reykja- vík. Hannes var elstur sjö systkina. Systkini hans eru: Herdís, f. 1939, Sigurður, f. 1945, Kristján, f. 1946, Ragnar Halldór, f. 1948, Steindór, f. 1950, og Gunnar Hjörtur, f. 1951. Fyrri eiginkona Hannesar var Hulda Ólafsdóttir, f. 1935, d. 2018. Þau slitu samvistir. Dætur þeirra eru: Ragnheiður, f. 1961, og Steinunn, f. 1964. Seinni eig- inkona Hannesar var María Björk Skagfjörð, f. 1944, d. 2011. Sonur Maríu og stjúpsonur ustu áratugina vann hann mest fyrir eitt af stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum landsins, Nesfisk í Garði. Hann hafði mikla ánægju af starfinu fyrir Nesfisk og bar mikinn hlýhug til fjöl- skyldunnar sem á og rekur það fyrirtæki. Hannes lék handknattleik með Ármanni í Reykjavík og var í liði félagsins í meistaraflokki. Áhugi hans á golfíþróttinni kviknaði þegar hann var við nám á Eng- landi og eftir það stundaði hann golf allt fram á síðasta sumar. Hann var félagi í bæði Golfklúbbi Reykjavíkur, allt frá því sá klúbbur var með golfvöll í Hvassaleitishverfi og Kringlu- mýri í Reykjavík, og í Golfklúbbi Ness á Seltjarnarnesi eftir að sá klúbbur var stofnaður sem nú heitir Nesklúbburinn. Hann sat í stjórn Glímufélagsins Ármanns 1956-1959, í aðalstjórn Golf- sambands Íslands 1965-1966 og aftur 1987-1988, í stjórn Golf- klúbbs Ness 1979-1981. Þá var hann formaður Lionsklúbbsins Þórs 1987-1988 og einnig sat hann í ráðgjafarnefnd Fiski- félags íslands 1982-86. Útför Hannesar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 26. febrúar 2021, kl. 13. Hannesar er Jón Ingi Jónsson, f. 1968, eiginkona hans er Jóhanna Sveinsdóttir, f. 1972, dætur þeirra: María Eir, f. 1998, og Anna Sigríður, f. 2000. Hannes fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk í Mið- bæjarskóla, Mela- skóla og lauk síðar prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1953. Eftir verzlunarprófið 1953-1954 stundaði hann nám í Pitmans Commercial School á Englandi. Árið 1975 lauk hann stúdents- prófi frá öldungadeild MH. Fyrst eftir námslokin 1954 starfaði hann hjá Búnaðarbanka Íslands, en frá 1955 til 1992 starfaði hann fyrst sem gjaldkeri og síðar framkvæmdastjóri hjá Samlagi skreiðarframleiðenda. Eftir það starfaði hann sjálfstætt óslitið til dánardags bæði við inn- og út- flutning og sem verktaki við færslu bókhalds fyrir ýmis fyrir- tæki í útgerð og fiskvinnslu. Síð- Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okk- ar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Kletturinn okkar er fallinn frá og eftir standa ótal góðar minningar um traustan og hlýj- Hannes Hall ✝ GuðmundurMarísson fædd- ist 7. ágúst 1945 í Reykjavík. Hann lést á Landspít- alanum Hringbraut 12. febrúar 2021. Foreldrar hans voru María Guð- mundsdóttir, f. 1920, d. 2012, og Marís Guðmunds- son, f. 1908, d. 1979. Systkini: Anna Margrét, f. 1939, Kristín, f. 1944, Guðrún, f. 1947, Ólöf Hulda, f. 1949, Kári, f. 1951, og Katrín, f. 1959. Guðmundur giftist Mínervu Sveinsdóttur, f. 1951, árið 1976. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru 1) Sveinn Ingi, f. 1971, maki Charlotte Simonsen, f. 1967. Syn- ir hans eru Sigurjón Ingi, f. 1993, og Stefán Ingi, f. 1999. 2) Kári Marís, f. 1976, maki Anna Karen Arnarsdóttir, f. 1976. Börn þeirra eru Ólafur Ingi, f. 1998, Katarína Eik, f. 2006, og Fanney Lára, f. 2011. 