Morgunblaðið - 16.03.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.03.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. M A R S 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 63. tölublað . 109. árgangur . SPENNANDI RAFMAGNS- BÍLAR FLEIRI ÚTLENDINGAR FAGNAR AFMÆLINU MEÐ TÓNLEIKUM Í HEIMABÆNUM BREYTINGAR Í KÖRFUBOLTANUM 27 KRISTJANA SEXTUG 24BÍLAR 16 SÍÐUR Gleðin leyndi sér ekki þegar Langholtsskóli bar sigur úr být- um í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, sem haldin var í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Ingunnarskóli varð í öðru sæti og Hagaskóli í því þriðja. Siguratriðið, Boð- orðin 10, fjallaði um þær óskrifuðu samfélagsreglur sem ung- lingar reyna að fylgja í einu og öllu, með tilheyrandi álagi og áföllum. Úrslitakvöld keppninnar árið 2020 frestaðist þar til í gær vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Langholtsskóli er því sigurvegari Skrekks árið 2020. Morgunblaðið/Eggert Langholtsskóli sigraði í Skrekk _ Já-fólkið, stutt teiknimynd eftir leikstjórann og handritshöfund- inn Gísla Darra Halldórsson, er ein af fimm slík- um myndum sem tilnefndar eru til Óskarsverðlaun- anna í ár. „Ég er algjörlega í losti,“ sagði Gísli í gær, stuttu eftir að tilnefningarnar voru tilkynntar. „Þetta er eiginlega portrett af rútínu og öllum litbrigðum henn- ar,“ segir hann meðal annars um efni myndarinnar. »28 Teiknuð stuttmynd Gísla tilnefnd til Óskarsverðlauna Gísli Darri Halldórsson _ Sigurður Ástgeirsson, fram- kvæmdastjóri Ísorku, segir fyrir- hugaða undanþágu dótturfélaga Orkuveitu Reykjavíkur (OR) frá upplýsingalögum munu skerða samkeppnisstöðu einkafyrirtækja. „Ef þetta verður niðurstaðan munu einkafyrirtæki ekki hafa neitt tækifæri til að reyna á hátt- semi ON og kalla eftir samningum, af því að þetta er opinbert fyrir- tæki. Þetta mun hafa skaðleg áhrif á samkeppni og ég velti fyrir mér hvers vegna er verið að gera þetta,“ segir Sigurður. »12 Leyndin mun bitna á samkeppninni Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landrof vegna ágangs sjávar er far- ið að ógna byggðalínu Landsnets á Breiðamerkursandi um einn kíló- metra austan við Jökulsárlón. Frá einni staurastæðunni sem stendur nú næst hafinu eru einungis um níu metrar að brún rofbakkans. Bakkinn er 5-6 metra hár og þar fyrir framan er fjaran. Geri mikið sunnanveður er talin hætta á að sjórinn grafi undan stæðunni og þar með er raflínan úti. Sjávarrofið ógnar líka hringvegin- um en aðeins 20-30 metrar eru frá landrofinu að þjóðveginum þar sem styst er. „Þetta er orðið ískyggilegt að sjá en við erum með vikulegt eftirlit með þessu,“ sagði Nils Gústavsson, fram- kvæmdastjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs Landsnets. „Nú er svo komið, sérstaklega eftir veturinn í fyrra, að landrof er orðið hraðara en við áttum von á. Við ætlum að fara í aðgerðir í sumar eða haust og flytja 10-12 möstur norðar.“ „Við höfum verulegar áhyggjur af þessu,“ sagði G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, vegna hringvegarins austan Jökuls- árlóns á Breiðamerkursandi og sjáv- arrofsins. Hjá Vegagerðinni er til skoðunar að færa bæði hringveginn og brúna yfir Jökulsá við Jökulsárlón fjær sjónum, að sögn G. Péturs. Hann sagði að brúarsmíðin væri ekki á samgönguáætlun en engu að síður þyrfti að huga að henni. Nú er unnið að gerð skýrslu um stöðu mála á Breiðamerkursandi. Reiknað er með að hún komi út í þessum mánuði. Stutt í að hafið rjúfi Suðurlínu - Landsnet og Vegagerðin ætla að bregðast við ágangi sjávar MLandrof ógnar »10 Ljósmynd/SGS Breiðamerkursandur Hafið hefur brotið landið og er komið mjög nærri Suðurlínu. Einnig er orðið stutt frá fjörunni að hringveginum. _ Þeir sem urðu verulega veikir af Covid-19 og voru rúmliggjandi í viku eða lengur, að ekki sé talað um dvöl á sjúkrahúsi, virðast vera í aukinni hættu á að fá einkenni þunglyndis og áfallastreitu í bata- ferlinu. Unnur Anna Valdimars- dóttir, prófessor við læknadeild Há- skóla Íslands og einn aðstandenda rannsóknarinnar Líðan þjóðar á tímum Covid-19, segir að þekkt sé að fólk sem hefur fengið illvíga veirusjúkdóma fái oft sálræn ein- kenni í kjölfarið. Þessi andlegu ein- kenni séu því ekki bundin við Covid-19. Ungt fólk sem smitast en sé nánast einkennalaust eða með takmörkuð einkenni sé ólíklegt til að fá viðvarandi einkenni kvíða og þunglyndis. »14 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Takmarkanir Covid-19 breytti mörgu. Sýna einkenni þung- lyndis og streitu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.