Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 26

Morgunblaðið - 26.02.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Lengjubikar karla A-deild, 4. riðill: Breiðablik – ÍBV....................................... 2:0  Breiðablik 9, Fylkir 6, Leiknir R. 3, Þróttur R. 3, Fjölnir 0, ÍBV 0. Evrópudeild karla 32ja liða úrslit, seinni leikir: Hoffenheim – Molde................................ 0:2  Björn Bergmann Sigurðarson lék fyrstu 63 mínúturnar með Molde.  Molde áfram, 5:3 samanlagt. Arsenal – Benfica .................................... 3:2  Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal.  Arsenal áfram, 4:3 samanlagt. PSV Eindhoven – Olympiacos ............... 2:1  Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos.  Olympiakos áfram, 5:4 samanlagt. Ajax – Lille................................................ 2:1  Ajax áfram, 4:2 samanlagt. Rangers – Antwerpen.............................. 5:2  Rangers áfram, 9:5 samanlagt. Napoli – Granada ..................................... 2:1  Granada áfram, 3:2 samanlagt. Shakhtar Donetsk – Maccabi Tel Aviv... 1:0  Shakhtar áfram, 3:0 samanlagt. Villarreal – Salzburg................................ 2:1  Villarreal áfram, 4:1 samanlagt. AC Milan – Rauða stjarnan..................... 1:1  AC Milan áfram, 3:3 samanlagt. Leverkusen – Young Boys ...................... 0:2  Young Boys áfram, 6:3 samanlagt. Club Brugge – Dynamo Kiev .................. 0:1  Dynamo Kiev áfram, 2:1 samanlagt. Dinamo Zagreb – Krasnodar .................. 1:0  Dinamo áfram, 4:2 samanlagt. Leicester – Slavia Prag............................ 0:2  Slavia áfram, 2:0 samanlagt. Manchester United – Real Sociedad ...... 0:0  Man. Utd áfram, 4:0 samanlagt. Roma – Braga ........................................... 3:1  Roma áfram, 5:1 samanlagt. Danmörk B-deild: Esbjerg – Silkeborg ................................ 1:2  Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn með Esbjerg og skoraði markið en Andri Rúnar Bjarnason kom ekki við sögu. Ólafur H. Kristjánsson þjálfar liðið.  Patrik Gunnarsson varði mark Silkeborg og Stefán Teitur Þórðarson lék einnig allan leikinn.  Efstu lið: Viborg 44, Esbjerg 42, Silke- borg 40, Fremad Amager 27, Fredericia 27.  Olísdeild karla KA – Haukar......................................... 30:28 Selfoss – ÍBV ........................................ 27:25 Staðan: Haukar 11 8 1 2 315:275 17 FH 11 7 2 2 327:294 16 KA 11 5 4 2 290:269 14 Selfoss 11 6 1 4 283:269 13 Valur 11 6 1 4 318:301 13 Afturelding 11 6 1 4 276:286 13 Stjarnan 11 5 2 4 300:293 12 ÍBV 11 5 1 5 320:309 11 Fram 11 4 2 5 273:280 10 Grótta 11 3 3 5 270:269 9 Þór Ak. 11 2 0 9 243:286 4 ÍR 11 0 0 11 256:340 0 Meistaradeild karla A-RIÐILL: Pick Szeged – Kielce........................... 26:30  Sigvaldi Björn Guðjónsson lék ekki með Kielce en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Flensburg – París SG.......................... 28:27  Alexander Petersson lék ekki með Flensburg vegna meiðsla.  Kielce 19, Flensburg 17, París SG 12, Meshkov Brest 11, Pick Szeged 10, Porto 8, Vardar Skopje 6, Elverum 5. B-RIÐILL: Motor Zaporozhye – Aalborg ............ 27:29  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg.  Barcelona 26, Vezsprém 19, Aalborg 14, Motor Zaporozhye 12, Kiel 12, Nantes 11, Celje Lasko 6, Zagreb 0. Þýskaland Magdeburg – Essen............................. 