Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Það er eiginlega stórmerkilegt
að tillögurnar um fjölgun leikja í
efstu deild karla í fótbolta sem
lagðar voru fyrir ársþing KSÍ á
laugardaginn skyldu hvorug fá
nægilega mikinn stuðning, eins
og fjallað er um hér til hliðar.
Niðurstöðurnar sýna að í
kringum 45 prósent þingfulltrúa
lögðust gegn hvorri tillögu fyrir
sig. Sem var nóg því tillögurnar
þurftu 67 prósent atkvæða til að
verða samþykktar.
Þar sem félög tveggja efstu
deilda karla réðu ásamt vensla-
félögum sínum úr neðri deildum
yfir meiru en 70 prósentum at-
kvæða á þinginu er greinilegt að
margir þeirra sem vildu að tillaga
Fram um fjórtán lið í stað tólf
yrði samþykkt kusu eftir að hún
hafði verið felld gegn tillögu
starfshóps KSÍ um fjölgun leikja.
Og þar með sitja allir uppi með
þá niðurstöðu að engu verði
breytt og væntanlega þurfi að
bíða ársins 2023 til að fá fram
fleiri leiki.
Þetta skilur eftir sig margar
spurningar. Er 67 prósent þrösk-
uldurinn til að breytingar verði
samþykktar of hár?
Er ársþingið sjálft rétti vett-
vangurinn til að taka ákvarðanir
um breytingar eins og þessar?
Ætti frekar að skipa sérstakan
starfshóp eða ráð sem tekur
endanlegar ákvarðanir um móta-
haldið?
Ættu leikmenn að hafa eitt-
hvað að segja? Samkvæmt könn-
un leikmannasamtakanna vilja
yfir 90 prósent leikmanna að
leikjum sé fjölgað.
Nú er bara að vona að næsta
starfshópi sem skipaður var á
þinginu farnist betur í að koma
fram með tillögu sem nýtur al-
menns stuðnings.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sig-
urmark Everton í gærkvöld þegar lið
hans lagði Southampton, 1:0, í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Markið
kom strax á 9. mínútu þegar Gylfi,
sem var fyrirliði Everton í leiknum,
sendi í gegnum vörnina á Richarlison
sem slapp einn gegn markverði og
skoraði.
Sigrún Björg Ólafsdóttir, landsliðs-
kona í körfuknattleik og fyrrverandi
leikmaður Hauka, er á leið til Fjölnis.
Hún kemur heim um leið og tímabilinu
í bandaríska háskólaboltanum lýkur í
þessum mánuði en þar hefur hún gert
það gott með liði Chattanooga Mocs.
Oscar Grau, forseti Barcelona og
Josep Maria Bartomeu, fyrrverandi
forseti félagsins, eru samkvæmt
spænskum fjölmiðlum á meðal þeirra
sem handteknir hafa verið í lögreglu-
aðgerðum sem eru liður í rannsókn á
m.a. meintri spillingu og pen-
ingaþvætti innan félagsins.
Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði
þrennu í gærkvöld þegar Valur vann
stórsigur á Keflavík, 8:0, í Lengjubikar
kvenna í fótbolta á Hlíðarenda. Hin
fimm mörkin skoruðu þær Dóra María
Lárusdóttir, Mary Alice Vignola, Ólöf
Sigríður Kristinsdóttir, Elín Metta
Jensen og Katla Tryggvadóttir en
Katla er aðeins 15 ára gömul.
Eitt
ogannað
mikilvægt fyrir þessi sterkustu lið
landsins heldur líka fyrir ásýnd ís-
lensks fótbolta. Það er mikilvægt að
við tökum tillit til þess innan hreyf-
ingarinnar og gerum þetta öll saman.
Við hjá KSÍ höfum líka verið að
skoða afreksstarfið í heild sinni, bæði
innan sambandsins og innan félag-
anna. Það er hinn þátturinn á þessu,
bæði þjálfunin og áherslurnar innan
félaganna, og hvað við getum gert
betur þar. Þetta snýst þess vegna
ekki bara um fjölgun leikja, þótt það
skipti auðvitað máli líka, heldur snýst
þetta fyrst og fremst um að standa
sig vel á alþjóðlegum vettvangi, hvort
sem það eru íslensk félagslið eða ís-
lensk landslið, og um það snýst okkar
vinna fyrst og fremst.“
Vildu auka gæði deildarinnar
Framarar, sem leika í 1. deild
karla, Lengjudeildinni, ákváðu að
fara alla leið með sína tillögu á árs-
þinginu.
„Við erum ekki í neinum sárum yf-
ir því að okkar tillaga hafi verið felld
um helgina,“ sagði Ásgrímur Helgi
Einarsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fram, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Við ræddum það innan félagsins
að draga okkar tillögu til baka en að
lokum ákváðum við að gera það ekki.
Okkar sýn á málið er sú að með því
að vera með fleiri lið, fleiri leikmenn í
deildinni og þar af leiðandi fleiri unga
leikmenn í deildinni séum við að
styrkja stoðir fótboltans á Íslandi.
