Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 15

Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 15
Hvernig má það vera að börn sem stunda nám í Fossvogsskóla séu í höfð í skóla þar sem ítrekað finnst hættuleg mygla? Þrátt fyrir þær aðgerðir sem farið hefur verið í í skól- anum fannst hættuleg mygla þar í desember. Fyrst núna er verið að greina frá þessum nið- urstöðum sem er alger- lega óásættanlegt fyrir þau börn sem eru veik og verða samkvæmt lögum að sækja skólann. Er hér ver- ið að reyna að hylma yfir óþægilegt mál fyrir Reykjavíkurborg með því að draga það að birta niðurstöður? Það er einnig merkilegt að skýrslur sem Verkís hefur unnið vegna Foss- vogsskóla hafa ekki verið birtar heldur aðeins minnisblöð úr þeim. Tvær hættulegar tegundir Þegar skólanum var lokað var það meðal annars vegna tveggja hættu- legar tegunda af myglu, kúlustrýnebba og litafrugga sem get- ur valdið alvarlegum veikindum. Við síðustu sýnatöku kom í ljós að þessi mygla er enn til staðar í skólanum. Það voru tekin sýni á 14 stöðum og það fannst kúlustrýnebba á 11 stöðum og litafrugga á fimm stöðum ásamt fjölda annarra teg- unda af myglu. Í skól- anum fannst ekki mik- ið af myglu sem er að koma utan frá, heldur er þessi hættulega mygla að grassera innan skólans í því bygg- ingarefni sem þar hefur verið notað. Almennt séð telst vöxtur myglu- sveppa innanhúss vera heilsuspill- andi eins og staðfest er í leiðbein- andi reglum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) um inniloft í sambandi við raka og myglu. Það er því ljóst að Reykjavíkurborg fær falleinkunn fyrir það hvernig staðið hefur verið að málum við Fossvogsskóla. Það er Eftir Valgerði Sigurðardóttur Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is hræðilegt að áfram sé að finnast mygla í skólanum, að börn þurfi að vera í umhverfi sem er heilsuspill- andi og séu orðin alvarlega veik vegna myglu. Hvað á þetta að ganga lengi svona? Ég hef heyrt það áður að fara eigi að taka á þessu, ég ein- faldlega held að Reykjavíkurborg ráði því miður ekki við þetta verk- efni. Þegar búið er að eyða yfir 500 milljónum í viðgerðir á húsnæði þá býst maður við betri árangri. Það er algerlega óásættanlegt að hættu- legar myglutegundir séu að finnast í skólanum eftir allan þennan tíma og alla þessa peninga sem farið hafa í endurbætur. Hefur ekki verið farið eftir þeim ráðleggingum sem gefnar hafa verið af sérfræðingum við úr- bætur á skólanum? Það er spurning sem Reykjavíkurborg þarf að svara. Reykjavíkurborg ræður ekki við verkefnið Það ætti að vera orðið öllum ljóst að Reykjavíkurborg ræður ekki við þetta verkefni. Reykjavíkurborg hefur ekki náð að tryggja börnum og kennurum í Fossvogsskóla heilsu- samlegt vinnuumhverfi. Barátta for- eldra barna í Fossvogsskóla hefur tekið um þrjú ár og stendur enn. Það er dapurt að foreldrar þurfi að leiða þessa baráttu þegar skýrt er sagt á vefsíðu Reykjavíkurborgar hver ábyrgð skóla- og frístundaráð sé : „Gætir þess að leikskólar, grunn- skólar, frístunda- og félagsmið- stöðvar og frístundaheimili á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi.“ Kennarar og börn búa ekki að fullnægjandi húsnæði í Foss- vogsskóla, foreldrar hafa orðið að berjast fyrir því að húsnæðið sé rannsakað á viðunandi hátt, berjast fyrir sjálfsögðum réttindum barna sinna. Það er skýr skylda okkar sem sitjum í skóla- og frístundaráði að bregðast við þegar upp koma mál líkt og í Fossvogsskóla. Hvaða áhrif hefur mygla á börn til framtíðar Stóra spurningin núna er hins vegar hvaða áhrif mun þetta hafa til framtíðar á þau börn sem eru veik og munu önnur börn veikjast áður en búið er að taka á þessu. Þar sem skýrt er kveðið á um að það sé skylda borgarinnar að búa börnum og starfsfólki húsnæði sem er full- nægjandi hver er þá réttur þeirra barna og starfsmanna sem hafa ver- ið í húsnæði sem hefur ekki verið heilsusamlegt? Er Reykjavíkurborg skaðabótaskyld gagnvart þeim sem hafa veikst? Og hvernig á núna að taka á þeim mikla vanda sem er í Fossvogsskóla? »Reykjavíkurborg hefur ekki náð að tryggja börnum og kennurum í Fossvogs- skóla heilsusamlegt vinnuumhverfi. Barátta foreldra barna í Foss- vogsskóla hefur tekið um þrjú ár. Verið að reyna að breiða yfir staðreyndir í Fossvogsskóla? dómkirkju sem safnar núna fyrir nokkrum sögulegum verkefnum. Fyrir framlög margra sjóða, stofn- ana og fyrirtækja og fjölmargra ein- staklinga var hægt að endurnýja list- glerið og altarismyndina þótt það hafi kostað tugi milljóna. Nú þegar eru komin nokkur vegleg framlög í verndarsjóðinn fyrir klukkunum, lýs- ingunni og flutningi bókasafnsins en því er ekki lokið. Enn er pláss fyrir nokkra þúsundkalla. Minjastofnun og þjóðkirkjan leggja mikið til sjálfr- ar kirkjubyggingarinnar í ráðgjöf, framlög og fjárveitingar. Og það verður einnig höfðað til norrænna tengsla vegna sögunnar og kirkju- stílsins en einnig út frá því hvaðan framlög og efni komu fyrir rúmlega hálfri öld. Þessir þræðir skulu halda. Það þarf að efna í nokkrar „ljósa- krónur af eiri“ svo ljós og ljómi af helgum sögustað þjóðar og kristni skíni sem víðast. Ef það tekst verður það ljós af verki fólksins í landinu sem lýsi öllum til góðra verka í sam- félaginu og einkalífinu. Þannig get- um við vænst þess að sækja end- urnýjun í Skálholtsstað. Skálholt þakkar jafnan fyrir sig á sinn ein- staka og ríkulega hátt. Í áratugi hefur fólk sótt endurnýjun á sál og lífi í kyrrðardaga og aðra andlega iðkun í Skálholti. Laust fyrir miðja síðustu öld hófst mikið endurreisn- arstarf í Skálholti og hann varð aftur staður. Þá reis hér dómkirkja að nýju í sama stað og sú fyrsta sem allar aðr- ar kirkjur landsins og þjónar fengu vígslu sína af. Draumar Skálholts- félagsins rættust og þegar allt fer saman er draumur að vera í Skál- holti, njóta helgi staðarins í allri sinni biblíulegu dýpt með íhugun, eða koma í stutta áningu í kirkjuna og finna blessun aldanna umlykja sig. Það er í mínum huga fullkomnun á gullna hringnum í náttúrufegurð, sögu Íslands og helgi þjóðanna. Um- gjörðin skiptir miklu máli og nú er sannarlega runninn upp sá tími að Skálholtsdómkirkja hljóti verðskuld- aðar viðgerðir og alúð. Það verður hluti af krafti endurnýjunar sem ver- ið hefur í undirbúningi en fer óðum að koma í ljós. Markmiðið er að taka vel á móti öllum sem eiga í Skálholti. Allt þarf að haldast í hendur en þó fyrst og fremst í mynd stað- arins, umgjörðinni sem helgi og sögu er búin, og innihaldinu sem sést í