3) Anna María, f. 1982, maki Bjarni Aron Þórðarson, f. 1988. Börn þeirra eru Ragnar Kári, f. 2014, Fjölnir Karel, f. 2016, og Dagur Blær, f. 2018. Guðmundur ólst upp með for- eldrum sínum og systkinum lengst af í Árbænum. Hann starf- aði um langt skeið sem bifreiða- stjóri hjá GG, en var einnig með sjálfstæðan rekstur um tíma. Á seinni árum starfaði hann sem fyrirliði í Hólabrekkuskóla. Útför hans fer fram í Árbæj- arkirkju 26. febrúar 2021 klukk- an 13. Við systkinin vorum ekki al- veg tilbúin til þess að skrifa kveðjuorð til þín. Það var svo margt sem okkur langaði að gera með þér, sérstaklega yngstu afabörnin. Þau áttu eftir að taka fleiri rúnta, skoða skip- in, borða saman á Laugaási, laga bílinn, fá ís hjá afa og allt hitt. Eftir sitja ótalmargar minn- ingar, sem svo oft eru tengdar hinum ýmsu bíltúrum á hinum ýmsu bílum. Sem dæmi: Citro- en-bíllinn sem lagðist niður og fór að „sofa“, kranabílarnir og ekki síst Unimoginn. Það voru ófáar ferðirnar farnar með þeim bíl út um alla króka og kima Ís- lands. Við fórum upp á jökul þar sem við krakkarnir vorum ýmist á sleða eða skíðum með kaðal bundinn í Unimoginn, dregin út um allar trissur. Þó verða alltaf minnisstæðastar allar Þórs- merkurferðirnar, enda fórum við á hverju ári. Það var ekki leiðinlegt að sitja í gamla góða Unimognum og skríða hægt, en örugglega, yfir Steinholtsá, Lónið og sjálfa Krossá, horfandi á hvern bílinn á fætur öðrum festa sig. Þá var ekki að ör- vænta, pabbi var mættur i vöðl- urnar, krækti í bílana og dró þá upp. Hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa, enda þótti hon- um það ekkert sérstaklega leið- inlegt. Á kvöldin var svo kveikt upp í kolagrillinu, nóg var af harðfiski með sméri og sungið fram á nótt. Þegar pabbi keyrði Unimoginn var mjög mikilvægt að setja upp Rayban-gleraugun sem pabbi hélt sig við í um það bil 40 ár. Þau komu og fóru og komu svo aftur í tísku. Pabba var hins vegar alveg sama, þau voru bara hann. Tónlistin í Uni- mognum skipti líka miklu máli. Þegar keyrt var inn í Þórsmörk var ekkert annað í kasettutæk- inu en Dubliners eða Santana. Pabbi var mikill íþróttagarp- ur. Hann byrjaði ungur að æfa íþróttir og spriklaði í fótbolta al- veg fram á síðasta dag. Við krakkarnir fengum líka að fljóta með á ófáa fótbolta- og hand- boltaleikina. Þegar við krakk- arnir spiluðum leiki, var pabbi alltaf mættur á pallana. Hann fór líka á fætur klukkan sjö um helgar til að skutla okkur á handboltamót og pikkaði upp nokkra af hinum krökkunum í leiðinni, jafnvel í hinn enda bæj- arins. Þegar pabbi var í sjálf- stæðum rekstri með kranabílinn voru dagarnir oft langir. Þegar einkadóttirin átti að keppa í dansi, þá kláraði pabbi daginn snemma og dreif sig af stað til að ná keppninni. Hann var þó enn þá í drullugallanum, með tjöru upp fyrir haus. Það mik- ilvægasta var þó, að hann mætti! Það eru einnig ótalmargar minningar frá Hlaðbænum, þar sem við krakkarnir lékum okkur á meðan pabbi dútlaði sér í bíla- viðgerðum. Fjölskyldan fór líka oft að heimsækja systkini pabba, bæði í bænum og í sveit- inni. Pabbi var ekki sá sem best var að leita til vegna erfiðu mál- anna, að öðru leyti var hann allt- af tilbúinn að hjálpa og alltaf stutt í grínið. Hann hafði unun af því að stríða okkur krökk- unum með aulabröndurum. „Einu Svenni enn“, „mansteft- irjúnæted“, „hvað eigum við eft- ir að keyra lengi í viðbót? Alveg alla leiðina.