Morgunblaðið - 09.03.2021, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Vinna óskast tímabundið
í 3-6 mánuði
Vinnusamur maður á besta aldri
óskar eftir starfi. Ýmislegt kemur til
greina, t.d. lagerstörf (með lyftara-
próf), útkeyrsla o.fl. Info -vinna-
vinna2021@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
Volvo XC90 T8 Hybrid. 1/2018
Ekinn 63.þ.km. 7 manna. Svart leður.
Glerþak. 20” álfelgur. Xenon ljós.
360° myndavél. O.fl., ofl.
Einn eigandi.
Evrópubíll. Verð: 8.490.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Boccia með Guðmundi kl. 10. Handavinnuhópur kl. 12-16.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Dansleikfimi Hreyfiþjálfun kl. 13:45.
Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600.
Boðinn Ganga/stafganga með leiðsögn kl. 10:00 frá anddyri Boðans.
Fuglatálgun kl. 13:00-16:00.Munið grímuskyldu og tveggja metra
regluna. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00.
Opið í miðdagskaffi kl. 14:30.
Bústaðakirkja Opið hús frá kl 13-16 á miðvikudaginn spil,
handavinna og spjall. Prestur verður með hugleiðingu og bæn 14:15
og kaffið góða frá Sigurbjörgu strax á eftir, Jónas Þórir verður við
píanóið. boðið upp á göngutúr frá safnaðarsal kl 13:00 um umhverfi
kirkjunnar. Sjáumst hress.
Dómkirkjan Bæna-og kyrrðarstund í hádeginu alla þriðjudaga í
Dómkirkjunni.
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund og fyrirbænastund kl. 12 í umsjá
Kristínar Kristjánsdóttir djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Félagsstarf eldriborgara kl. 12. Verið hjartanlega velkomin í gott og
gefandi samfélag.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8:10-16. Kaffisopinn
er góður kl. 8:10-11. Thai Chi kl. 9-10. Prjónum til góðs kl. 9-12.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 13-15:30.
Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu.
Hjá okkur er grímuskylda og vegna fjöldatakmarkanna þarf að skrá
sig fyrirfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Qi-Gong í Sjálandssk kl.
8:30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga kl. 11:00 í sal í
kjallara Vídalínskirkju. Karlaleikfimi í Ásgarði kl. 12:00. Boccia Ásgarði
kl: 12:55. Smíði Smiðja Kirkjuh. kl. 09:00 og 13:00. Vatnsleikfimi Sjál
kl. 15:15. Litlakot opið kl. 13:00 – 16:00. Munið sóttvarnir
Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8:30 –16:00, heitt á
könnunni. Gönguhópur (létt leikfimi og ganga/útivera) frá kl. 10:00.
Núvitund kl. 11 –11:30. Myndlist/listaspírur kl. 13 –16:00.
Gjábakki kl. 8.30 til 10.30 handavinnustofa opin, bókið daginn áður.
Kl. 9.45 Stólaleikfimi (fullbókað), kl. 11.30 til 12.30 Matur. Kl. 13.30 til
15.30 opið fyrir spjall, bókið daginn áður. Kl. 14.30 til 16.00 Kaffi og
meðlæti
Gullsmára Myndlist kl. 9.00 Tréútskurður kl. 13.00 Munið sóttvarnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Gönguferð - styttri ganga kl. 13:30.
Korpúlfar Listmálun með Pétri kl. 9:00 í Borgum, morgunleikfimi
útvarpsins kl. 9:45, Boccia kl 10 í Borgum og helgistund kl. 10;30 í
Borgum. Leikifmishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11:00 og spjallhópur í
Borgum kl. 13:00. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug með Brynjólfi
kl. 14:00. Lagt af stað stundvíslega kl. 13:00 frá Borgum á morgun í
Fljúga yfir Ísland, því miður uppselt, hámark 50. Grímuskylda.
Samfélagshús Vitatorgi Í dag er hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara
kl. 10:30-11:00. Bókband er á sínum stað í smiðju 1. hæðar milli
13:00-16:30. Þá hefst söngstund í matsal 2. hæðar kl. 13:30 og varir í
klukkustund. Kl. 15 hittumst við í handverksstofu og hlustum saman á
hlaðvarp og ræðum svo. Við minnum á að grímuskylda er fyrir alla í
félagsstarfinu. Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 07.10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Ganga frá
Skólabraut kl. 13.00 ef viðrar. Ath. Helgistundin á Skólabraut fellur
niður í dag. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.00. Örnámskeið / roð
og leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30 - 18.30. Vatnsleikfimi í
sundlauginni kl. 18.30. Virðum almennar sóttvarnir.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Það var skarð
höggvið í félagsskap
okkar Álseyinga síð-
astliðinn sunnudag
er vinur okkar og félagi Gunnar
Karl Haraldsson var kallaður á
brott. Það kom svo sem ekki á
óvart að kallið kæmi núna en það
er jafn sárt og erfitt að sætta sig
við að kveðja svo ungan og góðan
dreng.
