Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2. M A R S 2 0 2 1 Stofnað 1913  51. tölublað  109. árgangur  ÍRIS BJÖRK SYNGUR Í STAÐ PRÓFESSORSINS STENDUR VIÐ ORÐ UM BÓLU- SETNINGU BREIÐ OG RÍK SAM- STAÐA UM BREYT- INGAR MIKILVÆG FORSÆTISRÁÐHERRA 9 EFSTA DEILD KARLA 27TÓNLEIKAR Í HAFNARBORG 26 Snorri Másson Oddur Þórðarson Jarðvísindamenn telja nú meiri líkur á eldgosi á Reykjanesskaga en þeir töldu fyrr í skjálfta- hrinunni sem hófst þar í síðustu viku. Ástæðan fyrir því eru gervihnattarmyndir sem vísinda- nefnd almannavarna bárust í gær, þar sem sjá mátti miklar færslur á yfirborði jarðar á jarð- skjálftasvæðinu. Að sögn Kristínar Jónsdóttur, hópstjóra náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, er einfaldasta og eðlilegasta leiðin til að skýra þessar færslur sú, að gera ráð fyrir að kvikuinnskot valdi þeim. Einfaldir jarðskjálft- ar geta valdið minni færslum en ólíklegt að þeir séu þess megnugir að valda færslum af þessari stærðargráðu. Ein sviðsmynda vísindanefnd- arinnar er því að gos hefjist á svæðinu á milli norðanverðs Fagradalsfjalls og Keilis. Slíkt gos væri flæðigos án mikilla sprenginga að mati sérfræðinga og hefði í för með sér hraun- flæði sem mun líklega ekki ógna byggð. „En það sem gæti orðið vesen ef það yrði þarna eldgos er gasmengun,“ sagði Kristín í samtali við Morgunblaðið. Páll Einarsson pró- fessor benti á að staðsetning hugsanlegs goss væri heppileg ef færi að gjósa á annað borð, enda ekki margt á svæðinu sem væri hægt að eyðileggja. Enn er erfitt að fullyrða um líkur á eldgosi, að sögn Kristínar. Svipaðar jarðskjálftahrinur hafa oftar en ekki gengið yfir án þess að til eld- virkni komi. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir að ein- hvern tíma komi að gosi á svæðinu, þó að það þurfi ekki að vera núna. En eldgos á Reykja- nesskaga þýða ekki nein endalok að hans sögn. „Menn munu halda áfram að búa á Reykjanes- skaganum,“ segir hann. Engin merki eru um að sögulega hafi stór sprengigos orðið á svæð- inu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni í gærkvöldi eru engin merki um að jarðskjálfta- hrinan, sem staðið hefur yfir frá 24. febrúar, sé í rénun. Yfir 2.200 jarðskjálftar stórir sem smá- ir urðu í gær. Vísindanefnd almannavarna setti fram fjórar sviðsmyndir í gær: Að næstu daga færi að draga úr jarðskjálftavirkni, að hrinan færist í aukana með stærri skjálftum, að jafn- vel yrði skjálfti af stærð 6,5 í Brennisteinsfjöll- um eða að kvikuinnskot héldi áfram og leiddi annaðhvort til eldgoss eða eða kvikan myndi einfaldlega storkna og ekki láta frekar til sín taka. Í gærmorgun fengust þær upplýsingar að fimmtán tilkynningar hefðu borist Náttúru- hamfaratryggingu Íslands um tjón af völdum skjálftanna. Það er allt talið minni háttar. LÍKUR AUKAST Á GOSI Morgunblaðið/Eggert Keilir Undanfarna daga hefur jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga fært sig nær Keili. Ef til eldgoss kemur er ekki óttast að hraunflæði hafi mikil áhrif á byggð á svæðinu í kring.  Eldgos fyrst talið ólíklegt en nú er annað hljóð komið í strokkinn  Einfaldasta skýringin á færslum á yfirborði jarðar er kvikuinnskot  Flæðihraun ekki megináhyggjuefnið vegna fámennis á svæðinu  Gasmengun yrði vandi MSkjálftahrina á Reykjanesskaga »4, 14  Eftir að slakað var á samkomu- takmörkunum í síðustu viku mega nú 200 koma saman við kirkjuathafnir. Hins vegar hefur sú breyting verið gerð að nú þarf að skrá þátttakendur á alla við- burði í kirkjum þar sem fleiri koma saman en 50. „Þetta er gert til að auðvelda smitrakningu ef slíkt kemur upp. Við höfum verið mjög skýr með það að við geym- um þessi gögn í tvær vikur og eyðum þeim svo,“ segir Pétur Georg Markan samskiptastjóri Biskupsstofu. »2 Skrá nöfn og kenni- tölur gesta í kirkjum Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar útlitið var hvað dekkst og óvissan hvað mest spáðu sérfræðing- ar allt að 18% samdrætti landsfram- leiðslu út af kórónukreppunni. Tölur Hagstofunnar benda hins vegar til að samdrátturinn hafi verið 6,6% í fyrra sem er minna en bankarnir og Seðla- bankinn áætluðu í spám sínum. Konráð S. Guðjónsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir þetta ánægjuefni. „Það má segja að besta sviðsmynd- in hafi ræst sem er afar ánægjulegt,“ segir Konráð. Kröftug innkoma heimilanna Engu að síður er þetta annar mesti samdráttur frá seinna stríði en árið 2009 mældist 7,7% samdráttur. Þá benda viðmælendur blaðsins innan ferðaþjónustunnar á að útflutn- ingur hafi dregist saman um 350 millj- arða milli ára 2019 og 2020, eða um tæpan milljarð á dag. Mótvægisað- gerðir hafi mildað höggið. Ingólfur Bender, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir fjárfest- ingu hafa dregist minna saman en í mörgum fyrri niðursveiflum. Það sé m.a. að þakka góðri hagstjórn. Áhrifin af kórónukreppunni séu að miklu leyti afmörkuð við ferðaþjónustuna, þótt þau finnist víðar, m.a. í iðnaði. »12 Kórónukreppan minni en spáð var  Spáð var allt að 18% samdrætti í fyrra  Niðurstaðan var 6,6% samdráttur 2020 Morgunblaðið/Baldur Jarðböðin við Mývatn Hrun í ferðaþjónustu hafði víðtæk áhrif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.