Morgunblaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.03.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2021 Fleiri hundruð íþrótta- menn á höfuðborgarsvæðinu missa æfingaaðstöðuna sína í um sex vikur í sumar á meðan Laugardalshöllin hýsir al- þjóðlegt rafíþróttamót þar sem atvinnumenn í tölvuleikjum frá öllum heimshornum keppa sín á milli. Rafíþróttum vex fiskur um hrygg með hverju árinu sem líður og alveg ljóst að þær eru komnar til að vera. Áhuginn er gríðarlegur og er búist við að milljónir manna muni horfa á beina útsendingu frá mótinu í Laugardalnum í maí. Það er auðvitað ágæt landkynning og krónur í kassann. Erfitt er þó að kenna ekki í brjósti um íþróttafólkið sem fékk auðvitað engu um þetta ráðið. Vandamálið sjálft er hins vegar ekki að íþrótta- og sýn- ingarhöllin hýsi stundum eitt- hvað annað en íþróttir, eins og nafn hennar gefur til kynna. Vandamálið er öllu heldur það aðstöðuleysi sem hefur verið viðloðandi vandamál frjálsra íþrótta hérlendis til margra ára. Og það sem verra er er áhugaleysi borgaryf- irvalda á vandamálinu. Raf- íþróttamótið, sem kannski er sjálfsagt að hýsa, er birting- armynd þessa vandamáls sem bitnar mest á afreksfólkinu okkar, sem sumt hvað ætlar sér inn á Ólympíuleika í sumar. Engin hlaupabraut á höfuð- borgarsvæðinu uppfyllir alþjóð- legar kröfur til keppnishalds og ekkert íþróttasvæði í Reykjavík uppfyllir skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til að halda frjálsíþróttamót. Frjálsíþrótta- sambandið hefur lengi kallað eftir því að Reykjavíkurborg setji fram framtíðarskipulag um íþróttirnar í borginni, en þar tróna hirðuleysingjar. BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.isHlynur Andrésson, langhlaupari frá Vestmannaeyjum, freistar þess að ná ólympíulágmarki í maraþon- hlaupi í Bern í Sviss næsta sunnu- dag. Það verður frumraun Hlyns í heilu maraþoni en hann sagði við RÚV í gær að hann væri vongóður um að ná lágmarkinu sem er tveir tímar og ellefu mínútur. Hlynur á annars öll Íslandsmetin frá 3.000 metrum upp í 21 km og takist hon- um ekki að ná lágmarki í maraþon- inu á sunnudag ætlar hann að leggja áherslu á hinar vegalengd- irnar í vor og sumar. Stefnir á ÓL í fyrstu tilraun Ljósmynd/Bjorn Parée Sviss Hlynur Andrésson keppir í Bern á sunnudaginn kemur. Meiðsli Darra Aronssonar, hand- knattleiksmanns úr Haukum, eru ekki eins alvarleg og óttast var en hann meiddist í leik gegn KA á Akureyri á dögunum. Talin var mikil hætta á að krossband í hné hefði slitnað en Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka og faðir Darra, sagði í viðtali við handbolti.is að í ít- arlegri læknisskoðun hafi kross- bandsslit verið slegið út af borðinu. Aron sagði að næstu tvær til þrjár vikur muni skera úr um framhaldið en talið sé að um geti verið að ræða skemmd í liðþófa eða brjóski. Meiðsli Darra ekki alvarleg Morgunblaðið/Eggert Meiðsli Darri Aronsson verður ekki eins lengi frá og óttast var. NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Eftir stutta hvíld frá lokum síðasta keppnistímabils voru NBA- leikmenn að nýju í baráttunni og er miðbik leiktímabilsins nú komið með hinum árlega Stjörnuleik. Forráðamenn deildarinnar skipu- lögðu aðeins deildaleiki fram að Stjörnuleiknum, enda þurfti að fresta þrjátíu leikjum það sem af er. Nú eru allir leikirnir komnir á skrá og er markmiðið að öll liðin nái að leika 72 leiki í vetur – en venjulega eru 82 leikir á lið í deildinni. Þetta verður því mikill sprettur fyrir leikmenn og þjálfara að koma öllum þessum leikjum í höfn, rétt eins og í ensku knattspyrnunni, en deildin er staðráðin í að öll liðin nái að klára dagskrána. Nú er að koma skýrari mynd á getu liðanna, en þar hefur ekki allt