Morgunblaðið - 09.03.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.03.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Evrópusam-bandiðhefur nokkrum sinnum lent í erfiðu innra uppnámi sem hef- ur heltekið sam- skipti „leiðtoga“ þjóðanna um hríð. Aðferðin út úr flestum þeirra hefur verið að stofna til fjölda leiðtoga- funda, hvers á fætur öðrum. „Leiðtogarnir“ taka deilurnar aldrei til raunveulegrar um- ræðu á sínum heimaþingum. Þó eru ESB-löndin skikkuð til þess að hafa „þjóðfána ESB“ í þingsal sínum hafi þau eigin þjóðfána þar. Er einkennilegt að látið sé undan svo niður- lægjandi kröfu um að árétta veika stöðu þjóðþingsins. Eftir maraþonfundi eru vandræðin loks „leyst“ af svefnvana „leiðtogum“ sem samþykkja niðurstöðu Þjóð- verja og Frakka, sem náðist án aðkomu annarra. Segja má að aðferðin hafi styrkst eftir að Bretar sluppu við harðan leik út úr ESB. Smærri ríki sambandsins í norðanverðri álfunni, svo sem Holland, Dan- mörk og Svíþjóð, höfðu veru- legan styrk af Bretlandi sem hafði bak til að taka á sig óánægjuna af andófinu við þetta tveggja ríkja ESB. Nú er sú staða stöpuð. Hinar óskráðu reglur um al- ræði Þjóðverja og Frakka í ESB koma ekki aftan að smá- ríkjunum þar. Forseti Frakk- lands og kanslari Þýskalands, ákváðu hvert meginskref í átt að „þéttara samstarfi“ á sínum tveggja manna fundum. Leið- togar annarra ríkja mættu svo til undirskrifta á hátíðar- fundum. Þessa leið vörðuðu þeir de Gaulle og Adenauer í upphafi og svo eftirmenn þeirra. De Gaulle skynjaði þó að Bretar, með ramma taug vestur yfir haf við enskumæl- andi ríkin þar, myndu aldrei una sér sem þriðja hjól undir hinum þýsk-franska vagni. Hann beitti því neitunarvaldi gegn inngöngu þeirra. Thatc- her, öflugasti forsætisráð- herra Breta frá lokum styrj- aldarinnar, var komin með upp í kok yfir ESB-tilverunni. Uppeldi Merkel kanslara, austan við múr, virtist falla betur að henni. Eftir þriggja áratuga slag vildu Bretar út og fóru. Allt var gert af ESB hálfu til að eyðileggja ákvörðun bresku þjóðarinnar um útgöngu. Smá- þjóðirnar í sambandinu horfðu hrelldar á og gera sér nú fylli- lega ljóst að þeim verður ekki auðvelduð slík leið, þótt þær reyni. Þær fá gömlu trakter- ingar sambandsins: Kosið er aftur og aftur þar til „rétt svar“ kemur. Spilling- armál (að hluta til gömul) komu upp í Hollandi sem urðu til þess að Mark Rutte forsætisráð- herra komst ekki hjá því að boða til kosninga nú í þessum mánuði. Þrátt fyrir þau mál virðast kannanir benda til að flokkur ráðherrans muni koma bærilega frá kosningunum, en Rutte hefur gegnt embættinu í áratug. Í aðdraganda fyrri kosninga hefur Rutte rætt töluvert um það að tryggja yrði ákvæði um Evrópusam- starfið sem héldu og gerðu þjóðunum örugglega kleift að komast út úr ESB ef þær vildu. Sama ætti að gilda um einstaka samstarfsþætti svo sem evruna og Schengen- samstarfið. Í aðdraganda þeirra kosn- inga og í framboðsundirbún- ingi þeirra vegna þótti for- sætisráðherranum nauð- synlegt að slá á slíka strengi þar sem veran í ESB hafði þá neikvæð áhrif í kosningunum. ESB er vissulega ekki hátt skrifað í aðildarlöndunum nú vegna yfirgengilegs klúðurs í bóluefnamálum, sem íslenska ríkisstjórnin gerði sig, án nokkurrar umræðu, að áskrif- anda að, og er eitt undarleg- asta klaufaspark sem sést hef- ur til íslenskrar ríkisstjórnar. En önnur ástæða þess að Rutte orðar ekkert slíkt nú er að eftir að Bretar rétt sluppu út er það ekki trúverðugt að Holland eða önnur smáríki myndu komast út úr ESB þótt það reyndi af öllum kröftum. Það eina sem gæti því leyst slíkar óskir úr læðingi væri ef útgönguöflum yxi fiskur um hrygg í ríki á borð við