Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Aðalgata 20, Svfél. Skagafjörður, fnr. 213-1141 , þingl. eig. Benedikt
Lafleur Sigurðsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi
vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður, mánudaginn 8. mars nk. kl.
11:00.
Lindargata 15, Svfél. Skagafjörður, fnr. 213-1991 , þingl. eig. Wladys-
law Jan Bugajski, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., mánu-
daginn 8. mars nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
1. mars 2021
Styrkir
Rannsóknarsjóður
síldarútvegsins
Sjóðurinn styrkir að þessu sinni fræðslu- og
kynningarefni í sjávarútvegstengdu námi
við grunnskóla og á framhaldsskólastigi.
Gerð er krafa um að fræðslu- og kynningar-
efni styrkt af sjóðnum verði öllum aðgengi-
legt á netinu án gjalds.
Umsóknarfrestur er 5. apríl og nánari
upplýsingar er að finna á vef sjóðsins hjá
Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
(https://sfs.is/greinar/rannsoknarsjodur-sild-
arutvegsins/).
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Tálgað í tré kl. 13. Postu-
línsmálun kl..13. Prjónahittingur Önnu kl.13.30. Kaffi kl.14.30-15.20.
Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafn-
framt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að
koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Upplýsingar í síma
411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Boccia með Guðmundi kl. 10. Handavinnuhópur kl. 12-16.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Hreyfiþjálfun kl. 13.45. Kaffisala kl.
14.30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það
þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411.2600.
Áskirkja Við spilum í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl.
20 Allir velkomnir GRÍMUSKYLDA! Safnaðarfélag Áskirkju
Boðinn Ganga/stafganga kl. 10 frá anddyri Boðans. Fuglatálgun kl.
13-16. Munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sundlaugin er
opin frá kl. 13.30-16.
Bústaðakirkja Félagsstarf fyrir eldriborgara á miðvikudögum frá kl.
13-16, spilað, skrafað og unnin handavinna. Einnig er boðið upp á
göngutúr frá safnaðarsal kl. 13. Gengið um nágrenni kirkjunnar ca. 45
mín. Kl 14.15 er prestur með hugleiðingu og bæn og kaffið góða strax
á eftir. Þennan miðvikudaginn verður Hólmfríður djákni með smá
fróðleik í máli og myndum um t.d fuglana sem við höfum séð á
gönguferðum okkar.
Dómkirkjan Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu alla þriðjudaga í
Dómkirkjunni.
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund og fyrirbænastund kl. 12. Umsjá
Kristín Kristjánsdóttir, djákni og Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti.
Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð. Loksins getum við hafið
aftur félagstarfið okkar og bjóðum við alla velkomna. Við fylgju öllum
sóttvörnum og eigum góða samveru saman. Hlökkum til að sjá ykkur.
Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl 9. Qi Gong í Sjál. kl. 8.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í sal Kjallara
Vídalínskirkju. Boccia, Ásgarður kl. 12.55. Smíði, Smiðja, Kirkjuh. kl. 9
og 13. Vatnsleikfimi Sjál. kl. 15.15. Litlakot opið kl. 13-16.
Gjábakki Kl. 8.30-10.30 handavinnustofa opin, bókið daginn áður. Kl.
9.45 stólaleikfimi (fullbókað), kl. 11.30-12.30 matur. Kl. 13.30-15.30
opið fyrir spjall, bókið daginn áður. Kl. 14.30-16 kaffi og meðlæti
Gullsmára Myndlist kl. 9. Tréútskurður kl. 13. Munið sóttvarnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9.45. Helgistund kl. 14, prestur frá Grensáskirkju þjónar.
Korpúlfar Listmálun með Pétri kl. 9 í Borgum, boccia kl. 10 í Borgum.
Helgistund í Borgum kl. 10.30. Leikfimishópur Korpúlfa byrjar á ný í
Egilshöll kl. 11 í dag, Margrét Eiríksd. leiðbeinir, allir velkomnir.
