Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 11

Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. mars 2021, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2021 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2021, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna- gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. mars 2021 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Yfirskattanefnd féllst ekki á að tannsmíðastofa ætti rétt á lokunar- styrk, eins og tannlæknastofur, vegna þess að starfsemin hafi ekki verið bönnuð vegna smithættu. Fram kom í málinu að verkefnin hurfu með lokun tannlæknastofa. Hins vegar sneri yfirskattanefnd við úrskurði ríkisskattstjóra sem hafði hafnað umsókn veitinga- og skemmtistaðar um lokunarstyrk. Ríkisskattstjóri hafnaði umsókn tannsmíðastofu um lokunarstyrk og kærði stofan til yfirskattanefndar. Fram kom í málinu að tannsmið- urinn hefur starfsstöð á tann- læknastofu og hurfu verkefni hans þegar tannlæknastofunni var gert að hætta að taka á móti viðskipta- vinum. Í úrskurði yfirskattanefndar er ekki fallist á að starfsemi tannsmiða verði lögð að jöfnu við þjónustu tannlækna með tilliti til smithættu. Á það er bent að samkvæmt lögum sé það afdráttarlaust skilyrði fyrir greiðslu lokunarstyrks að viðkom- andi hafi verið gert að loka eða láta af starfsemi. Ríkisskattstjóri hafði hafnað um- sókn veitinga- og skemmtistaðar um lokunarstyrk vorið 2020 á þeim for- sendum að þar færi fyrst og fremst fram veitingasala og útleiga veislu- sala og ekki hafi verið skylt að láta af starfseminni. Hægt hefði verið að aðlaga hana hertum sóttvörnum og hafa áfram opið. Rangt mat á starfsemi Kærandi sagði mat ríkisskatt- stjóra á starfseminni rangt. Í starf- semi hans fælist fyrst og fremst skemmtanahald fyrir fyrirtæki, fé- lög og einstaklinga. Húsnæðið sé sérhannað til þess. Á lokunartím- anum hafi öllum árshátíðum og öðr- um viðburðum verið aflýst og tekju- tap eigandans orðið 120-130 milljónir kr. Yfirskattanefnd féllst á það að starfsemin væri blönduð starfsemi veitinga- og skemmtistaðar. Þótti nefndinni ekki skipta öllu máli þótt umfang skemmtanahalds á ein- stökum viðburðum á staðnum hljóti að ráðast af óskum viðskiptavina hverju sinni. Niðurstaðan var að fall- ast á kröfu skemmtistaðarins um lokunarstyrk enda það ekki talið girða fyrir rétt til lokunarstyrks þótt veitingar kynnu að vera fyrirferðar- meiri í starfsemi félagsins en skemmtanahald. helgi@mbl.is Veitingastaður fær lokunarstyrk - Tannsmíðastofa situr uppi með tjón Morgunblaðið/sisi Skatturinn Minni rekstraraðilar hafa getað sótt um lokunarstyrki. BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Enn er ekki komið á hreint hvenær grásleppusjómenn geta hafið veiðar og eru margir þeirra orðnir óþreyjufullir enda hefur grásleppu- vertíðin farið af stað um þessar mundir undan- farin ár. Morgun- blaðinu er kunn- ugt um að sumir hafi jafnvel látið af öðrum störfum í sjávarútvegi og ráðið fólk í vinnu með væntingu um að veiðar hefjist á næstu dögum. Pétur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sól- rúnar ehf. á Árskógssandi í Eyja- firði, segir aðstæður nú slíkar að bú- ast megi við mikilli sókn í grásleppuna á vertíðinni þrátt fyrir að aðstæður ættu að vera til þess fallnar að draga úr áhuga manna á veiðunum. Í skriflegu svari við fyrirspurn blaðamanns segir atvinnuráðuneyt- ið að gert sé ráð fyrir að reglugerð um grásleppuveiðar ársins sé vænt- anleg í þessari viku, en ekki fæst upplýst hvenær megi vænta þess