34:28  Ómar Ingi Magnússon skoraði 11 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 5 og gaf 2 stoðsendingar. Hannover-Burgdorf – Melsungen..... 31:23  Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð- mundsson er þjálfari liðsins.  Efstu lið: Flensburg 30, RN Löwen 25, Magdeburg 24, Kiel 23, Füchse Berlín 23, Göppingen 21, Bergischer 20, Wetzlar 20, Leipzig 19, Melsungen 17, Stuttgart 17. Frakkland Aix – Chartres...................................... 24:25  Kristján Örn Kristjánsson skoraði 3 mörk fyrir Aix.  Efstu lið: París SG 30, Montpellier 24, Aix 22, Limoges 22, Nantes 18, Nimes 17, St. Raphaël 15, Chambéry 12. Danmörk SönderjyskE – Skanderborg ............. 27:28  Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir SönderjyskE.   „Af frammistöðu leikmanna ber að nefna Nicholas Satchwell í marki KA. Hann varði vel í fyrri hálfleik og kom svo með vörslur í lokin þegar mest á reyndi. Jóhann Geir Sæv- arsson var ískaldur í vinstra horninu hjá KA og skilaði góðum mörkum úr vondum færum. Árni Bragi Eyjólfs- son var svo maðurinn sem fleytti KA yfir erfiðasta hjallann í seinni hálf- leiknum þegar Haukar virtust ætla að ná heimamönnum. Langbesti leik- maður Hauka var Þráinn Orri Jóns- son en KA-menn réðu ekkert við hann á línunni. Jakob Aronsson leysti Þráin af á tímabili og sá var að standa sig. Aðrir hafa séð betri daga og þá sérstaklega Atli Már Báruson. Hann var ekki vel stemmdur og hafði allt á hornum sér, svo eftir var tekið,“ skrifaði Einar ennfremur. Nokkur forföll voru hjá liðunum að þessu sinni. Ólafur Gústafsson var ekki með KA og hjá Haukum vantaði Geir Guðmundsson og Heimi Óla Heimisson. Þá fór Darri Aronsson meiddur af velli. Selfyssingar fundu taktinn Eftir þrjú töp í röð lönduðu Sel- fyssingar góðum sigri í gær þegar Eyjamenn komu upp á land. Selfoss vann 27:25 eftir jafnan og skemmti- legan leik. Lokamínúturnar voru spennandi. „ÍBV jafnaði 24:24 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir en Selfyss- ingar voru klókari á lokasekúndunum og tryggði fyrrverandi Eyjamað- urinn Nökkvi Dan Elliðason þeim sigurinn þegar 47 sekúndur voru eft- ir. ÍBV kastaði boltanum strax frá sér og Hannes Höskuldsson skoraði síðasta mark leiksins í kjölfarið. Atli Ævar Ingólfsson var frábær hjá Selfyssingum með 9/1 mark og Hergeir Grímsson skoraði 6/2. Vilius Rasimas stóð sig vel á markmanns- vaktinni og varði 16 skot. Hjá ÍBV var Hákon Daði Styrmisson at- kvæðamestur en hann raðaði inn vítaköstum og skoraði 10/7 mörk. Dagur Arnarsson kom næstur með 4. Björn Viðar Björnsson varði 5 skot í marki ÍBV,“ skrifaði Guðmundur Karl meðal annars í umfjöllun sinni á mbl.is. KA fór upp í 3. sæti með sigri á toppliðinu  Áhorfendur á pöllunum á ný Ljósmynd/Þórir Markahæstur Árni Bragi skorar eitt tíu marka sinna fyrir KA í gær. HANDBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsbyggðarliðin KA og Selfoss hafa verið þekkt fyrir að vera hörð í horn að taka á heimavelli í handbolt- anum í gegnum tíðina. Ef til vill var viðeigandi í gær að þegar áhorf- endum var leyft að sækja leiki í Olís- deild karla á ný þá unnu þessi lið öfl- uga andstæðinga á heimavelli. KA vann topplið Hauka 30:28 og fór upp í 3. sæti og Selfoss lagði ÍBV 27:25. „Ég held að það að fá áhorfendur í húsið hafi gert liðunum auðveldara að gíra sig upp og þess vegna var kannski meiri hiti en stundum í vet- ur,“ sagði Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA, í viðtali við mbl.is í gær. Frábær byrjun hans manna hafði mikið að segja í gær. „KA byrjaði leikinn