Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 9

Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Ársfundur 2021 fimmtudaginn 25. mars Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 25. mars 2021 kl. 17:15 Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur 2020 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs 3. Kynning á fjárfestingarstefnu 4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins 5. Kosning stjórnar 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags 7. Ákvörðun um laun stjórnar 8. Önnur mál Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila í síðasta lagi þann 18. mars 2021. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is. Ársreikning og önnur gögn fyrir fundinn er að finna á heimasíðu sjóðsins. Vegna sóttvarna er farið fram á að þeir sjóðfélagar sem ætla að mæta á staðinn eða þeir sem mæta í umboði sjóðfélaga skrái sig fyrir kl. 13:00 þann 24. mars 2021 á www.almenni.is. Umboðsmenn skulu afhenda frumrit umboða eða skila rafrænu umboði með fullgildri rafrænni undirritun. Fundinum verður streymt á heimasíðu sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins Nánar á: www.almenni.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sýklalyfjanotkun hjá mönnum minnkaði um rúm 9% á milli áranna 2018 og 2019 ef litið er á fjölda ávís- ana á lyfin og meðal barna yngri en 5 ára minnkaði notkunin ennþá meira eða um tæp 11% á milli ára. Frá árinu 2016 hefur notkun penisillín- lyfja dregist saman um 24% í yngsta aldurshópnum, barna sem voru fjög- urra ára og yngri. Þessar upplýsingar koma fram í nýútkominni ársskýrslu sóttvarna- læknis um sýklalyfjanotkun og far- aldsfræði ónæmra baktería á Íslandi á árinu 2019. Þar kemur einnig fram að sýkla- lyfjanotkun hjá dýrum á Íslandi er áfram ein sú minnsta í allri Evrópu og hélt áfram að minnka eða um 16% á milli áranna 2018 og 2019. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir í inngangsorðum skýrslunnar að á undanförnum árum hafi verið rekinn mikill áróður fyrir skynsamlegri notkun sýklalyfja hjá mönnum hér á landi og áhersla lögð á að fækka ávísunum almennt, sér- staklega hjá börnum, og minnka notkun breiðvirkra sýklalyfja. Til- gangurinn sé að minnka kostnað og draga úr útbreiðslu sýklalyfja- ónæmra baktería. „Það er því ánægjulegt að sjá að notkunin hér á landi hjá mönnum hefur minnkað, sérstaklega hjá börnum, og jafnframt að nokkur ár- angur hefur náðst í að minnka notk- unina á breiðvirkum sýklalyfjum,“ segir Þórólfur. Hann bendir á að notkun sýkla- lyfja hjá mönnum hefur lengi verið sú mesta á Norðurlöndunum en um miðbik ef miðað er við lönd Evrópu- sambandsins. Í skýrslunni segir að heildarsala sýklalyfja hjá mönnum minnkaði á milli áranna 2017 og 2018 um 14% og aftur á milli áranna 2018 og 2019 um rúm 5%. Notkun sýklalyfja fer vaxandi með hækkandi aldri og frá 2017 hef- ur fjöldi ávísana á 1.000 íbúa á ári verið meiri hjá elsta aldurshópnum, þ.e. 65 ára og eldri, en þeim yngsta. 11% minni sýkla- lyfjanotkun barna  Ávísunum penisillínlyfja til fjögurra ára og yngri barna fækkaði um 24% Morgunblaðið/Sverrir Lyf Á árinu 2019 tókst að minnka notkun sýklalyfja umtalsvert. Verði frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð- herra um breytingu á lögum um fullnustu refsinga lögfest á Alþingi, verður Fangelsismálastofnun heim- ilt að fullnusta allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi, í stað 12 mánaða, með samfélagsþjónustu. Gert er ráð fyrir að um tímabundn- ar breytingar verði að ræða á sam- félagsþjónustu sem fullnustuúrræði. Einnig er lagt til að Fangelsis- málastofnun verði tímabundið heim- ilað að fullnusta dóma með sam- félagsþjónustu þegar hluti fangelsisrefsingar er skilorðsbund- inn þó heildarrefsing samkvæmt dóminum sé lengri en 24 mánuðir. Jafnframt eru í frumvarpinu lagðar til tímabundnar breytingar sem geri Fangelsismálastofnun kleift að veita föngum reynslulausn nokkrum dögum fyrr en skv. gildandi lögum. Fram kemur í frumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi í seinustu viku að með tillögunum sé brugðist við athugasemdum sem fram komu í skýrslu starfshóps um styttingu boðunarlista í fangelsi. Breyting- arnar sem boðaðar eru í frumvarp- inu eru liður í því að stytta boð- unarlista í fangelsin sem hafa lengst síðustu ár með þeim afleið- ingum að meðalbiðtími eftir afplán- un þeirra sem dæmdir eru til fangelsisvistar hefur lengst. Einnig hefur fyrningum óskilorðsbundinna dóma fjölgað. 706 á boðunarlista um áramót „Dómþolum á boðunarlista Fang- elsismálastofnunar hefur fjölgað umtalsvert síðustu ár. Í lok árs 2010 voru 300 einstaklingar á boð- unarlistanum en í lok árs 2020 voru 706 á listanum. Á sama tíma hefur meðalbiðtími dómþola eftir að af- plánun hefjist lengst töluvert. Árið 2010 liðu að meðaltali 4,9 mánuðir frá því að dómur barst Fangelsis- málastofnun, eða samfélagsþjónusta var rofin, til upphafs afplánunar. Árið 2019 var þessi tími kominn í 6,9 mánuði,“ segir í greinargerð. Mikill meirihluti þeirra sem dæmdir hafa verið til óskilorðs- bundinnar fangelsisrefsingar eru karlar. Fram kemur að árið 2019 voru karlarnir 522 eða um 92% þeirra sem dæmdir voru í óskilorðs- bundið fangelsi og 2020 voru þeir 587 eða um 86%. Konur sem hlotið höfðu dóm og Fangelsismálastofnun fékk til meðferðar voru 45 árið 2019 eða um 8% og 96 árið 2020 eða um 14%.“ omfr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Fangelsi Heimila á samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra að fullnusta allt að tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi með samfélagsþjónustu. Rýmri möguleikar á samfélagsþjónustu  Liður í að stytta boðunarlista fanga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.