“ Á seinni árum dundaði pabbi sér mikið við texta- og lagagerð og vann við prófyfirsetu í Há- skóla Íslands. Elsku pabbi, takk fyrir allar minningarnar. Anna María, Kári Marís og Sveinn Ingi. Í dag kveðjum við kæran bróður okkar hann Gumma. Minningar mínar um hann eru eiginlega eitt skemmtiatriði fyrstu átta árin en svo fór ég alltaf burt á sumrin og missti ég þá af þátttöku í fjörinu. Gummi bætti mér upp fjarveru mína með því að kenna mér nýjustu dægurlagatexta og auðvitað söng hann þá „Bjössi á mjólk- urbílnum“ og fleira þegar ég kom heim á haustin, því í minni sveit var bara hlustað á fréttir og veðurspár og ekki verið að eyða batteríum í óþarfa. Við hóf- um skólagöngu saman, hann fimm ára og ég sex ára, í tíma- kennslu hjá Jónasi í Laugarnes- skóla. Mér fannst ég alltaf bera einhverja ábyrgð á Gumma mín- um og leiddi hann við hönd mér í skólann. Skólabíll fór með börnin en ekki fannst neitt heppilegra farartæki en fjalla- bíll frá Guðmundi Jónassyni til að ferja börnin þar sem ætíð þurfti að ýta og toga þau upp í bílinn. Mitt hlutverk var að hneppa úlpu og reima skó eftir kennsluna auk þess að koma okkur heim með fjallabílnum. Heima var alltaf nóg að gera í alls konar föndri og fikti, allt eftir því hvar foreldrarnir voru staddir. Gummi starfaði á leik- sviði lífsins alla tíð og lagaði það svolítið að sínum áhuga á bílum. Fór hann þá að keyra drátt- arbíla hjá Gunnari G. en í þá tíð var næg vinna við að flytja efni í virkjanir á hálendinu. Gummi kom sér síðan upp sjálfstæðum atvinnurekstri með dráttarbíl og krana. Þá var farið að draga alls konar kofa og dót yfir ár og klungur í óbyggðum og fleira. Gummi ferðaðist líka mikið með fjölskyldu og vini í „Grænjaxl- inum“ í Þórsmörk og víðar þar sem aðalfjörið var að draga bíla upp úr Krossá og hjálpa þeim sem voru á nýrri bílum. Þá var einnig farið í ýmsar ferðir á Unimog sem var frá stríðsárun- um og Gummi hafði innréttað sem ferðabíl. Einnig starfaði hann í Hjálparsveit skáta í mörg ár. Gummi hafði mikinn áhuga á íþróttum, tók sjálfur þátt og æfði með heldri mönnum fót- bolta. Börnin sín studdi hann í handbolta og hvar sem áhugi þeirra lá. Börn hændust að hon- um og hann hafði yndi af sam- vistum við þau. Gummi starfaði til margra ára í Hólabrekku- skóla við umsjón og aðstoð. Músíkin var hans tómstunda- gaman. Var hann afkastasamur, samdi falleg lög og ljóð auk þess sem hann naut aðstoðar frá fé- lögum með undirleik við upp- tökur á verkum sínum sem hann var gjafmildur á. Þá má segja að á síðasta ári hafi heilsan farið að gefa sig. En þann 18. desember sl. kom Gummi í heimsókn til mín fær- andi hendi, með disk með lagi og texta um veiruna, sem hann gaf mér sem jólagjöf. Má segja að hann hafi kvatt, svo keyrði hann syngjandi glað- ur á sínum jeppa á 60 km/klst. til Reykjavíkur en ég sá hann ekki aftur fyrr en í lokin. Með söknuði þökkum við systkinin fyrir samveruna og vottum börnum hans, tengda- börnum og barnabörnum samúð okkar og segja má að farinn sé góður maður. Í guðs friði, Kristín (Kiddý) systir. Guðmundur Marísson, öræfa- meistarinn mikli, hefur