Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Um síðustu áramót var umsjón
leghálsskimana færð frá Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins til heilsugæsl-
unnar. Ljóst var í lok október að leit-
arstöðin myndi ekki ná að rannsaka
öll þau sýni sem fyrir lágu hjá henni
fyrir áramót og þrátt fyrir að hún
byðist til að framlengja samning sinn
við ríkið og ljúka við að rannsaka það
sem eftir var um áramótin var því
hafnað af heilbrigðisráðuneytinu.
Það voru því um 2.400 sýni eftir
óskoðuð um áramótin sem síðar voru
flutt úr landi og rannsökuð á danskri
rannsóknarstofu þrátt fyrir að fyrir
lægi að ekki væri hægt að rannsaka
sýnin þar að fullu. Aðeins yrðu gerð
HPV-próf á þessum sýnum en HPV
er veiran sem veldur frumubreyt-
ingum. Sá hluti kvenna sem greinist
með jákvætt skimpróf fyrir HPV
þarf að fara aftur í sýnatöku til þess
að hægt sé að vinna úr sýnunum
frumustrok til rannsóknar. Hluti af
þessum konum þarf svo að fara í leg-
hálsspeglun og sumar af þeim í keilu-
skurð. Bið þessara kvenna er því síð-
ur en svo á enda.
Nýtt tæki á veirufræðideild Land-
spítalans sem getur með PCR-tækni
greint nokkur þúsund veirusýni á
dag hefði verið hægt að nota til að
greina HPV-veiruna í sýnunum á ein-
um til tveimur dögum. Fyrst ein-
göngu átti að gera HPV-mælingu á
sýnunum hefði verið hægt að klára
það á fyrstu dögum janúarmánaðar á
veirufræðideild Landspítalans og
hefði það stytt bið allra þessara
kvenna til muna. Nú munu flestar
þær konur sem greindust HPV-
jákvæðar hafa fengið innköllun í nýja
sýnatöku, þremur mánuðum eftir að
þær fóru í fyrri sýnatökuna, en hins
vegar höfum við sjálfstætt starfandi
kvensjúkdómalæknar ekki fengið
neinar niðurstöður sendar sem til-
heyra okkar skjólstæðingum sem er
bagalegt þegar konurnar leita til
okkar.
Mikið flækjustig skapast við flutn-
ing sýnanna milli landa en við það
þarf að búa til danska kennitölu fyrir
hverja konu og færa svo aftur yfir á
íslenska kennitölu þegar svörin eru
komin, þetta skapar hættu á mistök-
um. Það má ekki gleyma því að við
búum á eldfjallaeyju í miðju Atlants-
hafi og þær aðstæður geta komið upp
að samgöngur falli niður um lengri
eða skemmri tíma, t.d. vegna farsótta
eða náttúruhamfara eins og eldgosa.
Einnig er verið að fórna mikilli þekk-
ingu og mannauði við það að flytja
rannsókn á sýnunum úr landi.
Mikilvægt er að umsjón með svör-
um og ákvörðun um næstu skref sé
samhæfð og samkvæmt þeim við-
miðum sem gilda í nýju kerfi. Meðan
umsjón leghálsskimana var hjá Leit-
arstöð Krabbameinsfélagsins var
þessu sinnt af starfsfólki hennar.
Leitarstöðin hélt einnig utan um nið-
urstöður allra sýna og sá um að kalla
konur inn til rannsóknar á réttum
tíma. Eftir að leghálsskimanir voru
fluttar til heilsugæslunnar eru
frumustrokin tekin á heilsugæslunni
og hjá kvensjúkdómalæknum. Leg-
hálsspeglanir eru flestar gerðar á
kvennadeild Landspítalans en ekkert
eitt kerfi sér um að halda utan um öll
svörin og eftirfylgni með konunum.