Frakk- land. Kannanir benda til vax- andi áhuga á útgöngu þar. En slíkan áhuga er auðvelt að of- meta. Reynslan sýnir að valda- og kyrrstöðuöfl í Frakklandi mundu snúa bök- um saman til að koma í veg fyrir slíkt, eins og þau hafa gert í hverjum forsetakosn- ingum til þessa. Sterk öfl tala fyrir útgöngu Ítalíu um þessar mundir. En efnahagur þessa stórríks ESB er þannig um þessar mundir að auðvelt er að þrengja mjög að landinu pólitískt, með hann að vopni. Því er niðurstaðan sú, að þótt ESB hafi sjaldan verið í lægra áliti en nú eftir klúðrið með bóluefnið, þá telur andlitslausa, ókjörna liðið í Brussel sig nú eiga allskostar við „þjóðirnar“. Og það mat er vísast rétt, svo dapurlegt sem það er. Þjóðir ESB sitja uppi með ókjörna yfir- stétt sem þær fyrir- líta þó af innstu hjartans rótum} Hafið yfir klúður Í liðinni viku var birt niðurstaða Héraðs- dóms Reykjavíkur í máli íslenska ríkis- ins gegn umsækjanda um starf ráðu- neytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Niðurstaðan var skýr; ekki voru fyrir hendi neinir ann- markar á málsmeðferð kærunefndar jafnréttis- mála sem leitt gátu til þess að fallist yrði á kröfu íslenska ríkisins um ógildingu á úrskurði kæru- nefndar. Var íslenska ríkinu gert að greiða stefndu 4,5 milljónir króna. Dagur var ekki liðinn þegar menntamála- ráðherra lýsti því yfir að hún hygðist áfrýja mál- inu til Landsréttar. Umsækjandi um starf ráðu- neytisstjóra sem leitaði til kærunefndar fær því enn að verma bekk stefndu og ómakinu sem felst í því að eiga í dómsmáli gegn ríkinu er ekki lokið. Menntamálaráðherra er vissulega í fullum rétti til að nýta allar heimildir sínar til málshöfðunar og áfrýjunar en það má velta fyrir sér þeim aðstöðumun sem hér er á ferð- inni. Krafti íslenska ríkisins í málarekstri gegn einstak- lingi. Ríkið á þennan rétt, en það þarf að mínu mati að ganga fram af ákveðnu meðalhófi og á það hefur umboðs- maður bent. Einnig eru fyrir því fordæmi í sambærilegum málum. Það er alltaf vont að tapa en stundum þarf að hug- leiða hvort rétt sé að halda áfram eins langt og mögulegt er á kostnað allra annarra en þess sem ákvörðunina tekur. Aðstöðumunurinn hefur einnig komið til álita vegna annars máls, er íslenska ríkið tók þá ákvörðun að bera nið- urstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í lands- réttarmálinu undir yfirdeild sama dómstóls. Þar tók ríkisstjórn Íslands þá ákvörðun að verj- ast af fullri hörku fyrir undirdeild og sækja svo til yfirdeildar vegna ólögmætrar dómaraskip- unar Sigríðar Á. Andersen þáv. dómsmála- ráðherra. Fyrir Alþingi liggur svar um hluta þess kostnaðar sem landsréttarmál hefur kost- að skattgreiðendur og er þar um að ræða nærri 150 milljónir króna. Aðstöðumunur málsaðila er umtalsverður. Íslenska ríkið keypti sér sér- fræðiaðstoð í aðdraganda og í kjölfar nið- urstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu og yfirdeildar sama dómstóls fyrir rúmar 36 millj- ónir króna. Þýðingarkostnaður íslenska ríkisins vegna sama málareksturs var rúmar 6 millj- ónir. Þá er ótalinn kostnaður embættis ríkislög- manns vegna starfa lögfræðiteymis embættisins en enn er beðið svara vegna þess, en fjöldi starfsmanna sinnti mál- inu. Gagnaðili í málinu fékk dæmdan málskostnað í Strassborg úr hendi ríkissjóðs að fjárhæð 3 milljónir króna en þar af var beinn kostnaður við rekstur málsins 1,2 milljónir. Það er því augljóst að sá einstaklingur sem leitar réttar síns gat ekki sótt mál af viðlíka þrótti og ís- lenska ríkið og ber að hafa það, sem og hversu íþyngjandi þessi málarekstur er, í huga þegar ráðherrar taka ákvarð- anir sínar um áframhaldandi málarekstur fyrir dómi. Pistill