Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 09.03.2021, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Það er ævintýri að fylgjast með þróun hestamennskunnar og þeim árangri sem ís- lenskir hestamenn hafa náð á síðustu áratugum. Þar gnæfa hátt hugsjónamenn og hrossaræktar- ráðunautarnir Gunnar Bjarnason og Þorkell Bjarnason. Enn frem- ur um margt vel heppnuð útrás til annarra þjóða þar sem hesta- mennska og reiðlist er rótgróin svo sem til Þýskalands fyrir 70 ár- um. Gunnar Bjarnason hrossa- ræktarráðunautur var kóngur þegar hann kom til Þýskalands en hér heima stríddi hann við öfund- ina og fordóma, því fæstir trúðu að útlendingar vildu hestinn okk- ar. Í æsku minni var hesta- mennskan karlasport og snerist um útreiðar og kappreiðar sem svo voru nefndar. Þá voru flestir hestamenn klæddir úlpum og gúmmístígvélum, þótt margir hafi snillingarnir verið sem kunnu mikið eins og Höskuldur á Hofs- stöðum og fleiri. Nú er öldin önnur; hesta- menn ganga spari- búnir til leikanna og hestamennskan er ekki bara hörku- atvinnuvegur sem set- ur svip sinn á sveit- irnar. Hestamennskan er íþrótt, listgrein sem gleður augað og vekur yndi. Ríkissjón- varpið hefur tekið hestamennsk- una í fangið og gerir henni skil eins og öðrum viðburðum íþróttanna. Það er stórbrotið að sitja heima í stofu og horfa á í sjónvarpinu meistaradeildina í hestaíþróttum, hæfni hestsins og kunnáttu reið- mannanna. „Höfuðin lyftast. Hin lifandi vél/logar af fjöri undir söð- ulsins þófum.“ Maður og hestur þeir eru eitt, sagði skáldið einnig og það er stórkostlegt að sjá sam- spil knapans og hestsins. Keppnin er listræn og öguð og hver gang- tegund, vilji og prúðmennska njóta sín. Það var kraftaverk þeg- ar Hólaskóla var falið það verkefni sérstaklega að kenna hesta- mennskuna um 1990, í miklu sam- starfi við Félag tamningamanna og Búnaðarfélagið. Enn stærri skref voru svo stigin í minni tíð sem landbúnaðarráðherra þegar bæði ríkisstjórn og Alþingi náðu saman um sérstök átaksverkefni hestamennskunnar. Í dag kallast slíkur gjörningur innviðauppbygg- ing. Verkefnin skiluðu margvíslegum grunngildum svo sem knapa- merkjakerfinu, Worldfeng – upp- runaættbók íslenska hestsins, mikilli uppbyggingu á Hólum og reiðkennslu í framhaldsskólum. Og síðast en ekki síst öllum þeim reiðhöllum sem byggðar voru af hestamannafélögum í samstarfi við sveitarfélögin og öflug fyrir- tæki. Reiðhallirnar um allt land eru í dag miðstöðvar félagslífs og faglegs starfs. Hvað skyldu nú margir hrossabúgarðar starfa um allt land? Hrossabændur? At- vinnuvegur sem áður var sport skapar mikla vinnu og skilar miklu til þjóðarbúsins. Hesta- mannafélag í hverjum bæ eða sýslu. Gleðin sem fylgir þessum atvinnuvegi. Okkar er að vera feti framar en aðrar þjóðir Íslenski hesturinn er ræktaður um víða veröld. Hann er okkar og við verðum að vera forysturíkið. Hér er mekka íslenska hestsins og hingað sækja hestamenn þekkingu og frumkvæði. Mest er breytingin þó sú að konur hafa gert sig mjög gildandi í hestaíþróttum og börn byrja ung að læra reiðlistina. Hestamennskan er almenn- ingsíþrótt og þessi þúsund ára þjónn landsins kallar hingað ferðamenn í stórum stíl sem njóta þess að sjá landið okkar af hest- baki. Íslenski hesturinn er sann- kölluð þjóðareign, en munum að milljónir manna um víða veröld gera tilkall til þessarar undras- kepnu. Það sjáum við best á Heimsleikum íslenska hestsins sem haldnir eru annað hvert ár. Þjóðverjar töldu sig alveg eins geta verið upprunaland hestsins og um það var deilt, í minni ráð- herratíð. Íslandshestamenn um heim all- an hafa aðgang að öllu því besta, þ.