Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Frambjóðendur til stjórnar Ice-
landair sem ekki komust á lista til-
nefningarnefndar flugfélagsins í
stjórnarkjöri sem fram fer á aðal-
fundi félagsins á föstudaginn
næsta, þau Þórunn Reynisdóttir,
forstjóri Úrvals-Útsýnar, Sturla
Ómarsson, stjórnarformaður Eftir-
launasjóðs Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna og flugstjóri hjá
Icelandair, og Steinn Logi Björns-
son, fyrrverandi stjórnandi hjá Ice-
landair um árabil og fyrrverandi
forstjóri flugfélagsins Bláfugls,
hafa öll kynnt stefnumál sín á síð-
ustu dögum í þeirri von að hljóta
náð fyrir augum hluthafa. Steinn
Logi hefur til dæmis bæði keypt
auglýsingar í blöðum og á netinu,
og Sturla og Þórunn hafa átt fundi
með hluthöfum. Fjórði frambjóð-
andinn, sem ekki er á lista tilnefn-
ingarnefndar, Martin J. St.
George, markaðsstjóri LATAM
Airlines Group, kynnti sig í samtali
við Túrista.is um síðustu helgi.
Erfitt að sjá stöðuna
Þórunn segir í samtali við Morg-
unblaðið að erfitt sé að sjá hver
staða hennar er í stjórnarkjörinu.
„Ég vona það besta og vona að eig-
endur félagsins sjái sér hag í að
kjósa konu í stjórn sem er með
mikla reynslu og þekkingu á félag-
inu og mörkuðum þess.“
Hún segist hafa safnað umboð-
um og vonist til að margir mæti
einnig sjálfir með sitt umboð á að-
alfundinn. „Ég vona svo sannarlega
að þeir kjósi öfluga konu í stjórn.
Félagið þarf öfluga viðspyrnu og
þarf að tefla fram sínu sterkasta
liði.“
Þórunn segist hafa heimsótt
töluvert marga hluthafa og kynnt
sín stefnumál. „Nú er það þeirra að
velja.“
Erfiðir tímar framundan
Í tilkynningu sem Icelandair
sendi frá sér í gær kom fram að
53% hluthafa hefðu skráð sig á aðal-
fundinn og gætu þar með kosið í
stjórnarkjörinu.
Í tilkynningunni kom einnig fram
að kjörið yrði með hefðbundnum
hætti, en bæði Steinn Logi og
Sturla höfðu óskað eftir því að fram
færi margfeldiskosning. Með því
fyrirkomulagi töldu þeir mun lík-
legra að komast inn í stjórnina.
Sturla sagði, spurður um mat á
stöðunni eftir að í ljós kom að marg-
feldiskosning yrði ekki viðhöfð, að
væntanlega yrði erfiðara fyrir nýja
aðila að komast inn. „Það er samt
möguleiki. Þar sem það eru ekki
fleiri en 53% sem ætla að mæta á
fundinn, þá í samhengi allra hluta
þarftu minna,“ segir Sturla, og telur
möguleika sína ennþá góða. „Ég tel
fullt tilefni til að einstaklingur sem
hefur djúpa þekkingu á málefnum
félagsins setjist í stjórn. Það eru
spennandi tímar framundan, en erf-
iðir,“ segir Sturla.
Spurður að því hvort hann hafi
náð að safna mörgum umboðum fyr-
ir stjórnarkjörið á aðalfundinum áð-
ur en frestur til þess rann út klukk-
an 16 á sunnudaginn síðasta, segist
Sturla hafa náð að safna einhverju,
en vill ekki gefa upp hve mikið.
„Stóru aðilarnir vega þungt í þessu
samhengi. Ég hef verið að funda
með bæði lífeyrissjóðum og öðrum
fjárfestum og kynnt þeim mína sýn
á félagið.“
Sturla segist hafa fengið jákvæð-
ar viðtökur hjá hluthöfunum. „Þeir
eru allir búnir að skoða fyrirtækið
vel síðan síðasta sumar og það er
gaman að tala við fólk sem hefur
góðan skilning á félaginu.“
Sturla segir að talsverð vinna fari
í að kynna sig fyrir hluthöfum.
„Maður er ekki í þessu til að tapa
og hugsar fyrst og fremst um hag
félagsins.“
Spurður að því hvort stærstu
hluthafarnir séu ekki líklegir til að
fylgja tillögum tilnefningarnefndar-
innar, segir Sturla að ekki sé hægt
að fullyrða að samhengi sé á milli
þess að vilja ekki margfeldiskosn-
ingu og að vilja óbreytta stjórn.
„Við erum níu í framboði.“
Steinn Logi segir á heimasíðu
sinni að hann telji mjög óeðlilegt
að engin breyting verði gerð á
stjórninni í ljósi þess að 11.000 nýir
hluthafar bættust í hluthafahópinn
og auk þess hafi tveir stærstu hlut-
hafarnir, LIVE og Par Capital,
með samtals um 25% af atkvæðum
í síðustu kosningum ekki tekið þátt
í hlutafjárútboði Icelandair síðasta
haust.
Aðspurður sagði Steinn Logi í
samtali við Morgunblaðið að hann
væri búinn að safna og skrá tölu-
verðan fjölda umboða en segist
ekki gera sér grein fyrir hvert at-
kvæðamagnið er nákvæmlega á
bak við það.