mjög vel, eða Haukar bara illa. Haukunum gekk ekkert að finna markið og þeir töp- uðu mörgum boltum. KA nýtti sér það og áður en varði var staðan orðin 7:1 fyrir KA,“ skrifaði Einar Sig- tryggsson meðal annars í umjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Nikita Telesford, leikmaður Skalla- gríms í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik, var í gær úrskurð- uð í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Telesford gaf landsliðskonunni Hildi Björgu Kjartansdóttur olnbogaskot í leik Skallagríms og Vals. Hildur lék ekki með Val gegn Haukum í deild- inni á miðvikudagskvöld vegna höf- uðáverkanna sem hún varð fyrir. Ólafur J. Sigurðsson, þjálfari Vals, sagðist í samtali við Körf- una.is ekki vita hvenær Hildur gæti snúið aftur á völlinn. sport@mbl.is Leikbann vegna olnbogaskots Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikbann Nikita Telesford leikur ekki næstu tvo leiki Skallagríms. Svíar og Norðmenn voru ekki lengi að næla í gullverðlaun á fyrsta keppnisdegi heimsmeistaramótsins í norrænum greinum í Oberstdorf í Þýskalandi í gær. Keppt var í sprettgöngu og hafn- aði Gígja Björnsdóttir í 86. sæti en Joanna Sundling frá Svíþjóð sigr- aði. Íslensku keppendurnir í karla- flokki, Isak Stianson Pedersen og Dagur Benediktsson, höfnuðu í 76. og 86. sæti en Norðmenn unnu þre- falt í karlaflokki. Johannes Høsflot Klæbo varð heimsmeistari. Gull til Svía og Norðmanna AFP Sprettganga Jonna Sundling fagn- ar heimsmeistaratitlinum í gær. Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinn í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum, í gær og sigraði Eyjamenn 2:0 á Kópavogsvellinum. Eftir markalausan fyrri hálfleik komu mörkin með stuttu millibili í síðari hálfleik. Gísli Eyjólfsson skoraði það fyrra eftir laglega sókn og strax í kjölfarið fengu Blikar vítaspyrnu þegar brotið var á Vikt- ori Karli Einarssyni. Úr henni skor- aði Guðjón Pétur Lýðsson, 2:0. Breiðablik er því með níu stig eftir þrjá leiki í 4. riðli A-deildar og er með markatöluna 11:0 en ÍBV hef- ur tapað öllum sínum leikjum. Morgunblaðið/Eggert Kópavogur Viktor Karl Einarsson miðjumaður Breiðabliks með boltann í leiknum gegn ÍBV á Kópavogsvelli í gær. Hann krækti í vítaspyrnu. Breiðablik á sigurbraut Björn Bergmann Sigurðarson og samherjar í norska liðinu Molde náðu frábærum úrslitum í Evrópu- deildinni í knattspyrnu í gær og eru komnir áfram í 16-liða úrslit keppn- innar. Molde vann magnaðan 2:0 sigur á Hoffenheim í Þýskalandi og má kalla það óvæntustu úrslit kvöldsins í keppninni. Fyrri leik liðanna í Nor- egi lauk með 3:3 jafntefli og Molde vann einvígið þar með 5:3 sam- anlagt. Eirik Ulland Andersen var hetja liðsins og skoraði bæði mörkin, það síðara á fimmtu mínútu uppbótar- tíma eftir mikla pressu frá Hoffen- heim. Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde í gærkvöld og lék fyrstu 63. mínúturnar. Arsenal, Glasgow Rangers, Ajax, Villarreal, Shakhtar Donetsk, Gra- nada, Dinamo Kiev, Young Boys, Di- namo Zagreb, Slavia Prag, Man- chester United, AC Milan, PSV Eindhoven og Roma tryggðu sér sömuleiðis öll farseðilinn í 16 liða úr- slitin. Eitt sterkasta lið ensku úrvals- deildarinnar, Leicester City, mátti sætta sig við að falla úr keppni fyrir Slavia Prag. Tékkarnir unnu 2:0 úti- sigur í gær og 2:0 samtals. Evrópuævintýri hjá Birni Bergmanni AFP Sigur Björn fagnar markaskor- aranum Eirik Andersen í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.