kvatt okkur í bili. Hvar sem við vorum á ferð, hvert sem leið okkar lá, um fjöll og firnindi eða jökla, spor hans eru alls staðar. Guðmundur Marísson var enginn venjulegur maður, hann gat allt. Við köll- uðum hann alltaf „Gvend Græn- jaxl“ en það kom til vegna þess að lengi vel átti hann fjallatrukk sem bar nafnið Grænjaxlinn en hann (trukkurinn) var grænleit- ur á litinn og svo voru bæði hann og eigandinn miklir jaxlar. Við Suðurnesjamenn áttum afar oft samleið með Gvendi og fé- lögum hans í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og fyrstu kynni okk- ar voru í gegnum björgunarstarf en Gvendur var þá í forystu bíladeildar HSSR. Síðar þegar við nokkrir félagar í Bjsv. Stakk eignuðumst snjóbíl, fyrst einn en síðar tvo, lágu leiðir okkar enn frekar saman. Við fórum iðulega inn í Landmannalaugar um páska en þá var ekki nokkur maður á ferð um hálendi Íslands að vetri til og svo voru ferðirnar á Vatnajökul oftast á sama tíma og Jöklarannsóknarfélagið (JÖRFI) var í sínum vorferðum. Þar lentum við meðal annars í að bjarga fólki og bílum á veg- um félagsins upp úr jökullóni þar sem ís brast undar snjóbíl- um þeirra og allt fór á bólakaf. Gvendur og Gunni Matt voru aðalsnjóbílastjórar í þeirri ferð og unnu mikið afrek. Í öllu þessu ferðaskaki okkar brást það aldrei að þegar kom að kvöldvökunni var Gvendur í ess- inu sinu. Ég held því stöðugt fram að hann hafi kennt okkur hvernig á að stjórna slíkum samkomum. Þær eru ótæmandi minningarnar um þennan skemmtilega, úrræðagóða og framar öllu bráðsnjalla fjalla- félaga sem við áttum langa og afar gleðilega samleið með árum saman. Takk fyrir „Gvendur Grænjaxl“ og góða ferð í ókann- aðar lendur forfeðra okkar. Kveðja frá eigendafélagi Kraka og Naggs. Garðar Sigurðsson. Guðmundur Marísson  Fleiri minningargreinar um Guðmund Marísson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Margrét Sig-rún Mar- inósdóttir fæddist 9. janúar 1945. Hún lést á heimili sínu 12. febrúar 2021. Foreldrar Margrétar voru Kristín Jónsdóttir, f. 4.5. 1909, d. 21.2. 1998 og Marinó Hálfdán Norðquist Jónsson, f. 3.10. 1901, d. 11.2. 1987. Alsystkini Margrétar eru: Sigurjón, f. 25.5. 1943, Hrafn- hildur, f. 18.10. 1946, d. 6.5. 1986, Auður, f. 13.10. 1948. Hálfsystkini Margrétar eru: Erla Sumarlína Norðquist Mar- inósdóttir, f. 16.3. 1930, Kristín Ólöf Marinósdóttir, f. 7.5. 1934, d. 18.4. 2006, Sigríður Jóna Norðquist, f. 7.6. 1935, d. 20.6. 2020, Halldór Jóhann Guðmundsson, f. 30.12. 1938, d. 1.5. 2019, Óli Jón Norðquist Marinósson, f. 31.7. 1940. Margrét giftist Róberti Curt- is Yeoman 10.10. 1962, leiðir þeirra skildi 1992. Ferðafélagi Margrétar var Tryggvi Jón Hákonarson, f. 23.4. 1963. Börn Margrétar og Róberts eru: Nelson Allan Westin, f. 19.12. 1990. 3. Erik Róbert Yeoman, f. 19.1. 1967, maki Sigrún Bene- dikta Guðmundsdóttir, f. 3.1. 1967, börn þeirra eru: a) Ívar Erik Yeoman, f. 11.7. 1989, sam- býliskona Stella Carneiro, f. 26.3. 1994, b) Andri Rafn Yeom- an, f. 1.4. 1992, sambýliskona Sonja Ásgeirsdóttir, f. 19.10. 1992, c) Margrét Dís Yeoman, f. 14.8. 1997, sambýlismaður Sím- on Viðarsson, f. 20.4. 1996. 4. Elsa Hrafnhildur Yeoman, f. 21.8. 1972, sambýlismaður hennar er Hrannar Gíslason, f. 12.2. 1973. Börn hennar eru: a) Karl Kolbeinn Karlsson, f. 19.7. 