Morgunblaðið - 16.03.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 16.03.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vel gengur að fjölga starfsfólki kísilvers PCC á Bakka við Húsa- vík á ný. Unnið er að því mark- miði að ræsa ofna versins á nýjan leik í næsta mánuði. „Enn eru margir lausir endar sem við erum að hnýta,“ segir Rúnar Sigur- pálsson forstjóri spurður nánar um tímasetningu. PCC greip til tímabundinnar stöðvunar á ljósbogaofnum kís- ilversins á síðasta ári til að gera endurbætur á reykhreinsivirki þess og var meirihluta starfsfólks sagt upp störfum. Inn í þá ákvörð- un að endurræsa ekki strax spiluðu áhrif kórónuveirufarald- ursins á heimsmarkað fyrir afurð- ir versins. Markaðsverð í rétta átt Rúnar segir að verð á heims- markaði hafi þróast ágætlega síð- ustu mánuði, það hafi verið að mjakast í rétta átt en hann vildi þó gjarnan sjá það aðeins hærra. Frá því að verksmiðjan var stöðv- uð hefur verið unnið að fjölda við- haldsverkefna. Sérstaklega hefur verið unnið í ofnum verksmiðj- unnar og hafa þeir verið endur- fóðraðir. Vonast Rúnar til að tæknin virki vel þegar verið verð- ur gangsett á ný. Á sjötta tug starfsmanna hefur unnið í kísilverinu á stöðvunartím- anum. Stefnt er að því að bæta um 70 starfsmönnum við. Á vef Framsýnar - stéttarfélags í Þing- eyjarsýslum kemur fram að hundrað manns hafi haft samband við forsvarsmenn fyrirtækisins í leit að vinnu eftir að auglýst var eftir starfsfólki. Rúnar segir að ráðningarferlið gangi ágætlega. Tekur hann fram að fyrirtækið sé að endurheimta margt af því starfsfólki sem varð að segja upp síðastliðið haust. Segir hann að helst sé skortur á iðnaðarmönnum. Telur hann að það sama eigi við mörg fyrirtæki á Norðurlandi og jafnvel landinu öllu, alls staðar vanti iðnaðar- menn. Hluti nýráðna starfsfólksins er kominn til starfa og í þjálfun eða endurþjálfun. Vel gengur að endurráða starfsfólk - Stefnt að ræsingu ofna kísilvers PCC í apríl - Fyrra starfsfólk sækir um Morgunblaðið/Hari Á Bakka Starfsemi í kísilveri PCC hefur verið í lágmarki undanfarna mán- uði en vonir standa til þess að verið komist í fullan gang á næstunni. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði til að greina raungögn um rekstur og rekstrarkostnað hjúkrun- arheimila og lengi hefur verið beðið eftir skilaði ekki skýrslu sinni á fjar- fundi sem áætlaður var með ráðherra síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt heimildum blaðsins hafði skýrslan verið send til ráðuneytisins fyrirfram en þau skilaboð bárust fyrir skila- fundinn að starfsmenn ráðuneytisins væru að skoða skýrsluna og myndu væntanlega gera athugasemdir. Flestar þær sjálfseignarstofnanir, einkafyrirtæki og sveitarfélög sem reka hjúkrunarheimili hafa undan- farna mánuði og ár kvartað mjög undan því að daggjöld hjúkrunar- heimila væru of lág, sérstaklega með tilliti til krafna sem ríkið hefur gert um þjónustu þeirra frá árinu 2016. Meðal annars hafa fjögur sveitar- félög sem reka sex hjúkrunarheimili sagt upp samningum við Sjúkra- tryggingar og er verið að fela rekst- urinn öðrum, aðallega fyrirtækjum á vegum ríkisins. Á lokametrunum Starfshópur heilbrigðisráðherra átti meðal annars að greina kostnað vegna kröfulýsingar ríkisins, greina og sundurliða raunkostnað og áhrif mismunandi hjúkrunarþyngdar og stærðar hjúkrunarheimila á rekstur. Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, er formaður starfshópsins, skipaður af heilbrigðisráðherra og með honum starfa fulltrúar ráðuneytisins, Sjúkratrygginga og samtaka hjúkr- unarheimila og sveitarfélaga. Upphaflega var lagt fyrir starfs- hópinn að skila niðurstöðum eigi síð- ar en 1. nóvember sl. en hann hefur ítrekað fengið frestun á skilum. Gylfi sagði í gær, þegar hann var inntur eftir því hvers vegna nefndin hefði ekki skilað af sér í síðustu viku eins og stefnt hafði verið að, að starfið væri á lokametrunum en taldi að starfshópurinn gæti þurft að bregð- ast við athugasemdum. Vildi hann ekki fara nánar út í það efni. Gylfi sagðist ekki geta sagt til um hvenær hægt yrði að skila skýrslunni en taldi að ekki myndi líða langur tími þangað til það tækist. Ráðuneytið boðaði at- hugasemdir við skýrslu - Skil á skýrslu um rekstur hjúkrunarheimila frestast enn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ísafold Hjúkrunarheimilið sem Hrafnista rekur í Garðabæ er eitt af nýjustu og bestu heimilum landsins en reksturinn stendur illa undir sér. Mat fjármálaráðuneytisins á forsend- um þeirrar ákvörðunar Íslandspósts að lækka verð pakkasendinga um allt land niður í verð á höfuðborgar- svæðisins halda ekki vatni. Þetta er mat Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnu- rekenda (FA). Tilefnið er viðtal við Birgi Jónsson, fv. forstjóra Póstsins, í Morgunblaðinu sl. laugardag. Haft var eftir Birgi að stjórn- málamenn hefðu tekið þá ákvörðun að niðurgreiða verð pakkasend- inga. Máli sínu til stuðnings vísaði Birgir í minnis- blað ráðuneytis- ins til fjárlaganefndar í desember 2019. Í umræddu minnisblaði var vísað til afnáms á einkarétti á bréfum upp að 50 g í ársbyrjun 2020. Ólögmætar niðurgreiðslur Samhliða var tekið upp sama verð á pakkasendingum innanlands upp að 10 kg en gjaldsvæðin voru áður fjög- ur. Leiddi það til verðlækkana en SVÞ og FA telja þetta hafa leitt til ólögmætra niðurgreiðslna. Í minnisblaðinu er verðlækkunin skýrð svo: „Í nýlegum lögum um inn- leiðingu 3. tilskipunar Evrópusam- bandsins var sett ákvæði um sama verð um allt land á pökkum, en í fyrri lögum gilti þetta ákvæði eingöngu um bréf. Þar sem einkaleyfið hefur verið afnumið mun þetta hafa þau áhrif að verð á höfuðborgarsvæðinu, þar sem samkeppni verður mest, mun ráða verði um allt land, óháð kostnaði Ís- landspósts við dreifingu á hinum ýmsu stöðum.“ Færir ekki fram nein rök Ólafur segir þessa túlkun ganga gegn skýrum ákvæðum póstlaga. „Eitt verð á pakkasendingum um allt land hefur ekkert að gera með einkaleyfi Íslandspósts, sem náði að- eins til bréfa. Þetta eru óskyld mál. Í öðru lagi verður ekki séð að ráðu- neytið færi fram nein rök fyrir að ákvæðið um eitt verð um allt land trompi lagaákvæðið um raunkostnað. Túlkun ráðuneytisins er því órök- studd og ótæk niðurstaða og gengur gegn skýru ákvæði póstlaganna um að verðskrár fyrir alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði, að viðbætt- um hæfilegum hagnaði. Það er alvar- legt mál að fjármálaráðuneytið leggi þannig blessun sína yfir ólögmæta undirverðlagningu, sem grefur und- an rekstri vörudreifingarfyrirtækja um allt land.“ baldura@mbl.is Skýringarnar halda ekki vatni - FA gagnrýnir minnisblað ráðuneytis Ólafur Stephensen „Þetta er óskap- lega gaman og eiginlega ekki annað hægt að segja en að þessi athygli sem við höfum fengið út á þetta lag og þessa mynd sé enn að gefa og sé auð- vitað til fram- tíðar litið frábært tækifæri fyrir okkur,“ segir Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norður- þings. Húsvíkingar eru nú komnir enn nær draumnum um að fá Óskarsverðlaun en lagið Húsavík úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga er tilnefnt til verðlaunanna í flokki laga úr kvikmynd. Til- nefningar til verðlaunanna voru opinberaðar í gær en verð- launahátíðin fer fram hinn 25. apríl næstkomandi. sonja@mbl.is Húsvíkingar gera sér vonir um Óskar Kristján Þór Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.