Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 8

Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Það virtist verða okkur hagstættað Bretar og Bandaríkin hafa staðið sig öðrum betur í bólusetn- ingum, sem er rós í hnappagöt þeirra Borisar Johnsons og Trumps. - - - Bólusetningin er eina þekkta að-gerð þjóðar sem heldur. - - - En þá kemurbabb í bát. - - - Páll Vilhjálmssonskrifar: - - - Æ betur kemur í ljós hve mis-ráðið það er að Íslendingar láti Evrópusambandið um að ákveða hvernig samskiptum okkar við út- lönd skuli háttað. - - - Vegna samstarfsins, sem kennt ervið Schengen og EES, eru Bretar útilokaðir frá Íslandi. - - - Tylliástæðan er Kínaveiran. - - - En tilfellið er að Bretar standamun betur að vígi í farsóttinni en Evrópusambandið. - - - Bretar standa utan Schengen ogEES en Ísland er lokað og læst þar inni. - - - Valdhöfum í Brussel dettur ekki íhug að líta til íslenskra hags- muna þegar málefni ytri landamæra ESB eru ákveðin. - - - Skýtur skökku við að íslenskstjórnvöld láti yfir sig ganga dynti embættismanna í Brussel fremur en að starfa í þágu lands og þjóðar.“ Páll Vilhjálmsson Teika ESB til bölvunar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Stefán Þorleifsson, fyrrverandi íþrótta- kennari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungs- sjúkrahússins í Nes- kaupstað, lést 14. mars sl. á 105. aldursári. Hann var elstur ís- lenskra karlmanna. Stefán fæddist í Naustahvammi á Norðfirði 18. ágúst 1916. Hann var fjórði í röð fjórtán barna Mar- íu Aradóttur húsfreyju og Þorleifs Ásmunds- sonar útvegsbónda. Stefán lauk íþróttakennaraprófi frá Laugarvatni árið 1940 og hóf strax að námi loknu að þjálfa og kenna íþróttir í heimabyggð, knatt- leiki, frjálsar íþróttir og skíði. Stefán var drifkraftur í fjölmörg- um framfaramálum í Neskaupstað m.a. byggingu sundlaugarinnar sem hann síðan veitti forstöðu til margra ára. Á 100 ára afmæli Stef- áns var sundlaugin nefnd Stefáns- laug honum til heiðurs. Á 100 ára afmælisdaginn ók Stefán einnig í gegnum ný Norðfjarðargöng, sem ekki höfðu enn verið tekin í gagnið, og rúmu ári síðar tók hann þátt í að opna göngin formlega. Eftir að Stefán lét af störfum sem forstöðumaður sundlaugarinnar kenndi hann leikfimi eldri borgara hjá fé- lagi eldri borgara á Norðfirði til 92 ára aldurs. Stefán var varafor- maður byggingar- nefndar Fjórðungs- sjúkrahússins í Neskaupstað. Árið 1956 var hann ráðinn framkvæmdastjóri sjúkrahússins og ráðs- maður þess og gegndi því starfi í 30 ár eða til 70 ára aldurs. Hann skrifaði bókina Heilbrigðisþjónusta á Norð- firði 1913-1990 sem gefin var út ár- ið 1993. Stefán var virkur í félagsstörf- um, í íþróttafélaginu Þrótti, í Leik- félagi Norðfjarðar, í rótarýklúbbi Norðfjarðar, í Golfklúbbi Norð- fjarðar, í félagi eldri borgara Nes- kaupstaðar. Stefán hlaut fjölda við- urkenninga fyrir störf sín að íþrótta- og félagsmálum og var m.a. sæmdur fálkaorðunni árið 1983. Stefán kvæntist Guðrúnu Sigur- jónsdóttur árið 1945 (f. 1925, d. 2013) og eignuðust þau fjögur börn. Útför Stefáns verður auglýst síð- ar. Andlát Stefán Þorleifsson Undirrituð hefur verið yfirlýsing um samræmd vinnubrögð starfsmanna Vestmannaeyjabæjar og lögreglu og sýslumanns þar gagnvart málefnum barna en áhersla var lögð á vernd barna sem búið hafa við ofbeldi á heimili. Yfirlýsing þessi er afurð til- raunaverkefnis eftir að aðgerðahópur um aðgerðir gegn ofbeldi hafði til- nefnt verkefnið. Sl. haust var vinnustofa í Vest- mannaeyjum með fagfólki barna- verndar, félagsþjónustu, fulltrúa sýslumanna og lögreglu alls staðar að af landinu. Í kjölfarið vann aðgerða- hópurinn í Eyjum úr niðurstöðunum sem snerust um hvernig þessar stofn- anir gætu unnið betur saman. Fjölmargir þættir eru innleiddir með verkefninu svo sem skilvirkari upplýsingamiðlun, fræðslumál, bætt þjónusta fyrir útlendinga og verk- efnin Samfélagslöggan, aðstoð fyrir gerendur og Samvinna eftir skilnað. Hliðarafurð tilraunaverkefnisins er verklagsreglur sem öll skólastig í Eyjum hafa sett um tilkynningar um grun um ofbeldi. „Fiskvinnslur í Vestmannaeyjum brugðust við beiðni um að nálgast fólk af erlendum uppruna með upp- lýsingar um hvernig bregðast skuli við grun um að barn búi við ofbeldi. Sjávarútvegsfyrirtækin eru vinnu- staðir fjölda fólks af erlendum upp- runa en því ekki ljóst hvert skuli leita við þessar aðstæður eða hvaða úrræði eru í boði,“ segir Arndís Soffía Sig- urðardóttir, sýslumaður í Vest- mannaeyjum, sem stýrði verkefninu og vinnunni allri. „Heimilisofbeldi og ofbeldi gagn- vart börnum er mein og mikilvægt að kerfi sem er ætlað að þjónusta þann hóp séu skilvirk. Við þurfum að geta beitt snemmtækri íhlutun í líf barna sem búið hafa við ofbeldi,“ segir Arn- dís Soffía. sbs@mbl.is Í samstarf gegn heimilisofbeldi - Verja börnin - Íhlutun í Eyjum - Stofnanir, skólar og fiskvinnslan saman

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.