á m. genabanka, og markaðurinn ræður hvort afburðahestur er seldur úr landi. Þannig verður það að vera í búfjárrækt. Annars væru útlendingarnir að rækta annað hrossakyn. En það er landið okk- ar, fjöllin, veðráttan, útiveran, vetrarríkið, vatnið og grasið prót- ínríka, sem gerir þessa skepnu að því sem hún verður best. Við eig- um Ísland. Ríkissjónvarpið hefur sett hestamennskuna á dagskrá, og allir sjá að þetta er ekki síðra efni en að horfa á knattspyrnu- hetjur elta bolta. Það er okkar að vera forysturíki um íslenska hest- inn um alla framtíð. Það er mikið verkefni en hestamennirnir standa undir mínum væntingum, fram- tíðin er björt. En landbúnaðurinn allur þarf nýja umgjörð. Eftir Guðna Ágústsson »Hér er mekka ís- lenska hestsins og hingað sækja hesta- menn þekkingu og frumkvæði. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Meistaradeildin í hestaíþróttum Fyrirsögn viðtals við fyrrverandi yfirlækni Leitarstöðvar Krabba- meinsfélagsins á tíma- bilinu 2013-2017 (Mbl.is 5. mars: Umræða vek- ur ótta og vantraust hjá konum) og ummæli hans um ástæður inn- grips hins opinbera í starfsemi Leitar- stöðvar Krabbameins- félagsins gefa tilefni til eftirfarandi athugasemda. Starfsreglur Yfirlæknirinn segir að áminning- arbréf Leitarstöðvar til kvenna um áður boðað eftirlit vegna forstigs- breytinga hafi ekki verið send fyrr en eftir dagsetningu boðaðs eftirlits. Athugasemd: Fyrir yfirlækna- skiptin 2013 sendi Leitarstöðin áminningarbréf bæði fyrir og eftir áður boðaða eftirlitsdagsetningu og síðan ábyrgðarbréf auk sms- skilaboða ef konan mætti ekki. Tveir sérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar unnu við eftirlitslista þessara kvenna og við að svara fyrirspurnum um nið- urstöður eða óljós einkenni frá kyn- færum og brjóstum. Starfsreglur, starfslýsingar og verklagsreglur Leitarstöðvar voru uppfærðar með reglulegu millibili. Alþjóðlegar leið- beiningar og upp- lýsingaflæði Yfirlæknirinn segir að nú sé í fyrsta sinn í áratugi farið eftir al- þjóðlegum leiðbein- ingum og fólk verði að treysta heilbrigðis- yfirvöldum. Aldrei hafi verið búið til eins gott skimunarkerfi sem sé byggt á HPV- frumskimun í stað frumustroks sem meðal annars stytt- ir eftirlitstíma eftir keiluskurði og geri flestum þessum konum kleift að fara fljótt yfir í hefðbundið boð- unarkerfi og að nýtt kerfi komi í veg fyrir ofmeðhöndlun sem sé í anda til- lagna skimunarráðs. Yfirlæknirinn segist aldrei hafa hitt Íslending á árlegum erlendum ráðstefnum um skimun og að skim- unarráð hafi auk þess ályktað í októ- ber 2020 að sérþekking á skimun sé takmörkuð á Íslandi. Það veki því furðu hans hve margir álitsgjafar finnist nú í þessum málum hér á landi. Athugasemd: Leitarstöðin hefur ætíð fylgt því eftir að skipulag leitar uppfylli alþjóðlega staðla (Cytopathology 2010;21:213-22). Starfsreglur Leitarstöðvar tóku ætíð mið af því að draga úr ofmeðhöndlun kvenna sem sjá má af árlegum fræði- legum uppgjörum og fræðigreinum (ársskýrslur Leitarstöðvar fram til 2013). Árangur leitarstarfsins og rannsóknir því tengdar voru einnig kynnt á fjölda ráðstefna bæði innan- og utanlands þar sem voru ýmsir áhugasamir Íslendingar um krabba- meinsskimun. Leitarstöðin vildi viðhalda