Við myndum þannig fá fleiri leik-
menn og gæði deildarinnar yrðu
meiri. Eins myndi þetta auka mögu-
leikann á að selja leikmenn út og þar
af leiðandi hjálpa félögunum fjár-
hagslega.
Félögin, ÍTF og KSÍ, þurfa að setj-
ast niður og finna breiða sátt um þær
tillögur sem verða lagðar fram. Það
náðist ekki um þær tillögur sem lagð-
ar voru fram í þetta skiptið og
kannski voru það mistök í undirbún-
ingnum að tillögu starfshópsins að
leita ekki aðeins víðar varðandi und-
irbúninginn. Sem dæmi þá lagði ÍA
fram tillögu á síðasta ársþingi sem
var vísað inn í starfshópinn en Skaga-
menn voru aldrei kallaðir inn í starfs-
hópinn né áttu mann í honum.
Auðvitað spilar kórónuveirufarald-
urinn inn í þetta líka og ef til vill gafst
ekki nægilega góður tími til þess að
vinna þetta eins vel og kostur hefði
verið. Kannski getum við samþykkt
nýja tillögu á næsta ársþingi sem tek-
ur þá gildi tímabilið 2023 en við
Framarar erum allavega ennþá á því
að finna þurfi breiða samstöðu um
fyrirkomulag deildakeppninnar og
auðvitað næstu skref hennar,“ sagði
Ásgrímur.
Leikir sem skipta litlu
Stjórn ÍTF, íslensks toppfótbolta,
ákvað að styðja við tillögu stjórnar
KSÍ en Orri Vignir Hlöðversson tók
við formannsembætti samtakanna í
síðustu viku.
„Við hjá ÍTF ræddum þessar til-
lögur bæði á síðasta aðalfundi sem og
á stjórnarfundi samtakanna fyrir
ársþingið,“ sagði Orri við Morg-
unblaðið.
„Við í stjórninni bökkuðum upp til-
lögu stjórnar KSÍ og fannst hún
skynsamlegasta skrefið í þeirri stöðu
sem var uppi. Ég legg áherslu á að
þetta var niðurstaða stjórnar ÍTF
enda voru misjafnar skoðanir félag-
anna innan ÍTF um þetta mál sem
maður ber að sjálfsögðu virðingu fyr-
ir. Niðurstaðan á þinginu var eins og
hún var og því verður engin breyting
á núverandi fyrirkomulagi á næst-
unni í það minnsta. Það er stórt verk-
efni að koma fram með tillögur sem
flestir geta sætt sig við og það er
næst á dagskrá.
Það sem við horfðum mest til, inn-
an stjórnar ÍTF, voru nýir sjónvarps-
samningar sem eru í vinnslu. Þeir
taka gildi 2022 og við sáum fyrir okk-
ur að vera kannski með nýjar leiðir
þar sem myndu auka verðmæti
samninganna og koma með nýjan
vinkil á mótið, samhliða nýjum samn-
ingi. Mér sýnist hins vegar á öllu að
það gæti orðið snúið að vera með eitt-
hvað tilbúið sumarið 2022 en núna er
það bara okkar félaganna að setjast
niður og finna sameiginlega lausn
sem allir geta sætt sig við.
Þegar öllu er á botninn hvolft virð-
ast allir vera sammála um að það
þurfi að fjölga leikjum í efstu deild.
Það er súrt að á því verði engin
breyting. Í mínum huga snýst þetta
fyrst og fremst um að auka spennuna
í mótinu, fjölga áhorfendum og reyna
að minnka þessa leiki sem skipta litlu
sem engu máli þegar líða fer á
sumarið. Þess vegna var ég hrifinn af
hugmyndum starfshópsins um tólf
liða deild með úrslitakeppni þar sem
hvert lið fengi fimm aukaleiki hvert.
Það var ekki nægilega mikill meiri-
hluti á bak við það þótt ég hafi verið
hlynntur því og núna er bara að setj-
ast niður við teikniborðið og finna
lausn sem virkar fyrir alla,“ bætti
Orri við í samtali við Morgunblaðið.
Félögin í landinu of
hrædd við breytingar?
Tvær tillögur um Íslandsmót karla felldar á ársþingi KSÍ um síðustu helgi
Mikilvægt að finna breiða og ríka samstöðu um breytingar á efstu deild karla
Morgunblaðið/Eggert
Óbreytt Áfram verða leiknir 22 leikir á lið í úrvalsdeild karla en ekki fjölgað í 26 eða 27 eins og lagt var til.
Ársþing KSÍ sem haldið var síð-
asta laugardag samþykkti ekki
tillögur um fjögun leikja í efstu
deild karla sem hefðu tekið gildi
frá og með keppnistímabilinu
2022.
Fram lagði til að liðum yrði
fjölgað úr tólf í fjórtán og leikin
tvöföld umferð.