Spjallhópur í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
14. Minnum 80 ára og eldri á bólusetninguna í dag. Virðum sóttvarnir
og grímuskyldu.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu á Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í
Hreyfilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kl. 14. Örnámskeið,
roð og leður á meðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30-18.30. Vatnsleik-
fimi í sundlauginni kl. 18.30.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
SÁ ALLRA FLOTTASTI
CHEVROLET Corvette Stingray
Árgerð 1972, ekinn 63 Þ.MÍLUR,
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.990.000.
Rnr.133882. Er á staðnum.
Glæsilegur bílll.
CHEVROLET Corvette Stingray.
Árgerð 1972, ekinn 63 Þ.MÍLUR,
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.990.000.
Rnr.133882. Er á staðnum.
SÁ VINSÆLASTI Í DAG.
VOLVO XC60 T8 Incription Plug In
Hybrid. Árgerð 2020, ekinn 10
Þ.KM, Bensín/Rafmagn. sjálfskiptur
8 gírar. Verð 8.990.000. Rnr.226042.
Enginn skipti. Er á staðnum.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
Smá- og raðauglýsingar
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Rebekka Gúst-avsdóttir fædd-
ist 25. apríl 1948 á
Akureyri. Hún
andaðist á heimili
sínu, Hrafnagils-
stræti 37 á Ak-
ureyri, 19. febrúar
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Gústav
Brynjólfur Júl-
íusson blikksmiður,
f. 1. júlí 1918, d. 9. ágúst 1988,
og Björg Oktavía Hafliðadóttir,
húsmóðir og saumakona, f. 1.
október 1918, d. 18. desember
1979.
Systir Rebekku er Bergþóra
Gústavsdóttir, f. 1. júlí 1942,
leikskólakennari að mennt.
Eiginmaður Rebekku er
Birgir Karlsson, skrif-
stofumaður og tón-
listarmaður, f. 15.
júní 1945 á Ak-
ureyri.
Börn þeirra eru;
Garðar Már, f.
1965, Auður, f.
1970, Björg Eir, f.
1982, og Teitur, f.
1985.
Rebekka útskrif-
aðist frá Borg-
arspítalanum í
Reykjavík sem sjúkraliði árið
1975 og starfaði alla sína ævi
við umönnun sjúkra.
Þau hjón bjuggu á Akureyri
og í Eyjafjarðarsveit allan sinn
búskap, að undanskildum fjór-
tán árum í Reykjavík.
Rebekka verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju 2. mars
2021 kl. 13.30.
Mamma mín.
Takk fyrir lífið móðir mín kær,
það varst þú sem að gafst mér
bæði dag og í gær.
Fyrir líf þitt er þakklæti orðið mér
nær.
Leggðu nú frá þér þitt fallega líf.
Og vittu, þín bíður enn betri tíð.
Hjá frelsara okkar englarnir syngja,
þeir bíða þín mamma og vilja
umkringja.
(Björg Eir Birgisdóttir)
Björg Eir
Birgisdóttir.
