Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 14

Morgunblaðið - 09.03.2021, Side 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Um fátt var meira rætt á Bretlandi í gær en sjónvarpsviðtal Oprah Win- frey við hertogahjónin af Sussex, þau Harry og Meghan Markle. Þar ræddi parið um líf sitt eftir þá ákvörðun að draga sig frá embættis- verkum í nafni bresku krúnunnar og standa þess í stað á eigin fótum. Við- talið var það fyrsta sem þau veita á því ári sem liðið er síðan þau hófu nýtt líf og hafði þess verið beðið með talsverðri eftirvæntingu. Óhætt er að fullyrða að það kallaði þegar fram mikið umtal og sterk viðbrögð. „Það var eftir að við giftum okkur sem hlutir fóru virkilega að versna. Þá fór ég að átta mig á að ekki ein- göngu væri ég ekki undir vernd heldur væru þau reiðubúin til að ljúga svo vernda mætti aðra fjöl- skyldumeðlimi,“ sagði Meghan með- al annars í viðtalinu, en skortur á stuðningi og skilningi frá hendi kon- ungsfjölskyldunnar og bresku pressunnar mun hafa átt þátt í ákvörðun ungu hjónanna. Sökuð um kynþáttahygli Þá sakaði Meghan konungsfjöl- skylduna um að hafa haft áhyggjur af því hversu dökka húð sonur þeirra Archie myndi fá. Gaf hún til kynna að þær áhyggjur hefðu haft áhrif á þá ákvörðun að gera drenginn ekki að prinsi, líkt og önnur barnabarna- börn Elísabetar drottningar. Að- spurð sagðist Meghan ekki vilja nefna nein nöfn í þessu samhengi, þar sem slíkt yrði mjög skaðlegt fyr- ir viðkomandi. Harry er þó sagður hafa orðið vitni að þessari umræðu. Einn þeirra sem hafa tjáð sig um viðtalið umdeilda er breski fjölmiðla- maðurinn Piers Morgan. Hann er allt annað en sáttur við það sem þar kom fram. „Þau hafa talað illa um pabba hans, bróður, mágkonu og drottn- inguna sem hefur lagt allt á sig til að vernda krúnuna. Hver á að trúa því að þau geti sýnt samkennd?“ spyr hann í viðtali sem sýnt er á heima- síðu Independent. Á Twitter hélt fjölmiðlamaðurinn áfram og sagði: „Tölum af alvöru: Harry prins og eiginkona hans eyddu tveimur klukkustundum í að tala illa um allt sem drottningin stendur fyrir og hefur unnið að því að viðhalda.“ Viðtalið umdeilda var í gærkvöldi sýnt í heild sinni á Sjónvarpi Sím- ans. AFP Afhjúpun Hertogahjónin af Sussex, þau Harry og Meghan, ræddu málin opinskátt við Oprah Winfrey. Krúnan á milli tanna fólks  Hertogahjónin af Sussex ræddu líf sitt og ástæður þess að þau sneru baki við embættisverkum í nafni krúnunnar  Varð strax umdeilt og vakti hörð viðbrögð Frans páfi hélt í gær heim frá Bagdad eftir sögulega heimsókn sína til Íraks. Með páfanum á myndinni eru Barham Saleh Íraksforseti og Sarbagh Saleh forseta- frú, en myndin er tekin þegar forsetahjónin fylgja páf- anum að flugvél sinni eftir kveðjuhóf sem haldið var honum til heiðurs. Frans páfi sótti fjórar íraskar borgir heim, meðal annars Mosúl sem áður var höfuðvígi Ríkis íslams. „Friður er sterkari en stríð,“ sagði hann þar. AFP Söguleg heimsókn páfa á enda Tveimur langdrægum bandarískum sprengjuflugvélum af gerðinni B-52H Stratofortress var flogið yfir Mið-Austurlönd síðastliðinn sunnu- dag. Með fluginu eru Bandaríkja- menn sagðir vera að senda frá sér tvenn skilaboð; annars vegar við- vörun sem beint er að Íran og hins vegar skilaboð til bandamanna þess efnis að Bandaríkin muni áfram stuðla að stöðugleika á svæðinu. Mikil spenna ríkir milli ráða- manna í Washington D.C. og Tehran, einkum eftir nýlega eld- flaugaárás á íraska herflugvöllinn Ain al-Asad sem hýsir fjölmennt herlið Bandaríkjanna. Er árásin sögð bera öll merki þess að hafa ver- ið framkvæmd með stuðningi Írana. Það hefur þó ekki enn verið staðfest. Þá varð einnig ísraelskt skip fyrir skemmdum nýverið þegar spreng- ing kom þar upp. Hafa þeir kennt Írönum um árás á skipið. Sprengjuvélunum bandarísku var flogið yfir svæðið í fylgd orrustu- þotna frá Ísrael, Sádi-Arabíu og Katar. Er þetta í fjórða sinn sem B-52 er flogið yfir Mið-Austurlönd á þessu ári, tvö síðustu skiptanna með samþykki núverandi Bandaríkja- forseta, Joe Biden. B-52 hefur frá tímum kalda stríðs- ins verið tákn um hernaðarmátt enda getur hver vél borið 32 tonn af sprengjum. khj@mbl.is Sýndu hernaðarmáttinn  Langdrægar bandarískar sprengjuvélar flugu í herþotu- fylgd yfir Mið-Austurlönd  Spenna eykst milli landanna Formaður sænska Miðflokksins, Annie Lööf, vill grípa til enn hertari aðgerða til að stemma stigu við út- breiðslu kórónuveiru þar í landi. Vill hún láta loka öllum helstu stofnunum landsins í tvær til þrjár vikur. Sam- hliða skyldi einnig m.a. loka versl- unarmiðstöðvum, veitingastöðum, kaffihúsum og líkamsræktarstöðvum. Lööf viðraði þessa hugmynd sína í sænska ríkissjónvarpinu í fyrradag. Fyrr á þessu ári voru ný sóttvarna- lög samþykkt í Svíþjóð. Veita þau stjórnvöldum ríkari heimildir til inn- gripa, til jafns við það sem þekkist í nágrannaríkjum. Hafa stjórnvöld þegar nýtt þessar heimildir upp að vissu marki og eru nú ýmsar tak- markanir í gildi í landinu. Þá sagðist Lööf styðja að hið opin- bera bæti rekstrarfólki að fullu það tjón sem skapast með hertari aðgerð- um gegn veirunni. SVÍÞJÓÐ Vill skella hurðinni á kórónuveiruna Bashar al-Assad Sýrlandsforseti og eiginkona hans Asma hafa bæði greinst með kórónuveirusmit. Eru þau bæði sögð sýna mild einkenni. Fram kemur í tilkynningu frá for- setaembættinu að hjónin hafi byrjað að sýna dæmigerð kvefeinkenni og í kjölfarið farið í PCR-próf sem stað- festi kórónuveirusmit. Eru forseta- hjónin nú í einangrun og er al-Assad sagður munu vinna heima næstu tvær til þrjár vikurnar. Nærri 16.000 staðfest tilfelli kórónuveiru hafa greinst í Sýrlandi frá því að faraldur hófst og eru 1.063 staðfest dauðsföll. SÝRLAND Sýrlensku forseta- hjónin með veiruna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.