Starfshópur KSÍ og ÍTF lagði
til að áfram yrðu tólf lið í deildinni
en bætt yrði við einfaldri umferð,
fimm leikjum á lið, milli efstu sex
liðanna annars vegar og neðstu
sex liðanna hins vegar.
Tillaga KSÍ fékk 54% stuðning
á þinginu en tillaga Framara
58,2% stuðning og því voru þær
báðar felldar þar sem þurfti sam-
þykki 2⁄3 greiddra atkvæða, eða 67
prósenta, til þess að tillögurnar
myndu ganga í gegn.
Niðurstaðan þýðir að keppn-
isfyrirkomulag verður óbreytt
tímabilin 2021 og 2022 þar sem
breytingar sem mögulega yrðu
samþykktar á næsta ársþingi, í
febrúar 2022, tækju ekki gildi
fyrr en frá og með tímabilnu 2023.
Núverandi fyrirkomulag þar
sem tólf lið leika tvöfalda umferð
hefur verið við lýði frá 2008. Þá
var liðum fjölgað úr tíu í tólf á
þann hátt að 2007 féll aðeins eitt
lið úr deildinni en þrjú komu í
staðinn.
Óbreytt til minnst 2023
EFSTA DEILD
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslensk knattspyrnufélög þurfa að
setjast aftur við teikniborðið eftir að
tvær tillögur sem sneru að lengingu
keppnistímabilsins í efstu deild karla
voru felldar á 75. ársþingi Knatt-
spyrnusambands Íslands, KSÍ, sem
haldið var rafrænt um síðustu helgi.
Upphaflega bárust ársþinginu
fjórar tillögur en Fylkismenn, sem
vildu fækka liðum í efstu deild í tíu og
spila þrjár umferðir, drógu tillögu
sína til baka. Sömu sögu er að segja
af Skagamönnum sem lögðu fram til-
lögu um tólf liða efstu deild og að
spiluð yrði þreföld umferð.
Því var kosið um annars vegar til-
lögu frá stjórn KSÍ um áframhald-
andi tólf liða deild en eftir hinar hefð-
bundu 22 umferðir myndu efstu sex
liðin spila innbyrðis um Íslands-
meistaratitilinn í fimm umferðum, og
taka stigin með sér þangað, og
neðstu sex liðin á sama hátt um að
halda sér í deildinni. Þá lögðu Fram-
arar fram tillögu um fjórtán liða
efstu deild þar sem leikin yrði tvöföld
umferð.
„Miðað við hvernig niðurstaðan
var um helgina þá fengu auðvitað
báðar tillögurnar meirihluta atkvæða
en ekki aukinn meirihluta eins og
þarf til svo þær verði samþykktar,“
sagði Guðni Bergsson, formaður
KSÍ, í samtali við Morgunblaðið.
Almennur vilji til að fjölga
„Miðað við núverandi regluverk þá
þarf að vinna þetta áfram og reyna
að komast að niðurstöðu í málinu.
Það er almennur vilji til þess að
fjölga leikjum og færa fyrirkomulag-
ið til betri vegar. Það er okkar verk-
efni innan hreyfingarinnar núna og
að finna góða niðurstöðu í þessu máli.
Við þurfum að fara aðeins betur yfir
þetta og ræða á hlutlægan og fagleg-
an hátt. Það má alveg velta því fyrir
sér hvort það sé æskilegt fyrirkomu-
lag að þurfa samþykki frá 2⁄3 greiddra
atkvæða en þetta er regluverkið okk-
ar í dag og við þurfum 2⁄3 samþykki til
þess að breyta því.
Það er ljóst að þetta er mál sem
þarf meiri umræðu og það fór mikil
orka í að reyna að klára mótið í fyrra
og annað tengt kórónuveirufaraldr-
inum. Við fórum seint í þessa rýni-
vinnu og kannski þarf þetta meiri
tíma en við gáfum okkur því það er
vissulega stór framkvæmd að breyta
deildarfyrirkomulaginu. Það er talað
um að þegar við fórum úr tíu liðum í
tólf þá hafi það tekið tíu ár að koma
þeirri breytingu í gegn enda hafði
hún verið lengi í umræðunni áður en
af henni varð. Þessi mál vilja taka
langan tíma og kannski of langan.
Kannski erum við of hrædd við
breytingar en það er svo sannarlega
vilji til breytinga núna og ég finn það
innan hreyfingarinnar,“ bætti Guðni
við.
Vilja standa sig betur
Íslensk félagslið eru í fjórða
neðsta sæti styrkleikalista UEFA en
frá og með tímabilinu 2022 mun Ís-
land aðeins fá þrjú sæti í Evr-
ópukeppnum í stað fjögurra.
„Við þurfum að horfast í augu við
það að við höfum verið að færast neð-
ar á lista UEFA yfir árangur í Evr-
ópukeppnum. Það eru okkur vissu-
lega mikil vonbrigði og það er
mikilvægt að við séum samkeppn-
ishæf við önnur lönd og félagslið inn-
an Evrópu. Við viljum standa okkur
betur á þessum vettvangi en við höf-
um verið að gera og það er ekki bara