1993, sambýliskona Margrét Weisshappel, f. 13.11. 1991, b) Nanna Karlsdóttir, f. 25.5. 2000. Margrét var fædd og uppalin í Vesturbænum og gekk í Gaggó Vest. Hún kynntist eiginmanni sínum, Róbert C. Yeoman, á unga aldri og flutti með honum vestur um haf þar sem hún ól þrjú börn þeirra. Þau hjónin fluttu síðar til Íslands og fjórða barnið bættist í hópinn. Margrét starfaði meðal annars sem þerna á Hótel Loftleiðum við umönnun á elliheimilinu Grund og við verslunarstörf í Virku. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 26. febrúar 2021 kl. 15.30. Streymt verður frá útför á: https://streyma.is Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat 1. John Vilhjálm- ur Yeoman, f. 15.4. 1963, sambýliskona Klara Sigurbjörns- dóttir, f. 27.10. 1963, börn hans eru: a) Hildur Björk Yeoman, f. 6.12. 1983, sam- býlismaður Daníel Karl Björnsson, f 21.6. 1974, börn þeirra Diðrik Högni Yeoman, f. 11.1. 2009 og Draumey Þula Yeoman, f. 27.9. 2019. b) Kjartan Örn Yeoman, f. 21.8. 1990, sambýliskona Hildi- gunnur Sól Eldjárn Kristjáns- dóttir, f. 3.12. 1993, sonur þeirra Elmar Eldjárn Yeoman, f. 2.1. 2020. Dóttir sambýliskonu Johns: Sigurbjörg Ósk Klöru- dóttir, f. 31.1. 1999. 2. Kristín Anna Yeoman, f. 8.11. 1964, maki Emil Björns- son, f. 7.7. 1960, börn þeirra eru: a) Tinna Björnsson, f. 26.5. 1981, maki Chester Dryden Hol- stein III, f. 31.10. 1975. Börn þeirra: Fjóla Mae Holstein, f. 11.9. 2009, og Chester Dryden Holsein IV, f. 5.7. 2011. b) Vic- tor Björnsson, f. 28.4. 1988, sambýliskona Laura Anne Irons, f. 16.11. 1989. c) Tanya Björnsson, f. 13.8. 1991, maki Elsku Margrét. Það eru liðin næstum 18 ár frá því ég og Sigurbjörg, þá bara fjögurra ára, komum inn í Yeoman-fjölskylduna. Eins og þér var líkt þá tókstu einstaklega vel á móti okkur og ekki leið á löngu að við vorum komin í glæsilegt matarboð til þín á Háteigsveg- inum. Við fengum að smakka hjá þér í fyrsta skiptið frægu ítölsku kjötbollurnar þínar sem er í raun Yeoman-fjölskyldu- rétturinn og þitt yndislega góða eplapie. Og þar sem fjöl- skyldan var með amerísku ívafi þá kom ekkert annað til greina en að hafa þakkargjörðarhátíð með heilum stórum kalkún og öllu því meðlæti sem tilheyrir í Ameríkunni og flett í stóru am- erísku kokkabókunum sem þú komst með frá Ameríku til að finna nýjar uppskriftir eða gamlar góðar frá ömmu Juliu. Svo þegar mér datt í hug að sauma einhverjar flíkur varst þú alltaf boðin og búin að leyfa mér að koma og nota saumavél- arnar hjá þér og hjálpa mér, enda ein besta saumakonan í bænum. Ég minnist allra ferða okkar saman til útlanda bæði til Spánar nokkrum sinnum þar sem þú naust þín í sólinni. Þótt þú vildir ekki fara í sundlaug- ina heldur sitja á bekk og horfa og fylgjast með mannlífinu. Svo auðvitað allra ferða okkar til Ameríku til að heimsækja Kristínu og fjölskyldu og halda þakkargjörðarhátíðina með þeim, og ferðina til Flórída þar sem við vorum jól og áramót fyrir bara nokkrum árum síðan. Sigurbjörg talar enn þá um það að amma Magga var sko til í allt þegar við fórum í Univer- sal-garðinn og þú varst alveg æst að fá að fara í stærsta rússibanann og við stóðum í röð í næstum tvo tíma til að komast Margrét Sigrún Marinósdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.