gengið eins og spádómar gerðu ráð fyrir í upphafi deildakeppninnar. Harden sýnir nýjar hliðar Austanmegin breyttist allt á toppnum þegar Brooklyn Nets fengu James Harden í leikmanna- skiptum frá Houston Rockets. Með það var liðið allt í einu komið með þetta firnasterka þríeyki, Harden, Kevin Durant og Kyrie Irving. Þeir hafa virst óstöðvandi í sókninni í þeim fáu leikjum þar sem þeir hafa allir getað leikið saman. Harden hef- ur reyndar gert það sem fáir áttu von á – hann gjörbreytti leik sínum og er nú ráðandi leikmaður hjá lið- inu í stoðsendingum. Hann virðist geta skorað að venju þegar hann vill, en með þá Durant og Irving atorku- sama í stigaskoruninni eru aðrir styrkleikar hans sem leikmanns að koma í ljós. Liðið hefur enn veikleika í vörn- inni og leikmenn tapa knettinum of oft, en búast má við að báðir þessir hlutir batni eftir því sem þríeykið leikur meira saman. Nets gæti kom- ið inn í úrslitakeppnina sem topplið deildarinnar. Reyndar er Philadelphia 76ers með besta árangur Austurdeildar- innar og það hefur komið mörgum á óvart. Þar hefur tvennt til komið. Jo- el Embiid er nú að leika betur en nokkru sinni fyrr. Ég hef séð hann leika hér í Staples Center og hef allt- af hugsað mér að þar fari leikmaður sem gæti tekið lið á sínar herðar. Koma þjálfarans Doc Rivers virðist hafa gert gæfumuninn fyrir Embiid, en Rivers er annálaður fyrir að ná vel til leikmanna sem þurfa smá spark í afturendann. Milwaukee Bucks, Miami Heat og Boston Celtics voru öll sein í gang, en á þeim bæjum virðast hlutirnir vera að smella saman og býst ég því við að þessi fimm lið muni á end- anum berjast um sigurinn í Austur- deildinni. Ég á erfitt með á þessum tíma- punkti að sjá Nets gefa eftir nái þríeykið á þeim bænum að forðast alvarleg meiðsl. Allt gengur út á heilsu Davis Í Vesturdeildinni eru Los Angel- es-liðin enn talin sigurstranglegust, þrátt fyrir frábæran leik Utah Jazz það sem af er. Það er ekki eins og að Jazz geti ekki komist í lokaúrslitarimmu deildarinnar í sumar, en það hefur sögulega verið erfitt fyrir lið sem voru ekki í þeirri baráttu árið áður. Ég hef trú á því að Utah muni reyndar verða í toppsætinu eftir deildakeppnina – svo vel er liðið að leika þessa dagana – en liðið gæti þurft að slá út þrjú af toppliðunum í sterkri Vesturdeildinni til að svo verði. Það er önnur saga. Lengi vel hafði ég litlar áhyggjur af Los Angeles Lakers – meist- ararnir hafa jú LeBron James inn- anborðs – en þrálát meiðsl Anthony Davis á hásin og kálfa hafa nú sett stórt spurningarmerki við mögu- leika liðsins. Þegar Davis leikur vel eru meist- ararnir óstöðvandi. Það kom vel í ljós í úrslitakeppninni í kúlinni í Or- lando í fyrra. Þessi þrálátu meiðsl hans á þessu keppnistímabili hafa hins vegar leitt til þess að hann hef- ur annaðhvort ekki leikið (spilað að- eins 23 af 37 leikjum Lakers) eða verið mjög ójafn þegar hann hefur leikið. Án toppforms frá honum á Lakers ekki möguleika á titlinum, þrátt fyrir enn eitt frábært ár hjá LeBron James. Clippers er enn að nýju eitt stórt spurningarmerki. Þegar Kawhi Leonard og Paul George eru í essinu sínu er liðið til alls líklegt, en George er allt of ójafn í leikjum til þess að hægt sé fyrir Clippers að reiða sig á hann í úrslitakeppninni – það hefur oft áður sést. Phoenix Suns, Portland Trail Blazers og Dallas Mavericks munu sjálfsagt einnig blanda sér í toppbar- áttuna, en erfitt er að sjá þessi lið komast í lokaúrslitin í gegnum Jazz, Lakers og Clippers. Næsta tímabil hefðbundnara Adam Silver, forseti NBA, hélt sinn árlega fréttafund með frétta- fólki deildarinnar fyrir Stjörnuleik- inn. Varðandi næsta keppnistímabil, sagði hann að mjög ólíklegt yrði að liðin myndu leika erlendis í