Slagurinn harðnaði
Áður en í ljós kom að ekki yrði
af margfeldiskosningu í félaginu,
en 10% hluthafa þurfa að óska eft-
ir slíku, stefndi í mun harðari slag
en raunin er nú. Slagurinn harðn-
aði um leið og Þórunn tilkynnti
um framboð sitt, en þá varð ljóst
að þær konur sem tilnefningar-
nefnd leggur til að verði kjörnar í
stjórn, þær Nina Jonsson og
Svafa Grönfelt, yrðu ekki lengur
sjálfkjörnar, kæmi til margfeldis-
kosningar.
Ef Þórunn hefði ekki boðið sig
fram, og margfeldiskosning verið
samþykkt, þá hefðu stórir hlut-
hafar, sem fara vildu að tillögum
tilnefningarnefndar, einfaldlega
sett öll atkvæði sín til karlanna
þriggja í stjórn og konurnar tvær
hefðu orðið sjálfkjörnar. Þar með
hefði orðið erfiðara fyrir aðra
frambjóðendur að komast að. Með
margfeldiskosningu hefði hinsveg-
ar þurft að dreifa atkvæðum á alla
fimm stjórnarmennina, sem gæfi
aukna möguleika fyrir aðra fram-
bjóðendur.
Lögum samkvæmt þurfa að
minnsta kosti tvær konur að sitja
í stjórnum félaga sem skráð eru í
Kauphöll Íslands.
Tilnefningarnefnd félagsins er
skipuð þeim Úlfari Steindórssyni,
stjórnarformanni félagsins, Hjör-
leifi Pálssyni, sjálfstæðum ráð-
gjafa, og Helgu Árnadóttur, fram-
kvæmdastjóra sölu-, markaðs- og
vöruþróunar hjá Bláa lóninu.
Nefndin mælir með óbreyttri
stjórn Icelandair, en auk þeirra
Ninu og Svöfu mælir nefndin með
því að stjórnarmennirnir Úlfar
Steindórsson stjórnarformaður,
Guðmundur Hafsteinsson og John
F. Thomas verði kjörnir áfram í
stjórn.
Barist um hvert atkvæði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Hluthafar Icelandair voru 13.508 í lok 2020 samkvæmt ársreikningi.
Kosið í stjórn Icelandair á föstudaginn Án margfeldiskosningar verður erf-
iðara fyrir nýja aðila að koma inn Frambjóðendur hafa fundað með eigendum
● 286 einkahlutafélög voru stofnuð hér
á landi í nýliðnum febrúarmánuði. Fjölg-
aði þeim talsvert miðað við sama mán-
uð í fyrra þegar nýskráningarnar voru
197 talsins. Hins vegar fækkar þeim
samanborið við mánuðinn á undan því í
janúar 2021 voru nýskráningarnar
304.
Samkvæmt gögnum Hagstofunnar
voru flest hin nýskráðu fyrirtæki í febr-
úar skilgreind í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð eða 49. Í janúarmánuði
voru þau 50 talsins. Fyrirtæki í fjár-
mála- og vátryggingastarfsemi voru
43 í febrúar en 47 fyrirtæki af þeim
toga voru stofnuð í janúar. Virðist mun
meiri gangur í stofnun slíkra fyrirtækja í
ár heldur en í fyrra þegar þau voru 17 í
janúarmánuði og 15 í febrúar.
286 einkahlutafélög
stofnuð í febrúar
9. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.12
Sterlingspund 177.17
Kanadadalur 100.88
Dönsk króna 20.561
Norsk króna 14.973
Sænsk króna 15.009
Svissn. franki 138.21
Japanskt jen 1.1827
SDR 183.14
Evra 152.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.6503
Hrávöruverð
Gull 1696.05 ($/únsa)
Ál 2185.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.16 ($/fatið) Brent
● Fjórtán af þeim
19 félögum sem
skráð eru á að-
allista Kauphallar
Íslands lækkuðu í
viðskiptum gær-
dagsins. Aðeins
eitt félag stóð í
stað, Eimskipa-
félagið, en við-
skipti með félagið
voru óveruleg.
Mest lækkuðu bréf
VÍS um 1,61% í 69 milljóna króna við-
skiptum en fast á hæla þess kom TM
sem lækkaði um 1,6% í óverulegum
viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Sjóvár
um 1,55% í 30 milljóna króna við-
skiptum.
Mest var velta með bréf Arion
banka eða 760 milljónir og lækkuðu
þau um 0,83%. Þá voru 503 milljóna
króna viðskipti með bréf Haga og
hækkuðu bréf félagsins um 0,36%.
Bréf Icelandair Group hækkuðu mest
allra um 1,42% í 45 milljóna króna við-
skiptum. Þá hækkuðu bréf Eikar um
1,15% í 15 milljóna króna viðskiptum.
Meirihluti félaga í Kaup-
höllinni lækkaði í virði
STUTT
Nýjasta viðbótin í hóp fram-
bjóðenda í stjórnarkjöri Iceland-
air er Martin J. St. George. Hann
hefur samkvæmt kynningu á
heimasíðu Icelandair Group ver-
ið markaðsstjóri LATAM Airlines
Group í Chile frá 2020. Frá
2019-2020 var hann tímabund-
ið markaðsstjóri Norwegian Air
Shuttle ASA. Frá 2006-2019
gegndi George ýmsum stöðum
innan JetBlue-flugfélagsins í
Bandaríkjunum. Þar á undan
vann hann fyrir annað banda-
rískt flugfélag, United Airlines.
Markaðs-
stjóri LATAM
NÝTT FRAMBOÐ