Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 9. M A R S 2 0 2 1
Stofnað 1913 57. tölublað 109. árgangur
HAUKAR AFTUR
KOMNIR Á
BEINU BRAUTINA
FJÖRU-
VERÐLAUNIN
AFHENT
ALLT FÓR AÐ
VERSNA EFTIR
GIFTINGUNA
ERU MIKLAR KVENNASÖGUBÆKUR 28 UMDEILT VIÐTAL 14KÖRFUBOLTI 26
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
Afhendum
samdægur
s
á höfuðbo
rgarsvæðin
u
mán–lau e
f pantað
er fyrir kl. 1
3:00.
lyfjaver.is
Suðurlandsbraut 22
*Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar
eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur.
Netapótek Lyfjavers
Frí heimsending
um land allt!*
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Ég held ekki að það hafi verið hægt
að spila mikið betur úr þessari
loðnuvertíð heldur en raun ber
vitni,“ segir Gunnþór Ingvason,
framkvæmdastjóri Síldarvinnslunn-
ar í Neskaupstað. Sumar útgerðir
eru búnar að veiða loðnukvóta sinn,
en aðrar ljúka væntanlega veiðum í
vikunni hamli veður ekki. Gunnþór
áætlar að útflutningsverðmæti
loðnuafurða eftir vertíðina muni
nema 22-25 milljörðum og eru út-
flutningsverðmæti 10 þúsund tonna,
sem norsk skip lönduðu hérlendis
inni í þeirri tölu.
Einmuna blíða á miðunum
Gunnþór segir að í síðustu viku
hafi verið einmuna blíða á miðunum
í Faxaflóa og Breiðafirði og skip-
unum gengið vel í hrognatúrunum.
Heilt yfir hafi vertíðin gengið vel,
samsetning og stærð loðnunnar ver-
ið hagstæð og öflugum skipum hafi
gengið vel að veiða. Sem dæmi nefn-
ir hann að Síldarvinnslan hafi tekið
á móti tæplega 10 þúsund tonnum í
heilfrystingu og af því magni hafi
aðeins 120 tonn farið í fiskimjöl og
lýsi. Það segi sína sögu um fjárfest-
ingu og uppbyggingu í vinnslunni í
landi.
Um markaðinn segir Gunnþór að
útlitið sé gott. Sérstaklega eigi þetta
við um hrognamarkaðinn, enda sé
magnið ekki mikið. Hátt verð fyrir
heilfrysta loðnu standi þó aðeins í
markaðnum.
Eftir loðnubrest í tvö ár var
heildarkvótinn ákveðinn 127.300
tonn viku af febrúar. Þá hafði loðnu
verið leitað í umfangsmiklum leið-
öngrum Hafrannsóknastofnunar og
útgerða uppsjávarskipa. Í hlut ís-
lenskra veiðiskipa komu tæp 70 þús-
und tonn. Kvóti Norðmanna við
landið nam tæplega 42 þúsund tonn-
um og komu um 60 norsk skip hing-
að til veiða á vertíðinni. Færeyskum
skipum var heimilt að veiða samtals
6.365 tonn af loðnu í fiskveiðiland-
helginni og kvóti grænlenskra skipa
var tæplega 9.300 tonn.
Ljósmynd/Emil Andersen
Drangar Börkur NK siglir fram hjá Reynisdröngum síðdegis á sunnudag á leið sinni á loðnumiðin út af Snæfellsnesi, en nú er lítið eftir af loðnuvertíðinni.
Ekki hægt að spila mikið
betur úr loðnuvertíðinni
Áætlar að útflutningsverðmæti loðnuafurða verði í heild 22-25 milljarðar króna
Í gær kom í ljós
að vonir nokk-
urra frambjóð-
enda til stjórnar
Icelandair Group,
um margfeldis-
kosningu í stjórn-
arkjörinu á aðal-
fundi félagsins á
föstudaginn
næsta, hefðu brugðist. Margfeldis-
kosning er talin hafa getað aukið til
muna möguleika þeirra frambjóð-
enda sem tilnefningarnefnd félags-
ins mælti ekki með í stjórnina.
Sturla Ómarsson, sem er einn
þessara frambjóðenda, segir spurð-
ur um mat á stöðunni eftir að í ljós
kom að margfeldiskosning yrði ekki
viðhöfð að væntanlega yrði erfiðara
fyrir nýja aðila að komast inn. „Það
er samt möguleiki. Þar sem það eru
ekki fleiri en 53% sem ætla að mæta
á fundinn, þá í samhengi allra hluta
þarftu minna,“ segir Sturla, og telur
möguleika sína ennþá góða. „Ég tel
fullt tilefni til að einstaklingur sem
hefur djúpa þekkingu á málefnum
félagsins setjist í stjórn. Það eru
spennandi tímar framundan, en erf-
iðir,“ segir Sturla. »12
Erfiðara fyr-
ir nýja aðila
að koma inn
Kjör Ýmsar áskor-
anir bíða Icelandair.
Engin margfeldis-
kosning í stjórnar-
kjöri Icelandair