Morgunblaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum.
Forsvarsfólk hópsins sem heldur úti Facebook-hópnum
„Aðför að heilsu kvenna“, afhenti í gær Svandísi
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra 5.450 undirskriftir á
lista þar sem skorað er á ráðherra að „stöðva aðför að
heilsu kvenna“. Í samtali við mbl.is segir Erna Bjarna-
dóttir að hún hafi stofnað vettvanginn vegna þess að hún
sá að konur sem biðu niðurstaðna úr skimunum fyndu
fyrir kvíða og ótta og kannaðist sjálf við slíkt.
Morgunblaðið/Eggert
Sá að konur fundu fyrir kvíða og ótta
Hópur sérfræðinga frá verkfræði-
stofunni Verkís, umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
og foreldrafélagi Fossvogsskóla hef-
ur verið settur saman vegna myglu í
skólanum. Þetta kemur fram í til-
kynningu til foreldra barna í skól-
anum eftir fund sem var haldinn í
skólaráði gær. Hópurinn mun rýna
allar sýnatökur, framkvæmdir og
niðurstöður sem þegar liggja fyrir. Í
framhaldinu mun hann kortleggja
frekari þörf á sýnatökum og meta og
leggja til eftir atvikum aðgerðir í
húsnæði skólans til að tryggja til
fullnustu heilsusamlegt umhverfi
fyrir börn og starfsfólk skólans.
Hann mun einnig setja upp tíma-
setta verkáætlun varðandi þrýsti-
prófun á rakasperrum í Vesturlandi,
einni byggingu skólans, ásamt verk-
áætlun fyrir framkvæmdir í tiltekn-
um rýmum í Austurlandi og Megin-
landi sem þegar liggur fyrir að þurfi
að fara í.
Skúli Helgason, formaður skóla-
og frístundaráðs Reykjavíkurborgar
segir í samtali við Morgunblaðið að
viðurkenna þyrfti að ekki hafi verið
staðið nógu vel að upplýsingagjöf til
foreldra vegna myglumála skólans.
Sömuleiðis þyrfti að einsetja sér að
gera betur í þeim efnum. „Það sem
skiptir mestu máli núna er að við
séum í mjög góðu samstarfi við full-
trúa starfsfólks og foreldra og skóla-
stjórnendur,“ segir Skúli.
Skóla- og frístundasvið borgarinn-
ar mun standa fyrir könnun á líðan
starfsmanna og barna og verður ósk-
að eftir því að foreldrar svari könn-
uninni með börnum sínum og/eða
fyrir þeirra hönd.
Heilbrigðisstarfsmenn
fylgist með börnunum
Fulltrúi skóla- og frístundasviðs
hefur einnig átt samtal við foreldra
þeirra barna sem upplýsingar lágu
fyrir um, 17. febrúar, að fyndu fyrir
einkennum af völdum mengunar
vegna lélegra loftgæða.
Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis
átt í viðræðum við heilbrigðisstarfs-
menn um að fylgjast með þeim hópi
barna sem hefur fundið fyrir slapp-
leika og óþægindum í húsnæðinu,
með það fyrir augum að skapa skýr-
an farveg fyrir faglegt mat á heilsu
viðkomandi barna.
Upplýsingar eru sagðar verða
veittar reglulega um framgang
framkvæmda í húsnæðismálum skól-
ans út þetta skólaár.
Setja saman hóp vegna myglunnar
Gera þarf betur í upplýsingagjöf, viðurkennir formaður skólaráðs Allar sýnatökur, framkvæmdir
og niðurstöður verða rýndar Munu kanna líðan barna og starfsmanna Sett verður upp verkáætlun
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Sérfræðihópur verð-
ur settur saman vegna myglunnar.
Samræmdum könnunarprófum fyrir
9. bekkinga sem fyrirhuguð voru í
vikunni, í stærðfræði og ensku, hef-
ur verið frestað og boðið verður upp
á að endurtaka íslenskuprófið sem
fram fór í gær.
Greint var í gær frá tæknilegum
örðugleikum sem upp komu þegar
prófið var lagt fyrir í gærmorgun.
Margir skólar tilkynntu örðugleika
við að tengjast rafrænu prófakerfi
eða að halda sambandi við það á
meðan prófi stóð.
Í tilkynningu frá Mennta-
málastofnun, sem ber ábyrgð á
framkvæmd prófanna, segir að 3.500
nemendur af 4.200 hafi lokið prófinu
en ljóst sé að hluti nemenda tók
prófið við ófullnægjandi aðstæður.
„Skólum er gefinn kostur á að
leggja öll þrjú samræmdu könn-
unarprófin fyrir á tveggja vikna
tímabili frá og með næsta mánudegi.
Þannig hafa skólar val um hvaða
próf þeir leggja fyrir og hvenær á
tímabilinu 15.-26. mars. Allir nem-
endur innan hvers skóla verða að
taka sama próf á sama degi,“ segir í
tilkynningu frá stofnuninni. Mennta-
málastofnun harmar vandamálin
sem upp komu við fyrirlögnina.
Samræmdum könn-
unarprófum frestað
Í boði verður að endurtaka íslensku
Morgunblaðið/Hari
Skóli Börn sem þreyttu samræmt
íslenskupróf í morgun lentu í vanda.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á smit-
sjúkdómadeild Landspítalans, segir
ekkert smit hafa greinst í gær í
skimun starfsfólks á göngudeild lyf-
lækninga, þar sem einn starfsmaður
reyndist smitaður um helgina.
„Allt sem hefur verið gert í dag er
neikvætt. Það hafa verið tekin sam-
tals 1.300 sýni bæði í samfélaginu og
á spítalanum og það hefur allt sam-
an verið neikvætt,“ sagði Már í sam-
tali við Morgunblaðið skömmu áður
en blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Enn höfðu ekki allir sem þurfa
verið skimaðir en þeir sem út af
standa verða skimaðir í dag.
„Þetta er meginþorrinn svo að
þetta eru bara frábærar fréttir,“
sagði Már. „Allt í lagi, enn sem kom-
ið er,“ bætti hann við.
Þrátt fyrir þessar góðu fréttir
verði ekki hægt að anda léttar fyrr
en eftir tvær vikur.
„Þetta eru tvö samfélagssmit og
vonandi endurspeglast þau síðan
ekki í fleiri smitum. En ef ekkert
kemur upp á næstu tveimur vikum
erum við sloppin,“ sagði Már. Hann
telur að það taki faraldurinn lengri
tíma en fáeina daga að koma fram í
smittölum, ef hann er þá hafinn á
ný.
Það var einstaklingur sem kom
heim frá útlöndum 26. febrúar sem
mun hafa smitað umræddan starfs-
mann Landspítala og einnig annan
einstakling til viðbótar. Þess vegna
er talað um að innanlandssmitin hafi
verið tvö um helgina og enn liggur
ekki fyrir hvort þau hafi orðið fleiri.
Viðbrögðin við tíðindum af innan-
landssmiti voru þegar í stað nokkuð
mikil og ákveðið var að ráðast í um-
fangsmikla skimun á öllum gestum
tónleika sem haldnir voru í Hörpu á
föstudaginn, þar sem smitaður
starfsmaður Landspítalans var
staddur. snorrim@mbl.is
Enn enginn greind-
ur úr hópskimun
Um 1.300 sýni hafa verið tekin samtals
Morgunblaðið/Ásdís
Landspítalinn Már Kristjánsson,
yfirlæknir á smitsjúkdómadeild.