Þó að lífsganga Gunnars Karls
væri ekki löng þá er óhætt að full-
yrða að fleiri og stærri hindranir
hafi orðið á vegi hans en flestra
sem mun lengra æviskeið fá.
Gunnar greindist ungur með
sjúkdóm sem setti mark sitt á allt
hans líf. Sjúkrahússdvalir og að-
gerðir sem hann þurfti að fara í
skiptu tugum en þrátt fyrir sí-
felldar brekkur á vegi lífsins var
Gunnar Karl ótrúlega jákvæður
og tókst á við öll ljónin sem á veg-
inum urðu af æðruleysi, bjart-
sýni, þrautseigju, kjarki og þori.
Gunnar Karl fæddist Álseying-
ur, þar sem Halli Steini, pabbi
hans, hefur verið Álseyingur frá
unglingsaldri. Gunnar kom ungur
í Álsey með pabba sínum en sjúk-
dómurinn sá til þess að Álseyjar-
ferðir urðu færri en hugur hans
stóð til. Gunnar lét það þó ekki
aftra sér frá því að vera fullgildur
félagsmaður í félagi okkar og
hugurinn var alltaf til staðar.
Hann fylgdist með því sem við
Gunnar Karl
Haraldsson
✝ Gunnar KarlHaraldsson
fæddist 25. septem-
ber 1994. Hann lést
28. febrúar 2021.
Útför Gunnars
Karls var gerð 6.
mars 2021.
vorum að sýsla í Áls-
ey, naut þess að fara
í bátsferðir ef færi
gafst og hann hafði
ekki misst vonina
um að komast í Áls-
ey á ný.
Hann kom með
mér í siglingu út að
Álsey á sumarkvöldi
fyrir þremur árum
og þegar við dóluð-
um á Pollinum og
horfðum upp í Eyjuna spáði hann
í hvernig hægt væri að „drösla“
honum upp eins og hann orðaði
það. Hann ætlaði að komast aftur
í Álsey.
Í fyrrasumar var hann ákveð-
inn í að fara í Álsey og sagðist
bara láta hífa sig upp á „vírnum“,
það gæti varla verið mikið mál og
ekki væri hann hræddur við það
en hann velti því líka upp hvort
það væri ekki bara fín æfing fyrir
Björgunarfélagið að koma honum
upp í Álsey og niður aftur.
Ekkert varð þó úr því, enda
ekki víst að öllum hafi litist jafn
vel á þessar hugmyndir og Gunn-
ari Karli, en sá hugur og þor sem
þarna kom fram segir mikið um
það hvernig hann tókst á við allar
þær hindranir sem urðu á vegi
hans í lífinu. Einbeittur vilji og já-
kvætt hugarfar Gunnars Karls
ætti að vera okkur öllum áminn-
ing um það hversu miklu má
áorka og hversu langt má ná með
jákvæðni og sterkum vilja.
Gunnar Karl mætti galvaskur
á Lundaböll þegar að hann fór að
hafa aldur til og naut sín vel í okk-
ar hópi á þeim skemmtunum enda
alltaf til í gleði og góðan fé-
lagsskap.
Nú er ljóst að ekki rætist
draumur Gunnars Karls um að
koma á ný í Álsey með okkur en
við Álseyingar trúum því og
treystum að vinur okkar sé nú
laus við þrautir og höft sem tor-
velduðu honum margt á lífsleið-
inni og að hann geti nú klifið
björgin og hlaupið um bringi,
bekki og fles í Álseyjum eilífðar-
innar.
Elsku vinir, Halli Steini, Stína,
Hrefna, Eyrún og aðrir ástvinir.
Um leið og við sendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur vonum
við að ljósið, vonin og æðruleysið
sem Gunnar Karl bar svo sterkt
með sér lýsi ykkur og veiti styrk á
þessum erfiðu tímum.
Minningin um okkar góða vin,
Gunnar Karl, mun lifa með okkur
um ókomna tíð.
F.h. Álseyinga,
Grímur Gíslason.
Kveðja frá
menntavísindasviði
Háskóla Íslands
Hver kennir hverjum, verður
fullkomlega afstætt þegar við
minnumst nemanda okkar og
samferðamanns, Gunnars Karls
Haraldssonar. Gunnari Karli
kynntumst við þegar hann hóf
nám í tómstunda- og félagsmála-
fræði við Háskóla Íslands.
Öllum varð ljóst að þar fór heil-
steyptur einstaklingur sem smit-
aði frá sér gleði og áhuga á öllu
sem hann tók sér fyrir hendur.
Gunnar var afar námfús og forvit-
inn um allt milli himins og jarðar
og afar virkur í öllum umræðum
og ígrundun í náminu. Hann nálg-
aðist verkefnin á lausnamiðaðan
hátt og ekkert var honum ofviða
eða óviðkomandi. Hjarta hans sló
svo sannarlega á réttum stað fyr-
ir bjartari og bættri framtíð.