Er byrjað að kalla inn konur sem
þurfa eftirfylgni vegna frumubreyt-
inga í síðasta sýni? Við vitum ekki
svarið við þessu. Hver tryggir að
konur séu kallaðar inn í rannsóknir á
réttum tíma? Hver sér til þess að
konur fái viðeigandi meðferð eins og
leghálsspeglun eða keiluskurð? Við
kvensjúkdómalæknar höfum kallað
eftir svörum við þessu en fengið svör
sem eru þess eðlis að við efumst um
heilindi Samhæfingarstöðvar
krabbameinsskimana gagnvart kven-
sjúkdómalæknum sem starfa á sínum
læknastofum og hafa staðið fyrir 40%
af sýnatökum árlega. Í svari er bein-
línis hótað að samhæfingarstöðin
muni ekki samræma niðurstöður leg-
hálssýna við sína skrá og láta hverj-
um og einum lækni það eftir að túlka
niðurstöðurnar. Þetta viðhorf er
hrollvekjandi og beinlínis hættulegt.
Það er nauðsynlegt að hafa einn sam-
eiginlegan aðila sem heldur utan um
allar rannsóknir og að einhver einn
aðili sjái um að kalla konur inn á rétt-
um tíma og sjái til þess að þær fái við-
eigandi eftirfylgni. Með þeim hætti
eru minnstar líkur á mistökum og að
konur týnist í kerfinu.
Núverandi kerfi hefur verið í gildi í
tvo mánuði og enn er ekki ljóst
hvernig þessi grundvallaratriði í
kerfinu eiga að virka. Skimun fyrir
leghálskrabbameini er heilbrigð-
isþjónusta sem á að minnka líkur á
alvarlegu meini hjá konum. Gott
skipulag er grundvallaratriði fyrir
því að það takist og það vantar því
miður enn.
Fyrir hönd kvensjúkdómalækna í
Lækningu Lágmúla.
Leghálsskimanir
Eftir Arndísi Völu Arnfinns-
dóttur, Ólaf M. Haakansson og
Þórð Óskarsson
»Mikið flækjustig
skapast við flutning
sýnanna milli landa en
við það þarf að búa til
danska kennitölu fyrir
hverja konu og færa svo
aftur yfir á íslenska
kennitölu þegar svörin
eru komin, þetta skapar
hættu á mistökum.
Arndís Vala
Arnfinnsdóttir
Ólafur M.
Haakansson
Þórður
Óskarsson
Höfundar eru sjálfstætt starfandi
kvensjúkdómalæknar.
Á hverjum degi
deyja um tveir Íslend-
ingar á hverja 100 þús-
und. Í 3. fasa bóluefna-
prófs Pfizer dóu aðeins
0,07 sjálfboðaliðar á
dag á hverja 100 þús-
und. Sjálfboðaliðarnir
voru þannig 27-falt
hraustari en almenn-
ingur. En Covid-19 er
ekki lífshættulegt
hraustu fólki og enginn lést af þeim
4.500 Íslendingum undir sextugt sem
greinst hafa með Covid-19. Flest
dauðsföllin orsökuðust af smiti hjá
viðkvæmum á sjúkrahúsum eða elli-
heimilum. Bóluefnarannsóknir voru
ekki gerðar á þessum viðkvæmasta
hópi.
Í áhættustjórnunaráætlun 1) Lyfja-
stofnun Evrópu vegna bóluefnis Pfi-
zer kom fram að eftir á að rannsaka
áhrif bóluefnisins á óléttar konur og
konur með barn á brjósti, sjúklinga
með bælt ónæmiskerfi, sjálfsofnæmi,
bólgusjúkdóma og hruma einstak-
linga með langvarandi öndunarfæra-
sjúkdóma, taugasjúkdóma, sykur-
sýki eða hjartaóreglu. Eins útilokaði
Pfizer vísvitandi alla með hættuleg
ofnæmisviðbrögð frá 3. fasa próf-
ununum. Það er ákveðin lenska að
prófun lyfjarisa er hönnuð til að gefa
þeim hagfellda niðurstöðu 2). Hópn-
um sem þurfti mest vernd frá Covid
að halda var því sleppt.
Virkniprófanir sýndu 95% vernd
bóluefnisins: Átta smit hjá bólusett-
um og 162 smit hjá lyfleysuhópnum.