sumar, bæði vegna óvissunnar með Covid- faraldurinn og hömlur á ferðalögum vegna þess, og að margir leikmenn myndu sjálfsagt leika með lands- liðum sínum á Ólympíuleikunum í Japan – fari þeir fram. „Jafnvel þótt við [BNA] sendum ekki lið, þá eru svo margir erlendir leikmenn núna að leika hjá okkur og ég veit að flest- ir þeirra munu vilja spila fyrir lands- lið sín. Varðandi næsta keppnistímabil vonaði hann að það gæti orðið „hefð- bundnara en þau tvö síðustu. „Við munum reyna okkar besta til að hefja keppnistímabilið á hefð- bundnum tíma og þá vonandi með tiltölulega fullum höllum. Hann sagði þessa ósk sína byggj- ast á því að hann væri bjartsýnni á að þetta gæti tekist en hann hafi ver- ið frá því faraldurinn skall á fyrir ári. „Við erum loks farin að sjá heilsu- gæsluyfirvöld víðs vegar opna fyrir opinbera skemmtun og fjölda- samkomur og ég vona að sú þróun haldi áfram. Ég held reyndar að hlutirnir verði enn betri þegar í úr- slitakeppnina kemur í maí. Ég held að eftir því sem fleiri verði bólusettir gegn veirunni muni það hjálpa við að koma fólki aftur á leikina hjá okkur. Hann bætti við. „Ég held að Co- vid-reglurnar sem við settum upp fyrir keppnistímabilið hafi virkað furðulega vel, þrátt fyrir fáein smit. Það hefur vissulega margt farið úr- skeiðis með faraldurinn hér í landi, en við munum leggja áherslu á að halda stíft í reglurnar hjá okkur til að geta klárað keppnistímabilið á réttum tíma.“  Stjörnuleikur NBA fór fram í fyrrinótt. Lið LeBron James vann lið Kevins Durant, 170:150, en fjallað er um leikinn á mbl.is/sport/ korfubolti. Harden breytir Brooklyn  Lið Brooklyn Nets er orðið sigurstranglegt í NBA-deildinni  Lakers á ekki möguleika nema Anthony Davis verði í lagi þegar kemur að úrslitakeppninni AFP Firnasterkir Með Kevin Durant og James Harden í lykilhlutverkum ásamt Kyrie Irving verður lið Brooklyn Nets öflugt í úrslitakeppninni í vor.  Staðan í Austurdeild NBA: Philadelphia 76ers 24/12, Brooklyn Nets 24/ 13, Milwaukee Bucks 22/14, Boston Celtics 19/17, New York Knicks 19/18, Miami Heat 18/18, Charlotte Hornets 17/18, Toronto Raptors 17/19, Chi- cago Bulls 16/18, Indiana Pacers 16/19, Atlanta Hawks 16/20, Washington Wizards 14/20, Cleveland Cavaliers 14/22, Orlando Magic 13/23, Detroit Pistons 10/26.  Staðan í Vesturdeild NBA: Utah 27/9, Phoenix 24/11, Los Angeles La- kers 24/13, Los Angeles Clippers 24/14, Portland Trail Blazers 21/14, Denver Nuggets 21/15, San Antonio Spurs 18/14, Dallas Mavericks 18/16, Golden State Warriors 19/18, Memphis Grizzlies 16/16, New Orleans Pelic- ans 15/21, Oklahoma City Thunder 15/21, Sacramento Kings 14/22, Hou- ston Rockets 11/23, Minnesota Timberwolves 7/29. Staðan í NBA-deildinni Íslenska karla- landsliðið í knatt- spyrnu á að mæta Armeníu í undan- keppni HM í Jere- van í Armeníu hinn 28. mars. Leikurinn er á áætlun en þetta staðfesti Klara Bjartmarz, fram- kvæmdastýra KSÍ, í samtali við fótbolta.net í gær. Síðasta haust var leikur U21-árs landsliðs Íslands og Armeníu í undan- keppni EM færður til Kýpur vegna stríðsástandsins sem ríkir í Armeníu. Leikurinn fór hins vegar aldrei fram vegna stríðsástandsins og voru allir leikir Armena í riðlinum þurrk- aðir út. „Eins og staðan er núna spila þeir í Armeníu og við gerum ráð fyrir að spila þar,“ sagði Klara í samtali við fótbolta.net. „Við erum meðvituð um ástandið þar og höfum leitað okkur ráðgjafar hér heima og hjá UEFA,“ bætti Klara við. Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppninni 25. mars í Duisburg, ferðast svo til Armeníu og mætir Liechtenstein í Vaduz í lokaleik sínum í landsleikjaglugg- anum. Leikurinn í Armeníu á áætlun Klara Bjartmarz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.