Málarekstur í boði ríkissjóðs Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Íliðnum mánuði var sagt fráþví án mikils lúðrablásturs aðBandaríkjastjórn myndi sendasveit B1-B langdrægra sprengjuflugvéla til norsku flug- herstöðvarinnar í Ørland skammt frá Þrándheimi (Niðarósi). Má það þó teljast sögulegur atburður, því þetta er í fyrsta sinn í mannsaldur sem Norðmenn leyfa erlent herlið í land- inu til annars en sameiginlegra her- æfinga Atlantshafsbandalagsins (NATO). Markmiðið með þessu er að senda Rússum skýr skilaboð um að svara megi örri hernaðaruppbygg- ingu þeirra á Kola-skaga; bæði flota og flugher auk kjarnorkuvopna á landi. Að þeim verði ekki liðið að auka ójafnvægi þar á norðurhjara. Fyrir sitt leyti biðu Rússar ekki með að svara, heldur boðuðu þeir til flug- skeytaæfinga með skömmum fyrir- vara á stóru hafsvæði milli Knöska- ness (Nordkapp) og Bjarnareyju. Engum duldist táknræn þýðing þess. Með þessu hefur athyglin aftur beinst að norðurslóðum sem átaka- línu vestrænna ríkja gagnvart Kremlarbændum og í því samhengi virðast margir vera að átta sig enn á ný á mikilvægi Atlantshafsbandalags- ins til þess að tryggja frið og öryggi í þessum heimshluta. Það varðar Íslendinga ekki síður en aðrar þjóðir á norðurslóðum, eins og mátt hefur merkja af tíðara flugi rússneskra herflugvéla í grennd við landið og aukinni herskipaumferð þaðan. Sem hefur jafnframt endur- speglast í auknum áhuga Bandaríkja- stjórnar á að taka upp nánara varnar- samstarf við Íslendinga að nýju. Kalt stríð og hlýrri vindar Þegar kalda stríðinu lauk með falli Sovétríkjanna árið 1991 varð spennufall á norðurslóðum. Rauði flotinn átti varla fyrir olíu lengur og um allan Kola-skaga grotnuðu her- skip niður við bryggju. Áhugi Banda- ríkjanna á norðurslóðum dvínaði um leið og bandarísk umsvif í Norður- Íshafinu urðu nær engin. Nauðsynin til þess að viðhalda GIUK-hliðinu svonefnda (milli Grænlands, Íslands og Bretlands) var ekki lengur augljós og fyrr en varði var búið að loka varn- arstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Á fyrsta áratugi aldarinnar juku Rússar fjárframlög til varnarmála aftur og tóku færa út kvíarnar á norðurslóðum á ný. Það hafa menn síðan sett í samband við aukinn áhuga á náttúruauðlindum í norðri, sem kunna að verða innan seilingar vegna tækniframfara og loftslags- breytinga. Vægi NATO eykst á ný Það var þó ekki fyrr en Donald Trump hafði komið sér fyrir í Hvíta húsinu, sem Bandaríkin sýndu áhuga á norðurslóðum á nýjan leik, en sú ákvörðun ríkisstjórnar Joes Bidens að senda sprengjuflugvélarnar til Noregs sýnir að nýi forsetinn ætlar ekki að vinda ofan af þeirri stefnu fyrirrennnara síns. Þarna hefur mikilvægi hernaðarsamstarfs yfir Atlantshafið komið vel í ljós. Og engin tilviljun að Jens Stoltenberg, hinn norski fram- kvæmdastjóri NATO, minnti á það í fyrirlestri við Evrópuháskólann í lið- inni viku að Evrópusambandið (ESB) væri ekki fært um að verja lönd sín og lýði án NATO og bandamanna handan hafsins. Hann minnti á að meira en 90% íbúa ESB væru í NATO, en að ESB- ríkin greiddu aðeins um 20% kostn- aðar við sameiginlegar varnir sínar. Hins vegar væri þeim landfræðileg vörn í bandamönnum utan ESB: Ís- lendingum, Norðmönnum og Bretum í norðri, Norður-Ameríku í vestri og Tyrklandi í suðaustri. Joe Biden hefur lýst yfir áhuga á að auka þátttöku Bandaríkjanna í NATO á ný og þessi sending til Nor- egs sýnir að það er ekkert hjal. Hitnar í kolum úti fyrir köldum ströndum Varnarmál Bandarísk B1-sprengjuflugvél í fylgd norskra F-35-orrustuvéla við Ørland skammt frá Þrándheimi. Ljósmynd/Forsvaret

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.