Ekki er þó allt sem sýnist. Í skýrslu
FDA um prófanir Pfizer 3) kom fram
að upp komu 3.410 grunuð Covid-19-
smit þar sem sjálfboðaliðar fengu
Covid-einkenni en smit var ekki stað-
fest í PCR-prófi. Þegar bara er skoð-
að tímabilið sjö dögum eftir bólusetn-
ingu, þegar bóluefnið er farið að
virka, kemur undarlegt leitni í ljós:
Tíðni smita í lyfleysuhópnum er 29%
meiri en hjá bólusettum (1.185 hjá
bólusettum og 1.529 í lyfleysu-
hópnum). Hvernig stendur á svo
stóru fráviki? Er bóluefnið allra
meina bót sem verndar gegn öðrum
kvillum en Covid-19?
Nei, líklega hafa sum af þessum
smitum verið raunveru-
leg Covid-19 smit, sem
PCR-prófið fann ekki.
PCR-prófin eru gölluð
prófunaraðferð, því sá
sem stýrir rannsókn-
inni stýrir líka næmn-
inni. Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin
viðurkenndi þetta með
að gefa út nýjar leið-
beiningar 4) þar sem
þess er krafist gefinn sé
upp mögnunarstuðull-
inn sem stýrir næmn-
inni. Ef hann er of lágur greinast að-
eins alvarlegustu eða nýlegustu
Covid-19-tilfellin. Virknipróf sem
tæki þessi mildari tilfelli með, sem
einnig eru smitandi, gæfi líklega
nokkuð lægri virkni (og minna sölu-
vænni vöru).
Virknimælingar Pfizer stóðu að-
eins yfir í einn til tvo mánuði, meðan
mótefni sjálfboðaliðanna var í hæstu
hæðum. Mótefnastyrkur í blóði fellur
hins vegar hratt ef mótefnin eru ekki
notuð og hraðast fellur styrkurinn
hjá elsta hópnum. Í mælingum Mod-
erna 5) kom t.d. í ljós að á þremur
mánuðum hafði styrkur afvirkjandi
(neutralizing) mótefnis hjá elsta
hópnum fallið um 50-75%. Hópurinn
sem mest þarf að vernda fær því
stystu verndina.
Stökkbreytingar vírussins auka
enn á óvissuna. Uppsöfnuð Covid-19-
tilfelli hafa tvöfaldast síðustu tvo til
þrjá mánuði og stökkbreytingarnar
líka. Nýju afbrigðin eru ónæmari fyr-
ir bóluefnum 6) og við útbreidda bólu-
setningu munu afbrigði sem bóluefn-
ið virkar síst á dreifa sér áfram.
Náttúran finnur sér alltaf leið.
Covid-19 hefur sýnt sig að vera
árstíðabundin. Bólusetning sem hefst
í mars mun bara vernda yfir sum-
armánuðina þegar þörfin er minnst.
Næsta haust verður verndin horfin
hjá þeim viðkvæmustu og ný vírus-
afbrigði komin sem bóluefnið virkar
ekki á. Skaðsemi bóluefnisins er enn
óþekkt og ekki þarf mikið til, til að
bóluefnalækningin verði verri en
sjúkdómurinn. Aukin dánartíðni þar
sem mest var bólusett.
Eftir að 4. fasa prófanir hófust
með tilraunabólusetningu á almenn-
ingi hefur óvænt undarleg fylgni
komið í ljós. Dauðsföllum úr Co-
vid-19 fjölgaði mest þar sem mest var
bólusett: Í Ísrael (1. sæti) varð 4-
földun og í Bretlandi varð 2,5-földun.
Hvað gerðist? Var bóluefnið að drepa
fólk í stað þess að bjarga lífum?
Ein skýring finnst í fyrsta fasa
prófunum Pfizer 7) sem sýndu 65%
fækkun lymphocyte hvítra blóðkorna
í sjálfboðaliðum rétt eftir bólusetn-
ingu. Eins er vitað að það tekur þá
viðkvæmustu fleiri vikur að byggja
upp mótefni gegn Covid-19 eftir
fyrstu sprautu. Skert ónæmiskerfi
gæti í millitíðinni reynst mörgum
skeinuhætt.