að grásleppusjómenn geti hafið veiðar. Vilja hefja veiðar seint Landssamband smábátaeigenda (LS) leggur fyrir sitt leyti til að grá- sleppuvertíðin að þessu sinni hefjist óvenju seint, 3. apríl. Í rökstuðningi fyrir þessari afstöðu, sem birtur hefur verið á vef LS, vísar sam- bandið til þess að Hafrannsókna- stofnun muni ekki tilkynna ráðgjöf sína fyrr en 31. mars sem gerir það erfitt að ákveða fjölda sóknardaga fyrir þann tíma. Auk þess er bent á yfirlýsingu sem Vignir á Akranesi hefur sent frá sér, en fyrirtækið er stærsti kaupandi grásleppuhrogna. Þar kveðst fyrirtækið ekki taka við grásleppu frá og með 31. mars til og með 5. apríl. Gríðarleg óánægja var með til- högun veiðanna í fyrra en veðurfar varð til þess að sumir gátu veitt mikið en aðrir lítið sem ekkert á ver- tíðinni. Þessi staða var meðal þeirra röksemda sem Kristján Þór Júl- íusson, sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra, lagði til grundvallar þegar hann ákvað að leggja fram að nýju frumvarp sitt um kvótasetn- ingu veiðanna, en miklar deilur hafa verið um slíkar hugmyndir. Virðist vera mikil gjá milli ráðherrans og formanns atvinnuveganefndar, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, í málinu og bendir flest, ef ekki allt, til þess að frumvarpið fái ekki þing- lega meðferð áður en vertíðin hefst. Hræddir vegna veiðireynslu Þessi pattstaða í kvótasetning- unni gerir það að verkum að staða grásleppuveiðanna sé mjög alvar- leg, segir Pétur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sólrúnar ehf. á Ár- skógssandi í Eyjafirði. Hann segir vertíðina hálfónýta vegna markaðs- aðstæðna og bendir á að 2019 hafi fengist um 330 krónur á kíló og um 210 krónur í fyrra. Þá telur hann lík- legt að verðið nú verði á bilinu 100 til 150 krónur á kíló. Við markaðsaðstæðurnar bætast áform ráðherrans um að koma grá- sleppuveiðunum í kvóta. „Hann hef- ur mætt töluverðri andstöðu í því en ekki gefist upp. Margir hafa þá trú að þetta fari í kvóta,“ segir Pétur og útskýrir að þess vegna séu mjög margir nú að búa sig undir vertíð þrátt fyrir lágt verð þar sem margir óttist að veiðireynslan á þessu ári verði lögð til grundvallar kvótasetn- ingu til framtíðar. „Ásóknin sem er að fara af stað er margfalt meiri en hún væri annars. Við værum alveg á báðum áttum hvort við færum ef staðan væri ekki svona. Það er að segja að ef við færum ekki á grá- sleppu í ár fengum við ekki viðmið. Þegar hann (sjávarútvegsráð- herra) setti fram kvótafrumvarpið fyrst var miðað við vertíðirnar 2012 til 2018. Þá var sagt að þetta yrði það viðmið sem yrði notað og að það myndi ekki breytast. Þetta var gert til þess að menn myndu ekki hópast af stað. Svo þegar frumvarpið kem- ur aftur núna í sumar er búið að færa þetta um eitt ár, frá 2013 til 2019. Þá sjá menn að veiðireynslan er fljótandi og á ferðinni.“ Pétur segir að undir venjulegum kringumstæðum myndu færri sækja í grásleppuveiðar þegar verð er óhagstætt og fleiri þegar verð er hagstætt. Staðan nú sé sú að margir muni stunda veiðarnar þrátt fyrir að hafa jafnvel lítið sem ekkert upp úr þeim. „Í raun ætti enginn að fara á grásleppuveiðar í ár,“ segir hann og hlær. Óvissa með kvótasetningu eykur ásókn - Mikill fjöldi grásleppusjómanna líklegur til að taka þátt í veiðum á vertíðinni þrátt fyrir lágt verð - Ráðherra vill kvóta - Óttast að missa af veiðireynslu sem verður til grundvallar grásleppukvóta Morgunblaðið/Kristján Löndun Grásleppu landað á Húsavík á vertíðinni 2020. Pétur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.