iðkun, fræðslu, rann- sóknum, málþingum og upplifun þeirra sem þjóna eða sækja þjón- ustu í Skálholti. Við keppum saman að þessu marki. Þegar biskupsþjónustan flutti aftur heim í Skálholt upp úr 1990 voru liðin um 190 ár frá flutningi biskupsstólsins til Reykjavíkur. Fyrirbærið „biskup í Skálholti“ er núna eitt lítið lifandi tákn um virðinguna fyrir þjónustu sem þau hafa öll veitt og kostað sem þjónað hafa og starfað í þessari mið- lægu kirkju um aldir. En þá getum við heldur ekki gleymt þeim sem lyft hafa helgi staðarins allt frá fyrstu öldum Íslandssögunnar en bjuggu samt ekki í Skálholti. Taugarnar til staðarins eru víða og þær liggja ekki síður í Skálholt en út frá þessu hjarta trúarlífs. Eitt lítið tákn um svona tengsl og endurnýjun er kerta- ljósakróna í norðurstúku kirkjunnar, Maríustúkunni, sem er úr Brynj- ólfskirkjunni á þúsundkallinum okk- ar. Fólk efndi saman í krónuna með því að Brynjólfur biskup fór utan með allmikið af diskum, bikurum, stjökum og fötum úr kopar, eir og tini sem hann lét bræða upp í þessa krónu. Þegar kveikt er á ljósum hennar koma þessi djúpu tengsl í ljós milli kirkju og fjölmargra heimila í umdæminu. Þetta voru ótal framlög sem enn er minnst með tendrun ljóssins. Í nokkur ár hefur verið í undirbún- ingi að endurnýja allt byrði kirkj- unnar. Hér leynist ótrúlega seigur þróttur til góðra verka. Vísvitandi nefni ég engin nöfn en það er til að leggja áherslu á að það þarf mörg nöfn og margar óeigingjarnar hend- ur í mikið verk. Það gerist líka á Eftir Kristján Björnsson »Umgjörðin skiptir miklu máli og núer sannarlega runninn upp sá tími að Skálholtsdómkirkja hljóti verðskuldaðar viðgerðir og alúð. Kristján Björnsson Höfundur er vígslubiskup í Skálholti. Endurnýjun í Skálholtsstað löngum tíma þannig að sumir hafa þegar lagt frá sér verkfærin sem þeir beittu og aðrir eiga eftir að taka þau fram, áhöld, þekkingu, þrek og fjár- muni. Ótal margir hafa lagt lóð á vog- arskálarnir í lagfæringum á listgleri Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur. Næstu verk- efni eru endurnýjun á kirkjuklukk- unum og hringibúnaði, færsla og ný umgjörð fyrir bókasafn Skálholts, lýsingin inni í kirkjunni og nýtt þak af steinskífum frá Noregi. Mest af þessu kom fyrir hálfri öld eða um það bil og voru ýmist beinar gjafir eða keypt með fjársöfnunum frá fjölda fólks innan lands og utan. Við hug- myndina um bókasafnið bætist sýn- ing Prentsöguseturs Íslands. Þar mun mesta fágæti prentaðra rita úr bókasafni Skálholts fá að njóta sín í sögulegri sýningu í nýrri gestastofu. Það er táknrænt fyrir þróunina í samfélaginu að fullbókað hefur verið á kyrrðardaga í Skálholti í allan vet- ur og haldin hafa verið merkisþing, fundir og heimsráðstefnur und- anfarin misseri. Sú stærsta var lík- lega „Faith for Nature“ sem stýrt var í Skálholti en haldið í öllum heimsálfum á ljósleiðaranum í októ- ber. Á sama hátt þarf að fullbóka framlög til verndarsjóðs Skálholts- 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 Skýjafar Dökk ský voru yfir norðanverðu Snæfellsnesi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar hjá nýverið. Sérstaklega fallegt skýjafar hefur verið á svæðinu undanfarið. Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.