góðu upplýsingaflæði til almennings enda ljóst að traust til leitarinnar byggist hverju sinni á þeirri upplýsingagjöf sem er í boði. Leitarstöðin hefur því ætíð talið mikilvægt að taka þátt í og hvatt til opinberrar umræðu um mál- efni leitarinnar. Er hér vísað til fjölda bæklinga og fræðirita fyrir al- menning og heilbrigðisstarfsmenn. Við yfirlæknaskipti 2013 var „HPV-frumleit“ á tilraunastigi er- lendis og þótti á þeim tíma ekki ástæða til að taka upp HPV-skimun nema í völdum tilvikum enda hafði árangur hérlendrar leitar með hefð- bundnu frumustroki vakið athygli annarra, þar á meðal alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar (IARC/WHO) og lyfjafyrirtækisins Merck sem leiddi til þátttöku Leitarstöðvar í al- þjóðlegri rannsókn á þróun HPV- bóluefnisins Gardasil (Acta Obs Gyn 2009;88:27-35). Mæting til leitar Yfirlæknirinn segir að mæting hafi farið minnkandi síðustu 30 árin þar sem leitarkerfi Leitarstöðvar hafi langt í frá verið í lagi. Af þeim sökum sé þátttaka í leghálsskoðun nú aðeins 66-67% en alþjóðleg við- miðunarmörk mætingarhlutfalls séu 70%. Athugasemd: Þriggja ára mæting til leghálskrabbameinsleitar á aldr- inum 25-69 ára var mest á tímabilinu 1988-1992 eða 82% og hélst yfir 70% fram yfir bankahrunið 2008. Þar sem millibil boðana var lengt 2014 var viðmið mætingar lengt í 3,5 ár og var það mætingarhlutfall 71% fyrir tíma- bilið 2009-2013 en dalaði síðan í 66% í lok 2017. Því er ljóst að skipulags- breytingar yfirlæknisins í ársbyrjun 2014 hafa ekki bætt mætinguna. Nýgengi og dánartíðni Yfirlæknirinn segir að nýgengi leghálskrabbameins hafi verið óbreytt síðustu 30 árin en dán- artíðnin hafi hækkað um 170% síð- ustu 10 árin og því ekki óeðlilegt að heilbrigðisyfirvöld grípi nú inn í. Athugasemd: Vegna greiningar og meðferðar sjúkdómsins á forstigi féll nýgengi leghálskrabbameins um 68% milli 1964-1968 (27,3/100.000) til 2000-2018 (8,6/100.000). Dánartíðnin féll um 88% milli 1967-1971 (9,6/ 100.00) til 2000-2013 (1,2/100.000) en hækkaði síðan aftur 2014-2018 (1,9/ 100.000) um 58%. Á stjórnunartíma yfirlæknisins hækkaði dánartíðnin þannig ómark- tækt um 58%, sem styður fyrrnefnda vísbendingu um að þær skipulags- breytingar sem hann stóð fyrir eftir 2013 hafi ekki gefið tilætlaðan árang- ur. Það er því nokkuð gróft að gefa upp 170% hlutfallslega hækkun dán- artíðni sem dæmi um ófullnægjandi stjórnun af hálfu Krabbameins- félagsins þar sem hann var sjálfur ábyrgur stjórnandi Leitarstöðvar á þessu tímabili (Læknablaðið 2020;106:216-18). Niðurstaða Ljóst er að ofanrituð ummæli yfir- læknisins um orsakir tillagna skim- unarráðs um skipulagsbreytingar á leitarstarfinu eiga ekki við rök að styðjast auk þess sem ummæli hans, sem koma fram í fyrirsögn viðtalsins, má túlka sem hvatningu til þöggunar varðandi frekari umræðu um nýleg- ar skipulagsbreytingar krabba- meinsleitar. Eftir Kristján Sigurðsson Kristján Sigurðsson Höfundur er prófessor emeritus, yfir- læknir Leitarstöðvar Krabbameins- félagsins frá 1982 til mars 2013. kiddos@simnet.is Umræða dregur úr ótta » Leitarstöðin hefur ætíð talið mikilvægt að taka þátt í og hvatt til opinberrar umræðu um málefni leitarinnar. Veðurfar Eftir nokkra bjarta daga sunnanlands létu lægðir á sér kræla í gær og í fyrrinótt með tilheyrandi úrkomu og vindi. Framundan er kólnandi veður með austan- og norðaustanáttum. Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.