Þegar ég hugsa um það að
þú sért farin frá okkur elsku
Rebekka fyllast augu mín tár-
um. Ekki eingöngu af sorg
heldur fyllast þau tárum af
þakklæti fyrir þann tíma sem
ég fékk að eiga með þér og
söknuði til þeirra stunda sem
hefðu átt að verða. Ég mun
sakna þess að geta leitað til
þín með stór og smá vandamál,
að geta ekki beðið þig um að
prjóna eitt par af lopasokkum
eða vettlingum fyrir stelpurn-
ar okkar og fá fyrir vikið send-
an fullan poka af alls konar
fíneríi sem þú hristir fram úr
erminni yfir kvöldglápinu. Ég
er þakklát fyrir öll þau skipti
sem þú tókst svo vel á móti
mér eftir að við Teitur rugl-
uðum saman reytunum. Alltaf
tókstu mér opnum örmum með
brosi á vör. Ég verð að við-
urkenna að til að byrja með
var ég örlítið öfundsjúk út í
þig, þú áttir svo stóran hluta af
hjarta sonar þíns að mér
fannst gengið á minn hlut, en
svo sá ég þegar fram liðu
stundir að þú varst bara ein-
faldlega svo ráðagóð, útsjón-
arsöm, skynsöm, reynslumikil
og ástrík að ég þurfti einfald-
lega bara að kyngja stoltinu og
taka ráðleggingum þínum opn-
um örmum. Fyrir mér varstu
tengdamamma með góð ráð
undir rifi hverju. En þrátt fyr-
ir að vera svo lífsreynd og
ráðagóð varstu alltaf tilbúin til
að hlusta á mínar skoðanir,
sjónarmið og tókst mínum
uppskriftum og hugmyndum
opnum örmum. Ég er svo glöð
að Brynhildur Björk dóttir
okkar hafi fengið að kynnast
þér og fengið að verja tíma
með þér því alltaf hafðirðu hag
hennar og vellíðan sem leið-
arljós í samskiptum ykkar og
tókst henni alveg eins og hún
er. Við munum gera okkar
besta til að halda minningu
þinni, ráðum, mataruppskrift-
um og væntumþykju lifandi og
vonandi mun Vigdísi Lóu finn-
ast alveg eins og hún hafi
þekkt ömmu Rebekku jafn vel
og Brynhildur gerir þegar
fram líða stundir. Elsku Re-
bekka mín, vonandi líður þér
betur núna og ég hlakka til að
taka með þér kana, borða góm-
sætan mat eða syngja fyrir þig
Draumalandið þegar við hitt-
umst næst, í draumalandinu.
Þín tengdadóttir,
Helena Marta
Stefánsdóttir.
Í dag kveðjum við elskulega
tengdamóður mína, Rebekku
Gústavsdóttur, sem lést á heim-
ili sínu þann 19. febrúar. Þegar
ég kom inn í fjölskyldu Re-
bekku skynjaði ég fljótt hve
einstök tengdamóðir mín var.
Það var eitthvað óútskýranlega
notalegt við Rebekku og alltaf
gott að koma til hennar í spjall
eða til að leita ráða. Hún var
afar barngóð og var fjölskylda
okkar svo lánsöm að búa í ná-
grenni við hana og afa Bigga á
meðan börnin uxu úr grasi.
Þannig fengu þau að njóta
ómældrar góðvildar, umhyggju
og festu ömmu sinnar. Öll áttu
þau náið og gott samband við
hana en hvert á sinn hátt. Hún
lagði sig fram við að fylgjast
náið með öllum afkomendum
sínum og veitti þeim stuðning
og hvatningu.
Rebekka var alla tíð glæsileg
kona. Hún hafði gaman af
ferðalögum og kunni að meta
góða tónlist. Hún var með létta
lund, hafði sterkar skoðanir á
flestum málefnum og alltaf var
stutt í húmorinn hjá henni.
Í átta ár barðist Rebekka við
hinn illvæga sjúkdóm sem á
endanum hafði betur. Þá bar-
áttu háði hún af miklu æðru-
leysi og hugrekki. Bigga sínum
kynntist Rebekka ung að árum
og í gegnum erfið veikindin og
lífið sjálft stóð hann þétt við
hlið hennar. Samband þeirra
var alltaf fallegt og einkenndist
af mikilli virðingu og ást.
Viðhorf Rebekku til lífsins,
hlýja hennar og alúð, gerðu það
að verkum að hún er helsta fyr-
irmynd mín í lífinu. Ég minnist
hennar með miklu þakklæti
fyrir allt sem hún hefur gert
fyrir okkur fölskylduna á
Stokkahlöðum, ást hennar og
hlýhug.
