Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 9

Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is TIL LEIGU Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi Stærð: 479,5 m2 Gerð: Verslunar-/ og þjónustuhúsnæði Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is HAGSTÆTT LEIGUVERÐ Vandað og gott atvinnuhúsnæði sem skiptist upp í móttöku- /verslunarrými, opið skrifstofurými með 2 skrifstofum sem hægt er að loka með glerveggjum, kaffistofu með innréttingu, tvær snyrtingar og stórt lagerrými með innkeyrslu-/ vöruhurð. Á gólfi í verslunar- og skrifstofuhluta er parket en í lagerhluta er gólf málað. Kerfisloft og lýsing í loftum. VSK leggst við leigufjárhæðina. Húsnæðið er laust strax. Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari s. 897 7086 hmk@jofur.is Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á heimasíðu www.jofur.is Sími 534 1020 BergsveinnS: 863 5868 Helgi Már S: 897 7086 Magnús S: 861 0511 Ólafur S: 824 6703 Andrés Magnússon andres@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir í samtali við Dagmál, vefsjónvarp Morgunblaðsins, að hún útiloki engan flokk þegar stjórn- arsamstarf er annars vegar. Flokk- ur sinn muni meta málefnalegan ávinning og árangur. Spurð hvort hún sjái fyrir sér áframhald á núver- andi stjórnarsamstarfi, svarar hún: „Ég útiloka það alls ekki. Það getur vel gerst.“ Þetta segir Katrín í viðtalsþætti um þjóðmálin á Dagmálum, sem op- inn er áskrifendum Morgunblaðsins. Það og fjölmargt fleira bar á góma í 44 mínútna löngu viðtali, sem finna má á mbl.is/dagmál. Reynsla og áreynsla Hún segir að það sé lærdómur sem flokkurinn hafi dregið af reynslu undanfarinna ára. „Það er ekkert launungarmál að núverandi ríkisstjórn var mynduð eftir tvennar kosningar, flóknar stjórnarmyndunarviðræður margra flokka og útilokanir flokka á öðrum flokkum, sem stundum hefur verið afstaða okkar,“ segir Katrín. „Við tókum þá markvissu afstöðu fyrir síðustu kosningarnar að útiloka engan – meðal annars eftir reynsl- una 2016.“ Hún segir Vinstri græn hafa sín samfélagslegu gildi, skýr umhverf- issjónarmið og önnur stefnumál, sem flokkurinn hafi markað. „Við viljum vinna með þeim sem eru reiðubúnir að taka þátt í því með okkur að koma Íslandi áfram.“ Katrín kvartar ekki undan stjórn- arsamstarfinu, en svarar ekki heldur beint, þegar hún er spurð um hvort núverandi stjórnarsamstarf hafi reynst áreynslulausara en margir spáðu, heldur bendir á að það sé ákveðin listgrein að láta hlutina virð- ast áreynslulausa. Pópúlísk orðræða Forsætisráðherra segir pópúl- ískrar orðræðu hafa gætt í íslensk- um stjórnmálum og magnast á net- inu. „Því fylgir ákveðin skrímslavæðing andstæðinganna.“ Nálgunin sé þá ekki málefnaleg heldur út frá dylgjum um annarleg sjónarmið, sem hún segir m.a. hafa birst í umræðu um stjórnarskrár- breytingar. „Þar á ég að hafa gert eitthvert samkomulag við stór- útgerðina um auðlindaákvæðið, sem mér finnst gott og fangar vel það sem við höfum talað fyrir. […] Þetta finnst mér vera pópúlísk orðræða.“ Hún segir markmið síns flokks vera að ná málefnalegum árangri. „Af því við trúum því, að okkar gildi og okkar málefni séu góð fyrir Ís- land. Að við séum í því verkefni að færa Ísland áfram á réttri braut.“ Í pólitík náist það ekki líkt og í fót- bolta, þar sem annað liðið vinnur. „Þú þarft að leiða fram niðurstöðu í gegnum samtal og þá dugir pópúlísk orðræða ansi skammt. Þú þarft að leita leiða að einhverri lausn með samtali, stundum kallað málamiðlun. Hættan er sú að það verði of erfitt að gera málamiðlanir þegar búið er að gera andstæðinginn að skrímsli.“ Styður bóluefnastefnuna Katrín tekur undir að Evrópu- sambandinu hafi ekki gengið allt í haginn í bóluefnasamstarfinu, sem Ísland er aðili að. Það breyti samt ekki skoðun hennar. „Það hefði verið mjög óábyrgt að fara í þetta verkefni ein og sjálf. Ég tel að þar hafi skynsamlegasta leiðin verið farin. Við gátum ekki vitað frekar en aðrir hvaða bóluefni hefði mesta virkni. Menn urðu að veðja á marga og það gerum við fremur í samstarfi við aðra en ein og sjálf.“ Hún útilokar ekki að aðrir kostir en ESB hefðu reynst betur, en þessi hafi orðið fyrir valinu og hún ítrekar trú sína á að helmingur Íslendinga verði bólusettur fyrir júnílok. „Ég stend algerlega við þessa spá og mínar væntingar í þessu.“ Útilokar ekki samstarf við neinn  Katrín Jakobsdóttir í viðtali í Dagmálum, sjónvarpi Morgunblaðsins  Segir stjórnarmyndun ekki auðveld- ari með fjölgun flokka á þingi  Stendur við fyrri orð um að meirihluti Íslendinga verði bólusettur fyrir júnílok Morgunblaðið/Eggert Dagmál Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra, ræddu um farsótt, stjórnmál og framtíðina í myndveri Morgunblaðsins, en þættir Dagmála eru aðeins opnir áskrifendum Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.