Gunnar tók meðal annars virkan
þátt í stúdentapólitíkinni fyrir
Vöku og beitti sér einkum fyrir
betra aðgengi hreyfihamlaðra og
fatlaðra stúdenta skólans, auk
annarra baráttumála. Náms-
brautin naut oftar en ekki starfs-
kraftanna þar sem hann var alltaf
boðinn og búinn að leggja hönd á
plóg, hvort sem það var sjálfboða-
vinna við ráðstefnur eða kynning-
ar á náminu s.s. á Háskóladaginn
og við móttöku nýrra nemenda.
Gunnar átti við veikindi að
stríða en hann tókst á við hverja
glímuna af annarri af æðruleysi
og seiglu. Með framgöngu sinni
var hann merkisberi þeirra gilda
sem námsbraut í tómstunda- og
félagsmálafræði heldur á lofti og
jákvæður leiðtogi í hópi samnem-
enda.
Slíkur einstaklingur hefur
áhrif á allt sitt umhverfi, er fyrir-
mynd sem verður öðrum til eftir-
breytni, menntandi í öllum skiln-
ingi þess orðs. Það var Gunnar
Karl svo sannarlega og við þökk-
um auðmjúk fyrir það tækifæri að
fá að vera Gunnari samferða um
stund og njóta góðs af.
Fjölskyldu Gunnars og vinum
vottum við okkar dýpstu samúð
og minningin um mætan mann
mun lifa áfram með okkur.
Fyrir hönd Kennarar og
starfsfólk við námsbraut í tóm-
stunda- og félagsmálafræði.
Eygló Rúnarsdóttir.
Elsku Gunnar okkar, saman
sitjum við vinirnir með hjörtun í
molum og skrifum þér hinstu
kveðju. Þú varst einstakur vinur
og kenndir okkur svo ótal margt,
það einna helst að vera þakklát
fyrir fólkið í kringum okkur og
fyrir lífið sjálft. Þú varst sannur
vinur og stóðst alltaf við bakið á
öllum þeim sem þurftu á því að
halda. Við erum ævinlega þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast
þér og kallað þig vin okkar. Við
rifjum upp góða tíma og stundir
sem við áttum með þér sem hlýja
okkur um hjartarætur. Allar góðu
stundirnar á Sæmundargötunni,
spilakvöldin, óvæntu partíin á
Stúdentakjallaranum, þjóðhátíð-
argleðin, öll símtölin og samtölin
sem við áttum saman. Þessar
minningar eru dýrmætar og
munu lifa með okkur um ókomna
tíð.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við elskum þig gullið okkar.
Þínir vinir að eilífu,
Björnfríður, Flóki og
Rakel Sif.
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Mig langar að
minnst Margrétar,
hún var yndisleg
kona, hjartahlý og
glaðlynd. Henni var
margt til lista lagt, saumaði og
safnaði steinum og gerði
allskonar verur úr þeim. Ég
kynntist Margréti þegar við vor-
um að vinna hjá Zimsen í Ármúla,
við vorum þar þangað til versl-
unin hætti. Fyrst þegar ég kom
spurði Páll verslunarstjórinn mig
hvort ég hefði hjólbörupróf, ég
skildi ekki fyrst hvað hann
meinti, en þá átti maður á hverj-
um morgni að keyra hjólbörur út,
setja upp stiga og setja út vatns-
slöngur og margt fleira. Ég og
maðurinn minn kynntumst vel
Möggu og manninum hennar
Óskari, Páli og konunni hans
henni Ásu. Við hittumst oft heima
hjá hvert öðru eftir að við hætt-
Margrét Þorbjörg
Jafetsdóttir
✝ Margrét Þor-björg Jafets-
dóttir fæddist 24.
maí 1931. Hún lést
18. febrúar 2021.
Útför hennar fór
fram 4. mars 2021.
um að vinna. Óskar
og Magga áttu
sumarbústað sem
við fórum oft í, þá
var Óskar tilbúinn
að grilla handa okk-
ur eitthvað gott.
Þetta voru yndis-
legar stundir sem
við áttum saman
sem ég mun ekki
gleyma. Já, tíminn
líður hratt og margt
gott fólk horfið á braut, fólk sem
maður ekki gleymir.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir.
Því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Blessuð sé minning þín.
Geirlaug Egilsdóttir.
Þinn ævivegur endar hér,
englar himins fylgi þér
á lífsins lokaslóðir,
ljúfust tengdamóðir.
María H. Sigurjónsdóttir
(Maja).
Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
SIGURÐUR HAFSTEIN HRAFNSSON,
lést á Spáni föstudaginn 5. mars.
Andri Már Sigurðsson
Guðrún Hannesdóttir Hrafn Hafstein Sigurðsson
Kristjana Hrafnsdóttir Hannes Ottósson
Sigrún Hannesdóttir Lísa Björk Hannesdóttir