Þín augu mild mér brosa
á myrkri stund
og minning þín rís hægt
úr tímans djúpi
sem hönd er strýkur mjúk
um föla kinn
þín minning björt.
(Ingibjörg Haraldsdóttir)
Minning elsku Rebekku lifir
í hjarta mínu,
Björk.
Elsku amma.
Það varst þú sem tókst á
móti mér í þennan heim og hef-
ur fylgt mér hvern einasta dag
síðan. Það var hvergi betra að
leita en til þín og alltaf var ég
jafn velkomin til ykkar afa.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
mig og ég er þér endalaust
þakklátur fyrir allt, alveg frá
grilluðum samlokum (ekki hafa
áhyggjur, grillið verður notað
áfram), jólabakstri, sundferðum
og upp í spjall um lífsins gildi
og ástina.
Allt sem þú hefur kennt mér
um kærleikann og góðmennsku
fylgir mér alla tíð.
Guð geymi þig og varðveiti
og gefi þér frið.
Þinn
Gabríel Logi (Babí).
Elsku amma.
Við systkinin vorum svo lán-
söm að alast upp með ykkur afa
í næsta húsi og vörðum við því
miklum tíma í Vallartröð og
seinna í Hrafnagilsstræti.
Tengingin við ykkur afa var
sterk, við vorum ávallt velkom-
in og litum alltaf á heimili ykk-
ar sem okkar annað heimili. Þú
sást til þess að við fengjum nóg
af djúsklökum, ístei, poppi í
stærsta potti sem við höfðum
séð og öðrum kræsingum sem
við sáum hvergi annars staðar.
Þú varst á sama tíma óhrædd
við að taka virkan þátt í upp-
eldinu og kenna okkur lífsins
lexíur með ástina og kærleik-
ann að leiðarljósi.
Við systkinin munum enn
svipinn og stoltið sem færðist
yfir andlit þitt þegar Rebekka
yngri fæddist og hún var nefnd
í fanginu á þér. Við áttum öll
svo sérstakt samband við þig –
hvert á ólíkum forsendum.
Elsku amma, okkur leið allt-
af svo vel með þér. Allar stund-
irnar sem þú last og söngst fyr-
ir okkur og spilaðir við okkur
hvert spilið á fætur öðru. Þú
elskaðir að vera umkringd af-
komendum þínum og erum við
einstaklega þakklát fyrir að
börnin okkar hafi fengið að
kynnast manneskjunni sem er
okkur öllum svo mikilvæg.
Amma, við elskum þig.
Þín barnabörn,
Frans, Silja og
Rebekka.
Hryggðar hrærist strengur
hröð er liðin vaka
ekki lifir lengur
ljós á þínum stjaka.
Skarð er fyrir skildi
skyggir veröldina
eftir harða hildi
horfin ertu vina.
Klukkur tímans tifa
telja ævistundir
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi
vel þig ætíð geymi
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
(Hákon Aðalsteinsson)
Með þessu fallega ljóði kveð
ég vinkonu mína. Vinátta og
kærleikur gefur lífinu gildi og
skilur eftir sig minningar sem
enginn getur tekið. Ég bið Guð
að styrkja alla ástvini þína.
Gunna og Kalli í Svíþjóð senda
kærleikskveðjur til ykkar allra.
Minning þín er ljós í lífi okk-
ar.
Ingibjörg
Kristinsdóttir (Inga).
Rebekka
Gústavsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ljóð til ömmu engils.
Amma mín er góð og blíð
það versta sem hún veit er vont
stríð
hún góðhjörtuð er
og hjarta mitt ber
á mjúkum örmum sér.
Hún er besta amma í heimi
alveg lengst úti í hjartageimi
elsku amma ég sakna þín
ég vildi að þú kæmir aftur til mín
hjartastjarnan þín uppi’ í geimn-
um skín.
Þín ömmustelpa,
Brynhildur Björk.