Bóluefnaleiðin ofmetin
Bóluefnaleiðin er fegruð af sölu-
aðilum bóluefnisins enda er góð sölu-
ræða eðli allra hagsmunadrifinna við-
skipta. Þessa söluræðu hafa
stjórnmálamenn gleypt gagn-
rýnilaust og því er ágæti bólefnisins
ofmetið og hættur vanmetnar. Fólk
þarf að gera sér grein fyrir þessu og
áhættunni sem það tekur, ella er úti-
lokað að taka upplýsta ákvörðun um
bólusetningu. Í seinni hluta þessarar
greinar verður fjallað um andlát
tengd bólusetningum á Íslandi, upp-
lýsingagjöf yfirvalda gagnrýnd og
bent á raunhæfa leið út úr kófinu.
Heimildir:
1) https://tinyurl.com/hycbzn39
2) https://tinyurl.com/d86pf2es
3) https://tinyurl.com/t47w9rrn
4) https://tinyurl.com/2y8ka9zz
5) https://tinyurl.com/4uj7f7ka
6) https://tinyurl.com/34ad5mbu
7) https://www.nature.com/articles/
s41586-020-2639-4/figures/5
Björgum sumrinu –
hættur bóluefnaleiðarinnar
Eftir Jóhannes
Loftsson
» Bóluefnin eru ekki
leiðin úr kófinu.
Þvert á móti gæti oftrú
á þau lengt kófið og
aukið skaðann.
Jóhannes Loftsson
Höfundur er verkfræðingur
covidspyrnan@gmail.com
viku fyrir mánuði síðar
1 .sæti (60,1%) Ísrael 386% 14 /dag 54 /dag
2. sæti (36%) UAE 267% 3 /dag 8 /dag
3. sæti (31,4%) Seychelles 400% 0,07 /dag 0,29 /dag
4. sæti (15,5%) Bretland 244% 450 /dag 1100 /dag
5. sæti (10,3%) Bahrain 200% 1 /dag 1 /dag
--- Allar þjóðir 127% 11000 /dag 14000 /dag
Hlutfall bólusetra
4. feb. 2020 Land Fjölgun andláta
Meðalföldi andláta
Fyrsta fasa prófanir Pfizer sýndu að bóluefnið hefur ónæmisbælandi áhrif
og fækkar hvítum blóðkornum tímabundið. Tekið úr heimild 7).
Það kemur alltaf dálítil lyfting í sam-
félagið þegar styttist í kosningar.
Stjórnvöld losa takið af buddunni og
fara að eyða út og suður og mörgum
skýtur upp á yfirborðið sem lítinn
prófíl höfðu sýnt um hríð.
Þá finnst mörgum að þeirra tími
sé kominn til að hafa áhrif í stjórn-
málum og það þurfi að bjarga heim-
inum, þótt fyrir sé setinn bekkurinn
á þingi af fólki sem ætlaði sér það
sama.
Manni finnst að flest af þingliðinu
sé nýkomið þangað og afrekin að
mestu óunnin. En það eru ekki allir
á því og vilja ólmir komast í sætin og
reka hina burt. Virðist einu gilda
fyrir hvaða flokk er farið fram; menn
skipta um flokk kinnroðalaust enda
ekki mun að sjá á flokkunum og að
minnsta kosti fjórir þeirra stefna í
sömu átt.
Ef ætti að spá um úrslit komandi
haustkosninga, þá væri það einhvern
veginn svona: Í fyrsta sinn í heims-
sögunni yrði meirihlutinn konur, og í
annan stað í fyrsta sinn sem Píratar
væru í ríkisstjórn í nokkru ríki.
Í þriðja lagi fyrsta fimm flokka
stjórn á Íslandi.
Sunnlendingur.
Velvakandi
Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Það verður spennandi að
sjá hvað kemur upp úr kjörkössum.
Þægileg
innivinna